Tíminn - 05.07.1974, Blaðsíða 20
g:--:ði
fyrir ffóöíui nmt
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Hvorki gengur né
rekur í Eþíópíu
NTB—Addis Abeba — Staðan i
stjórnmálum Eþiópiu er enn
mjög óljós og i gær gengu sögur
um það I höfuðborginni, að fyrir
dyrum stæði endurskipulagning
stjórnarinnar og að herinn mundi
ætla að haida áfram að handtaka
þekkta borgara.
Haile Selassie keisari, yfirmenn
hersins, forsætisráðherrann,
Makonnen og ráðherrar hans,
héldu i gær ótal fundi til að reyna
að leysa málin án þess að ganga i
berhögg við stjórnarskrána, seg-
ir UPI.
Þá kom upp úr kafinu i gær, að
allir þeir hertogar, prestar og
fleiri merkismenn, sem hand-
teknir hafa verið, hafa verið flutt-
ir úr búðunum við golfvöll keisar-
ans og eru þeir nú taldir i haldi á
gömlu herrasetri, skammt frá
flugvellinum.
Herinn segir, að tólf menn hafi
verið handteknir, meðal þeirra
nokkrir af nánustu ráðgjöfum
keisarans, en vitað er að mörgum
sinnum fleiri hafa verið fjarlægð-
ir.
Keisarinn samþykkti i fyrra-
kvöld kröfu hermanna um að
náða pólitiska fanga. Talið er að
þeir séu nokkur hundruð i land-
inu.
Perón jarð-
CI f —frú Perón
aeTTUl ákaft studd
NTB—Buenos Aires — Juan
Perón, Argentinuforseti var I gær
Er Chou
alvar-
lega
veikur?
NTB—Peking. — Opinber
kínverskur talsmaður visaði
i gær á bug fréttum utan úr
heimi um að Chou En-Lai,
forsætisráðherra Kína væri
alvarlega veikur. Sagði tals-
maðurinn, að þessar fréttir
væru algjör tilbúningur, cn
skýrði hins vegar ekkert frá
þvi hvernig Chou væri til
heilsunnar.
Forsætisráðherrann, sem
er 76 ára, veiktist i byrjun
mai og varð að draga til
muna úr opinberum skyldu-
störfum sinum. Hann er til
dæmis hættur að taka á móti
höfðingjum á flugvellinum,
eins og hann var vanur og
sést ekki lengur við opinber
hátiðahöld.
Siðast kom hann fram
opinberlega 31. mai, þegar
hann undirritaði samning
um skipti á sendimönnum
við Malaysiu, en nafn hans
er alltaf nefnt i opinberum
yfirlýsingum við hátiðleg
tækifæri.
Kvennaskólinn
fær að byggja
Á borgarráðsfundi i gær, var
leyft, að hafin yrði viðbygging við
Kvennaskólann i Reykjavik. Einn
ráðsmanna var á móti á þeim for-
sendum, að skólinn fullnægði i
engu hugmyndum þeim, er fram
kæmu I grunnskólafrumvarpinu.
Allharðar umræður urðu á
fundinum um raunverulegt gildi
skólans.
lagður til hinztu hvilu, eftir að
póiitiskir og hernaðarlegir leið-
togar höfðu lýst yfir stuðningi við
ekkiu hans og eftirmann, Mariu
Esteiu Perón.
Áður en likfylgdin lagði af stað,
stóö frú Perón við börur manns
sins i þinghúsinu og tók við
stuöningsyfirlýsingum frá ýms-
um valdahópum I landinu. Siðan
var kistu forsetans ekið á
fallbyssuvagni til kapellu forseta-
bústaðarins, sem er i úthverfi Bu-
enos Aires. Þúsundir syrgjenda
stóðu meðfram veginum og lög-
reglumenn öxl við öxl. Þeir létu
þaö afskiptalaust, er hópur
ungPerónista braust i gegn um
girðingarnar til að ganga á eftir
vagninum.
Sojus 14.
ó lofti
APN— Moskvu — Geimskipinu
Sojusi 14. var skotið á ioft á mið-
vikudaginn kl. 21.51 að Moskvu-
tíma. Innanborðs eru Pavel
Popovits, ofursti, sem er stjórn-
andi geimfarsins og Júri Artjúkin
fiokksforingi, sem er flugvirki.
Geimskot þetta er i samræmi við
áætlun um rannsóknir á gufu-
hvoifssvæðunum, sem liggja
næst jörðu.
Leiðangurinn Sojus 14. mun
gera tilraunir I samvinnu við
geimvisindastöðina Saljút 3., sem
send var út i geiminn 25. júni, svo
og flókin Sojus-tæki, sem komið
hefur verið fyrir á við og dreif.
Stöðugt útvarps- og sjónvarps-
samband er við Sojus 14. og
tilkynnti yfirmaður áhafnar, að
hún hefði þolað vel breytinguna á
þyngdarlögmálinu.
011 tækjakerfi geimskipsins
starfa eðlilega og skilyrði i klef-
um skipsins eru mjög lik þvi sem
er á jörðu niðri. Eftir að komið
var út I geiminn, fóru
geimfararnir að vinna sam-
kvæmt ferðaáætluninni.
( Reykjaneskjördæmi j
störfuðu
Stjórn kjördæmis-
sambands Reykja-
neskjördæmis og
frambjóðendur
þakka þeim fjöl-
mörgu flokksfélög-
um og öðru áhuga-
fólki, sem
að undirbúningi
kosninganna og á
kjördegi, fyrir óeig-
ingjarnt starf i þágu
Framsóknarflokks-
ins.
Hafréttarráðstefnan:
Bretar vilja ræða
200 mílna lögsögu
— deilt um störf NAA-fiskveiðinefndarinnar
NTB-Caracas. — Bretar eru
nú fúsir til viðræðna um rétt
strandrikja til 200 milna
auðlindaiögsögu. Það var
brezki aðstoðarutanrikisráð-
herrann, David Ennals, sem
tilkynnti þessa nýju stefnu
þjóðar sinnar á hafréttarráð-
stefnunni i Caracas i gær. En
hann lagði áherzlu á, að
Bretar héldu enn fast við það,
sem þeir sögðu I þorska-
striðinu við tsland um, að
samþykkja einhliða útfærslu
fiskveiðilögsögu.
Ennals kvað það framlag
Breta til þess að stuðla að þvi
að lög yrðu sett um hafsvæði
að þeir vildu nú ræða málin.
Hann sagði það efnahagslegt
áhugamál Breta, að vilja
vernda fiskistofna og þróa
fiskiðnað. Hann lét I ljós
áhyggjur yfir þvl að gengið
væri svo nærri vissum fisk-
tegundum, að þær væru að
verða einskis nýtar til vinnslu
eggjahvituefna. Hann sagði að
alþjóðlegar aðgerðir þyrftu að
koma til, til að koma i veg
fyrir að fleiri tegundir hlytu
sömu örlög.
— Það er nauðsynlegt að
vlsindamenn skrái stærð fiski-
stofna og siðan verði komið á
reglum um veiðar, bæði við
strendur og á opnu hafi, sagði
Ennals. — En það verður að
gerast fljótt, þvi ekki aðeins er
hætta á að fiskveiðiþjóðir
verði fisklausar, heldur einnig
að eggjahvituauðugur fiskur
sem mikil þörf er á i þriðja
heiminum, verði upp urinn.
Þá sagði Ennals að gera
þyrfti sérstakar ráðstafanir
varðandi göngufisk, eins og til
dæmis laxinn, og lofaði starf
það sem norðaustur-At-
lantshafs-fiskveiðinefndin
hefur unnið.
Norðmenn hafa hins vegar i
pólitiskri yfirlýsingu harmað,
að nefndin hafi ekki gert neitt i
sambandi við verndun fisk-
stofna og I yfirlýsingunni er
lögð rik áherzla á hlutverk
strandrikja i þvi sambandi.
Sviar og Danir vilja að
nefndin fái aukin völd til
framkvæmda, en Bretar eru
eins og áður segir á öndverð-
um meiði við Norðmenn um
störf hennar og segja að hún
hafi unnið mikið verk, lika i
þágu strandrikjanna i
noröaustri.
— Við erum og verðum þvi al-
gjörlega mótfallnir, að einstök
riki færi út lögsögu sina
einhliða, sagði Ennals. — 1 þvi
efni sem öðrum hafréttarmál-
um, skal gera samninga.
Ekkerf baktjalda-
makk í Moskvu
— segir Kissinger
NTB—Parls — Kissinger kom i
gær til Parisar til að fræða
franska leiðtoga um heimsókn
Nixons til Moskvu. Kissinger kom
frá Brussel, þar sem hann skýrði
fastaráði Nato frá samræðum
Nixons og Bréznefs og ræddi
samband Bandarlkjanna og EBE
við EBE-nefndarmenn.
Aður en Kissinger fór frá
Brussel hélt hann blaðamanna-
fund, þar sem hann fullvissaði
alla um, að ekki hefðu verið gerð-
ir neinir leynisamningar I
Moskvu og ekki hefði verið um
neitt baktjaldamakk að ræða. Var
þarna einkum höfðað til öryggis-
ráöstefnu Evrópu, sem Sovétrikin
vilja ljúka sem fyrst með topp-
fundi.
Kissinger sagði, að áður en ráð-
stefnunni yrði haldið áfram,
þyrfti að svara tveimur spurning-
um: Hvaða árangur getur orðið
af siöari hluta hennar og getur sá
árangur réttlætt toppfund 35 þátt-
tökurikja? Við erum reiðubúnir
að ræða þetta við bandamenn
okkar, án þess að vera fyrirfram
bundnir.
Sjö létust og
fjórtán særðust
— í mótmælum gegn bandarískum herstöðvum
NTB-Bangkok— Stúdentasamtök
I Thailandi hafa samþykkt að
fresta áætluðum mótmælaað-
gerðum gegn bandariskum her-
stöðvum i landinu fram i október.
Akvörðunin var tekin eftir að sjö
manns létu lifið og fjórtán
særðust, þegar lögreglan hóf
skothrið á hóp mótmælenda i gær.
Þeir höfðu ráðizt að lögreglustöð
og krafizt þess, að leigubilstjóri
einn yrði látinn laus.
Atökin við lögregluna hófust
um leið og mótmælaganga gegn
Bandariska hernum átti að
hefjast, en I gær var þjóðhátiðar-
dagur Bandarikjanna.
Forsætisráðherra landsins átti
fund meðleiðtogum stúdenta eftir
átökin og gerði þeim grein fyrir
þvi, að komið gæti til blóðsút-
hellinga ef gangan héldi áfram og
þeir misstu stjórn á fólkinu.
I staðinn héldu stúdentar
marga fundi, þar sem her-
stöðvunum var mótmælt. Nú eru
sex bandariskar stöövar i
Thailandi og þaðan voru farnar
árásarferðir til Indó-Kina.
Átökin I gær voru hin mestu
siðan herstjo'rn landsins var
steypt i stúdentauppreisninni i
Eimskipafélagið hefur nýverið
selt tvö af eldri skipum félagsins,
M.s. „TUNGUFOSS” og M.s.
„BAKKAFOSS”. Var „TUNGU-
FOSS” afhentur nýjum eigendum
i Hamborg 24. júni s.l. og ráðgert
er að „BAKKAFOSS” verði af-
hentur um miðjan júli.
M.s. „TUNGUFOSS” var
smiðaður fyrir Eimskipafélagið
af Burmeister &Wain i Kaup-
mannahöfn árið 1953 og er þvi 21
árs gamall. M.s. „BAKKAFOSS”
var smiðaður i Danmörku árið
1958. Keypti Eimskipafélagið
skipið I marz 1963.
Eins og áður hefur verið sagt
október I fyrra. Mótmælin eiga að
fara fram á ársafmæli
uppreisnarinnar.
frá I fréttum, hefur Eimskipa-
félaið keypt fimm vöruflutnings-
skipáþessu ári. Þessi skip eru nú
öll komin til landsins. Fjögur
skipanna eru keypt i Danmörku,
M.s. „ALAFOSS”, M.s.
„GRUNDARFOSS”, M.s. „OÐA-
FOSS”, og „URRIÐAFOSS’. Þau
eru öll af sömu stærð, 499 brúttó-
tonn og lestarrými 103.000
teningsfet. Heita má að þessi skip
séu einnig eins að allri gerð
(systurskip). — Fimmta skipið er
keypt i Noregi, M.s. „LJÓSA-
FOSS”. Er það frystiskip, 199
brúttótonn að stærð og lestarrými
Framhald á bls. 19
EIMSKIP SELUR
TVÖ SKIP-HöWr