Fréttablaðið - 06.01.2005, Page 24

Fréttablaðið - 06.01.2005, Page 24
Ferskt útlit Taktu klípu af dagkreminu og klípu af meiki, blandaðu því saman og berðu svo á húðina. Þannig fær húðin raka og þú færð smá lit í andlitið. Settu varasalva á varirnar eða gloss og þú færð ferskt og fallegt útlit á örskotsstundu og ekki væri verra ef þú myndir brosa þínu blíðasta því fallegt bros er alltaf í tísku.[ Hlý og góð lopaherðasjöl Aðalheiður með barnabarni sínu, Steinunni Jónsdóttur, sem klæðist prjónasali eftir ömmu sína. Aðalheiður Helgadóttir prjónar í frístundum sínum og selur afurðirnar á vægu veðri. „Ég byrjaði á því að prjóna barnateppi fyrir börn og barnabörn. Ég hef misst tölu á því í hve mörg ár ég hef prjónað teppin en þau hafa verið mjög vin- sæl í sængurgjafir. Ég hef líka prjónað litlar ullar- treyjur á ungabörn að sex mánaða aldri,“ segir Aðalheiður. Prjón og hekl hafa verið í tísku að undanförnu og hefur Aðalheiður ekki misst af þeirri tísku- bylgju. „Ég byrjaði að prjóna lopaherðasjöl í fyrra- haust. Dóttir mín bað mig um að prjóna sjal sem væri eins og efri partur af lopapeysu. Ég hef síðan prjónað þannig sjöl en breytt litunum og það hefur verið mjög vinsælt. Ég prjóna líka einlit sjöl sem ég bjó sjálf til uppskriftina að og þau hafa líka selst vel. Sjölin ná niður fyrir brjóst og eru voðalega hlý og góð. Ég hef þau ekki síðari, nema þau séu sér- staklega pöntuð, því þá geta konur bæði notað þau innan undir úlpu og yfir jakka. Þau kosta fjögur þúsund krónur sem er ekki hátt tímakaup,“ segir Aðalheiður og hlær dátt og bætir við að hún taki glöð við hvers konar sérpöntunum. Aðalheiður hefur aðeins verið að fitla við heklið en einbeitir sér helst að prjóninu. „Sólarhringurinn þyrfti eiginlega að vera lengri hjá mér. En mér finnst voðalega afslappandi og gaman að prjóna. Nema þegar ég sit lengi þá tekur aðeins í herð- arnar,“ segir hún, en Aðalheiður er búin að vinna á skammtímaheimili fyrir fötluð börn í sautján ár þannig að prjónið er hlutastarf. „Ég vann alltaf á næturvöktunum og tók auðvitað í prjónana þá. Nú er ég hætt á vöktunum og farin að vinna í eldhús- inu þannig að ég prjóna bara þegar ég kem heim.“ lilja@frettabladid.is Skósnillingurinn Manolo Blahnik SKARTHÚSIÐ Laugavegi 12, s. 562 2466 Jólasendingin af Pilgrim skartgripum komin. Einnig mikið úrval af nælum og öðrum semelíu skartgripum. Sendum í póstkröfu. Stærðir 27-41 Bómull: Svartir og rauðir Satín blóma: svartir, rauðir og dökkbláir Flauel: Svartir og brúnir ( stærðir 35-41) Einnig mikið úrval af blómaskóm í mörgum litum og stærðum. KÍNASKÓR Mikið úrval af kínaskóm í barna- og fullorðinsstærðum Tilboð - Eitt par kr. 1290 • Tvö pör kr. 2000 - SKARTHÚSIÐ Laugavegi 12, s. 562 2466 Jólasendingin af Pilgrim skartgripum komin. Einnig mikið úrval af nælum og öðrum semelíu skartgripum. Sendum í póstkröfu. ÚTSALA Í SKARTHÚSINU 20-50% afsláttur af töskum 30% afsláttur af Elsie Ryan kjólum og toppum. Mikið úrval af sjölum, treflum, alpahúfum og flísfóðruðum vettlingum Sendum í póstkröfu Laugavegi 62 sími 511 6699 Glæsibæ sími 511 6698 www.sjon.is sjon@sjon.is Garðatorgi sími 511 6696 NÝ SEN DING ] FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Margar konur kannast við „skó- áráttuna“, þ.e. að eiga erfitt með að standast fallegt skópar þó svo að heima sé troðfullur skápur af allskyns skóm sem enn eru í fullu gildi. Þessar sömu konur kannast þá eflaust við spænska skóhönnuð- inn Manolo Blahnik sem hlaut alþjóðaathygli þegar Carrie og vinkonur hennar í sjónvarpsþætt- inum „Sex and the City“ birtust á skjánum fyrir nokkrum árum. Carrie gekk nær undantekningar- laust í Blahnik skóm en skapari hennar, Sarah Jessica Parker, er sömuleiðis mikill áðdáandi sem og margar stjörnur úti í hinum stóra heimi. Manolo Blahnik á sér þó mun lengri sögu því árið 1973 opnaði hann sína fyrstu skóverslun í Chelsea hverfinu í London. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar, Blahnik á nú búðir um allan heim og ásamt því að hanna undir eigin nafni er hann einnig í samstarfi við stóra hönnuði eins og John Galliano og Michael Kors. Öll framleiðslan fer fram á Ítalíu og það sem fullkomnar hönnunina er að lokavinnslan er öll unnin í höndunum. Mikil natni er lögð í hvert einasta par svo að skórnir verða mjög persónulegir, efnin og leðrið er í hæsta gæðaflokki og kvenleikinn er í fyrirrúmi. Skórnir hennar Carrie.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.