Fréttablaðið - 03.12.2004, Blaðsíða 32
Geymslubox
Þegar þú pantar mat af veitingastöðum geymdu þá boxin sem þú færð
utan um matinn. Þau geta nýst vel fyrir afganga eða þegar þú þarft að
frysta eitthvað.[ ]
sími 568 6440
Allt í
eldhúsið
Ljúffeng máltíð með lágmarks fyrirhöfn
Balti • Korma • Sweet & Sour • Tikka Masala
Girnilegt smákökufondú
á hátíðarborðið
Nýstárlegur eftirréttur með allskonar sósum.
„Mér datt í hug að brydda upp á
nýjungum varðandi eftirrétti og
þetta var ein hugmyndin,“ segir
Ásgeir Sandholt, konditormeist-
ari, um nýjan desert, smáköku-
fondú, sem hann hefur búið til og
er til sölu í bakaríum Sandholts.
„Það er þekkt að fólk missi sig
í jólasteikina og njóti þess vegna
ekki eftirréttarins,“ segir Ásgeir
hlæjandi. „Þennan eftirrétt getur
fólk hins vegar fengið sér með
kaffinu í rólegheitum. Það mynd-
ast líka alltaf svo skemmtileg
stemming í kringum fondúréttina
og það er næstum hægt að kalla
þetta félagslegan desert.“
Eftirréttur Ásgeirs sam-
anstendur af litlum kökum sem
hann bakar sjálfur og sósu til að
dýfa kökunum í. „Þetta eru mis-
munandi kökur og nokkrar teg-
undir af sósum. Margir vilja bara
súkkulaðisósu og þá geta þeir að
sjálfsögðu fengið hana, en það er
um fleiri bragðtegundir að ræða
eins og mangósósu, engifersósu
eða tesósu. Kökurnar eru líka þan-
nig að þær gera sig ekki til fulls
fyrr en þeim er dýft í sósuna,“
segir Ásgeir. „Þá er sniðugt að
eiga jarðarber eða annars konar
ber og ávexti til að drýgja rétt-
inn.“
Eftirrétturinn er sem fyrr seg-
ir til sölu í Sandholtsbakaríi. ■
Til að slaka á í jólaösinni, eða
hefja ánægjulegt kvöld úti á líf-
inu, þá er barinn hjá Einari Ben
einn af skemmtilegri stöðum í
bænum. Flestir kannast við hann
sem Rauða barinn, en það var ein-
mitt liturinn á veggjunum um ára-
bil. Rauði Barinn hjá Einari Ben
er kjörinn fyrir þá sem vilja yfir-
vegað andrúmsloft og góða þjón-
ustu. Ekki skemmir staðsetningin
fyrir því barinn er á efstu hæð
með skemmtilegt útsýni yfir
gamla bæinn.
Vinsæll drykkur, hvort sem er í
upphafi máltíðar eða á djamminu,
er hinn klassíski Dry Martini sem
fjallað var um hér í blaðinu síð-
asta föstudag. Þeim sem þykir
þessi drykkur góður vilja ekkert
annað og eru flestir þeirra mjög
sérvitrir hvað varðar blöndun á
drykknum. Eins og segir í göml-
um og góðum brandara: Ef ég
lendi á eyðieyju vil ég aðeins hafa
flösku af Martini Extra Dry,
flösku af Beefeater gini, ólífur,
martini glas, klaka og kokteil-
hristi. Og ég þori að veðja að inn-
an við mínútu eftir að ég byrja að
blanda fyrsta drykkinn mun ein-
hver banka á öxlina á mér og
segja: Svona blandar maður ekki
Dry Martini!
En þessi drykkur fellur ekki öll-
um í geð. Og til hvers eru hinar
Martini flöskurnar? Þessi þarna
Rosso, eða Bianco og Rosé? Hvað
blandar maður úr þeim? Allur
þessi formáli hentar einkar vel
til að kynna til sögunnar nokkra
drykki sem innihalda aðrar
tegundir Martini. Og ekki er
verra að þetta eru afskaplega
góðir drykkir.
Bikini
2/10 Martini Rosé vermút
2/10 Stolichnaya vodki
6/10 Tónik
Fyllið hátt glas af klaka og
hellið drykkjunum yfir hann í
réttri röð að ofan. Skreytið með
appelsínusneið.
El Presidente
3/10 Martini Rosso vermút
7/10 Bacardi Carta Blanca romm
Fyllið kokteilhristara af klaka
og hellið drykkjunum yfir hann.
Hrærið létt og hellið svo í kokteil-
glas. Skreytið með appelsínuberki
og kirsuberi.
El Presidente er einstaklega
skemmtileg blanda og óvenjuleg
fyrir rommaðdáendur, en á það
sameiginlegt með hinum klass-
íska Dry Martini kokteil að vera
sterkur. Fyrir þá sem vilja mildari
drykk er Bikini ferskur og tónikið
gefur skemmtilega bitran keim.
En það er líka hægt að blanda sæt-
ari drykki með Martini. Hér er
einn vinsæll:
Rosso Rapture
6 cl Martini Rosso
Engiferöl
Appelsínusneið
Fyllið viskíglas með klaka, hel-
lið Martini Rosso yfir klakann og
fyllið með engiferöli. Skreytið
með appelsínusneið. ■
Staldrað við í jólaösinni
Af barnum á Einari Ben.
Fondú Ásgeirs er ljúffengt og
sómir sér vel á hátíðarmatseðlinum.
32-33 (02-03) matur ofl 2.12.2004 15.59 Page 2