Fréttablaðið - 03.12.2004, Blaðsíða 59
FÖSTUDAGUR 3. desember 2004 47
Jagúar á ferð og flugi Göturnar í lífi Einars Kárasonar Matgæðingurinn Helga Braga
Hugrún og Magni í Kron Grænmetisbaka að rússneskum sið Myndbandið sem safngripur Fröken Freyja leysir vandann
Sturla
Gunnarsson
Týndi sonurinn gerir dýrustu mynd Íslands
Þau erfa
flokkana
Næsta kynslóð
stjórnmálaforingja
F24. TBL. 1. ÁRG. 2. 12. 2004
Ceres 4 pönkar Sægreifinn er ekkert slor Göturnar í lífi Dísu í World Class Birta og Andrea í júniform
Gæsabringur á Óðinsvéum Birgir Þór Bieltvedt er leiðtoginn í Magasin du Nord
F23. TBL. 1. ÁRG. 25. 11. 2004 Elma Lísa
Leiklistin
& tískan
Stéttskipt
Ísland í
uppsiglingu
Aldrei fleiri milljónamæringar
Þorsteinn
Pálsson
Ætlar ekki aftur í pólitík
Arnaldur
Indriðason
Á margt óskrifað um Erlend
Sveitarfélög
án framtíðar
Hverjir eru í innsta hring stjórnmálaforingjanna?
Hver á að leika Erlend? Göturnar í lífi Sólveigar Arnarsdóttur Sælkeramatur í Ostabúðinni
Áhrifavaldur Sölva í Quarashi Opið eða lokað eldhús? Páll Rósinkranz svarar samviskuspurningum
F21. TBL. 1. ÁRG. 11. 11. 2004
Fylgir Fréttablaðinu
alla fimmtudaga
Tíska,
stjórnmál
og allt þar
á milli...
» BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ Á MIÐVIKUDÖGUM
Kvikmyndin Veggfóður hefur
verið gefin út á DVD-diski. Um er
að ræða eina eftirminnilegustu ís-
lensku mynd seinni ára.
Í DVD-útgáfunni er m.a. að
finna 20 mínútna langa heimildar-
mynd um gerð myndarinnar, sem
kom upphaflega út árið 1992.
Veggfóður, sem er í leikstjórn
Júlíusar Kemp, fjallar um við-
burðaríka daga og nætur í lífi
tveggja vina, Lass og Sveppa.
Báðir eru þeir að gera hosur sínar
grænar fyrir sömu stúlkunni, Sól.
Með aðalhlutverk fara þau
Baltasar Kormákur, Steinn Ár-
mann Magnússon, Ingibjörg Stef-
ánsdóttir, Flosi Ólafsson, Ari
Matthíasson og Dóra Takefusa.
Veggfóður gefin út á DVD
ÚR VEGGFÓÐRI Dóra Takefusa í atriði úr kvikmyndinni Veggfóðri. Myndin kom út árið
1992 og vakti strax mikla athygli.
Morð upp á franska mátann
Sígildu svarthvítu glæpamyndirnar sem
kenndar eru við film noir eru sérstök kvik-
myndagrein. Hefðin var í mestum blóma
frá árinu 1941, þegar The Maltese Falcon
kom út, til ársins 1958 þegar Orson Welles
kom með Touch of Evil.
Skuggahliðum mannssálarinnar var gef-
inn sérstakur gaumur í noir myndunum
sem sóttu innblástur sinn að miklu leyti til
helstu rithöfunda harðsoðnu einkaspæjara-
hefðarinnar þeirra Dashiell Hammett og
Raymond Chandler auk þess sem tálkvend-
ismyndir urðu að sér undirgrein noir en í
þeim tældu fláráðar fegurðargyðjur blá-
eyga sakleysingja til illvirkja. Í þeirri
grein munaði mest um framlag rithöfund-
arins James M. Cain sem skrifaði The Post-
man Always Rings Twice og Double
Indemnity.
Þessar myndir höfðuðu sterkt til Frakka
sem gáfu þeim tegundarheitið le film noir.
Það er því vel til fundið hjá Alliance
francaise að bjóða upp á franska film noir-
hátíð þar sem hægt er að kynna sér það
helsta og ferskasta í franskri glæpamynda-
gerð síðustu tvo áratugina.
Hátíðin hófst í Háskólabíói 25. nóvem-
ber og stendur til 10. desember en á tíma-
bilinu verður boðið upp á átta athyglis-
verða krimma: L.627 eftir Bertrand
Tavernier, Lögregluvarðstjórinn Lavardin
eftir Claude Chabrol, Garde à vue ( í varð-
haldi) eftir Claude Miller, Les marchands
de sable (Svefnsandur) eftir Pierre
Salvadori, Scènes de crimes (Glæpavett-
vangur) eftir Frédéric Schoendoerffer,
Vivement Dimanche (Loksins sunnudagur)
eftir meistara François Truffaut, Le Poulpe
(Kolkrabbinn) eftir Guillaume Nicloux og
L’affaire Marcorelle (Marcorelle-málið)
eftir Serge Le Péron.
SVART Á HVÍTU Samspil ljóss og skugga gegnir veigamiklu hlutverki í sí-
gildum „film noir“-myndum. Hefðin á rætur að rekja til Bandaríkjanna en nú
gefst bíógestum kostur á að kynnast frönskum myndum um skuggahliðar
mannlífsins.
58-59 (46-47) Kvikmyndir 2.12.2004 20:45 Page 3