Fréttablaðið - 03.12.2004, Side 62

Fréttablaðið - 03.12.2004, Side 62
Ragnar Axelsson ljósmynd- ari hefur sent frá sér glæsi- lega ljósmyndabók sem hann vann að í fimmtán ár. „Andlitin koma frá þremur eyjum; Íslandi, Færeyjum og Grænlandi,“ segir ljósmyndarinn Ragnar Axels- son um nýútkomna bók sína, Andlit norðursins. Í bókinni, sem er væg- ast sagt flott, er brugðið upp mynd- um af mönnum og dýrum sem eru einkennandi fyrir karakter norð- ursins. „Mig langaði ekki bara til þess að gera bók um hausa, heldur til þess að fanga karakter hvers lands fyrir sig. Ísland, Færeyjar og Grænland eru svona eyjatríó norðursins og eiga margt sameiginlegt. Engu að síður er karakter eyjanna afar ólík- ur. Það er helst að sjá megi eitthvað líkt á milli Íslands og Færeyja. Auk þess að ná karakter eyj- anna, vildi ég ná karakter fólksins sem ég myndaði. Það er mjög mik- ilvægt að hvergi sé hægt að greina mig á myndunum. Ég á ekki að sjást. Fólkið sem ég mynda á ekki að vera meðvitað um mig, heldur að vera það sjálft. Það er fátt sem fer eins mikið í taugarnar á mér og myndir af fólki sem er skelfingu lostið yfir því að það er verið að taka af því mynd. Það gerist, til dæmis, þegar ljósmyndarinn er svo mikill töffari að það er hans karakter sem lesa má úr svipbrigð- um myndefnisins. Í bókinni var markmið mitt að segja sögu hverrar þjóðar. Það er veðrið í andlitinu, landslagið í and- litinu, eins og til dæmis myndin af veiðimanninum í Grænlandi. Þú sérð athyglina og einbeitinguna í augunum á honum.“ En það þarf ekki að leita langt til þess að sjá ætlunarverk Raxa. Strax á kápumyndinni má sjá sögu Íslands í svipbrigðum Guðjóns Þorsteinssonar bónda í Mýrdal. „Þetta eru mín málverk,“ segir Raxi. „Ég gæti ekki málað með pensli, án þess að belja liti út eins og Volkswagen, þannig að þetta er mitt tjáningarform. Ég hef alltaf haft áhuga á málverkum og mynd- irnar sýna hvernig ég hef ferðast um og hvað ég hefði upplifað ef ég hefði ferðast um eyjarnar þrjár sem farandmálari.“ Fyrsta myndin og kveikjan að bókinni er frá 1986. Síðan vann Raxi að bókinni næstu fimmtán árin og þá tók við útgáfuferli. Myndirnar eru því ekki teknar í einni lotu, heldur á mörgum ferð- um um eyjarnar þrjár. Ég hef ver- ið að stökkva í fríum til að mynda, því það er ekki hægt að gera þetta í einni lotu. Þetta hefur tekið lang- an tíma og ég get alveg lofað þér því að enginn fíllinn mundi ganga svona lengi með neitt í maganum.“ Og það er vissulega fengur í þessari bók, því heimsþekktir prentmiðlar eins og LIFE, National Geographic, Le Figaro, Stern og TIME hafa keypt myndir af Raxa frá þessum sömu slóðum. Þess er líka skemmst að minnast að Raxi hlaut heiðursviðurkenningu The Oscar Barnack Award árið 2001 og Grand Prix á Festival Photo de Mark, árið 2002 – auk þess sem hann hefur sýnt verk sín mjög víða hér heima og erlendis – og hlotið fjölda viðurkenninga í kjölfarið. sussa@frettabladid.is 50 3. desember 2004 FÖSTUDAGUR Leikhópurinn Perlan verður með jólaskemmtun í Borgarleikhúsinu á sunnudaginn 5. des. Perlan mun sýna Jólasveinana eftir Jóhannes úr Kötlum við tónlist og söng Guðna Franzsonar. Krummasaga eftir Jóhannes úr Kötlum verður einnig sýnd við tónlist Mána Svav- arssonar. Þá verður flutt jólaguð- spjallið, Sjá ég boða yður mikinn fögnuð. Leikbúninga á Perluna hannar Bryndís Hilmarsdóttir. Á milli atriða leika þær Jónína Hilm- arsdóttir g Steinunn Jónsdóttir jólalög á víólu. Kynnar á skemmt- uninni verða Harpa Arnardóttir og Kristinn Guðmundsson. Leikarar í Perlunni eru: Ásdís Gísladóttir, Birgitta Harðardóttir, Eva Peters Donaldsdóttir, Garðar Hreinsson, Gerður Jónsdóttir, Hildur Davíðsdóttir, Hreinn Haf- liðason, Ingibjörg Húmfjörð Árna- dóttir, Ragnar Ragnarsson, Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson og Sigrún Árnadóttir. Lestur og leik- stjórn: Sigríður Eyþórsdóttir Perlujól hefjast klukkan tvö. Aðeins þessi eina sýning. Miða- verð er 1.200 kr. ■ Perlujól í Borgarleikhúsinu RAGNAR AXELSSON Enginn fíllinn mundi ganga svona lengi með neitt í maganum Farandmálari með linsu Dimma ehf. hefur sent frá sér ljóð í allnýstárlegri útgáfu. Annars veg- ar Ljóð eftir Ingibjörgu Haralds- dóttur, hins vegar Ljóð eftir Gyrði Elíasson. Ljóðin eru gefin út á tónskreyttum geislaplötum með lestri skáldanna. Tómas R. Einarsson hefur samið tónlist við ljóð Ingibjargar og leik- ur á kontrabassa. Í bókinni eru val- in ljóð úr tveimur ljóðabókum Ingi- bjargar, Höfði konunnar og Hvar sem ég verð. Kristinn Árnason hef- ur samið tónlist við ljóð Gyrðis og leikur á gítar. Ljóðin eru valin úr þremur áður útkomnum ljóðabók- um Gyrðis, Indíánasumri, Hugar- fjallinu og Tvífundnalandi. ■ Föstudaginn 3. desember • Sr. Pálmi Mattíasson flytur stutta jólahugvekju veiðimanna • Veiðistaðalýsing á Gljúfurá í Borgarfirði í umsjá Stefáns Halls Jónssonar • Valli í Veiðibúðinni við Lækinn segir frá og sýnir myndir frá Rússlandsferð • Eggert Skúlason, Gunnar Helgason og Kalli Lú segja frá og sýna brot úr veiðimyndum sínum • Lárus Karl kynnir nýjan veiðidisk • Happahylurinn sívinsæli verður á sínum stað og er í boði Intersport Nýju „stelpurnar“ í skemmtinefndinni Veitingar á vægu verði og heitt á könnunni. Húsið opnar klukkan 20.00 Opið hús hjá SVFR Ljóð og tónlist á diski Lestur, tónlist og spjall Höfundar og þýðendur Sölku lesa upp úr bókum sínum í bókabúð- inni Iðu í dag á milli 11 og 12 og svo aftur á milli 15 og 18. Meðal annarra les Kristín Ómarsdóttir upp úr bók sinni Hér, Margrét Lóa Jónsdótt- ir les úr Lauf- skálafuglinum og Auður Ólafsdóttir les úr verðlaunasögu sinni Rigning í nóv- ember. Einnig verður lesið upp úr ljóðabók- um og barna- og ung- lingabókum. Gísli Rúnar Jónsson kynnir bráðsnjalla þýðingu sína á bókinni vinsælu Betur sjá hýr augu en auga. Jóhanna Þórhalls mun syngja lög af nýútkomnum geisladiski sínum, Mary Poppins spjallar við krakk- ana og Birgitta Klasen, höfundur bókarinnar Lækn- um með höndun- um, mun svara f y r i r s p u r n u m fólks varðandi heilsu og bætt líf- erni. Allar bækur Sölku verða seldar á 20% afslætti í Iðu frá og með deginum í dag og til 11. des. ■ JÓHANNA ÞÓRHALLSDÓTTIR INIBJÖRG HARALDSDÓTTIR GYRÐIR ELÍASSON Hjá Skálholtsútgáfunnieru komnar út tvær bækur sem fjalla um hlut- skipti barna við hjónaskiln- að. Önnur bókin nefnist Börn og skilnaður og er eftir Benedikt Jóhannsson sálfræðing, hin heitir Elli og skilnaðurinn og er sú bók ætluð börnum. Í Börn og skilnaður fjall- ar höfundur af nærfærni og raunsæi um það sem kann að koma upp í skilnaðarmálum. Hann hefur hag barnanna að leiðarljósi og leiðbeinir foreldrum þannig að skilnaðurinn verði létt- bærari fyrir börnin. Elli og skilnaðurinn er ætluð til að lesa fyrir börn og með börnum og ræða við þau um það sem fyrir augu og eyru ber. Sagan fjallar um Ella fíl sem er sex ára gamall þegar foreldrar hans ákveða að hætta að búa saman. NÝJAR BÆKUR FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L 62-63 (50-51) Menning 2.12.2004 19:59 Page 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.