Fréttablaðið - 03.12.2004, Síða 33

Fréttablaðið - 03.12.2004, Síða 33
Courvoisier koníak (framb. kúrvoasíer) er heims- þekkt fyrir sögulegt samband sitt við Napóleon I Frakklandskeisara. Sagan segir að frá árinu 1811 hafi Courvoisier séð Napóleon Bónaparte fyrir koníakinu sínu. Þessi þjóðsaga Courvoisier fékk staðfestingu árið 1869 þegar það fékk titilinn „Sérstakur birgir hirðar Napóleons III“. Þetta ein- staka koníak – hirðkoníak keisarans – er grunn- urinn að húsi Courvoisier og hefur skuggamynd af Napóleon prýtt hverja flösku til þessa dags. Courvoisier VSOP Exclusif byggir á hinni merku arfleifð Courvoiser-merkisins, en með yngri og nútímalegri tilfinningu. Það hefur blómlegan ilm með gott jafnvægi og angan af vanillu, engifer- brauði, þurrkuðum apríkósum og ljósu súkkulaði. Courvoisier VSOP Exclusif er mjög ávaxtaríkt á bragðið með löngum og þægilegum endi sem ber keim af sítrónuberki. Þetta er opið vín og ljúft. Courvoisier VSOP Exclusif er nú komið í nýj- um umbúðum og fæst einnig í 350 ml flösku í fallegum kassa. Verð í Vínbúðum: 4.490 kr. í 700 ml flösku og 2.320 kr. í 350 ml flösku. Courvoisier: Koníak keisarans Í hugum marga er Holland land túlípana, osta og tréklossa. En Holland er ekki síður þekkt fyrir bjórgerð. Bavaria premi- um er leiðandi vörumerki í Hollandi og dreifir afurðum sínum til yfir 100 landa um allan heim. Bjórverksmiðjan var stofnuð árið 1719 og hefur verið í eigu sömu fjölskyldu allar götur síð- an með mikla sögu og hefðir. Í dag framleiðir Bavaria 500 milljónir lítra ár hvert og er önnur stærsta bjórverksmiðja Hollands. Bavaria hefur verið einna þekktast fyrir ferskt bragð og mjúkan keim og er það þakkað því að fyrirtækið framleiðir sitt eigið malt til fram- leiðslunnar og notar eingöngu lindarvatn. Í framhaldi af góðum viðbrögðum af Bavaria Premium hefur verið ákveðið að setja inn í reynslusölu Bavaria Red 7,9% að styrkleika sem kemur skemmtilega á óvart. Lýsing á honum á vef ÁTVR er eftirfarandi. Roða- gullinn, bragðmikill, sætur og ávaxtaríkur, með léttri ristun og nokkurri beiskju. Bavaria Premium er áfram ódýrasti 5% bjórinn í Vínbúðum. Verð í Vínbúðum: Bavaria Premium 179 kr. og Bavaria Red 329 kr. Bavaria: Hollenskur 5% premium bjór FÖSTUDAGUR 3. desember 2004 [ GÓÐ RÁÐ ] Borðtuskur geta breyst í bakteríubombur SÓMABAKKAR Nánari uppl‡singar á somi.is *Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr. PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING* Ferskur aspas frá Perú Ítölsk Parmaskinka Ferskur Parmesan Yndisauki sælkeraverslun // I‹U-húsinu 2. hæ› // s. 511 8090 // www.yndisauki.is Mikilvægt er að eldhúsið sé hreint. Nú þegar nýtt líf færist í eldhúsin um allt land er ekki úr vegi að hafa eftir- farandi í huga: Mikilvægt er að þvo alltaf hendurnar áður en farið er að eiga við mat og milli þess að ólík matvæli eru með- höndluð. Nota skal hrein áhöld og þvo hnífa og skurðarbretti oft og halda eldhúsborð- inu hreinu. Borðtuska getur auðveld- lega breyst í bakteríubombu. Skiptum oft um borðtusku og notum hana aldrei á gólfið. Eldhúspappír hentar oft í stað tusku. Hitum vel og kælum hratt. Ef halda þarf mat heitum verður hann að vera vel heitur (a.m.k. 60˚C). Verði matur- inn volgur geta bakteríur fjölgað sér og valdið matarsjúkdómum. Matvæli sem á að geyma í kæli þarf að setja í kæliskáp. Hitastigið í kæli- skápnum á að vera 0-4˚C, það hindrar fjölgun baktería. Ekki láta hráan mat og tilbúinn snertast. Fuglakjöt og unnið kjöt á að gegn- steikja. Á heilum kjötstykkjum (öðrum en fuglakjöti) er mikilvægast að steik- ja yfirborðið vel, því þar eru bakterí- urnar. Við matreiðslu og upphitun á hitinn að fara í 75˚C, því þá eru sjúk- dómsvaldandi bakteríur dauðar. Bakteríur finnast allsstaðar í náttúr- unni, einnig í matvælum. Ef matur er meðhöndlaður á rangan hátt, geta bakteríur fjölgað sér og valdið matar- eitrun eða matarsýkingu. Bakteríur fjölga sér hratt við ca 8˚C til 60˚C. Sjúkdómsvaldandi bakteríur drepast ef maturinn er hitaður í 75˚C. Bjór Vín vikunnar 32-33 (02-03) matur ofl 2.12.2004 16.00 Page 3

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.