Fréttablaðið - 03.12.2004, Qupperneq 48
Íslensk útflutningsfyrirtæki
þurfa að bera mikinn kostn-
að vegna hás gengis. Meiri
vaxtahækkanir ýta áfram
undir sterkt gengi og aukinn
viðskiptahalla. Þetta ójafn-
vægi getur valdið kollsteypu
þegar fram í sækir.
Gengi íslensku krónunnar hefur
styrkst verulega á síðustu miss-
erum. Gengisvísitala krónunnar
fór niður fyrir 117 stig í gær og
hefur ekki verið lægri siðan í
árslok árið 2000. Gengi krón-
unnar var gefið frjálst í mars
2001 og féll í kjölfarið.
Gott fyrir innflutning
Ef gengi krónunnar er hátt þýð-
ir það að innfluttar vörur verða
ódýrari en þær sem eru fram-
leiddar hér á landi. Af þessum
sökum lítur Seðlabankinn svo á
að sterkt gengi krónunnar sé
einhver sterkasta vörnin gegn
verðbólgu. Þannig stuðlar
hækkun vaxta í senn að því að
draga úr einu hagfræðilegu
vandamáli, verðbólgunni, en
kyndir undir annað, viðskipta-
hallann. Nú þegar almenningur
og fyrirtæki hafa fleiri lána-
möguleika en áður telja margir
að hættulegt sé að beita vaxta-
hækkunum til þess að slá á
þenslu. Upphaflega hugmyndin
er sú að dýrara fjármagn auki
sparnað en þegar fólk getur
fjármagnað neyslu á lægri vöxt-
um, og innfluttar vörur eru
ódýrar, skapast hætta á að veru-
legt ójafnvægi skapist þar sem
fjármagn til neyslu er ódýrt fyr-
ir almenning, verð á innfluttum
vörum er hátt, stýrivextir eru
háir og gengið sterkt. Ef eitt-
hvað bjátar á er hætta á veru-
legri gengislækkun sem hefði í
för með sér stóraukinn kostnað
af erlendum lánum og hækkað
verðlag á innfluttum vörum.
Erfitt fyrir útflutning
Sterkt gengi krónunnar skapar
útflutningsatvinnuvegum vanda
þar sem færri krónur fást fyrir
þær vörur sem seldar eru er-
lendis. Við þetta bætist að búist
er við áframhaldandi vaxta-
hækkunum, sem þýðir að vaxta-
munur mun aukast milli Íslands
og annarra ríkja. Þetta eykur
spurn eftir íslenskum krónum,
sem enn ýtir undir sterkt gengi
krónunnar.
Ingólfur Bender hjá grein-
ingardeild Íslandsbanka bendir
á að virkasta leiðin sem Seðla-
bankinn hafi til að hafa taum-
hald á verðbólgunni sé að
tryggja sterkt gengi krónunnar
með háum stýrivöxtum því
þannig sé haldið aftur af verð-
hækkunum á innfluttum vörum.
Skaðar fyrirtækin
„Til viðbótar við að innfluttar
vörur lækki eru áhrifin á hag-
kerfið einnig í gegnum áhrifin á
útflutningsatvinnuvegina. Það
er klippt á arðsemi þeirra og
markaðshlutdeild og auk þess er
eftirspurn flutt úr landi. Þetta
er það sem Seðlabankinn gerir.
Auðvitað væri langbest að þurfa
ekki að fara þessa leið heldur að
hið opinbera sýndi aukið aðhald.
Það sem gert er þarna er að
vandinn sem felst í viðskipta-
hallanum eykst og vandi útflutn-
ingsveganna eykst einnig.
Þannig er að vissu leyti verið að
rífa niður starfsemi þeirra,“
segir Ingólfur.
Tómarúm við lok uppsveiflu
Hann segir að þetta kunni að
valda því að við lok uppsveifl-
unnar verði til staðar tómarúm
sem gæti komið fram í auknu at-
vinnuleysi. „Það er samsetning-
in í hagstjórninni sem er röng.
Seðlabankinn ber of mikið af að-
haldinu en hið opinbera of lítið.
Þetta er það sem við höfum ver-
ið að gagnrýna og þetta er ná-
kvæmlega hið sama og gerðist í
síðustu uppsveiflu,“ segir hann.
Að mati Ingólfs varð það þá til
happs að ytri skilyrði voru já-
kvæð undir lok hagsveilfunnar
en ekkert segi að sú heppni
verði aftur til staðar.
Leiðrétting óumflýjanleg
Þór Sigfússon hjá Verslunarráði
tekur undir að sterkt gengi sé ís-
lenskum fyrirtækjum óhag-
stætt. Hann segir að viðskipta-
hallinn geti ekki gengið til
lengdar. „Leiðrétting mun þurfa
að eiga sér stað. Hvenær það
verður er ekki hægt að segja til
um,“ segir hann.
Að mati Þórs er þensla á öll-
um sviðum og segir hann það til
að mynda varhugavert hve hörð
samkeppni Íbúðalánasjóðs við
bankana sé orðin. Þar sé færi
fyrir ríkisvaldið til að draga úr
þenslu en það sé ekki nýtt.
Vaxtahækkanir hættulegar
Þorsteinn Þorgeirsson, hagfræð-
ingur Samtaka iðnaðarins, legg-
ur áherslu á þá hættu sem felst í
áframhaldandi hækkun stýri-
vaxta. Hann segir hækkun vaxta
styrkja gengið, sem valdi ennþá
auknum viðskiptahalla sem graf-
ið geti undan stöðugleikanum.
Þetta er ein mesta hættan í stöð-
unni að mati Þorsteins, þar sem
fyrirtækjum er mikilvægt að
rekstrarumhverfið sé stöðugt.
„Við höfum bent á það lengi
að hátt raungengi skapar erfitt
rekstrarumhverfi fyrir fyrir-
tækin. Það er hins vegar alltaf
bót í máli ef gengið er stöðugt.
Frekari hækkun er því ekki vel-
komin þróun frekar en mikil
lækkun. Miklar sveiflur í geng-
inu eru það sem fyrirtækin eiga
erfiðast með,“ segir hann.
Raungengið aldrei hærra
Raungengi krónunnar er nú
hærra en það hefur verið í
meira en áratug. Raungengi gef-
ur gleggri mynd af því hver
munurinn er á framleiðslu-
kostnaði innanlands og erendis.
Þessi mikla hækkun raungengis
felur í sér að hlutfallslegur
kostnaður við framleiðslu á Ís-
landi fari stöðugt vaxandi í sam-
anburði við kostnað á sam-
keppnismörkuðum. Þetta þýðir
að íslensk fyrirtæki eiga erfitt
með að standast samkeppni frá
útlöndum. ■
Fasteignabóla í uppsiglingu?
Fasteignamarkaðurinn hefur verið líflegur síðustu
mánuði og íbúðir á sölu staldra stutt við. Einkum
hefur einbýli og sérbýli hækkað í verði þar sem
ungt fólk getur nú fjármagnað kaup á mun stærri
eignum en áður. Þessi spenna hefur orðið til þess
að margir sjá sér leik á borði. Nú mun ekki vera
óalgengt að einstaklingar kaupi íbúðir eingöngu í
þeirri von að verð þeirra hækki. Dæmi eru jafnvel
um að einstaklingar kaupi margar íbúðir í nýjum
fjölbýlishúsum og fái fjármögnun til þess frá bönk-
um og verðbréfafyrirtækjum. Spákaupmennska af
þessu tagi er almennt talin auka skilvirkni á mörk-
uðum en getur þó einnig bent til þess að verðbóla
sé að myndast.
Áframhaldandi þensla
Talað er um bólur þegar eignir – hvort sem það eru
íbúðir, verðbréf eða túlipanar - hækka í verði langt
umfram það sem nokkur er tilbúinn að borga fyrir
að nota vöruna – en allir halda áfram að kaupa í
þeirri von að geta selt á hærra verði síðar. Nú telja
margir að íbúðamarkaðurinn haldi áfram að þenjast
út og er það fyrst og fremst vegna fyrirsjáanlegrar
samkeppni bankanna og Íbúðalánasjóðs.
Markaðsstjóri ekki í samkeppni
Einn af frumkvöðlunum í íbúðalánabyltingunni er
Hallur Magnússon. Hann hafði umsjón með kerfis-
breytingu sem stuðlað hefur að aukinni samkeppni
í þessum geira. Hann hefur lagt
mikla áherslu á að Íbúðalána-
sjóður sé ekki í samkeppni.
Bankamenn trúa honun tæpast
og haft er á orði að áhugavert
sé að áður hafi hann haft titilinn
sérfræðingur. Nú kallar
hann sig markaðsstjóra
og menn velta fyrir sér
hvernig standi á því að
stofnun sem ekki er í
samkeppni þurfi á
markaðsstjóra að
halda.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.457
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 180
Velta: 1.230 milljónir
+0,37%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Bandaríkjadalur fór niður fyrir
64 krónur á gengismarkaði í gær.
Þetta hefur ekki verið gerst síðan
1995.
Landsbankinn gaf í gær út
vogunarráðgjöf fyrir fyrirtæki á ís-
lenskum markaði. Greiningar-
deildin reiknar með að KB banki
hækki hraðar en markaðurinn en
önnur ýmist hægar eða verði í
svipuðum takti.
Straumur, Samherji, Marel
og Össur eru í undirvogun hjá
Landsbankanum. Greiningar-
deildin telur að ávöxtun bréfa í
þeim félögum skili minni ávöxtun
en almennt á markaði.
Ný stjórn Magasin du Nord
hittist á morgun í fyrsta sinn síðan
Íslendingar náðu undirtökum í fé-
laginu. Jón Ásgeir Jóhannesson
verður stjórnarformaður félagsins.
36 3. desember 2004 FÖSTUDAGUR
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 41,40 +1,73% ... Bakkavör
24,80 +0,40% ... Burðarás 12,30 +2,07% ... Atorka 5,60 +0,90% ... HB
Grandi 7,90 -1,25% ... Íslandsbanki 11,60 -0,43% ... KB banki 448,00
+0,34% ... Landsbankinn 12,35 - ... Marel 54,60 -4,21% ... Medcare 6,05
-0,17% ... Og fjarskipti 3,18 -5,07% ... Opin kerfi 27,50 -0,36% ... Sam-
herji 12,40 - ... Straumur 9,70 - ... Össur 87,50 -0,57%
*Tölur frá kl. 15.20 í gær. Nýjustu tölur á visir.is
Vond áhrif á samkeppnisstöðuna
Þormóður Rammi 11,11%
Burðarás 2,07%
Actavis 1,73%
Og Vodafone -5,07%
Marel -4,21%
Austurbakki -3,45%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
28. mars
2001*
28. nóv.
2004
Evra
Sterlingspund
Bandaríkjadalur
HLUTFALLSLEG ÞRÓUN HELSTU GJALDMIÐLA
29. mars
2001*
29. nóv.
2004
Gengisvísitala
ÞRÓUN GENGISVÍSITÖLU
ÞÓRLINDUR KJARTANSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
STERKT GENGI ÍSLENSKU
KRÓNUNNAR
INGÓLFUR BENDER
Forstöðumaður greiningar-
deildar Íslandsbanka segir
ytri skilyrði hafa verið góð
við lok síðustu uppsveiflu.
ÞORSTEINN
ÞORGEIRSSON
Hagfræðingur Samtaka
iðnaðarins varar við of
miklum vaxtahækkunum.
ÞÓR SIGFÚSSON
Framkvæmdastjóri Verslun-
arráðs telur að gengið
muni fyrr eða síðar gefa
eftir undan viðskiptahalla.
* gengi krónunnar var gefið frjálst 29. mars 2001
(gengið er sterkara eftir
því sem vísitalan er lægri)
48-49 (36-37) Viðskipti 2.12.2004 15.58 Page 2