Fréttablaðið - 23.12.2004, Side 18
SKAMMDEGI Sól er farin að rísa á
sjóndeildarhringnum á ný eftir
að skammdegið náði hámarki í
fyrradag. Eins og gengur er
mönnum misvel við myrkrið,
sumir kunna vel við kertaljós í
rökkrinu, aðrir leggjast í þung-
lyndi og enn aðrir nota húmið til
sannkallaðra myrkaverka en af
þeim er víst nóg á þessum árs-
tíma.
Bjart yfir Íslandi
Myrkrið var í meira lagi í fyrra-
dag og þótti mörgum landsmönn-
um nóg um. Það er hins vegar
staðreynd að þótt dimmt sé hér á
þessum árstíma þá búa fáar þjóð-
ir við meiri birtu en einmitt
Íslendingar. Í Almanaki Háskóla
Íslands segir að birtustundir eru
nokkru fleiri á norðurhveli jarð-
ar og nær heildarbirtutíminn há-
marki nálægt 69. breiddargráðu.
Ísland er örlitlu sunnar á hnettin-
um og því er hér bjart í um það
bil 5.500 klukkustundir á ári,
tæplega fimmtán klukkustundir
að jafnaði á dag. Fólk sem býr á
miðbaug jarðar nýtur aftur á
móti birtunnar aðeins í tæpar
þrettán klukkustundir daglega.
Á hinn bóginn er birtunni hér-
lendis mjög misskipt því
myrkrið safnast á veturna en
ljósið á sumrin. Það er þó huggun
harmi gegn að heldur meira er af
birtunni því á sumarsólstöðum
er bjart allan sólarhringinn á
meðan sólin skín í nokkrar
klukkustundir við vetrarsól-
hvörf.
Myrkraverk
Eðli málsins samkvæmt eykst
álagið á raforkukerfinu yfir
vetrarmánuðina. Ólíkt því sem
margir halda þá er rafmagns-
notkun ekki mest á aðfangadags-
kvöld þegar útvarpsmessan
glymur og jólalambið stynur.
Samkvæmt uppplýsingum frá
Orkuveitu Reykjavíkur nær
notkunin hámarki síðustu dag-
ana fyrir jól, bæði vegna myrk-
ursins og viðbótarlýsingarinnar
vegna jólanna, og
fer þá raf-
magnsnotkun-
in upp í 164
megavött. Til
samanburðar
þá er núver-
andi fram-
leiðslugeta Nesjavallavirkjunar
90 megavött.
Þrátt fyrir alla lýsinguna nota
misindismenn skammdegið
gjarnan til ýmiss konar myrkra-
verka. Geir Jón Þórisson, yfir-
lögregluþjónn í Reykjavík, segir
innbrotum hafi fjölgað talsvert
þetta haustið frá því í sumar og
má gera því skóna að myrkrið
hafi þar eitthvað að segja. Að
innbrotunum frátöldum virðist
lítil fylgni á milli afbrota og
birtu, þó eru hótanir af einhverj-
um ástæðum algengari að vetr-
arlagi að því er fram kemur í af-
brotatölfræði ríkislögreglustjóra
fyrir síðasta ár.
Þungt í fólki
Myrkrið getur farið svo
illa í fólk að það leggst
hreinlega í þunglyndi.
Skammdegisþunglyndi
er nánast óþekkt við mið-
baug en tíðni þess eykst
eftir því sem nær dregur
pólunum. Það vekur hins
vegar athygli að algengið
er helmingi lægra á Íslandi en
það ætti að vera miðað við legu
landsins. Fræðimenn hafa leitt
að því getum að slíkt þunglyndi
sé arfgengt og þeir sem hafi
verið hrjáðir af því fyrr á öldum
hafi síður gifst og eignast börn.
Þannig hafi náttúruval dregið úr
skammdegisþunglyndi hérlend-
is.
Björn Harðarson sálfræðing-
ur segir talsvert um að fólk
kvarti yfir depurð vegna myrk-
ursins. Slíku fólki er hægt að
veita einfalda meðferð með
ljósalömpum en lyfjameðferðir
eru einnig notaðar.
Björn álítur að margir skelli
skuldinni á myrkrið þegar eitt-
hvað annað er raunveruleg orsök
vanlíðanarinnar, til dæmis skóla-
leiði og ótti við einelti sem eðli-
lega blossar upp á haustin þegar
myrkrið fer að færast yfir. „Síð-
an má ekki gleyma að þegar
sumir finna fyrir þunglyndi
þá keyra þeir sig enn lengra
niður. Þetta getur gerst
þannig að fólk kvíðir fyrir
skammdeginu, svo þegar
skammdegið kemur þá telur
fólkið að þar með hljóti það að
vera orðið þunglynt.“ Góðu frétt-
irnar eru að þessu má sem betur
fer snúa við og segja að jákvæð-
ar hugsanir sporni beinlínis við
þunglyndi. „Heilalínurit sýna að
serótónínflæði í heilanum nær
jafnvægi eftir hugræna meðferð
þar sem neikvæðum hugsunum
er breytt í jákvæðar og rökréttar
hugsanir,“ segir Björn.
Rómantík í rökkrinu
Þeir eru hins vegar fjölmargir
sem kunna ekkert síður vel við
myrkur en birtu. „Öll sköpun
verður til í myrkri móðurkviðar-
ins,“ segir Árni Þórarinsson
blaðamaður sem er annálaður
nátthrafn. „Yfirleitt hefur myrk-
ur engin áhrif á mig, hvorki til
góðs né ills. Mér líður bara ágæt-
lega í myrkri alveg eins og í
birtu, og í kulda ekki síður en
hita,“ bætir hann við. Rétt eins
og Björn telur Árni að myrkrið
sé í mörgum tilvikum gert að
blóraböggli fyrir sálarangist. „Ef
hið innra ljós manna er við-
kvæmt og veikt þá hafi myrkur
slæm áhrif. Ef maður getur frek-
ar fundið það innra með sér frek-
ar en að leita að því í hinu ytra þá
held ég að allir eigi möguleika á
að lifa myrkrið bærilega af.“
Síðan má ekki gleyma því að
vetrarkuldinn og myrkrið eru á
margan hátt rómantískur tími.
Tracy Cox, höfundur bókarinnar
Súperflört, segir að aðstæður
hérlendis yfir vetrarmánuðina
til daðurs og ástaratlota séu afar
heppilegar. „Nú er svo mikið
rökkur og tími fyrir kertaljós en
þá stækka sjáöldrin og augun
verða fallegri. Síðan vill fólk
hjúfra sig hvort upp að öðru í
kuldanum til að fá yl, jafnvel
þegar það er innandyra. Kuldinn
og myrkrið úti gerir þetta að
verkum,“ sagði hún í viðtali við
blaðið fyrir nokkru.
Margt býr þannig í myrkrinu
sem smám saman fer að kveðja
okkur, sumum til gleði en öðrum
til ama.
sveinng@frettabladid.is
18
Framkvæmdaráð Evrópusambandsins
mælist til þess að að haldið verði áfram
verndaraðgerðum vegna innflutnings á
eldislaxi til Evrópusambandsríkja. Toll-
arnir áttu að gilda í 200 daga frá 15.
ágúst síðastliðnum. Aðgerðunum er
helst beint gegn Norðmönnum. Ísland
er í flokki bandarískra, kanadískra og
rússneskra eldislaxframleiðenda. Þau
lönd flytja helst inn villtan lax til Evrópu.
Guðbrandur Rúnarsson, framkvæmda-
stjóri Landssambands fiskeldisstöðva,
segir helstu breytingarnar nú að Chile
þurfi einnig að greiða tolla og sett verði
lágmarksverð á laxinn.
Hvaða áhrif hafa áframhaldandi tollar
á eldislax á íslenskan útflutning?
Við getum ekki fullyrt hver áhrifin verða.
Tollarnir voru settir á um mitt sumar og
það hækkaði ekki verð á laxi. Áhrifin
voru eiginlega þveröfug við það sem
vonast var til með þessum varnarað-
gerðum, því verðið lækkaði.
Hefur kvótinn sem íslensk fyrirtæki
fengu ásamt kanadískum, bandarísk-
um og rússneskum verið fullveiddur?
Nei, hann var aðeins notaður að litlu
leyti.
Ætti utanríkisráðuneytið að beita sér
fyrir því að aflétta tollunum?
Já, það er okkar opinbera stefna, við
viljum ekki tolla á svona afurðir al-
mennt séð. Það getur kostað seinna þó
það sé hagstætt núna. - gag
GUÐBRANDUR RÚNARSSON
Tollarnir höfðu
þveröfug áhrif
TOLLAR Á LAX Í EVRÓPU
SPURT OG SVARAÐ
Smygl á kókaíni hefur verið í kastljósinu
en Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hefur
lagt hald á alls um 1,8 kíló af þessu
efni í mánuðinum. Það er meira magn
en lagt var hald á allt árið í fyrra. Yfir-
völd segja að margt bendi til að neyslu-
hlutfall milli eiturlyfjategunda hafi
breyst og munar þar mest um aukna
kókaínneyslu, sem virðist vera að teygja
sig niður eftir aldursstiganum.
Hvað er kókaín?
Kókaín er hvítt duftkennt efni sem er
unnið úr kókalaufi og dregur nafn sitt af
því. Kókaín er mjög ávanabindandi efni
sem veldur um stund sælu- og vellíð-
unartilfinningu, eirðarleysi og spennu.
Efnafræðilega er það skylt amfetamíni.
Kókaín er yfirleitt sogið upp í nefið en
hægt er að umbreyta því svo hægt sé
að reykja það og er það þá yfirleitt kall-
að krakk.
Hvaðan kemur kókaín?
Kókalaufin sem kókaín er unnið úr vaxa
í Andesfjöllum í Suður-Ameríku, í hluta
Amazon-frumskógarins og á eyjunni
Jövu í Indónesíu. Kókaín er að mestu
leyti til unnið og flutt út úr löndum við
Andesfjöll, sér í lagi Kólumbíu, Perú og
Bólívíu, en eiturlyfjabarónar hafa gert
sig mjög gildandi þar og hafa tögl og
hagldir í löndunum. Kókaínvandinn hef-
ur einnig farið vaxandi í Mexíkó.
Hverjar eru aukaverkanir kókaíns?
Kókaín hefur fyrst og fremst áhrif á
taugakerfið og hjarta- og æðakerfið.
Það veldur skammvinnri sælu hjá þeim
sem neytir þess sem og aukinni orku.
Aukaverkanir geta verið skjálfti í hönd-
um, hraður hjartsláttur, svimi, ógleði, út-
víkkun augnsteina og hár líkamshiti.
Þegar víman líður hjá er ekki óalgengt
að fólk finni fyrir kvíða, þunglyndi og
þreytu. Fyrst sækjast menn gjarnan eftir
kókaíni vegna vellíðunarkenndarinnar
sem það veitir en verði þeir háðir því er
það notað til að forða sér frá vanlíðan.
Ofneysla kókaíns getur leitt til
krampakasta, hjartaslaga, heilablóðfalls
eða dauða.
Skammvinn sæla
HVAÐ ER? KÓKAÍN
23. desember 2004 FIMMTUDAGUR
Margt býr í myrkrinu
Kolsvart skammdegið grúfir yfir Íslandi um þessar mundir þótt hilli undir að daginn taki að lengja.
DRUNGALEGUR DESEMBER
Misindismenn fremja gjarna myrkraverk í svartasta skammdeginu, margir leggjast í þung-
lyndi en jafnframt nota elskendur tækifærið og hjúfra sig hvorir upp að öðrum.
BRRRRRRR
Fílstarfinum Mekong leist illa á hitastigið
í lauginni sinni þegar hann dýfði rananum
ofan í hana í vikunni. Nokkurt frost
hefur verið í Leipzig í Þýskalandi þar
sem Mekong býr en slíkur kuldi er
fílum lítt að skapi.
M
YN
D
A
P
BJÖRN HARÐARSON TRACY COX
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA