Fréttablaðið - 03.12.2004, Síða 14
3. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Olíufélögin:
Atlantsolía undir smásjá Essó
VIÐSKIPTI Starfsmenn olíufélagsins
Essó hafa vaktað sjálfsafgreiðslu-
stöðvar Atlantsolíu í vikunni og
talið viðskiptavini félagsins. For-
svarsmenn Atlantsolíu telja að um
óeðlilega framkomu sé að ræða af
hálfu samkeppnisfyrirtækis.
Hugi Hreiðarsson, markaðs-
stjóri Atlantsolíu, segist hafa farið
fram á þær upplýsingar sem
starfsmenn Essó voru að safna en
því hafi verið synjað. „Við vitum
ekki hvort þeir voru eingöngu að
telja bíla eða hvort þeir voru líka
að rita niður bílnúmer og hugsan-
lega að skrá hjá sér þau fyrirtæki
sem eru í viðskiptum við okkur,“
segir Hugi. Hann segir að hugsan-
lega kunni þetta að vera brot á lög-
um um persónuvernd. Lögfræðing-
ur fyrirtækisins muni skoða málið.
Fulltrúi Essó segir að fyrirtæk-
ið sé að reyna að átta sig á sam-
keppninni. Eina leiðin til þess sé að
fylgjast með bensínstöðvum hinna
olíufélaganna. Viðskiptavinir á öll-
um sjálfsafgreiðslustöðvum á höf-
uðborgarsvæðinu séu taldir og
reynt að átta sig á kyni þeirra og
aldri. Hvorki séu skráðar upplýs-
ingar um bílnúmer né fyrirtækja-
bíla. - ghg
Lögbrotið liðið
Lyfjafræðingafélag Íslands sakar Landspítalann um lögbrot og hefur
leitað til dómstóla með málið, en án árangurs. Félagið krefst þess að
ráðning yfirmanns á lyfjasviði verði í samræmi við landslög.
HEILBRIGÐISMÁL Lyfjafræðingafélag
Íslands vill að Lyfjastofnun taki af
hörku á ráðningu viðskiptafræð-
ings í stöðu yfirmanns sjúkarhúsa-
apóteks á Landspítala - háskóla-
sjúkrahúsi. Hafa forsvarsmenn fé-
lagsins sent stofnuninni bréf þessa
efnis og farið fram á að hún krefj-
ist þess að ráðinn verði lyfjafræð-
ingur í starfið.
„Við gerum ráð fyrir að Lyfja-
stofnun sinni skyldum sínum,“
sagði Ingunn Björnsdóttir fram-
kvæmdastjóri Lyfjafræðinga-
félagsins. „Hún hefur sagt, að þetta
sé ekki löglegt eins og það er og við
gerum ráð fyrir að stofnunin fylgi
því þá eftir af fullri hörku og sjái
til þess að farið verði að lögum.“
Málið á sér langa forsögu, sem
rakin er í bréfi Lyfjafræðingafé-
lagsins til Lyfjastofnunar. Sviðs-
stjórastaða á lyfjasviði LSH var
„veitt viðskiptafræðingi þann 1.
apríl 2003 án auglýsingar,“ segir í
bréfinu. Í mars á þessu ári höfðaði
félagið mál gegn spítalanum til að
fá viðurkenningu á því að LSH
hefði brotið lög með því að ráða
ekki lyfjafræðing í stöðu yfir-
manns sjúkrahúsaapóteksins, „sem
LSH kaus þá að kalla lyfjasvið,“
segir í bréfinu.
Bréfaskriftir höfðu þá farið
fram milli spítalans og Lyfjafræð-
ingafélagsins. Þá hafði félagið
leitað með málið til heilbrigðis-
ráðuneytis, svo og til ríkissak-
sóknara. Því var bent á að það
væri ekki réttur aðili til að reka
mál af þessu tagi eða boðleiðir
væru ekki réttar.
Nýverið vísaði Héraðsdómur
máli félagsins frá á þeim forsend-
um að það snerist um lögspurn-
ingu. Félagið hefur bent á að hags-
munir félagsmanna, sem sótt hefðu
um stöðu yfirmanns, hefði hún ver-
ið auglýst, hefðu verið verulegir.
„Þá höfum við óneitanlega haft
verulegar áhyggjur af öryggis-
þættinum, þar sem fagmennska
þarf að vera í fyrirrúmi,“ sagði
Ingunn. „Lyfjastofnun hefur úr-
ræði til að fylgja málum af þessu
tagi eftir og við gerum ráð fyrir
að hún beiti þeim.“
Þorbjörg Kjartansdóttir, stað-
gengill yfirmanns Lyfjastofnunar,
sagði að verið væri að fara yfir
málið og ekkert yrði gefið út fyrr
en að því loknu.
jss@frettabladid.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
N
A
T
25
47
1
09
/0
4
Fyrir
okkur hin
Honey Nut Cheerios
er fyrir okkur sem
viljum morgunkorn
sem gefur náttúrulegan
sætleika og er jafnframt
fullt af hollum trefjum og
vítamínum.
– hefur þú séð DV í dag?
122 ÍSLENDINGAR
Í KLÓM NORSKA
PÍRAMÍDANS
TÖPUÐU TUGUM
MILLJÓNA
Í NORSKA
SVIKAMYLLU
TÖPUÐU TUGUM
ILLJÓNA
RSKRI
SVIKAMYLLU
EFTIRLIT MEÐ ATLANTSOLÍU
Starfsmaður Essó sem taldi viðskiptavini Atl-
antsolíu í fyrradag vildi ekki að ljósmyndari
fréttablaðsins myndaði hana við iðju sína.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
LYFJAFRÆÐINGAFÉLAGIÐ
Lárus Steinþór Guðmundsson, formaður félagsins, og Ingunn Björnsdóttir framkvæmda-
stjóri telja ráðningu LSH á yfirmanni sjúkrahúsaapóteka ólöglega.
14-15 fréttir 2.12.2004 20:50 Page 2