Fréttablaðið - 03.12.2004, Blaðsíða 6
6 3. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Samræmdu prófin óbreytt þrátt fyrir verkfall:
Skólamenn óttast afleiðingarnar
KENNARAVERKFALLIÐ Ósennilegt er
að grunnskólanum takist að
vinna upp átta vikna verkfall í
tíunda bekk og mörgum skóla-
mönnum þykir undarlegt að
Námsmatsstofnun skuli ekki
ætla að breyta samræmdu próf-
unum til samræmis við það.
Sölvi Sveinsson, skólameistari
Fjölbrautaskólans í Ármúla,
segir að allt að 20 prósent fram-
haldsskólanema í landinu taki
upprifjunaráfanga í stærðfræði
og dönsku á hverju hausti og sá
hluti verði sjálfsagt stærri ef
prófað verði úr óbreyttu náms-
efni í vor.
„Það er miklu betra að af-
marka aðeins þættina sem próf-
að er úr og gefa krökkunum
möguleika á að ná þessu upp í
framhaldsskólanum. Í íslensku
og dönsku mætti fækka textum
en í stærðfræði er þetta erfið-
ast. Að sama skapi er ekki hægt
að læra stærðfræði helmingi
hraðar en fyrir verkfall,“ segir
hann.
„Mig óar við því að ekki sé
hægt að finna einhverja skyn-
samlegri lausn en að prófa úr
óbreyttu námsefni þegar krakk-
arnir fá átta vikum skemmri
tíma í yfirferð. Það finnast mér
vera skrítin skilaboð.“
- ghs
Keypti tölvuleiki fyrir
hluta ránsfengsins
Jón Þorri Jónsson var, í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmdur í tveggja
ára fangelsi fyrir vopnað rán í Búnaðarbankanum á Vesturgötu. Ráns-
fenginn notaði hann til að greiða fíkniefnaskuld og kaupa tölvuleiki.
DÓMSMÁL Jón Þorri Jónsson, 22
ára, var í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær, dæmdur í tveggja ára
fangelsi fyrir vopnað rán í Búnað-
arbankanum á Vesturgötu í nóv-
ember á síðasta
ári. 26 ára sam-
verkamaður hans
var dæmdur í átta
mánaða skilorðs-
bundið fangelsi.
Skömmu fyrir
ránið stal sam-
verkamaðurinn
lambhúshettu, í
versluninni Er-
lingsen, á meðan
Jón Þorri fangaði
athygli starfs-
fólksins. Sam-
verkamaðurinn
lagði bílnum á bílastæði fyrir
utan 10-11 á Héðinsgötu þaðan
sem Jón Þorri fór til að fremja
ránið. Eftir að hafa ógnað banka-
starfsfólki með hnífi og fengið af-
hentar 430 þúsund krónur fór
hann aftur í flóttabílinn. Fóru
þeir félagar þaðan sem leið lá í
Garðabæ á heimili Jóns Þorra.
Nokkru síðar segist Jón Þorri
hafa farið til að borga ónefndum
manni 330 þúsund krónur sem
hann skuldaði vegna fíkniefna-
kaupa. Í framhaldinu fóru þeir fé-
lagar í Smáralindina og í verslun
í Skeifunni þar sem Jón Þorri
keypti sér tölvuleiki fyrir tugi
þúsunda. Var Jón Þorri rétt byrj-
aður að spila einn tölvuleikjanna
þegar lögreglan knúði dyra og
handtók hann.
Jón Þorri játaði brot sitt greið-
lega. Samverkamaðurinn viður-
kenndi að hafa ekið Jóni Þorra á
bílastæðið við verslun 10-11 og
síðan ekið honum aftur á brott
eftir ránið. Hann viðurkennir
einnig að hafa stolið lambhúshett-
unni sem Jón Þorri notaði í rán-
inu. Hann neitar hins vegar að
hafa látið Jón Þorra hafa ráns-
vopnið og segir Jón hafa tekið
hnífinn úr hanskahólfi bílsins án
sinnar vitundar.
Í dómnum segir að brot Jóns
Þorra hafi verið ákveðið fyrir-
fram og það hafi verið ósvífið.
Eingöngu hafi verið hægt að meta
honum til hagsbóta að hann hafi
játað greiðlega. Jóni Þorra var
gert að greiða Vátryggingafélagi
Íslands 396.500 krónur í skaða-
bætur en hann hafði áður sam-
þykkt kröfuna.
hrs@frettabladid.is
15. fundur:
Tónlistarfólk
í Karphúsinu
KJARAMÁL Tónlistarkennarar í
grunnskólum og tónlistarskólum
sveitarfélaganna funduðu í
fimmtánda sinn með launanefnd
sveitarfélaganna í gær.
Hægt miðar í samningaviðræð-
unum, að sögn Björns Th. Árna-
sonar, formanns Félags íslenskra
hljómlistarmanna, sem situr í
samninganefnd tónlistarkennara.
Beðið er eftir niðurstöðu kosninga
grunnskólakennara um kjara-
samning við sveitarfélögin.
Samningur tónlistarkennar-
anna hjá sveitarfélögunum rann
út 30. september síðastliðinn.
- gag
Seltjarnarnes:
Leikskóli
hugar að um-
hverfinu
UMHVERFISMÁL Umhverfisráð-
herra, Sigríður Anna Þórðardóttir,
afhenti leikskólan-
anum Mánabrekku
á Seltjarnarnesi
Grænfánann til
viðurkenningar á
öflugu starfi í
þágu umhverfis-
verndar og um-
hverfismenntunar.
Dagrún Ársæls-
dóttir leikskóla-
stjóri segir að í
stefnunni felist til dæmis að mat-
arafgangar séu flokkaðir og not-
aðir til moldargerðar, allur pappír
og mjólkurfernur séu endurunn-
in, eldhúsrúllur séu ekki notaðar
og umhverfisvænt þvottaduft fari
í þvottavél.
Mánarbakki er fjórði leikskól-
inn á landinu sem hlýtur Græn-
fánann. - gag
Reykjavík:
Hálkuslys
áberandi
SLYS Hálkuslys hafa verið áber-
andi orsakaþáttur í komum á
slysadeild Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss síðan á mánudag, að
sögn Ófeigs Þorgeirssonar, læknis
á slysa og bráðasviði sjúkrahúss-
ins. Ekki lágu þó fyrir staðfestar
tölur um fjölda fólks sem leitað
hefur á slysadeild af þeim sökum
síðustu daga. „En það hefur verið
ansi mikið um þetta. Á mánudag-
inn þegar þetta byrjaði komu ekki
færri en 30 strax um morguninn
þar sem rekja mátti meiðslin
beint til falls á ís,“ sagði hann og
tók fram að sérstaklega þyrfti
eldra fólk og fólk sem lítið væri
fyrir að ganga og hreyfa sig að
fara varlega í hálkunni. - óká
■ VEÐURFAR
,,Var Jón
Þorri rétt
byrjaður að
spila einn
tölvuleikj-
anna þegar
lögreglan
knúði dyra
og handtók
hann.
VEISTU SVARIÐ?
1Hver er framkvæmdastjóri Samtakakrabbameinssjúkra barna?
2Hvaða fuglar eru taldir breiðafuglaflensu út?
3Hver er höfundur Sólskinsfólksins?
Svörin eru á bls. 58
Heillandi fantasía
„Skemmtileg, vekjandi
og ákaflega vel samin.“
Sigrún Klara Hannesdóttir, Mbl.
„Listaverk sem er fullt af
lífi, spurningum og
skýrskotunum.“
- Elísabet Brekkan, DV30%
afsláttur
Ragnheiður Gestsdóttir
Alþjóðadagur fatlaðra:
Aðgengismál
efst á baugi
FÉLAGSMÁL Aðgengismál fatlaðra
eru efst á baugi á Alþjóðadegi
fatlaðra sem er í dag. Kjörorð
Sameinuðu þjóðanna í ár eru
„Ekki tala um okkar mál án okk-
ar.“ Vísar það til virkrar þátttöku
fatlaðra í samfélaginu. Í dag er
vert að minna fólk á hvað felist í
þeim mannréttindum að vera full-
gildur þjóðfélagsþegn.
Í tilefni Alþjóðadagsins verður
boðið upp á dagskrá milli klukkan
17 - 19 í dag. Þar verða ræddir
margir þættir aðgengismála fatl-
aðra og veittar viðurkenningar
fyrir gott aðgengi. ■
EXPO 2005:
Norrænn
sýningarskáli
HEIMSSÝNING Íslendingar munu
taka þátt í heimssýningunni
EXPO 2005 sem hefst 25 mars,
með sameiginlegri sýningu með
öðrum Norðurlöndum. Þjóðardag-
ur Íslands á sýningunni verður 15.
júlí, með sérstakri hátíðardagskrá
og gert er ráð fyrir að Halldór Ás-
grímsson forsætisráðherra muni
sækja sýninguna heim þann dag.
Í norræna skálanum verður að-
staða til að taka á móti völdum
gestum og hafa Íslendingum verið
úthlutaðir 11 dagar. - ss
HITI YFIR MEÐALLAGI Hitastig í
nóvember virðist hafa verið að-
eins fyrir ofan meðaltal fyrri ára,
samkvæmt fyrstu tölum Veður-
stofu Íslands. Trausti Jónsson
veðurfræðingur segir hita hafa
verið 1,1 gráðu á celsíus fyrir
ofan meðaltal í Reykjavík í mán-
uðinum, en 0,4 gráður á Akur-
eyri.
UPPLÝSINGATÆKNI Leitartól sem
vefleitarvélin Google býður fólki
að nota við gagnaleit á tölvum sín-
um er talin draga úr gagnaöryggi.
Hægt er að hlaða niður litlu forriti
á vef Google sem leitar að skjöl-
um á tölvum notenda og heldur
skrá yfir skjölin og innihald
þeirra á vísum stað á harða drif-
inu. Meðal skjala sem forritið
skráir eru svokallaðar „öruggar
vefsíður“ sem byrja á https, en
þær kunna meðal annars að inni-
halda upplýsingar um aðgangs-
orð, bankareikninga og greiðslu-
kortanúmer.
Á vef tímaritsins PC World í
Bandaríkjunum varar Stephen
Green, einn yfirmanna Advanced
Search Technologies Group hjá
Sun Microsystems, við notkun
leitarforritsins. „Það er bara
tímaspursmál þar til búið verður
til njósnaforrit eða tölvuormur
sem laumast í yfirlitsskrá Google
á tölvum fólks og sendir áfram á
vef einhvers staðar,“ segir hann.
Undir þetta sjónarmið taka fleiri
sérfræðingar á sviði gagnaörygg-
is, en yfirlitsskráin er ekki
dulkóðuð á nokkurn hátt. Fram
kemur í fréttinni að Google hefur
ekki svarað fyrirspurnum blaðs-
ins um málið. - óká
SÖLVI SVEINSSON SKÓLAMEISTARI
Ósennilegt er að tíunda bekk takist að
vinna upp kennaraverkfallið í stærðfræði
og dönsku en samræmdu prófunum verð-
ur samt ekki breytt. „Mig óar við því að
ekki sé hægt að finna skynsamlegri lausn,“
segir Sölvi.
LEIKSKÓLINN
MÁNABREKKA
Skólinn er sá
fjórði á landinu
sem fær Græn-
fánann.
Vinsæl leitarvél misstígur sig:
Leitartól ógnar gagnaöryggi
Á VEF GOOGLE
Á vefnum google.com er hægt að hlaða niður útgáfu forrits sem enn er í þróun (beta út-
gáfu) sem heldur yfirlit yfir skrár og gögn á tölvum notenda þannig að hægt sé að leita í
þeim á svipaðan hátt og leitað er að gögnum á netinu.
BÚNAÐARBANKINN VESTURGÖTU
Þótti dómnum ekki hægt að meta Jóni Þorra annað til hagsbóta en að hann játaði ránið
greiðlega.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
06-07 fréttir 2.12.2004 19:37 Page 2