Fréttablaðið - 03.12.2004, Síða 58

Fréttablaðið - 03.12.2004, Síða 58
Það er engin hætta á því að bíó- unnendur fari í jólaköttinn í ár ef miða má við framboðið af jóla- myndum í kvikmyndahúsum. Þær eru þó æði misjafnar og nokkuð ljóst að Bad Santa er til dæmis ekki hugsuð fyrir yngri áhorfend- ur og þann hóp sem hefur jóla- sveininn í hávegum. Smáfólkið er þó í góðum mál- um þar sem sýningar eru hafnar á tölvuteiknimyndinni The Polar Express en óhætt er að fullyrða að þar sé á ferðinni þvottekta jóla- mynd. The Polar Express er úr smiðju leikstjórans Robert Zem- eckis sem kann öðrum fremur að skemmta bíógestum og nægir í því sambandi að nefna Back to the Future þríleikinn hans. Þá kann Zemeckis einnig að spila með til- finningar fólks eins og sást einna best í Forrest Gump sem kom áhorfendum til að hlæja og gráta á víxl. Zemeckis er líka enginn græningi þegar kemur að tölvu- teikningum en hann blandaði sam- an teiknimyndafígúrum og leikur- um með eftirminnilegum hætti í Who Framed Roger Rabbit fyrir margt löngu. Það má segja að allir þessir kostir Zemeckis njóti sín í The Polar Express sem mun líklega koma bæði ungum sem öldnum í ekta jólaskap. Myndin segir frá dreng sem er farinn að efast um að jólasveininn sé til. Hann þarf þó ekki að velkjast lengi í vafa þar sem Norðurpólshraðlestinn vekur hann nóttina fyrir jól og flytur hann ásamt fleiri börnum til höf- uðstöðva jólasveinsins. Ferðin verður drengnum lærdómsrík og hann verður gagntekinn af hinum sanna jólaanda. Zemeckis og leikarinn Tom Hanks sem fór á kostum sem Forrest Gump á sínum tíma kunna ágætlega við að vinna saman og Hanks kemur víða við sögu í The Polar Express en hann talar fyrir aðalpersónuna, lestarstjórann sem er hinn furðulegasti gaur, en sér samt um að koma börnunum á leiðarenda og síðast en ekki síst túlkar Hanks sjálfan jólasveininn. The Polar Express er sýnd bæði með íslensku og ensku tali þannig að yngstu áhangendur jólasveinsins sem fara að huga að skónum í glugganum geta notið myndarinnar í botn. Varúð, dúkkan bítur! Saga Chuckys, morðóðu dúkkunn- ar með rauða strýið, er orðin 16 ára löng en fyrirbærið kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1988 í hryllingsmyndinni Child´s Play. Þar eignaðist hann Andy litli góðu gæja-dúkkuna Chucky sem var draumur allra krakka. Sá galli var á dúkku Andys að sál miskunnar- lauss morðingja og kukklara hafði tekið sér bólfestu í dúkkunni. Morðingjanum leiddist vistin í plastlíkamanum og reyndi því að drepa drenginn til þess að geta lagt líkama hans undir sig þannig að Andy og mamma hans máttu heyja baráttu upp á líf og dauða við mannskæða og vel vopnum búna dúkkuna. Þau höfðu sigur en ekki varan- legri en svo að Chucky reis upp aftur í Child´s Play 2 og Child´s Play 3. Hann mætti svo aftur til leiks í Bride of Chucky en þar lék Jennifer Tilly kærustu morðingj- ans sem endurholdgaðist einnig sem dúkka og það þarf ekki að taka það fram að dúkkuparið fór hamförum með búrhnífana. Fimmta myndin um Chucky, The Seed of Chucky, var frum- sýnd í gær en þar vekur Glen, munaðarlaust afkvæmi parsins, morðóða foreldra sína upp frá dauðum með skelfilegum afleið- ingum. Nýja myndin er ansi póst- módernísk þar sem Jennifer Tilly leikur sjálfa sig auk þess sem hún talar sem fyrr fyrir Tiffany, brúð- ina vondu. Þær Tiffany og Tilly hittast og þeim verður ágætlega til vina þar sem Tiffany er hæst- ánægð með að uppáhaldsleikkon- an sín skuli leika sig en það vill einmitt þannig til að tökur standa yfir á nýrri Chucky-mynd þegar Glen fer og vekur foreldra sína. Samskipi litlu brúðufjölskyldunn- ar eru þó frekar stirð þar sem Glen er besta skinn og kann illa við það þegar foreldrar hans taka upp fyrri iðju. Þá er Chucky jafn vonsvikinn með afkvæmið sem stendur engan veginn undir vænt- ingum morðóða pabbans. ■ 46 3. desember 2004 FÖSTUDAGUR Nýtt á DVD Kvikmyndin Garfield um einn ástsælasta og latasta kött menningarsögunnar er kom- in út á DVD. Tæplega 33 þúsund manns sáu myndina í bíó í haust enda á Grettir, eins og hann kallast á íslensku, traustan hóp aðdáenda á Íslandi. Myndin er leikin en sjálfur er Grettir tölvuteiknaður en Bill Murray talar fyrir hann. Stuttmyndir og ýmiss konar aukaefni fylgir myndinni á DVD-disknum. „Hi, I’m Chucky. Wanna play?“ - Morðóða dúkkan Chucky birtist fyrst á hvíta tjaldinu í Child’s Play árið 1988 en er mætt til leiks á ný. Chucky leit út fyrir að vera besta skinn en það var þó banvænt að leika við hann. FRUMSÝNDAR UM HELGINA (DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM) Norðurpólshraðlest og dúkka sem enginn vill eiga THE POLAR EXPRESS Það er að sjálfsögðu mikið ævintýri að fá að fara með lestinni til Norðurpólsins og heilsa upp á jólasveininn. Seed of Chucky imdb.com: 5,3 af 10 rottentomatoes.com: 22%= rotin metacritic.com: 44/100 entertainment weekly: C+ Raise Your Voice imdb.com: 3,2 af 10 rottentomatoes.com: 15% = rotin metacritic.com: 30/100 entertainment weekly: C- The Polar Express imdb.com: 6,8 af 10 rottentomatoes.com: 58% = rotin metacritic.com: 59/100 entertainment weekly: C+ CHUCKY Þessi mannskæða dúkka er risin upp eina ferðina enn en þarf nú að takast á við barnauppeldi á milli ofbeldisverkanna. 58-59 (46-47) Kvikmyndir 2.12.2004 19:55 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.