Tíminn - 26.06.1974, Side 16

Tíminn - 26.06.1974, Side 16
16_______________________________________________________________________TÍMINN MiOvikudagur 26. júni 1974. Hollendingar eiga auðveldan dag ★ Þeir leika gegn Argentínumönnum ★ Sóknarleikur A-Þjóðverja gæti komið Brasilíumönnum í opna skjöldu ★ Svíar leika gegn hinum skemmtilegu Pólverjum í dag hefst úrslitakeppni HM i knattspyrnu. — Leikinn verður fyrsta umferð í riðlinum, eða alls fjórir leikir. í A-riðli leika Holland og Argentina i Gelsenkirchen og Brasilia — A-Þýzkaland i Hannover. í B-riðli leika Júgóslavia og V-Þýzkaland í Dussel- dorf og Sviþjóð-Pólland i Stuttgart. Ef litiö er á þessa leiki nánar, má búast við, að Hollendingar eigi auðveldan dag á móti Argentinumönnum. Hollendingar eru taldir hafa sýnt beztu knatt- spyrnuna ásamt Pólverjum, en Argentinumenn rétt mörðu það aö komast áfram á markatölu. Þar að auki verður ein af þeirra styrkustu stoðum, Carlos Babington, I leikbanni, þar sem hann hefur verið bókaður i hverj- um leik forkeppninnar. Erfiðara er að geta sér til um úr- slit i leik Braisliu og A-Þýzka- lands. Bæði liðin sýndu misjafna leiki iforkeppninni. Brasiliumenn reyndu allt sem þeir gátu til að halda marki slnu hreinu og tókst það, en A-Þjóðverjar léku af og til skemmtinlegan sóknarleik sem gæti komið Brössunum I opna skjöldu. Liklegustu úrslitin i þessum leik eru jafntefli. Júgóslavar máttu þakka fyrir að halda jafntefli I forkeppninni á móti Skotum, en sýndu aftur á móti góða leiki á móti Brasiliu og RALF EDSTRöM....hinn s/jalli sóknarieikmaður Svia sést hér á æfingu. Skorar hann mark í kvöld? 4 menn reknir út af 4 menn voru reknir út af leik- velli i forkeppni HM. Þeir voru Caszelly (Chile), Castillo (Uruguay), Ndaye (Zaire) og Richards (Astraliu). Voru allir þcssir menn scttir i leik- bann I einn eða fleiri leiki. Þar að auki fékk Carlos Babington frá Argentínu þrjár bókanir I leikjum forkeppninnar, eða bókun I hverjum leik. Fyrir þetta fær hann eins leiks bann, og getur þvi ekki keppt ineð Argentinu á móti Holiandi I dag. Zaire. V-Þjóðverjar sýndu hins vegar ekki sýnar beztu hliðar I forkeppninni, gerðu aðeins það sem þurfti til þess að komast áfram. Þó að lið Júgóslaviu viröist s.terkt, þá spáum við V Þjóðverjum sigri i þessum leik. Þá er komið að liðunum, sem einna mest komu á óvart I for- keppninni. Fáir bjuggust við að Sviþjóð og Pólland yrðu meðal hinna 8 beztu, að forkeppninni lokinni, en þessi lið sýndu, að þau eru alls ekki eftirbátar hinna liðanna I keppninni, þvert á móti var Pólland talið eitt skemmti- legasta liðið I forkeppninni, og Sviþjóö lék sina þrjá leiki, án þess að fá á sig mark. Eftir frábæra leiki Pólverja er samt ekki hægt annað en að spá þeim sigri I þessum leik. Ó.O. ..Feginn að losna úr starfi" ★ Sagöi Rroberto Porta, þjálfari Uruguay. Hann sagðist aldrei hafa séð lélegra landslið Uruguaymanna. ★ Þjálfara Haiti einnig sagt upp Það getur verið mikið happdrætti að taka að sér þjálfun þeirra liða, sem komast i 16 liða úrslit heimsmeistarakeppninnar i knattspyrnu. Það er jú, vitað mál, að helmingur liðanna fellur í fyrstu atrennu, og þjálfarar átta liða verða aðfinnasér einhverja afsökun, svo að pressan i heimalandi þeirra tæti þá ekki i sig. Það er þegar orðið kunnugt, hvaða átta lið urðu að bita í það súra epli að snúa heim eftir forkeppnina. Það voru'lið Chile, Ástraliu, Skotlands, Zaire, Búlgariu, Uruguay, ítaliu og Haiti. Af þeim átta þjálfurum, sem voru i fullu starfi fyrir helgina, eru tveir atvinnulausir, og einn þykir mjög valtur I sessi. Þjálfari Uruguay, Roberto Porta, sagöi upp, þegar hann frétti það, aö hann væri ekki lengur ,,æskileg persóna”. Sagði hann við það tækifæri að hannhefðialdrei séð lélegra landslið Uruguaymanna, og væri hann feginn að losna úr þessu starfi. Þjálfari Haiti var sagt upp, eftir 12 ára starf, og kom það talsvert á óvart, þvi Antonie Tassy, en svoheitirhann.hefur gert lið Haiti að þvi sem er nú. Honum kom uppsögnin mjög á óvart, og hann varð alveg ómögulegur maður á eftir. Sá þjálfari, sem þykir mjög valtur i sessi, er þjálfari Italiu, Ferruccio Valcareggi. Almenningur á ítaliu litur það mjög alvar- legum augum, að ltalia komist ekki áfram i keppninni, og auðvitað er skuldinni skellt á þjálfarann. -Ó.oO. Góðan mark- vörð fyrir lógt verð Markvörður Ástraliu Jack Reilly þótti standa sig mjög vel i heims- meistarakeppninni. Reilly, sem er 28 ára, fæddist og ólst upp I Skotlandi, og hóf hann þar knatt- spyrnuferil sinn með fyrstu deiidar liðinu Hibernian. En svo fluttist hann tii Ástraliu og hefur ieikið þar með liði frá Melbourne, sem nefnist Hakoah. Hann var valinn aðaimarkvörður Ástraliu, þegar Jimmy Fraser, scm var aðalmarkvörður þeirra, sá sér ekki fært að fara til Þýzkalands. Vegna frammistöðu sinnar i heimsmeistarakeppninni hefur nú enska fyrstu deildar liðið Ipswich Town mikinn hug á að fá Reilly yfir I sinar raðir. Ipswich hefur verið i hálfgerðu mark- varðahraki og sjá þeir sér nú leik á borði að fá góðan markvörð fyr- ir lágt verð. óo Eins órs bann Ndaye frá Zaire, sem var rekinn út af I leik Zaire og Júgóslaviu fyrir að sparka eftir dómaranum Omar Delgado frá Columbia, hefur hlotið þunga refsingu. Hann hefur verið dæmdur frá keppni I eitt ár, sem þýðir, að hann má ekki leika iandsleik fyrir Zaire næsta árið. -SOS.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.