Fréttablaðið - 06.01.2005, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FIMMTUDAGUR
NÝ MYNDLIST Klukkan þrjú í dag kem-
ur listamaðurinn Egill Sæbjörnsson fram í
Listasafni Íslands í tengslum við verkið You
Take All My Time á sýningunni Ný íslensk
myndlist.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
6. janúar 2005 – 4. tölublað – 5. árgangur
● losar um orkuhnúta
Reikimeistari
Bergur Björnsson:
▲
SÍÐA 38
AÐSTÆÐUR ENDURMETNAR Hættu-
ástand í Bolungarvík verður endurmetið í
hádeginu í dag en í gær þótti ekki óhætt
að hleypa 92 íbúum til síns heima. Hættu-
ástandinu var aflétt í Ísafjarðarbæ seinni
partinn í gær. Sjá síðu 2
VILJA LANDIÐ AF LISTANUM Mikill
meirihluti landsmanna vill Ísland burt af
lista hinna „staðföstu þjóða“ sem studdu
innrásina í Írak. Í þeim hópi eru 80 prósent
framsóknarmanna og 58 prósent sjálfstæð-
ismanna. Sjá síðu 6
ÓTTAST MEIRI SAMDRÁTT Yfirlækn-
irinn á Vogi óttast að til enn frekari sam-
dráttar komi í starfi SÁÁ vegna kostnaðar við
viðhaldsmeðferð ópíumfíkla. Samdráttur
sem þegar hefur verið ráðist í bitnar mest á
bráðveiku fólki. Sjá síðu 8
Kvikmyndir 34
Tónlist 30
Leikhús 32
Myndlist 32
Íþróttir 26
Sjónvarp 36
● tíska ● heimili
Hlýja mér í
hjartanu
Katrín Guðmundsdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
BJARTVIÐRI AUSTAN TIL Él norðan
til og á Vestfjörðum. Skýjað um sunnanvert
landið. Frost 0-6 stig. Sjá síðu 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Í GRÍMSEY
Ekki er vitað til þess að skemmdir hafi orðið
í jarðskjálftahrinu sem hófst um miðjan dag
í gær austsuðaustur af Grímsey.
Norðurland:
Tveir snarpir
jarðskjálftar
JARÐSKJÁLFTAR Snarpir jarðskjálftar
urðu um 20 kílómetra austsuðaust-
ur af Grímsey um miðjan dag í gær.
Skjálftarnir fundust víða á Norð-
urlandi, m.a. í Grímsey, á Akureyri
og á Húsavík, án þess þó að tjón hafi
hlotist af. Ragnhildur Hjaltadóttir,
íbúi í Grímsey, sagðist hafa fundið
skjálftana vel og vissi til þess að í
sumum húsum í eyjunni hafi mynd-
ir skekkst á veggjum.
„Þetta byrjaði með skjálfta upp á
um 4 á Richter fimmtán mínútur
fyrir fjögur og svo fimm mínútum
seinna varð annar upp á 5,5 á
Richter,“ sagði Steinunn Jakobs-
dóttir, deildarstjóri á Veðurstofu Ís-
lands. Eftirskjálftarnir voru sumir
allt að 3 á Richter og taldi hún að bú-
ast mætti við nokkrum slíkum. - óká
SAMGÖNGUR Ekkert skipa íslenskra
flutningafyrirtækja er skráð hér á
landi utan eins sem bara sinnir inn-
anlandsmarkaði. Tvö ný flutninga-
skip Samskipa verða skráð í Fær-
eyjum ásamt áhöfnum þeirra.
Höskuldur H. Ólafsson, aðstoð-
arforstjóri Eimskips, segir á annað
hundrað milljóna króna myndu
sparast árlega væru allar áhafnir
skipa fyrirtækisins erlendar. Eim-
skip hugleiðir einnig að skrá ís-
lenskar áhafnir í Færeyjum: „Við
hugleiðum þetta ekki út frá öðru en
að aðrir hafa kostnaðarlega yfir-
burði af því að skrá áhafnir erlend-
is, hvort sem það er í Færeyjum eða
annars staðar í heiminum,“ segir
Höskuldur og bendir á að
Atlantsskip notist bara við erlendar
áhafnir, en það þrýsti á keppinaut-
ana að bregðast eins við. „Hingað til
höfum við viljað hafa íslenskar
áhafnir á skipum í föstum áætlana-
siglingum til og frá landinu, en það
verður auðvitað að endurskoða í
ljósi aðstæðna á hverjum tíma.“
Pálmar Óli Magnússon, fram-
kvæmdastjóri rekstarsviðs Sam-
skipa, segir nýju skipin skráð í
Færeyjum til að tryggja íslensku
sjómönnunum áframhaldandi
vinnu, fyrirtækið væri ekki sam-
keppnishæft gerði það skipin út
héðan.
Sjómannafélag Reykjavíkur
skorar á stjórnvöld að laga rekstr-
arumhverfi kaupskipaútgerða að
því sem gerist í nágrannalöndunum
og tryggja íslenskum sjómönnum
vinnu. Jónas Garðarsson formaður
félagsins gagnrýnir að tekið hafi
stjórnvöld á annað ár að skoða
hvort hægt sé að endurskoða lög
um kaupskip, þau séu með seina-
ganginum að glopra störfum frá
landinu.
Pálmar segist ekki sjá hag í að
færa skráningu skipa hingað aftur
nema íslensk stjórnvöld gerðu bet-
ur en tíðkist í löndunum í kring,
enda fylgi kostnaður svo umfangs-
miklum breytingum. Undir það tek-
ur Höskuldur: „Þegar fyrirtæki eru
búin að hreyfa sig einu sinni þarf að
gera heldur betur til þess að það
hreyfi sig aftur.“ - gag
Flutningaskipin
skráð erlendis
Eimskip myndi spara á annað hundrað milljóna króna ef áhafnir fyrir-
tækisins væru erlendar. Sjómannafélag Reykjavíkur segir stjórnvöld
glopra störfum úr landinu með ósamkeppnishæfu skattaumhverfi.
DAGAR EFTIR AF
JANÚARTILBOÐI TOYOTA
26
Corolla
Tilboðsverð
1.669.000 kr.
LÁTIÐ BARN BORIÐ Í LÍKHÚS Taílenskur læknir ber lítið barn í líkhús í Takuapa í suðurhluta Taílands í gær. Alls hafa nú safnast um 80
milljónir króna á Íslandi til hjálparstarfs Rauða krossins á hamfarasvæðunum í Asíu. Ástralía er það ríki sem heitið hefur mestu fjármagni
til hjálparstarfsins eða um 48 milljörðum króna. Sjá síðu 2,4 og 18.
SKATTRANNSÓKN Baugur unir ekki
endurálagningu ríkisskattstjóra
vegna tekjuáranna 1998 til 2002. Í
yfirlýsingu Hreins Loftssonar,
stjórnarformanns félagsins segir
að félagið sætti sig ekki við for-
sendur álagningarinnar og muni
skjóta málinu til yfirskattanefnd-
ar og dómstóla ef þörf er á.
Heildarfjárhæð endurálagn-
ingarinnar nemur 464 milljónum
króna. Þar af myndi félagið sjálft
að óbreyttu bera 282 milljónir
króna að teknu tilliti til greiðslna
sem þegar hafa verið inntar af
hendi og endurkröfurétti á þriðja
aðila.
Af þessum 282 milljónum eru
223 milljónir ágreiningur milli
Baugs og skattayfirvalda um
söluhagnað vegna samruna Hag-
kaupa og Bónuss árið 1998.
Endurálagningin nær til fimm
rekstrarára og voru tekjur félags-
ins á tímabilinu 150 milljarðar
króna. Félagið færði til gjalda af
varúðarástæðum tekjuskattskvöð
í samræmi við frumskýrslu í árs-
uppgjöri félagsins fyrir 2003.
Hagnaður Baugs fyrir það ár var
9,5 milljarðar króna.
Í lok yfirlýsingar harmar
stjórnarformaður Baugs leka til
fjölmiðla um rannsókn á málefn-
um félagsins og áréttar mikilvægi
þess að félagið fái frið til að færa
fram athugasemdir sínar gagn-
vart réttum yfirvöldum.
- hh
Baugur kærir endurálagningu fimm ára tímabils:
Heildarupphæðin 464 milljónir
Útsölubæklingur BT fylgir blaðinu í dag
Útsalan hefst kl. 11:00 í dag
Impregilo:
Bara einn
fékk svar
VINNUMARKAÐUR Alþýðusambandið
segir ítalska verktakafyrirtækið
Impregilo draga lappirnar í manna-
ráðningum í gegnum evrópska
vinnumiðlunarvefinn Eures.
Þegar fyrirtækið var látið aug-
lýsa þar áður munu hafa borist á
annað hundrað umsóknir og 80 um-
sækjendur uppfyllt gerðar kröfur,
en enginn fengið svar nema Norð-
maður einn sem var þrjóskur og
gafst ekki upp. „Hann gerði athuga-
semd við það að íslensk stjórnvöld
stæðu að birtingu auglýsinga sem
þau ættu ekkert að gera með,“ segir
Halldór Grönvold, framkvæmda-
stjóri ASÍ.
Impregilo vísar ásökunum ASÍ á
bug. sjá síðu 10 - ghs
AP
M
YN
D