Fréttablaðið - 03.12.2004, Síða 37

Fréttablaðið - 03.12.2004, Síða 37
Mín skoðun JÓLAKÖTTURINN TEKUR TIL MJÁLMS Jólafasta? Góðir lesendur! Aðventan er líka stundum kölluð jólafasta og það finnst mér alveg magnað. Mér skilst að hún sé kölluð svo vegna þess að víða sýndi fólk mikið aðhald í neyslu matar og drykkjar á þessum árstíma og borð- aði til dæmis ekkert kjöt. Örugglega eitthvað úr kaþólskum sið. Kannski var ekkert mikið til að borða eða fólk var að spara sig fyrir jólaátið um jólahátíð. En það er sko liðin tíð. Ég sé mannfólkið nefni- lega aldrei borða meira en einmitt á jólaföstunni. Nú sem aldrei fyrr en leyfilegt að borða og borða og borða og afsökunin er alltaf sú sama, þetta er jú bara einu sinni á ári, þetta jólabrauð/kaka/ost- ur/rauðvín/konfekt er jú bara hér og nú, engin hætta á því að maður fari að borða svona á hverjum degi. En raunin er nú samt sú að það verður á hverjum degi. Ýmislegt annað fer úr skorðum á þessum árstíma en mataræði mannfólksins, svo sem viðvera á heimilinu, sameiginlegur kvöld- verður fjölskyldunnar og margt fleira. Tíminn virðist fara úr skorð- um og allt verður svo losaralegt. Til dæmis vill oft gleymast að skel- la mat í skál fyrir okkur kettina sem aldrei förum neitt. Jólafasta er ekki rétta orðið finnst mér, nema ef vera skyldi fyrir ketti og önnur heimilisdýr. Ég sting hér með upp á orðinu jólalos fyrir þetta tímabil í lífi mannfólksins. Lifið heil! ■ FÖSTUDAGUR 3. desember 2004 Hlíðasmára 11, Kópavogi sími 517 6460 www.belladonna.is Vertu þú sjálf! Vertu bella donna Nýkomin sending af peysum og bolum frá Opið mán.-föst. 11-18 • laug. 11-15 Viltu minnka sykurneysluna? Sjá á femin.is LAUGAVEGI 62 KRINGLUNNI SÍMI: 551-5444 SÍMI: 533-4555 NÁTTKJÓLADAGAR TIL SUNNUDAGS 20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM NÁTTKJÓLUM TIL SUNNUDAGS Sendum í póstkröfuMunið gjafakortin ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ TEENO AUGLÝSIR Flott föt á hressa krakka 8-14 ára TEENO Laugavegi 50 • s: 511 0909 Opið mið- föstud. frá 13-18 • laugard. frá 12-16 Piparkökur Þórönnu húsfreyju Uppskrift dagsins 250 g smjörlíki 500 g hveiti 250 g sykur 3 tsk. matarsódi 3 msk. síróp 2 tsk. kanill 1/2 tsk. pipar 2 tsk. pipar 2 tsk. negull 1 egg Öllu blandað saman og deigið hnoðað, búnar til lengjur sem settar eru í frysti. Skorið í örþunnar sneiðar með beittum hníf og kökurnar bakaðar við 200 gráður. Parið Þorbjörg Hafsteinsdóttir næringarþerapisti og Oscar Uma- hro Cadogan halda matreiðslu- námskeið í Maður lifandi dagana 6., 7., 8. og 9. desember. Nám- skeiðin heita Sætt og sykurlaust, Glútenlaus og mjólkurlaus jóla- matur og Hollur, hagnýtur og ljúf- fengur jólamatur. Þau Þorbjörg og Oscar taka á móti pöntunum í síma 692 8489 og á netfanginu glo- faxi@mac.com. ■ Hollt um jólin Námskeið um jólamatinn Á MÁNUDÖGUM Auglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is - mest lesna blað landsins - 36-37 (06-07) jólin koma 2.12.2004 15.36 Page 3

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.