Fréttablaðið - 03.12.2004, Síða 65

Fréttablaðið - 03.12.2004, Síða 65
53FÖSTUDAGUR 3. desember 2004 Þrjátíu frægir Íslendingar fá jóla- gjafir í ár frá nemendum á hönn- unarbraut Iðnskólans í Hafnar- firði. Jólagjafirnar verða til sýnis í Hafnarborg, menningar- og lista- stofnun Hafnarfjarðar, á veglegri sýningu sem opnuð verður í dag. „Við erum þrjátíu í hóp, þrír strákar og 27 stelpur. Við fengum ekki bara það verkefni að búa til hlut handa frægum einstakling- um, heldur hönnuðum við boðskortin og bæklingana, ákváð- um hvernig átti að skreyta salinn og bjuggum til skrautið. Við gerð- um þetta allt saman sjálf og höfum verið á fullu í rúman mán- uð,“ segir Ágústa M. Arnardóttir, ein nemendanna sem fékk þetta sérstæða verkefni. Hugmyndin að sýningunni kom frá starfsfólki Hafnarborgar, sem leitaði til Iðnskólans í Hafnarfirði þar sem þeim var vel tekið. Meðal þeirra sem fá gjafir eru forsetahjónin og Vigdís Finnboga- dóttir, Birgitta Haukdal og Jónsi í Svörtum fötum, Kári Stefánsson og Ingvar Sigurðsson, rithöfund- arnir Hallgrímur Helgason og Vigdís Grímsdóttir, Davíð Odds- son og Guðni Ágústsson, allt sam- an fólk sem hvert mannsbarn á Íslandi þekkir. Sjálf kaus Ágústa að gera for- setahjónunum, þeim Ólafi Ragn- ari Grímssyni og Dorrit Moussai- eff, gjafir. „Ég er með tösku og belti fyrir Dorrit og bindisnælu og erma- hnappa fyrir Ólaf Ragnar. Þetta geri ég úr lambaleðri og hlýraroði, en bindisnælurnar eru úr silfur- plötu með hlýraroði og hreindýrs- horni. Ég hef verið að vinna aðeins úr íslenskum efniviði og fannst upplagt að notfæra mér reynsluna af því. Þetta er sótt beint í náttúru Íslands, sem er mjög vel við hæfi af því að þau eru að kynna Ísland og eru bæði alveg æðisleg.“ Hönnunarnemarnir sendu boðskort á sýninguna til allra þeirra sem eiga að fá gjafirnar. Þegar sýningunni lýkur, sem verð- ur á Þorláksmessu, fá þeir síðan gjafirnar í hendur og mega taka þær með sér heim. „Að vísu geta þrír þeirra ekki tekið á móti gjöfunum í lok sýn- ingarinnar.“ Ástæðurnar eru þær að tveir þeirra eru látnir, þau Vatnsenda- Rósa og Gísli á Uppsölum, en sá þriðji er Bjartur í Sumarhúsum, skáldsögupersóna sem hefur aldrei verið til en verður engu að síður að teljast í hópi frægustu Ís- lendinga fyrr og síðar. ■ Eitthvað fallegt handa frægum Íslendingum ■ HÖNNUNARSÝNING ■ LEIÐRÉTTING B Í Ó M I Ð I Á S E E D O F N Ú Í B Í Ó Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið Vinningar: Miðar á Seed of Chucky DVD myndir Margt fleira. Sendu SMS skeytið JA SCF á númerið 1900 og þú gætir unnið. 9 . h v e r v i n n u r Hljómsveitin Sólon mun halda uppi fjörinu á Classic Ármúla 5 helgina 3. og 4. des. Idolpartý föstudagskvöld - Boltinn í beinni alla helgina - Pool og margt fleira - Frítt inn KRINGLUKRÁIN UM HELGINA • Fjölbreyttur sérréttamatseðill öll kvöld vikunnar • Tilboðsmatseðill fyrir Leikhúsgesti • Hópamatseðill • Sérsalur fyrir hópa Borðapantanir í síma 568-0878 www.kringlukrain.is Mannakorn með dansleik um helgina Tvisvar á ævinni er fimmta smá- sagnasafn Ágústs Borgþórs Sverris- sonar sem hlotið hefur lof gagn- rýnenda fyrir verk sín og unnið til nokkurra verðlauna. Í nýju bókinni eru níu smásögur sem allar hafa að geyma svipuð þemu. Fjölskyldan og uppbrot hennar virðist Ágústi mjög hugleikið efni nú sem áður, sem og óttinn við að takast á við lífið. Titill bókarinnar óTvisvar á ævinni ó vísar til þess hvernig sams konar atburðir, sömu staðirnir eða sama fólkið getur orðið á vegi manns oftar en einu sinni. Í veruleikanum ættu slík andar- tök að verða tilefni til að ígrunda til- vistina. Hins vegar fara þessar endur- tekningar iðulega fram hjá sögupers- ónum Ágústs. Hjá þeim ríkir viss doði ó þær lufsast í gegnum lífið án þess að axla ábyrgð af eigin vali. Fyrir vikið eru þær flestar einmana, óhamingju- samar eða sinnulausar. Þrátt fyrir hálfvonlausa og þung- lamalega karaktera eru sumar sögurnar nokkuð skemmtilegar. Smásagan er knappt form og Ágúst hefur náð góðum tökum á því. Á örfáum blaðsíðum tekst hon- um að koma frá sér heil- steyptri sögu þar sem per- sónurnar og aðstæður þeirra birtast ljóslifandi fyrir hug- skotssjónum okkar. Sögurnar eru ólíkar að uppbyggingu en stefna þó allar á það að koma lesandanum á óvart. Þær hverfast oft um dular- fulla endurtekningu og óræðir titlar reynast stundum lykill að skilningi. Höfundur hefur líka lúmskan húmor fyrir sögupersónum sínum og getur dregið fram það skoplega við sorg- legar aðstæður, en þó er farið spar- lega með gamanið. Ömurleikinn lifir eftir í minningunni fremur en skopið ó íslenskur hversdagsömurleiki. Sögurnar eru vandaðar og ágæt- lega skrifaðar en þó er eitthvað sem truflar. Hugsanlega skapa þessir at- kvæðalitlu karakterar ákveðna deyfð yfir lestrinum. Ég hallast þó fremur að því að stíllinn sé það sem dragi úr ánægjunni af lestrinum. Ein helsta skemmtun við smásagnalestur þykir mér að geta í margræða merkingu sem svo oft ein- kennir þetta form. Sögurnar í Tvisvar á ævinni virðast liggja meira eða minna á yfirborð- inu, þótt þær dragi upp skýrar myndir af hversdagslegum ömurleika og séu stundum hnyttnar. Persónurnar eru ort- ar í grátt og lesandi kynni að sakna litríkara fólks á því einfalda sögusviði sem okkur er búið í smásögunum. Það var gaman að ylja sér við lestur þessara smásagna í kvefpestinni á dögunum, ó en það kviknuðu engir eldar. BÓKMENNTIR MELKORKA ÓSKARSDÓTTIR Tvisvar á ævinni Höfundur: Ágúst Borgþór Sverrisson Útgefandi: Skrudda Doði í vönduðum smásögum ÁGÚST BORG- ÞÓR SVERRIS- SON Hefur náð góðum tökum á knöppu formi smásögunnar. SETTU SIG Í JÓLASVEINASTELLINGAR Hluti nemenda hönnunardeildar Iðnskólans í Hafnarfirði. Alls eiga þrjátíu nemendur verk á jólagjafasýningunni í Hafnarborg. Syngur í kvöld Enn er hægt að bregða sér á að- ventutónleika Mótettukórs Hall- grímskirkju, þar sem saxófónleik- arinn Sigurður Flosason spinnur með kórnum og drengjasópraninn Ísak Ríkarðsson syngur einsöng. Næstsíðustu tónleikarnir verða í kvöld klukkan 20, en lokatónleikarnir á morgun klukk- an 17. Björn Steinar Sólbergsson leik- ur á hið glæsilega Klaisorgel í kirkjunni, en stjórnandi kórsins er að venju Hörður Áskelsson, kantor Hallgrímskirkju. Í F2, fylgiriti Fréttablaðsins í gær, var ranglega sagt að tónleik- arnir ættu að vera í gærkvöld og Hörður Áskelsson var jafnframt ranglega nefndur Áskell. Beðist er velvirðingar á þessum mistök- um. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N DRENGJASÓPRANINN MEÐ ENGLARÖDD- INA Síðustu aðventu- tónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju verða í kvöld klukkan 20 og á morgun klukkan 17. 64-65 (52-53) Slangan 2.12.2004 19:29 Page 3

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.