Tíminn - 05.07.1974, Síða 1
&
fp
Auglýsingadeild
TÍAAANS
Aðalstræti 7
113. tölublað — Föstudagur5. júlí—-58. árgangur
DÖMUR UM LAND ALLT!
DRESSFORAA
NÝR! spennandi 32. bls.
póstverzlunarbæklingur
með tízkufatnaði fyrir
dömuna sem fylgist
með.
Pantið bækling strax.
Einka-söluumboð —
Póstverzlunin
Heimaval/ Kópavogi.
Lúaleg árás Þjóðviljans
á Ólaf Jóhannesson
Þau furðulegu tiðindi hafa
gerzt, að Þjóðviljinn ræðst i gær i
áberandi forsiðugrein á Ólaf Jó-
hannesson með sérstaklega lúa-
legum hætti. í umræddri grein er
þvi haldið fram, að Ólafur Jó-
hannesson láti annan mann hafa
„ótrúlega gott tak” á sér og láti
hann stjórna gerðum sinum. Til
þess að gefa lesendum Timans
fulla hugmynd um þessa óvæntu
árás Þjóðviljans er ljósmynd af
umræddri grein Þjóðviljans birt
hér f fullri stærð.
Sérhver sá, sem hefur kynnzt
Ólafi Jóhannessyni, veit vel, að
hann er manna óliklegastur til að
láta einn eða annan hafa tak á
sér. Það er hægt að deila um verk
hans og ákvarðanir, eins og ann-
arra manna, en enginn, sem
þekkir Ólaf Jóhannesson, efast
um að hann lætur samvizku sína
og sannfæringu ráða gerðum sin-
um. Alveg sérstaklega ætti ráð-
herrum Alþýðubandalagsins að
vera kunnugt um þetta, þvi að
þeir hafa fengið að reyna ein-
beitni Ólafs, þegar á reynir. Það
mun lengi verða þjóðinni eftir-
minnilegt, hvernig hann beygði
þá i landhelgisdeilunni við Breta,
svo að aðeins eitt dæmi sé nefnt.
Viðleitni Þjóðviljans til að gera
framkvæmdastjóra Timans tor-
tryggilegan er af svipuðum toga
„Krktinn hefur tak á Olafi”
segja sjálfstœðismenn og reiða sig á að framkvœmdastjóra
Timans takist að sveigja Framsókn til samstarfs
Taugaveiklun hefur nú
gripið um sig I hinum hægri
sinnaða hluta Framsóknar-
flokksins. Innan flokksins eru
valdamikil öfl, sem ætla sér af
heilum hug i rikisstjórnar-
samstarf með Ihaldinu.
Og ihaldið fagnar þeim
mönnum vitanlega — amk. á
yfirborðinu, þvi ihaldið langar
að stjórna þessu landi — þótt
ýmsir aðilar innan Sjálf-
stæðisflokksins séu ekki bein-
linis hrifnir af þvi að þurfa aö
styöja sig við Framsókn.
Kristinn Finnbogason,
framkvæmdastjóri Timans,
og einn helsti peninga-
„spekúlant” Framsóknar-
flokksins er nú á þönuin milli
áhrifamanna Sjálfstæðis-
flokksins og eigin flokks, og
leggur sig fram um að vinna
að samruna þessara tveggja
flokka.
Ég er ekki hrifinn af þessu,
sagði ihaldsmaður einn við
Þjóðviljann, Kristinn er vara-
samur og við teljum hann ekki
beinlinis góðan félagsskap. Ég
held það sé ekki holt fyrir
Sjálfstæðisflokkinn að fara i
samstarf við Framsókn — en
hvað skal gera?
Og ihaldsmaöurinn fullyrti
að Kristinn hefði „ótrúlega
gott tak á Ólafi Jóhannessyni”
— og þvi virðist nú margt
benda til þess að gróða-
mennirnir i Framsókn falli
ihaldinu um háls og grátbæni
það að forða myndun vinstri
stjórnar.
—GG
spunnin og árásin á Ólaf Jó-
hannesson. Þjóðviljinn veit það
vel, að það er erfitt verk að sjá
um blaðaútgáfu og fjármál efna-
litilla flokka, eins og Fram-
sóknarflokksins og Aiþýðubanda-
lagsins, og er það óþarft verk og
ómaklegt að vera að kasta stein-
um aö þeim mönnum að tilefnis-
lausu, eins og hér er gert. Annars
hefur Alþýðubandalagið sýnt, að
Framhald á 7. siðu.
Þetta er hin lúalega árásargrein,
sem Þjóöviljinn birti i gær.
Kóreubörn
til íslands?
SJ-Reykjavík Talsvert er spurzt
fyrir um hvort Hjálparstofnun
kirkjunnar geti haft milligöngu
um eöa hjálpaö viö ættleiöingu
barna frá öörum löndum. Mjög
erfitteraö fá börn til ættleiöingar
hér á landi og ekki sföur virðist
erfiöleikum bundiö aö fá þau frá
öörum löndum. Nú munu á döf-
inni a.m.k. þrjár eöa fjórar ætt-
leiðingar barna frá Kóreu hingað
fyrir tilstiili samtakanna „Norsk
Koreaforening”.
Hjálparstofnun kirkjunnar hef-
ur komið þessu sambandi á, en
mun ekki á neinn hátt fram-
kvæma eða bera ábyrgö á
ættleiðingunum, en starfar aðeins
á upplýsinga- og fyrirgreiðslu-
grundvelli.
Frá þessu er skýrt i ársskýrslu
Hjálparstofnunar kirkjunnar fyr-
ir 1973, en þar segir að samband
hafi verið haft við f jölmarga aðila
vegna slfkra ættleiðinga en við
dræmar undirtektir. Samtökin
„Norsk Koreaforening”, sem um
langt árabil hafa annazt ætt-
leiðingu Kóreubarna til Noregs,
sóttu um og fengu leyfi frá norska
félagsmálaráðuneytinu til að
annast slikar ættleiðingar til Is-
lands.
Dauðaslys á
Ósfjallssvegi
Laust eftir hádegi á
miðvikudag komu menn að
bifreiö Ingvars Ingvarssonar,
oddvita á Desjarmýri i
Borgarfirði, þar sem hún hafði
oltiö út af veginum i Ósfjalli,
nálægt Vatnsskarði.
Var Ingvar, sem var einn á
ferð, látinn, er að var komið.
Bifreiðin hafði farið út af
veginum við beygju, sem ekki
er talin hættuleg, og hafði
Ingvar oft farið þessa leið
áöur. Er þvi talið, að hann hafi
fengiö aðsvif, þvi að engir
áverkar voru á likinu.
Ingvar var rösklega
fimmtugur aö aldri og lætur
eftir sig eiginkonu og 6 börn.
Ríkissjóður
greiði Hoch'
tief 150
mnijonir
Þýzka verktakafyrirtækið
Hochtief, sem sá um
bygging:: hafnarinnar i
Straumsvik, stefndi á sinum
tima rikissjóöi — og var
dómurimálinu kveðinn upp i
Hæstarétti i gær.
i dómnum kemur fram, aö
rikissjóöur er dæmdur til aö
greiða þýzka verktakafyrir-
tækinu nær 150 milljónir . Þá
skal einnig tekiö tillit til
gengisbreytinga, sem orðiö
hafa á þessu timabili.
Gerðardómur hafði áöur
dæmt i ntá'.inu, en úrskurði
hans var skotið til Hæsta-
réttar. Þrir hæstaréttar-
dómaranna staöfestu
geröardóminn, en tveir vildu
hnekkja honum.
A tónleikum hjá Victor
Borge er blandað saman frá-
bærurn pianóleik og spreng-
hlægilegri kimni, sem enginn
verður svikinn af. Victor er
nú 05 ára gamall.
VIKTOR BORGE SKEMMTIR
HÉR Á LANDI í HAUST
á 25 ára afmæli Sinfóniuhljómsveitarinnar
HP.-Reykjavik. — A næsta starfs-
ári verður Sinfóniuhljómsveitin
25 ára og af þvi tilefni, mun
starfsmannafélag sveitarinnar
vanda mjög til Sinfóniudansleiks-
ins s.k.
Hefur verið fenginn sérstakur
heiðursgestur, og er það enginn
annar en grin- og píanistinn Vict-
or Borge.
Við náðum tali af Gunnari
Egilssyni hjá Starfsmannafélagi
Sinfóniuhljómsveitarinnar og
staðfesti hann, að von væri á hin-
um heimsfræga manni hingað.
Mun hann dveljast hér dagana
16.-18. nóvember og á þeim tima
halda eina skemmtun með hljóm-
sveitinni i Háskólabiói og koma
siðan fram, sem heiðursgestur á
Sinfóniuballinu. Hefðu samningar
við Borge gengið mjög vel, sjálfur
væri hann mjög spenntur fyrir þvi
að koma hingað, en eins og kunn-
ugt er, var reynt að fá hann hing-
að fyrir Listahátið. Með honum
hingað kemur ung söngkona,
Marilyn Morlwey, sem okkur er
nú ekki kunnugt um neitt frekar.
Dansleikurinn verður að öllum
likindum haldinn að Hótel Sögu,
— þar var hann haldinn siðast og
þótti takast með afbrigðum vel.
Að visu hefðu aðeins um 200
manns verið þar, en það væri
kannski einmitt þess vegna, sagði
Gunnar. Þó sagði hann að veit-
ingahúsið Sigtún væri i athugun,
þá með tilliti til þess, að hægt
væri að gefa fleira fólki tækifæri
til þess að njóta skemmtunar
Borge.
Victor Borge er fæddur i Dan-
mörku, en fluttist til Bandarikj-
anna árið 1940. Aður hafði hann
verið konsert-pianóleikari og get-
ið sér gott orð sem slikur og það
var fyrir hreina tiiviljun, að upp
komst um hina frábæru kimni-
gáfu mannsins. Siðan hefur vegur
hans vaxið og er hann einn af
eftirsóttustu skemmtikröftum i
heimi og sérhæfir sig i þvi, sem
nefnt er „one man show” á
skemmtiiðnaðarmáli.
— Þeir eru dýrir þessir kallar,
Kramhald á 7. siðu.
HKOTIblS
fylgir blaðinu í dag