Fréttablaðið - 06.01.2005, Síða 34

Fréttablaðið - 06.01.2005, Síða 34
Jólin eru ekki fyrr búin en verslanir landsins eru farnar að auglýsa útsölur. Smáralindin var snemma í því í ár. Út- sölur þar byrjuðu strax þriðja janúar en Kringlan byrjar formlega með útsölur í dag. Fólk skiptist yfirleitt í tvo flokka þegar kemur að útsölum, annaðhvort elskar fólk þær eða hatar. Það er þó sama í hvorum flokknum fólk er – allir geta gert góð kaup þegar útsölur eru annars vegar. Á útsölu er gott að kaupa praktíska hluti eða grunninn í fataskáp- inn eins og hvítar skyrtur og svartar buxur. Hver kona þarf að eiga að minnsta kosti eina gollu í fataskápnum og því er sniðugt að kaupa slíka peysu á útsölum. Einfaldir bómullarbolir eru líka kjörin vara til að kaupa á útsölum. Það er mjög sniðugt að kaupa klassísk- an fatnað á útsölum en svo getur líka verið æði gaman að fjárfesta í einhverju glysgjörnu sem þú myndir aldrei tíma að kaupa á fullu verði. Það getur verið glitrandi pallíettuveski, skræpóttir skór eða litríkt belti. Láttu vaða Þó að konum finnist yfirleitt skemmti- legra að rápa á milli verslana en körlum þá geta þeir að sjálfsögðu einnig gert góð kaup á útsölum. Allir menn verða að eiga að minnsta kosti ein jakkaföt og því er tilvalið að fjárfesta í einum slík- um á útsölu. Skyrtumenn ættu líka að geta nýtt útsölurnar vel. Víkjum að skófatnaði. Það er gífurlega mikil pilsatíska í gangi og það hentar íslensk- um konum best að vera í stígvélum við þau vegna veðurfarsins. Það er því til- valið að kaupa stígvél á útsölu því það er ekki verra að eiga stígvél til skiptanna. Það má vel kaupa svört eða brún klass- ísk dömustígvél með smá hæl. Eins má kaupa háhælaða skó í dansstíl eða hefð- bundna hælaskó sem passa bæði við pils og buxur. Ef þú rekst á draumaskóna sem þig dreplangaði að eignast í haust skaltu kaupa þá ef þér finnst þeir ennþá jafn flottir. Málið að kaupa íþróttaföt á útsölu Að kaupa íþróttafatnað á útsölu er bráð- sniðugt því sú tíska tekur ekki jafn mikl- um stökkbreytingum og hin venjulega fatatíska. Þegar fjárfest er í íþróttafötum á fólk á heldur ekki að elta tískustrauma heldur að reyna að finna föt sem eru klæðileg. Þröngar, teygjanlegar kven- íþróttabuxur geta til dæmis verið æði misjafnar og misklæðilegar. Þegar keypt eru íþróttaföt er best að hafa eftirfarandi í huga. Ef fólk er mjög virkt í ræktinni þarf það að eiga nokkur dress til skipt- anna. Ef fólk nennir alls ekki að drullast af stað getur það virkað sem mjög mikil hvatning að kaupa nýjan trimmgalla. Best er að eiga íþróttaföt sem ganga hver með öðru. Það er ekki vitlaus hugmynd að vera með litakvóta, ekki fara út fyrir þrjá liti. Svart, grátt og lillað er sem dæmi falleg litasinfonía ásamt dökkbláum, ljósbláum og hvítum. Ef þú ert enn litaglaðari get- ur þú farið út í rauðan, bleikan og app- elsínugulan eða raðað þeim litum saman sem þér finnast fallegir. Það er alltaf hægt að afsaka kaupin með því að þú hafir fengið fötin á útsölu. F2 8 6. janúar 2005 FIMMTUDAGUR Cube blandarinn frá ViceVERSA á Ítalíu. Hannaður af Luca Trazzi. Verð kr.13.900. Tix blandarinn kemur líka frá VICE VERSA á Ítalíu. Hannaður af Luca Trazzi. Verð kr. 12.500. Öflugur blandari frá Waring Pro. Brýtur ísinn auðveldlega og er auðveldur í notkun. Sérlega auðvelt að þrífa blandarann, könnuna má setja í uppþvottavél Waring blandarinn er framleiddur í USA. Verð kr. 19.900. Hrist & hrært! CUBE TIX Fyrir nýja árið! Í allri pilsatískunni er nauðsynlegt að eiga stígvél til skiptanna. Ekki er verra að hafa stígvélin í örlitlum kúrekastíl en sú tíska heldur velli. Það er auðveldara að verða íþróttaálfur ef maður er vel gallaður. Það verður hver karl- maður að eiga ein svört jakkaföt. Ekki er verra að kaupa þau á útsölu. Aðalútsölutíminn að hefjast Útsölur eru líka fyrir stráka Frá borginni minni Boston Jón Steinsson er búinn að búa í fjögur ár í Boston. Hann stundar nám í hagfræði við Harvard háskóla. Það sem heillar hann mest við borgina er stúdentalífið. Hann býr í Harvard Square sem er í Cambridge þar sem allt er iðandi í lífi og fjöri. „Mér finnst námsmannalífið ákaf- lega gott í Boston. Í Harvard Square er mikið af góðum veitingastöðum eins og indverskum og kínverskum og það besta er að það er hægt að fara hérna út að borða án þess að það kosti mikið,“ segir Jón. Í frí- stundum fer hann mikið á völlinn til að horfa á Boston Red Socks spila. Þegar hann er beðinn um að nefna uppáhaldsbarinn sinn kemur The West Side Lounge fyrst upp í hugann en hann er staðsettur milli Harvard square og Porter Square. „Þetta er lítill huggulegur kokkteil- bar sem ég heimsæki reglulega því ég drekk ekki bjór. Það eru engin læti þarna þó barinn sé yfirleitt þéttset- inn.“ Jón segist ekki vera mikið í búðun- um þegar hann er spurður um uppá- haldsverslunina sína í Boston. „Ég kaupi eiginlega allt sem ég þarf að kaupa í gegnum internetið og þá kaupi ég mest í gegn- um amazon.com. Annars er fullt af fín- um bókabúðum í Boston. Ein besta bókabúðin er Harvard Coop sem er á þremur hæðum og maður getur eytt klukkutímum saman þar. Svo er bókabúðin The Harvard Bookstore líka mjög fín. Fyrir þá sem ætla að versla föt er Newbury street aðalgat- an. Hún byrjar á Chanel og Burberry verslunum en svo verða verslanirnar alltaf ódýrari og ódýrari eftir því sem maður gengur lengur í vestur. Þar er líka einn af uppáhaldsstöðunum mínum sem heitir Sonsie. Hann er á Newbury Street 327. Afganski veit- ingastaðurinn Helmand er líka í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég mæli með graskersréttinum, hann leynir á sér,“ segir Jón. Afganskur graskersréttur í mestu uppáhaldi Alltaf hægt að gera góð kaup Óli Boggi klippari á Solid Ætlar þú að kíkja á útsölur í ár? Nei, ég geri ekki ráð fyrir því. Ég held ég eigi nóg af öllu og vanti ekki neitt. Annars er ég frekar lítið fyrir út- sölur almennt. Hefur þú gert góð kaup á útsölu? Já, ég keypti mér ótrúlega flotta svarta spariskó á útsölunni í GK í sumar en ég minnist þess ekki að hafa gert vond kaup á útsölu. Hugrún Harðardóttir fegurðar- drottning Íslands 2004 Ætlar þú að kíkja á útsölur í ár? Nei, ég held ekki því ég hef bara ekki efni á því núna. Ertu mikið fyrir útsölur al- mennt? Já, ég er það. Mér finnst yfirleitt gaman að versla. Hver eru bestu kaup sem þú hefur gert á útsölu? Ég keypti mér einu sinni leðurkápu í versluninni Mangó á Spáni. Ég nota hana rosalega mikið og því flokkast kápan undir bestu kaup. Hefur þú einhvern tímann gert vond kaup? Ég hef oft keypt mér eitthvað sem ég hef aldrei farið í og svo hafa þær hangið inni í skáp mánuðum saman með verðmiðanum og öllu án þess að farið sé í þær. Ég er samt löngu hætt að gera slík mistök. Kjartan Guðbrandsson plötu- snúður með meiru Ætlar þú að kíkja á útsölur í ár? Já, ég ætla að gera það. Húsgögn og útivistarföt eru það sem ég ætla að kíkja eftir, en mig vatnar húsgögn í stofuna. Ég er meira að segja með til- búinn pening sem ég er búinn að láta til hliðar til fjármagna þessi kaup. Svo gæti vel verið að ég keypti tölvu á út- sölu því ég hef góða reynslu af því. Ertu mikið fyrir útsölur almennt? Já, ég reyni yfirleitt að elta útsölurnar með ákveðna hluti. Eru ekki allir alltaf að leita eftir góðum díl? Hver eru bestu kaup sem þú hef- ur gert á útsölu? Ég keypti einu sinni fartölvu á frábæru útsölutilboði sem nú er kominn tími til að endur- nýja. En þau verstu? Þau tengjast öll ein- hverjum fatnaði og því forðast ég það eins og heitan eldinn að kaupa föt á útsölu. Það má alltaf hressa upp á klæðaskápinn með dúllulegum toppum. Brúnt belti er ómissandi við gallabuxur. Rauð golla hressir upp á skammdegið.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.