Tíminn - 04.07.1974, Side 17

Tíminn - 04.07.1974, Side 17
TÍMINN 12 Fimmtudagur 4. jlili 1974 Jafn- tefli — hjá A-Þjóðverjum og Argentínu- mönnum 1:1 A-Þjóðverjar og Argentinumenn gerðu jafntefli 1:1 i gærkvöldi i mjög vel leiknum og skemmtileg- um leik. Bæði liðin léku sinn bezta leik i HM-keppninni, greinilega afslöppuð eftir hina spennandi undankeppni. Bæði mörk ieiksins voru skoruð i fyrri hálfleiknum. Það var Jochen Streich sem skor- aði fyrir A-Þjóðverja á 14. min en Houseman jafnaði fyrir Argen- tinumenn, aðeins 8 min. siðar. Liðin sem léku i gærkvöldi, voru skipuð þessum leikmönn- um: ARGENTÍNA: Carnevali, Fillol, Glaria, Perfumo, Heredia, Sa, Babington, Brindisi, Sueo, Kempes, Balþuena, Ayale, Houseman. A-ÞÝZKALAND: Croy, Kische, Weise, Bransch, Kurbjuweit, Lauck, Pommerenke, Schuphase, Sparwasser, Streich, Ducke og Hoffmann. STAÐAN HOLLAND...leikur i úrslitunum i HM á sunnudaginn. Lokastaöan í 8 -liða úr- slitunum, urðu þessi: A-riðill: Holland—Brasilia 2 0 (0:0) A-Þýzka- (1:1) land—Argentina 1 í Holland 3 3 0 0 8:0 6 Brasilia 3 2 0 1 3:3 4 A-Þýzkaland 3 0 0 2 1:4 1 Argentina 3 0 1 2 2:7 1 B-riðill: V-Þýzkaland—Pólland 1 0 (0:0) Sviþjóð—Júgóslavia 2 1 (1:1) V-Þýzkaland 3 3 0 0 7:2 6 Pólland 3 2 0 1 3:2 4 Sviþjóð 3 1 0 2 4:6 2 Júgóslavía 3 0 0 3 2:6 0 Cruyff og félagar mæta V-Þjóðverjum — Hollendingarnir fljúgandi unnu léttan sigur yfir heimsmeisturunum frá Brasilíu 2:0 í gærkvöldi Hollendingarnir fIjúgandí undir stjórn knattspyrnu- Don Revie ■einvqldur' Englands — Leeds hefur beðið Johnny Giles að taka við stöðu hans hjá Leeds Það er nú nær fast- ákveðið, að fram- kvæmdastjóri Leeds United, Don Revie, verði næsti einvaldur landsliðs Englands i knattspyrnu. Var hon- um boðin staðan fyrir 20.000 pund á ári, og er talið mjög liklegt að hann taki þvi boði, þvi Leeds United hef- ur þegar beðið Johnny Giles, að taka við stöðu Revies, ef hann fer, og ætlar ekki að standa i vegi fyrir Revie. DON REVIE. framkvæmdastjóri Ipswich og Gordon Jago fyrrverandi framkvæmdastjóri Q.P.R. Revie var efstur á stuttum lista enska knattspyrnusam- bandsins yfir þá menn, sem þeir gætu hugsað sér til starf- ans. Hinir voru Bobby Robson Revie mun tilkynna ákvörð- un sína seinna ivikunni, en tal- ið er nokkuð öruggt, að svar hans verði jákvætt. ó.o. snillingsins Johan Cruyff áttu ekki í vandræðum með heimsmeistarana frá Brasilíu í gærkvöldi í Dortmund. Cruyff átti enn einn stórleikinn og hann átti mestan þátt í því að Hollendingar tryggðu sér farseðilinn í úrslitin gegn V-Þjóðverjum, með 2:0 sigri yfir Brössunum. Cruyff skoraði sjálfur annað mark Hollending- anna, þegar hann þrumaði knettinum í netið á 19. mín. síðari hálfleiksins. Þá átti hann allan heiðurinn af fyrra markinu,sem Johan Neeskens skoraði strax á 5. mín síðari hálfleiksins, en hann fékk þá sendingu frá Cruyff, sem hafði splundr- að vörn Brasilíumanna. 54 þúsund áhorfendur sáu Hol- lcndinginn fljúgandi tryggja sér farseðilinn i úrslitaleikinn. Meðal áhorfenda var Henry Kissinger, utanrikisráðherra Bandarikj- anna, sem kom beint frá Moskvu, til að sjá leikinn. Hann sagði, að Cruyff væri frábær knattspyrnu- maður. Þeir sem hafa séð til Cruyff i keppninni, eru Kissinger örugglega sammála, þvi að Cruyff er maðurinn á bak við hinn frábæra árangur Hollands i HM. Nú biða menn spenntir eftir úrslitaleik V-Þýzkalands og Hol- lands, sem fer fram á ólympíu- leikvanginum i Munchen á sunnudaginn. Hollendingar liafa sýnt það og þeir sýndu það i gær, að þeir verða hættulegir i úr- slitaleiknum gegn V-Þióðverjum. Brasiliumcnn fengu varla mark- tækifæri i leiknum I gærkvöldi, þeir áttu erfitt með að brjótast i gegnum vörn Hollendinganna, sem léku sterka rangstöðuleikað- ferð. Einn leikmaður Brasiliu- manna var rckinn út af i leiknum, það var Pereira. Liðin sem léku i gær, voru skipuð þessum leik- mönnum: HOLI.AND: Jongbloed, Suurbier, Haan, Rijsbergen, Krol, Jansen, Neeskens, Van Hanegem, Rep, Cruyff, Rensenbrink. BRASILÍA: Leao, Ze Maria, Pereira, Marinho, Francisco, Marinho, Paulo Cesar, Carpegiani, Rivelinho, Paulo Cesar Lima, Caldomiro, Jairzinho og Dirveu.' — SOS. Svíar sigrudu Júgóslava... — Torsteinsson skoraði sigurmarkið 2:1 rétt fyrir leiksiok Conny Torstensson tryggði Svium sigur yfir Júgóslövum i gær- kvöldi, þegar hann skoraði sigur- mark Svia þegar aðeins 4 min. voru til leiksloka og lauk leiknum þvi 2:1. Litill áhugi var fyrir þess- um leik, þvi að á sama tima léku Hollendingar og BrasiIIumenn — þeir sem komust ekki til að sjá þann lcik, sátu heima hjá sér og horfðu á beina sjónvarpsútsend- ingu af honum. Það voru aðeins 10 þús. áhorfendur sem sáu leik Svia og Júgóslava. Ralf Edström skoraði fyrra mark Svia, en Surjak skoraði mark Júgóslava. Þessi sigur Svia var sanngjarn eftir gangi leiks- ins. Liðin, sem léku i gærkvöldi, voru skipuð þessum leikmönnum. SVÍÞJÓÐ: Hellström, Olsson, Nordqvist, Karlsson, Augustsson, Grahn, Tapper, Eiderstedt, Tor- tensson, Edström og Sandberg. JCGÓSLAVÍA: Maric, Buljan, Katalinski, Bogicevic, Hadziab- dic, Jerkovic, Oblak, Muzinic, Petkovic, Karasi, Bajevic og Sur- jak. -SOS AAetað- sókn... ÞaT er nú komið i ljós, að met- aðsókn hefur verið á leiki heímsmeistarakeppninnar. AIIs hafa verið seldir 1.800.000 miðar á leiki keppn- innar og eru þá taldir með úr- slitaleikirnir um fjögur efstu sætin. i þessu sambandi mun- ar töluvert um það, að i þess- ari keppni verða leiknir 38 leikir i stað 32 i undanförnum keppnum. Hefur þessi breyt- ing mælzt mjcg vel fyrir, þó að liðin eigi einn vondan leik, þá er ekki möguleiki þeirra til sigurs þar með rokinn út i veður og vind eins og i fyrr- verandi keppnum, þar sem út- slátkarkeppni var inilli átta efstu liðanna. Ó.O.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.