Fréttablaðið - 03.12.2004, Síða 28
Recitar! Mentre preso dal delirio,
non so più quel che dico,
e quel che faccio!
Eppur è d'uopo, sforzati!
Bah! sei tu forse un uom?
Tu se' Pagliaccio!
Þannig hljóða hinar átakanlegu
ljóðlínur í „Vesti la giubba“, ten-
óraríu farandleikhúsmannsins
Canio í óperunni Pagliacci eftir
Leoncavallo. Þarna þarf hann að
halda á svið sem trúðurinn Pagli-
acci og skemmta fólki þrátt fyrir
að vera átakanlega særður á
hjarta eftir að hafa uppgvötað
svik eiginkonu sinnar. Leikhúsið
krefst síns og sýningin verður að
halda áfram hvað sem það kostar.
Raunar er í allri umgjörð og inn-
haldi þessarar óperu gert út á að
afmá mörk leiksviðsins og raun-
veruleikans, og atburðir sem eiga
að gerast á sviði farandleikhúss-
ins flettast í raun inn í atburðina
sem eiga að gerast utan leikhúss-
ins. Ástir og örlög leiksviðsins
flettast saman við ástir og örlög
hins raunverulega lífs leikara
farandleikhússins.
Síðustu daga má segja að sér-
íslensk útgáfa af slíku óperu-
drama hafi verið færð upp í fjöl-
miðlum, þar sem þjóðin veit ekki
almennilega hvað er leikur og
hvað veruleiki. Hátíðartónleikar
í Hallgrímskirkju til styrktar
krabbameinssjúkum börnum
hafa verið eitt helsta umræðu-
efni og hitamál aðventunnar og þá
ekki síst hlutur hins ástsæla stór-
söngvara Kristjáns Jóhannssonar.
Engin leið er í raun að mynda sér
ígrundaða skoðun á því hver er
hetjan og hver skúrkurinn í þessu
máli öllu – til þess eru allar upp-
lýsingar allt of brota- og mót-
sagnakenndar. Það breytir þó ekki
því að leikræn tilþrif eru áber-
andi hvort heldur er í blöðunum
eða í spjallþáttum sjónvarps-
stöðvanna og maður fær á tilfinn-
inguna að hetjutenórinn Kristján
Jóhannsson upplifi sig í eins kon-
ar yfirfærðu hlutverki Canio,
mannsins sem þjóðin hefur svikið,
en þarf síðan særður að standa
áfram á sviði og tryggja að sýn-
ingin haldi áfram ótrufluð. „The
show must go on!“ – en Kristján
hefur jafnframt komið þeim skila-
boðum á framfæri að hann muni
ekki syngja á góðgerðartónleikum
af þessu tagi aftur, úr því þetta sé
þakklætið!
Ekki er gott að segja
hvaða áhrif slíkar yfirlýs-
ingar stórtenorsins munu
hafa fyrir framtíðaráform
um góðgerðartónleika
þar sem frægar
alþjóðleg-
ar stjörnur eru
fengnar til að koma
fram. Hitt gæti orðið
til bóta, ef þetta leik-
húsdrama vegna
styrktartónleikanna
yrði til þess að draga
athyglina örlítið að al-
mennri fjármögnun
fyrir ýmis samtök og
hreyfingar sem sjá
sig knúin til þess að
efna til hvers kyns aðgerða til
þess að safna fjármunum inn í
velferðarkerfið. Hið norræna
módel velferðarkerfisins sker sig
einmitt frá suðrænni kerfum
vegna þess að hér viljum við
tryggja að þessir hlutir séu í lagi
með því að greiða hærri skatta. Í
suðrænni löndum, þar sem kaþ-
ólskan er sterkari, er miklu
þyngri og sterkari áhersla á hlut-
verk stórfjölskyldunnar og
frjálsra félagasamtaka. Hin síðari
misseri hefur hins vegar borið sí-
fellt meira á hlutverki hinna
frjálsu félagasamtaka hér á landi
og safnanir og styrktaruppákom-
ur hvers konar eru að færast í
vöxt. Vissulega hafa slík góðgerð-
arfélög verið starfandi um langt
árabil í einhverjum mæli og unnið
stórkostlegt starf. Einnig má
sjálfsagt rekja aukningu í þessari
starfsemi til þess að markaðs-
hugsun og fjáröflunarfrumkvæði
er nú orðið meira en áður – líka
hjá þeim sem koma að og þurfa á
velferðarþjónustu að halda. Allt
er það vissulega gott og blessað.
En óneitanlega veldur það örlitl-
um ugg að á sama tíma og slíkt
er að gerast hefur heilbrigðis-
og velferðarþjónustan verið í
mikilli fjárþröng og því hugs-
anlegt að „suðrænar“
breytingar séu að
verða á
hinu nor-
ræna velferðar-
módeli okkar án
þess að við gerum
okkur fyllilega grein
fyrir því.
Þegar tjaldið hef-
ur fallið í sápuóperu
góðgerðartónleik-
anna í Hallgríms-
kirkju er upplagt að
nota aðventuna í að
íhuga stöðu íslenska
velferðarríkisins. ■
E nn og aftur hefur nokkuð verið rætt um um framtíðReykjavíkurflugvallar og nú í tengslum við varnarsam-starf Íslands og Bandaríkjanna. Málið kom til umræðu á
Alþingi í vikunni og sagði Mörður Árnason þá að nýjar aðstæður
hefðu skapast og réttast væri að flytja innanlandsflugið til Kefla-
víkurflugvallar. Inn í þessar umræður kemur svo svokölluð flug-
stöð á Reykjavíkurflugvelli, sem er til háborinnar skammar, eins
og Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands,
segir í viðtali við Fréttablaðið í gær. Hann segir að ekki þurfi
bara nýja flugstöð við Reykjavíkurflugvöll, heldur þurfi að at-
huga miklu betur samgöngumiðstöð í Reykjavík fyrir flug og rút-
ur. Vísir að samgöngumiðstöð er þegar fyrir hendi þar sem Um-
ferðarmiðstöðin í Vatnsmýrinni er, en það þarf að tengja hana
betur fluginu. Þessi mál komast aldrei í viðunandi horf fyrr en
reist verður ný miðstöð, og hafa menn þá nefnt svæðið austan við
Reykjavíkurflugvöll í námunda við Nauthólsvík.
Samkvæmt núverandi skipulagi verður Reykjavíkurflugvöll-
ur á sínum stað fram til ársins 2016. Framtíð hans var ákveðin í
atkvæðagreiðslu árið 2002. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrver-
andi borgarstjóri, sagði í viðtali við Fréttablaðið um síðustu helgi
að sér fyndist rétt að skoða málið nú upp á nýtt í ljósi þess að svo
geti farið að Íslendingar taki á sig meiri kostnað við rekstur
Keflavíkurflugvallar. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra seg-
ir að innanlandsfluginu sé best fyrir komið í Reykjavík, en þurfi
Íslendingar að taka á sig meiri kostnað við rekstur Keflavíkur-
flugvallar þurfi hugsanlega að stokka spilin upp á nýtt.
Frá því að greidd voru atkvæði um framtíð Reykjavíkurflug-
vallar fyrir tveimur árum er búið að tvöfalda Reykjanesbraut að
hluta og menn sjá fyrir endann á því verkefni. Þeir sem eiga leið
um brautina nú finna greinilega mikinn mun. Umferðin gengur
nú mun greiðar á kaflanum sem hefur verið tvöfaldaður og um-
ferðaröryggið hefur aukist að mun. Bættar samgöngur á milli
Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins hafa áreiðanlega sitt að
segja varðandi afstöðu fólks til framtíðar Reykjavíkurflugvallar.
Það voru aðeins Reykvíkingar sem greiddu atkvæði um fram-
tíð flugvallarins, en fólkið á landsbyggðinni sem notar hann mest
fékk ekki að láta álit sitt í ljós. Þetta var svolítið öfugsnúið að
margra mati. Það eru miklir hagsmunir í húfi fyrir landsbyggð-
ina að góðar og greiðar samgöngur séu við höfuðborg landsins og
að sem minnstur tími fari í ferðir til og frá flugvelli þegar farið
er til Reykjavíkur. Milkar endurbætur hafa verið gerðar á
Reykjavíkurflugvelli á undanförnum misserum, en nú vantar
sárlega að bæta hina svokölluðu flugstöð eða reisa nýja. Það hlýt-
ur að vera hægt að haga málum þannig að ný samgöngumiðstöð
verði reist í Reykjavík, burtséð frá því hvort innanlandsflugið
verður flutt til Keflavíkurflugvallar. Hér verður að vera ein-
hvers konar miðstöð samgangna hvort sem menn koma til höfuð-
borgarinnar í lofti eða á láði. ■
3. desember 2004 FÖSTUDAGUR
SJÓNARMIÐ
KÁRI JÓNASSON
Samkvæmt núverandi skipulagi verður Reykjavíkur-
flugvöllur á sínum stað fram til ársins 2016.
Flugvöllurinn
FRÁ DEGI TIL DAGS
Það eru miklir hagsmunir í húfi fyrir landsbyggð-
ina að góðar og greiðar samgöngur séu við höf-
uðborg landsins og að sem minnstur tími fari í ferðir til
og frá flugvelli þegar farið er til Reykjavíkur.
,,
Í DAG
KRISTJÁN OG ÍSLENSKA
VELFERÐARKERFIÐ
BIRGIR
GUÐMUNDSSON
Í suðrænni löndum,
þar sem kaþólskan
er sterkari, er miklu þyngri
og sterkari áhersla á hlut-
verk stórfjölskyldunnar og
frjálsra félagasamtaka.
,,
Jól fræðimanna
Tugir íslenskra fræðimanna eru komnir í
gott jólaskap eftir rausnarlega úthlutun
úr Kristnihátíðarsjóði á fullveldisdaginn.
Sjóðurinn, sem hefur hundrað milljónir
til ráðstöfunar frá ríkinu árlega, veitti
tæplega 52 milljónir króna til fornleifa-
rannsókna sem fram munu fara á sjö
stöðum á landinu næsta sumar. Að auki
voru veittir styrkir til rannsókna á kuml-
um og til greiningar á beinum úr grafreit
í Keldudal í Skagafirði. Til rannsókna á
trúar- og menningararfi þjóðarinnar voru
veittar rúmlega 42 milljónir króna og
skiptast þær á milli fimmtíu umsækj-
enda. Rannsóknarefni fræðimannanna
eru afar fjölbreytileg: kristin trú og
kvennahreyfingar, uppeldissýn kennara,
íslenskur söngarfur, þátttaka fólks með
þroskahömlun í trúarlífi samfélagsins,
siðanefndir starfsstétta, altarisdúkar í ís-
lenskum kirkjum, trúarviðhorf Þórbergs
Þórðarsonar, tengsl fíkna og trúarlífs og
trúarlíf í leikskólum, svo nokkuð sé
nefnt.
Bara listamenn?
Grein Súsönnu Svavarsdóttiur á Skoðun-
um á Vísi.is í gær vakti óvenjumikil við-
brögð, eins og lesa má ef farið er inn á
síðuna. Greinin fjallaði um greiðslur til
listamanna eins og Kristjáns Jóhannsson-
ar fyrir þátttöku í listviðburðum sem
haldnir eru til að safna fé til góðgerðar-
mála. Flestir sem skrifa á vefinn eru sam-
mála um að óeðlilegt sé að listamenn
noti hámarkstaxta eða heimsklassataxta
við slík tilefni. Bergþór Pálsson söngvari
er meðal þeirra sem leggja orð í belg.
Hann segir: „Það eru forréttindi að vera
aflögufær og gaman að gefa vinnuna
sína án þess að hafa af því nokkurn hag
nema ánægjuna og innri gleði, sem get-
ur sannarlega verið mikils virði. Það er
þó efni í aðra umræðu af hverju aðrar
starfsstéttir en listamenn eru aldrei
beðnar um að gefa af vinnunni
sinni. En vonandi getum
við flest séð af einhverju
og glaðst yfir því að styðja
þá sem á því þurfa að
halda sem oftast og
sem mest. Ef allir
hlutir eru á hreinu,
verður gleðin líka
fölskvalaus.“
gm@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI
RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING:
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is
SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt
að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
SKOÐANIR OG UMRÆÐUR Á VISIR.IS
Góðgerðarópera – Recitar!
28-29 Leiðari 2.12.2004 15.31 Page 2