Tíminn - 29.05.1974, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 29. mai 1974.
TÍMINN
3
t sumar verður hafin veitingasala i Skáihoiti.
SAMKEPPNI UM LEIKTÆKI
OG SKIPULAG LEIKSVÆDA
Veitingasala
í Skálholti
SJ—Reykjavik — í ráði er, að
veitingasaia verði i Skáiholti i
sumar, og hefur aðstaða til henn-
ar verið auglýst til leigu. Að sögn
Sveinbjörns Finnssonar, ráðs-
manns i Skálholti, er mikil þörf
fyrir slika þjónustu á Skálholts-
stað, en stanzlaus straumur
ferðamanna er þar um allt sum-
arið.
Aðstaða til veitingareksturs
hefur ekki verið fyrir hendi i
Skálholti fyrr en nú. Eldhús og
veitingasalur lýðháskólans verða
notuð fyrir þessa þjónustu, og
munu um 50 manns geta setið i
einu að snæðingi. í Skálholti er nú
afbragðs aðstaða til veitingaþjón-
ustu.
Sveinbjörn Finnsson sagði
Tímanum, að ein og tvær áætlun-
arbifreiðir hefðu viðkomu i Skál-
holti um hádegisbilið daglega að
sumrinu á vegum ferðaskrifstof-
anna, auk mikils fjölda annarra
ferðamanna, og stöðugt væri
spurt um, hvort ekki væri hægt að
fá eitthvað að drekka og eitthvað
að borða. Skálholt er einnig fyrir
löngu orðið fastur viðkomustaður
Framhald á bls. 19
Víðkunnur
jassleikari
hér hljóm-
leika
Gsal-Rvik — Eje Thelin, sem er
þekktur sænskur jassleikari,
kemur hingað til lands um næstu
helgi ásamt öðrum kunnum jass-
leikurum. Eje Thelin kemur
hingað á vegum Norræna
menningarsjóðsins og Jassklúbbs
Reykjavikur og mun halda
þrenna hljómleika.
Fyrst leikur hann i Glæsibæ
fimmtudaginn 30. mai, ásamt
stórhljómsveit FIH siðan i
Tónabæ 31. mai, ásamt Áskeli
Másáyni og Co, og siðustu hljóm-
leikarnir verða i Norræna húsinu
laugardaginn 1. júni klukkan 4
e' .h.
Eje Thelin og hljómleistar-
menn hans koma hingað á leið
sinni til Bandarikjanna, þar sem
þeir hyggjast halda hljómleika.
Hljómsveitin, sem Eje Thelin
leikur með, er mjög þekkt jass-
hljómsveit i heimalandi sinu og
utan þess. Þeir sem skipa hljóm-
sveitina eru: Harald Svenson,
sem leikur á pianó Kjell Jansson
á bassa, Leroy Lowe á trommur,
og Eje Thelin leikur á básúnu.
FB-Reykjavik — Fyrir skömmu
rann út skilafrestur i samkeppni
um fyrirkomulag leiksvæða og
leiktækja, en það voru sveitar-
félögin Garðahreppur, Hafnar-
fjörður, Kópavogur og Reykja-
vikurborg, auk Seltjarnarness,
sem buðu til samkeppninnar.
sænskur
heldur
Samkeppnin átti að fjalla um
leiktæki til að setja á leikvelli,
skólalóðir, torg og opin göngu-
svæði, auk þess sem hún náði til
fyrirkomulags leiksvæða. Þátt-
tökuheimild var mjög rúm, þar
sem allir islenzkir rikisborgarar,
og þeir erlendir rikisborgarar,
sem hér hafa haft dvalarleyfi og
fasta búsetu um að minnsta kosti
tveggja ára skeið, máttu taka
þátt i samkeppninni.
Timinn hafði samband við Leif
Blumenstein, sem er trúnaðar
maður dómnefndar. Sagði hann,
að ákveðið hefði verið að láta
nokkurn tima liða eftir að skila-
frestur rann út til þess að gefa
þeim kost á að taka þátt i keppn-
inni, sem ef til vill hefðu átt
keppnisgögn i pósti, en nú liði
senn að þvi, að dómnefnd gæti
farið að kanna það, sem borizt
hefði, og yrði eftir það sýning á
hugmyndum, sem komið hefðu i
þessa samkeppni. Þá sagði
Leifur, að þvi miður hefðu ekki
borizt eins margar tillögur og
búizt hefði verið við, eða vonazt
eftir, þegar efnt var til sam-
Gsal—Reykjavik — Aziz, 27 ára
gamall Indverji, heldur um þess-
ar mundir málverkasýningu að
Mokka við Skólavörðustíg. A
sýningunni eru 25 inálverk, flest
máluð með oliulitum. Málverkin
eru flest máluð hér á landi siðustu
2 mánuðina, og eiga hestamyndir
þar bróðurpartinn.
Aziz lærði i Indlandi og hefur
haldið nokkrar málverkasýning-
ar i heimalandi sinu, auk nokk-
urra annarra erlendis. Hingað tii
lands kom Aziz til þess að heim-
sækja indverskan vin sinn, sem
hér er búsettur og kvæntur
islenzkri konu.
Óvist er, hvenær Aziz heldur
héðan frá íslandi, þvi honum lik-
keppninnar, og þá sérstaklega
þegar tillit væri tekið til þess, að
þátttökulegur voru eins rúmar og
áður getur.
Tvö slys d
Hringbraut
Gsal—Rvik— Rétt fyrir hádegið i
gær, gekk andamamma með
unga sina yfir Hringbrautina. Bil-
stjóri, sem átti leið um götuna i
sama mund, tók ekki eftir
andahópnum fyrr en um seinan
og varð þvi að hemla snögglega.
Lenti þá annar bill aftan á þeim,
sem stöðvaði og varð áreksturinn
all harður. Þrennt var flutt slasað
á slysavarðstofuna.
Nokkru siðar hljóp telpa yfir
Hringbrautina við Bræðraborg-
arstig á ómerktri gangbraut.
Hljóp hún þar i veg fyrir sendi-
ferðabifreið og slasaðist nokkuð,
þó ekki alvarlega.
ar dvölin vel og óskar þess að
mega dvelja hér lengur til að
ferðast um og mála.
Aziz sagði blm. Timans i gær,
að það væri oft erfitt að vera
listamaður...
— En þegar þú hefur skapað
þér nafn, gengur allt i haginn.
Þessi staðreynd er eins I Ind-
landi og hér á Islandi, sagði Aziz
og brosti.
— A siðustu árum hefur mér
gengið mjög vel að selja mál-
verkin min, bætti Aziz við, og
einnig selt talsvert vel. Mér geng-
ur sæmilega að skapa mér
virðingu, nafn, — og þaö eina sem
er athugavert við þetta frá min-
um bæjardyrum séð, er að það
gengur of hægt.
Hvað er að gerast
í Möðruvalla-
hreyfingunni
og Samtökunum?
A miðnætti i nótt rennur
fra mboðsfrestur vegna
alþingiskosninganna 30. júni
út. Mjög brösulega hefur
gengið líj-á Alþýðuflokknum og
hinninýju forystu i Samtökum
frjálslyndra og vinstri manna
að koma listum saman. Eru
þar margir einstaklingar, sem
eiga sér formælendur fáa, i
hörkuslag um hvert sæti, þar
sem þeir geta reiknað sér
nokkra vonarglætu. Hun er
ekki mikil. Jafnvel mestu full-
hugarnir hafa misst móðinn.
Björn Jónsson, forseti ASl
og annar af tveimur helztu
fory stum önnum Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna,
sem voru og hétu en eru ekki
lengur, hcfur nú sagt sig úr
samtökunum og öllum þeim
trúnaðarstörfum, sem hann
hefur tekið á sig i þeirra nafni.
Hann er genginn i Alþýðu-
flokkinn og er kominn i fram-
boð fyrir lista þess flokks i
Reykjavik.
Gyifi er i fyrsta sæti A-
listans i Reykjayik, Eggert i
öðru og Björn Jónsson i hinu
þriðja. Heldur betur verður nú
að slá i drógina, ef Björn Jóns-
son á að halda áfram þing-
mennsku. Skv. fylgi J-listans
sl. sunnudag i Reykjavík,
listans sem 5 stjórnmála-
samtök í samvinnu við Möðru-
vallahreyfinguna stóðu að,
kemst enginn maður á þing
fyrir málstaðinn.
Þessir sameina
í Visi i gær er frétt um liina
miklu haráttu þeirra, sem
ætluðu að sameina að ra
flokka og klufu sjálfa sig. Þar
segir m.a.:
Útkoman verður liklega sú,
að það fóik i Samtökunum,
sem fylgir Braga, og þar með
Hannibal og Birni Jónssyni,
styður A-listann i þing-
kosningunum. Björn Jónsson
hefur sagt sig úr Samtökunum
og hann verður i 3. sæti á A-
listanum i Reykjavik. Þar er
Gylfi Þ. Gislason i 1. sæti og
Eggert G. Þorsteinsson i 2.
Þriðja sætið mun tæpst færa
Birni þingmennsku. Miðað við
úrslitin i Iteykjavik i fyrradag
fengi A-Iistinn engan mann
kjörinn i höfuðborginni, en
Alþýðuflokksmenn vonast til
að fá fleiri atkvæði i þing-
kosningunum.
„Liklega mun meirihluti
félagsmanna L Samtökunum i
Reykjavik ganga úr flokkn-
um”, scgir Bragi Jósepsson,
sem vill vinna með Alþýðu-
flokknum.
En formaður félagsins,
Guðmundur Bergsson, og
meirihluti i stjórn þess vill
vinna með Möðruvalla-
hreyfingunni og vinstri
jafnaðarmönnum.
„Kj ördæmisráð Sam-
takanna i öllum kjördæmum
landsins hafa samþykkt að
bjóða fram i eigin nafni og
vinna með Möðruvalla-
lirey fingunni og vinstri
jafnaðarmönnum". segir
Halldór S. Magnússon, frain-
kvæmdastjóri Samtakanna, i
viðtali við Visi. Þannig hafa
stuðningsmenn Hannibals og
Björns orðið undir i öllum
k j örd æ m isrá ðu n um.
Bragi Jósepsson, vara-
formaöur flokksfélagsins i
Reykjavik, hélt fund með um
50mönnum þarsem samþykkt
var að bjóða fram með
Alþýðuflokknum i Reykjavík i
þingkosningunum. Fundurinu
á Ilótel Esju hafði verið
boðaöur fyrir alllöngu. en
meirihluti félagsstjórnar, 7 af
9, samþykkti að fresta honum.
„Þeir tilkynntu frestunina
Framhald á bls. 19
Eje Thelin, hinn kunni sænski jassleikari, sést hér á myndinni ásamt félögum sfnum. Eje er lengst til
vinstri og leikur á básunu.
Indverskur listamaður
' — íslenzkir hestar
O AAOKKO eru eftirlæti hans