Fréttablaðið - 13.12.2004, Side 25

Fréttablaðið - 13.12.2004, Side 25
Lofthreinsitæki ECC ehf - Skúlagötu 17 - 101 Reykjavík - Sími 511 1001 - ecc@ecc.is - www.ecc.is Kröftugt jónastreymi Gefur frá sér mínus hlaðnar jónir sem hjálpa til við að eyða m.a. ryki, mengun, veirum og frjódufti. Heldur herbergisloftinu hreinu og bætir heilsuna. Bakteríudrepandi útfjólublár lampi Útfjólubláa ljósið drepur ýmsa sýkla og bakteríur og eyðir lykt (t.d. reykinga- og matarlykt) Kröftug ryksöfnun Ryðfrí stálblöð safna á sig ryki og öðrum óhreinindum í stað hefðbundins fílters. Þrjú skref HI, MED og LOW stillingar og Turbo stilling fyrir mismunandi aðstæður. (Blá ljós sýna stillingu). Gaumljós Ljós sýna hvort þrífa þarf stál blöðin eða hvort tækið þarfnast annars viðhalds. Mikill orkusparnaður Vegna orkusparandi hönnunar notar tækið aðeins 28W/klst. Upplýsingar í síma 511 1001 Opið frá 09.00 til 18.00 Til: Heim ilisin s Jólagjöfin í ár! Algjörlega hljóðlaust! hreinsar loftið, eyðir lykt og drepur sýkla MÁNUDAGUR 13. desember 2004 Fylla húsið lífi og angan Hýasintur eru ómissandi á jólunum. Alltaf er gaman að fylgjast með einhverju gróa og ekki síst í skammdeginu þegar flestallur jarðargróður liggur í dvala. Hyacinturnar eru einmitt dæmi um blóm sem gaman er að hafa nálægt sér á jólunum. Það gæð- ir heimilið lífi og fyllir það ljúfri angan. Hyasinturnar eru til í nokkrum litum, bláum, hvít- um og bleikum og þær eru mik- ið notaðar í jólaskreytingar með greni og skrauti. Auðveldar vinnu við sparsl Málning flytur inn tæki sem sparslar gifsplötur Málning hefur fengið umboð og hafið sölu á Apla-tech tækjum fyrir málarameistara og aðra fagmenn. Þetta er tæki til að sparsla samskeyti á gifsplötum og gera alla vinnu mun auðveld- ari. Áhaldið ber sparslið mjög jafnt á, þannig að það verða eng- ar misjöfnur og aðeins þarf að pússa létt yfir sparslið eftir á. Hægt er að fá á tækið ýmsa fylgihluti svo hægt sé að nota það á erfiðum stöðum. Klósettráð Huga þarf að baðherberg- inu endrum og sinnum. • Sturtaðu alltaf niður með kló- settsetuna niðri svo sýklarnir fái ekki að gæða sér á ný- þvegna baðherberginu þínu. • Helltu flötu kóki í klósettið og skildu það eftir í klukkustund einu sinni í viku, til að losa þig við lífseiga bletti. • Til að ná góðum árangri er best að þrífa klósettið í þessari röð: vatnsþró, handfang, ytra yfir- borð skálar, lokið, setuna, undir setunni, inni í klósettinu. • Til að fríska loftið í baðher- berginu á fljótlegan hátt er gott að setja ögn af mýkingarefni í ruslatunnuna eða smá ilm á ljósaperuna. Þegar kveikt er á henni losar hitinn um ilminn.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.