Fréttablaðið - 03.12.2004, Page 70
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Rósa Guðbjartsdóttir
Dúfur
Steinar Bragi
58 3. desember 2004 FÖSTUDAGUR
FEMÍNISTAFÉLAGIÐ Þessa dagana
stendur yfir 16 daga átak gegn kyn-
bundnu ofbeldi um allan heim.
Átakið hófst 25. nóvember, sem er
alþjóðlegur baráttudagur gegn kyn-
bundnu ofbeldi. Unifem á Íslandi
hefur forgöngu um átakið í sam-
starfi við sautján aðila sem allir láta
sig málefnið varða og þannig hefur
til dæmis Femínistafélagið dreif-
ingu á póstkortum gegn nauðgunum
í dag.
Gísli Hrafn Atlason er ráðskona
karlahóps Femínistafélagsins og
hefur meðal annars unnið að póst-
kortum gegn nauðgunum sem
félagið hyggst dreifa. „Með póst-
kortunum viljum við taka á goð-
sögnum um nauðganir og benda á
fáránleika þeirra. Algengustu
goðsagnirnar eru til dæmis að karl-
ar nauðgi af því að þeir missi stjórn
á sér, fullar stelpur sem klæða sig
illa bjóði hættunni heim og fleira í
þeim dúr. Við dreifum svo póstkort-
unum á kaffihús og í búðir á föstu-
daginn og munum bjóða fólki að
senda póstkortin eins og jólakort.
Fólk getur þá sent kortin til aðila
sem þau telja að þurfi á þeim að
halda eins og dómara, lögreglu og
fleiri.“
Þetta er í fyrsta sinn sem efnt er
til svona yfirgripsmikils
átaks gegn kynbundu ofbeldi
á Íslandi en átakinu lýkur á
mannréttindadeginum 10.
desember.
„Við sáum hvað kynbundið
ofbeldi hefur margar hliðar
og snertir íslenskt samfélag
að mörgu leyti og ákváðum að
taka þátt í þessu alþjóðlega
átaki. Í lokin ætlum við að
senda áskorun til þeirra aðila
í stjórnsýslunni sem við telj-
um að sé þörf á að komi að
þessu málefni og hafa vald til
þess að gera sitt til að stöðva
kynbundið ofbeldi sem er eitt
stærsta heilsufarsvandamál kvenna
í dag,“ segir Hólmfríður Anna Bald-
ursdóttir, skrifstofustjóri miðstöðv-
ar Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.
„Dagskráin þessa 16 daga er
mjög efnismikil og viðburð-
irnir hafa verið gífurlega vel
sóttir. Við erum mjög ánægð
með hvað almenningur og fjöl-
miðlar hafa tekið þessu vel og
munum vonandi eiga kost á að
endurtaka leikinn síðar.“
Síðan átakið hófst hafa
1.700 samtök í 137 löndum
tekið þátt í því að draga at-
hygli almennings og stjórn-
valda að ofbeldi gegn konum
og óskað eftir aðgerðum til að
útrýma því. Þema 16 daganna
í ár er: „For the health of
women, for the health of all:
No more violence!“ með sérstakri
áherslu á tengsl kynbundins ofbeld-
is og alnæmis.
Femínistafélagið mun fylgja
póstkortunum sínum eftir með
opinni vinnustofu gegn kynbundnu
ofbeldi í Listaháskólanum en meðal
annarra dagskrárliða sem Hólm-
fríður Anna nefnir eru uppákoma
sem Bríet, félag ungra femínista,
verður með á sunnudag. „Á mánu-
daginn verður málþing um nauðsyn
lagasetningar gegn kynbundnu of-
beldi í Háskóla Íslands í stofu 1 í
Odda og svo verður viðburður á dag
alveg til 10. desember,“ segir Hólm-
fríður Anna.
Nánari upplýsingar um 16 daga
átakið hér á landi má finna á sér-
stakri heimasíðu átaksins:
http://www.unifem.is/16dagar.htm.
hilda@frettabladid.is
Fjöllistamaðurinn Ketill Larsen
mun vera þekktastur fyrir embætti
sitt sem helsti jólasveinn þjóðarinn-
ar undanfarna áratugi, auk þess
sem hann hefur gjarnan brugðið sér
í hlutverk hins óborganlega Tóta
trúðs hvenær sem tækifæri gefast.
Ketill varð sjötugur í haust og
ætlar af því tilefni að opna mál-
verkasýningu í Tjarnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur nú á laugardaginn.
Sýninguna nefnir hann „Sólstafir
frá öðrum heimi“ og þar sýnir hann
yfir 200 myndir, sem flestar eru
gerðar á þessu ári.
Myndirnar eru flestar byggðar
á frjálsu hugarflugi Ketils, sýnum
hans og hugsunum um aðra heima.
Þarna má sjá litríkt og fjöllótt
landslag með ævintýraljóma,
skreyttum fljúgandi skipum og
gullnum kirkjum. Ketill lætur sér
þó ekki nægja myndlistina, því á
sýningunni verður leikin frumsam-
in tónlist eftir hann, þar sem sami
andblær ræður ríkjum og í mynd-
unum. Ketill nam leiklist á yngri
árum og starfaði lengi vel sem leik-
ari, meðal annars við Þjóðleikhúsið
þar sem hann tók þátt í sýningunni
Inúk undir stjórn Brynju Bene-
diktsdóttur. Sú sýning fór til 19
þjóðlanda á árunum 1973-78.
Sýningin í Ráðhúsinu verður
opin á hverjum degi til 18. desem-
ber. Aðgangur er ókeypis og allir að
sjálfsögðu velkomnir. ■
Skyggnist um í öðrum heimi
FJÖLLISTAMAÐURINN KETILL LARSEN Ketill Larsen leikari er tvímælalaust reyndasti
jólasveinn og trúður þjóðarinnar. Hann leggur einnig stund á myndlist og tónlist, og opnar
sýningu á málverkum sínum í Ráðhúsi Reykjavíkur á laugardaginn.
GÍSLI HRAFN ATLASON Er ráðskona karlahóps Femínistafélagsins sem mun setja ögrandi póstkort í dreifingu í dag.
UNIFEM: BERST GEGN KYNBUNDNU OFBELDI
Jólakort gegn nauðgunum
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
...fær Landssamband bakara-
meistara fyrir að minnast full-
veldisdagsins með nýrri köku og
gefa Halldóri Ásgrímssyni að
smakka á henni.
HRÓSIÐ
Fókus fylgir DV
í
dag
Sling deyr
með mér
Karókístjóri
Kaffisetursin
s
Úr Reebok-þræ
lakistu
í dj-djobb á
Hlemmi
Fókus
býður í
bíó
Lárétt: 1 skarkali, 5 belta, 6 lok bardaga,
7 tveir eins, 8 sár, 9 loðskinn, 10 tímabil,
12 fæða, 13 nár, 15 tvíhljóði, 16 spurt,
18 tölustafur.
Lóðrétt: 1 fólk með líkt atferli, 2 bíla-
leiga, 3 sólguð, 4 vonlitla, 6 kerling, 8
flugfélag, 11 stórfljót, 14 rösk, 17 tveir
eins.
Lausn:
Lárétt: 1hark, 5óla, 6ko, 7pp, 8ben,
9feld, 10ár, 12ala, 13lík, 15au, 16
innt, 18átta.
Lóðrétt: 1hópsálir, 2alp, 3ra, 4
vondaufa, 6kella, 8bea, 11rín, 14kná,
17tt.
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Mokkasínur eru ekki bara fyrir indíána. Þær koma nú sterk-ar inn fyrir næsta sumar og jafnvel í formi ökklahárra
mokkasína fyrir veturinn. Hangandi kögur og brúnt rú-
skinn, perlur og bróderingar. Pocahontas-skórnir eru mál-
ið. Athuga skal samt að missa sig ekki í indíánalúkkinu og
kaupa sér jakka og buxur með kögri, skórnir eru nóg í bili.
Djúpnæring í frostinu Hárið er ekki alveg að fíla þettafrost sem búið er að hrella okkur Íslendinga síðustu
daga. Rafmagnað, þurrt og leiðinlegt. Takið nettan dekur-
dag, setjið djúpnæringu í hárið, plantið ykkur í sófann með
góða bók og hlustið á slydduna berja húsið að utan. Upp-
skrift að fínasta kvöldi.
Að láta sig mikilvæg málefni varða og mæta á við-burði í 16 daga átaki Unifem gegn kynbundnu ofbeldi
sem nú stendur yfir. Hugsandi fólk sér að á meðan kyn-
bundið ofbeldi er jafn algengt og raunin er verður eitt-
hvað að gera í málinu. Það er kúl að vera ekki skítsama
um allt! Sýnið lit og mætið. (www.unifem.is/16dag-
ar.htm)
Gullenglastyttur. Eru ekki allir komnir með upp í kok afgullengladraslinu sem er búið að vera alveg übervinsælt
núna í nokkur ár? Konur hafa flykkst í búðirnar í lengri tíma og
keypt gullengla fyrir fúlgur fjár. Þetta hlýtur að vera orðið gott.
Hvernig væri að koma upp endurvinnslugámi þar sem allar
kellingarnar geta farið með þetta postulínsdrasl svo hægt sé
að búa til eitthvað nothæft úr þessu, til dæmis klósett?
Peter André hárgreiðsla er ekki falleg. Þessi gaur er ekkikóngur svalleikans og massíft gel er ekki málið í dag.
Strákar með lubba eru sætir en flottast er að vera með fínt
og hreint hár sem er alveg laust við blauta lúkkið.
Silíkon í brjóstin og lýtaaðgerðir sem eru fram-kvæmdar einungis lýtaaðgerðanna vegna en ekki
vegna raunverulegra lýta eða óþæginda í líkamanum
eru fáránlegar. Náttúrulegt og eðlilegt útlit er flottara.
Hver vill líta út eins og Pamela Anderson, fyrirsætan
Jordan eða Janice Dickinson? Vonandi fáir. Betra er að
fara til sálfræðings ef sjálfsálitið er í ólagi heldur en í
silíkonaðgerð og sáli er líka miklu ódýrari.
INNI ÚTI
ÖGRANDI PÓSTKORT Með póstkortunum vill Femínistafé-
lagið benda á fáránleika goðsagna um nauðganir.
70-71 (58-59) FOLK 2.12.2004 20:49 Page 2