Fréttablaðið - 06.01.2005, Síða 4
4 6. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
MALASÍA, AP Rizal Shahputra, 23
ára Indónesi, fannst á lífi fljótandi
á trjágreinum og ýmsu braki um
160 kílómetra undan strönd
Súmötru átta dögum eftir að flóð-
bylgjan skall á landið. Skipverjar
á flutningakipi frá Malasíu komu
auga á Shahputra úti á rúmsjó á
mánudaginn og virtist hann ótrú-
lega vel á sig kominn þegar
honum var bjargað um borð.
Hann kom síðan aftur á fast land í
gær þegar flutningskipið kom til
hafnar í Malasíu.
Shahputra var að þrífa mosku í
Banda Aceh á Súmötru þegar flóð-
bylgjan skall á. Hann segir að
börn hafi hlaupið inn í moskuna til
að vara hann við en það hafi verið
um seinan. Hann hafi sogast með
öldunni út á haf.
„Í fyrstu hékk ég á trjágrein-
um með nokkrum vinum mínum,“
segir Shahputra. „Eftir nokkra
daga voru þeir farnir. Ég sá lík
allt í kringum mig.“
Shahputra segir að eitt skip
hafi siglt framhjá honum án þess
að taka eftir honum áður en skip-
verjar flutningakipsins komu
auga á hann. Hann segist hafa
haldið lífi með því að borða kókos-
hnetur sem hann braut með hurð-
arhún og drekka regnvatn.
Á föstudaginn fannst kona á lífi
úti á sjó. Hún hafði haldið lífi með
því að borða ávexti af trénu sem
hún hékk á. ■
■ FLÓÐBYLGJANHjálparmiðstöðvar:
Börn
misnotuð
SRI LANKA, AP Þrjú tilfelli um kyn-
ferðislega misnotkun á börnum,
sem lifðu af flóðbylgjuna sem
skall á Sri Lanka á annan í
jólum, hafa verið tilkynnt yfir-
völdum þar. Börnin voru
staðsett í hjálparmiðstöðvum
þegar þau voru misnotuð.
Einnig er vitað um tvær
hópnauðganir á konum skammt
frá hjálparmiðstöðvum. Þá rétt
slapp sautján ára stúlka sem lá á
gólfi inni í skýli einnar hjálpar-
miðstöðvarinnar við að verða
nauðgað af afa sínum í vikunni.
Starfsmenn hjálparmiðstöðv-
anna standa agndofa frammi
fyrir þessari nýju ógn því nú er
ekki nóg með að þeir þurfi að
hlúa að fórnarlömbunum heldur
þurfa þeir einnig að gæta þess
að kynferðisbrotamenn komist
ekki nálægt þeim. ■
Söfnunarsíminn er 907 2020
Með því að hringja í söfnunarsímann leggur þú fram 1.000 kr. til hjálparstarfsins
í Asíu. Einnig er hægt að leggja fram fé með kreditkorti á www.redcross.is,
eða millifærslu á bankareikning 1151-26-000012, kt. 530269-2649.
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
kostar birtingu auglýsingarinnar
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
113,44 -0,13%
SALA
GENGI GJALDMIÐLA 05.01.2005
GENGIÐ
Bandaríkjadalur 62,77 63,07
Sterlingspund 117,63 118,21
Evra 83,05 83,51
Dönsk króna 11,17 11,23
Norsk króna 10,00 10,06
Sænsk króna 9,16 9,22
Japanskt jen 0,60 0,60
SDR 95,69 96,27
HAMFARIR Alþjóðasamfélagið
hefur heitið 190 milljörðum króna
í hjálparstarf og uppbyggingu í
kjölfar hamfaranna í Asíu.
Ástralía er sú þjóð sem heitið
hefur mestu fjármagni. Ástralar
hafa þegar samþykkt að verja 48
milljörðum íslenskra króna í
verkefnið. Þjóðverjar tilkynntu í
gær að þeir hygðust veita 42 millj-
örðum króna til hjálparstarfsins
og er Þýskaland þar með sú Evr-
ópuþjóð sem veitir mestu fé.
Með 10 milljóna króna fram-
lagi Reykjavíkurborgar, sem
ákveðið var í fyrradag, hafa nú
safnast um 80 milljónir króna á
Íslandi til hjálparstarfs Rauða
krossins á hamfarasvæðunum.
Colin Powell, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, heimsótti
Aceh-hérað á Súmötru í gær en
héraðið er á því svæði sem fór
hvað verst út úr hamförunum.
„Ég hef verið í stríði og séð
eyðilegginguna sem því fylgir. Ég
hef farið á svæði eftir að fellibylir
hafa lagt allt í rúst en ég hef
aldrei séð neitt þessu líkt,“ sagði
Powell eftir heimsóknina.
Enn er á reiki hversu margir
hafa nákvæmlega látist vegna
jarðskjálftanna og flóðbylgnanna
sem þeim fylgdu. BBC greindi frá
því í gær að um 140 þúsund
manns væru taldir af en aðrar
fréttastofur hafa nefnt tölur allt
upp í 150 þúsund. Langflestir
létust í Indónesíu eða 94 þúsund
manns en næstflestir létust á Sri
Lanka eða ríflega 30 þúsund
manns.
Þúsundir starfsmanna og sjálf-
boðaliða Rauða krossins dreifa nú
hjálpargögnum á stórum svæðum
með flugvélum, bílum og bátum.
Smám saman er hjálparstarfið að
ná betur til afskekktari svæða í
Indónesíu. Tveir sendifulltrúar
Rauða kross Íslands fara til
Indónesíu í dag en fyrir eru þrír
sendifulltrúar á hamfarasvæðun-
um, einn á Sri Lanka og tveir í
Indónesíu. Samkvæmt upplýsing-
um frá skrifstofu Rauða krossins
á Íslandi hefur alþjóða Rauði
krossinn einsett sér að aðstoða
fórnarlömb hamfaranna til lengri
tíma og er talið að sú aðstoð muni
kosta um 35 milljarða íslenskra
króna.
trausti@frettabladid.is
Nærri 200 milljarðar
króna hafa safnast
Ástralar gefa mest allra þjóða til hjálparstarfs vegna hamfaranna. Colin
Powell heimsótti Súmötru í gær og segist aldrei hafa séð þvílíka eyðileggingu.
Tveir sendifulltrúar Rauða krossins á Íslandi fara til Indónesíu í dag.
COLIN POWELL VARÐ FYRIR ÁFALLI
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna ræðir við fórnarlamb flóðbylgjunnar í Aceh-héraði á
Súmötru. Powell segist hafa orðið fyrir áfalli þegar hann sá eyðilegginguna eftir hamfararnir.
FRAMLAG Á ÍBÚA Í KRÓNUM
Ástralía 2.400
Þýskaland 500
Japan 250
Bandaríkin 75
Noregur 2.100
Ísland 270
Ástralía
Þýskaland
Japan
Bandaríkin
Noregur
Ísland
FRAMLÖG RÍKJA VEGNA
HAMFARANNA Í ASÍU
48,1
41,6
31,5
22,1
11,4
0,08
Land Milljarðar króna
SÆNSKA STRÁKNUM EKKI RÆNT
Sænska stráknum Kristian Walker,
var ekki rænt af sjúkrahúsi á
Taílandi, eins og talið var. Komið
hefur í ljós að um annan dreng var
að ræða og þýskur maður sem kom
með hann á sjúkrahúsið. Kristians
er því enn leitað.
NORÐUR-KÓREA GEFUR Hið sárfá-
tæka ríki Norður-Kórea hefur gefið
sem nemur um tíu milljónum króna
til hjálparstarfsins vegna hamfar-
anna í Asíu. Afganar ætla líka að
leggja sitt af mörkum og senda
lækna á hamfarasvæðin.
HJÁLPARGÖGN TIL SÚMÖTRU OG
SRÍ LANKA Um sex hundruð manns
starfa á vegum Rauða krossins að
hjálparstarfinu á Súmötru. Þegar
er búið að dreifa hjálpargögnum til
8.500 manna á Súmötru en á næstu
vikum er gert ráð fyrir að ná til
300.000 manna. Á Srí Lanka starfa
um 3.000 sjálfboðaliðar Rauða
krossins. Gert er ráð fyrir að á
næstu vikum muni Rauði krossinn
sinna þörfum 80.000 manna á Srí
Lanka.
60 ÞJÓÐVERJAR LÁTNIR Af þeim út-
lendingum sem staðfest er að látist
hafi í hamförunum í Asíu eru flest-
ir frá Þýskalandi eða 60 samkvæmt
fréttastofu AP. Staðfest er að 52
Svíar hafi látist, 41 Breti og 23
Svisslendingar og Japanar. Þá er
staðfest að 15 Finnar hafi látist, 12
Norðmenn og sjö Danir.
SCHUMACHER GEFUR 630 MILLJ-
ÓNIR Þýski Formúlu 1 ökumaður-
inn Michael Schumacher hefur
gefið 630 milljónir króna til hjálp-
arstarfsins í Asíu. Einn af lífvörð-
um Schumachers fórst í
flóðbylgjunni.
SÖFNUN RAUÐA KROSSINS
Almenningur á Íslandi sem vill
styðja hjálparstarfið getur hringt í
907 2020 og þannig lagt fram 1.000
krónur til aðstoðar vegna flóðanna.
Einnig er hægt er að styðja hjálp-
arstarfið með því að leggja inn á
reikning 1151-26-12, kennitalan er
530269-264.
Fannst á lífi á trjágreinum og braki úti á sjó:
Sá lík allt í kringum sig
VEIFAR TIL SKIPVERJA
Skipverjar á malasísku flutningaskipi tóku mynd af Rizal Shahputra skömmu áður en þeir
björguðu honum um borð. Á innfelldu myndinni sést hann ganga á land í Malasíu.
Hamfarirnar:
Stjórnvöld
gagnrýnd
SKANDINAVÍA Stjórnvöld í Skand-
inavíu hafa mátt þola mikla
gagnrýni vegna þess hvernig
staðið var að viðbrögðum og
björgunaraðgerðum Norðmanna
og Svía eftir hamfarirnar í lönd-
unum við Indlandshaf.
Í Svíþjóð hefur birst skoðana-
könnun sem sýnir að annar hver
Svíi telur að Laila Freivalds
utanríkisráðherra hafi staðið sig
illa í málinu en hinsvegar er
Göran Persson forsætisráð-
herra talinn hafa staðið sig
betur.
Í Svíðþjóð hafa verið uppi
háværar kröfur um afsögn
utanríkisráðherrans. Þá hafa
stjórnvöld í Noregi legið undir
ámæli fyrir að hafa ofmetið
fjölda þeirra sem var saknað. ■