Fréttablaðið - 06.01.2005, Side 40
F2 14 6. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
á Hótel Örk
Fjáröflunardansleikur
Zontaklúbbs Selfoss til styrktar
Geðhjálp á Suðurlandi 8. janúar 2005
Dansleikurinn hefst klukkan 19.00 með fordrykk.
Glæsilegur fimm rétta hátíðarkvöldverður.
Dansleikur með hljómsveit hússins til 03.00.
Veislustjóri: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Einsöngvari: Guðrún Ingimarsdóttir.
Undirleikur: Anna Guðný Guðmundsdóttir
Einleikur á fiðlu: Sigrún Eðvaldsdóttir
Hljómsveit:
Veislutríóið ásamt Sigrúni Eðvaldsdóttur
spilar milli 20.00 og 24.00.
Matseðill:
Humar og hörpuskelsmús með ástríðualdinsósu og
steinseljufrauði.
*
Villisveppa cappuchino.
*
Vatnsmelónu carpaccio með ávaxtatartar og mintu.
*
Andabringa gljáð með mandarínu og engifer,
framreidd með kryddsoðinni kartöflu og
seljurótarkremi ásamt aprikósupiparsósu og
ristuðum fennel.
*
Súkkalaðiturn á vanillugrunni með pistasiuhnetum.
Verð með gistingu: 10.100,- kr. á mann í tvíbýli.
Verð án gistingar: 6.800,- kr.
Pantanir í síma 483 4700, info@hotel-ork.is
Hvaða mat gætirðu ekki lifað
án? Það myndi vera maturinn hennar
mömmu, samt lést hún fyrir 14 árum.
Er einhver matur sem þér finnst
vondur? Örugglega, ég hef bara
aldrei smakkað hann.
Fyrsta minningin um mat? Þegar
ég er að fikta í brjóstunum á konunni
minni, þá vekur það upp gamla minn-
ingu.
Besta máltíð sem þú hefur feng-
ið? Það var á veitingastað í New York
´90, sem heitir China Grill, það er
svona franskur staður með kínversku
ívafi, og ég man að í aðalrétt fékk ég
stökka önd og eftirrétturinn var
súkkulaðifondue, man ekki alveg for-
réttinn, en vínið var Chateau Palmer
´85. Þetta var í annað skipti af tveim-
ur, sem ég hef borðað yfir mig og
staulaðist veikur heim á Hótel. Hitt
skiptið var á pítsustað í Osló ´83
Hvað er það skrýtnasta sem þú
hefur borðað? Ég man nú ekki eftir
neinu skrýtnu þannig. Ég borðaði dúf-
ur einu sinni í Þýskalandi og svo fékk
ég mér villigölt a la Asterix á ítölskum
veitingastað í New York, það var alveg
rosalega góður matur, minnti pínulítið
á hreindýrakjöt, svo smakkaði ég líka
vísund á veitingastað í Tribeca í New
York, sem Robert deNiro átti, og var
það herramannsmatur, enda kostaði
hann sitt. Það skrýtnasta, sem ég hef
drukkið var romm í hitaveituvatni hjá
þeim feðgum Guðjóni og Guðmundi í
Ólafsfirði. Það var mjög gott.
Leyndarmál úr eldhússkápnum?
Það væri þá ekki leyndarmál lengur, en
nammið er yfirleitt geymt
í skápnum, ætti helst að
standa á því: „ Þar sem
Eyfi nær ekki til“.
Hvað áttu alltaf í ís-
skápnum? Ljós og
kulda, það er alveg sama
hvað ég reyni, en það
kviknar alltaf ljós, þegar
ég opna bannsettan
skápinn. Annars er, held
ég, alltaf til eggjabakki í
ísskápnum.
Hvað borðar þú þeg-
ar þú þarft að láta
þér líða betur Það er
yfirleitt holla fæðið, sem ræður ríkjum
þá, aðallega súrdeigsbrauð, kotasæla,
ávextir og vatn. Nei, nei, það er að
sjálfsögðu kók og nammi, sem ég kalla
einu nafni „Slúmm“!
Ef þú værir fastur á eyðieyju,
hvaða rétt myndirðu taka með
þér? Ætli það yrði bara ekki Lauf-
skálarétt, þá hefði ég allavega nóg af
lambakjöti, annars gæti ég nú varla
sleppt rjúpunum, þær eru ýkt góðar
eins og einhver myndi segja.
Matgæðingurinn Eyjólfur Kristjánsson
Borðaði yfir sig í New York
Hvar og hver Veitingastaðurinn
Hornið, Hafnarstræti 15
Hvernig er stemningin
Hornið er sennilega með einhverjum
grónustu veitingastöðum á landinu.
Hornið er jafnan þaulsetið og hafa
vinsældir staðarins varla dvínað síðan
hann var opnaður 1979. Innandyra
hefur nánast engu verið breytt frá
opnun en staðurinn er vinsæll meðal
þeirra sem kunna að meta ekta ítalsk-
ar pizzur og hann á sína fastakúnna.
Á veitingastaðnum er Galleríið þar
sem gestir geta tyllt sér á meðan þeir
bíða eftir borði, eða hreinlega borðað
þar. Þá býr veitingastaðurinn einnig
yfir Djúpinu sem er hópsalur og
getur tekið á móti þrjátíu og fimm
manns. Veitingastaðurinn er með
opið frá ellefu á morgnana til hálf tólf
á kvöldin.
Matseðillinn Þó að Hornið sé
þekktast fyrir pizzurnar sínar er mat-
seðillinn fjölbreyttur. Hægt er að fá
ljúffengar súpur, fiskrétti, kjötrétti,
grænmetisrétti, pasta og ýmsa smá-
rétti. Þá býður staðurinn upp á sér-
stakt hádegisverðartilboð frá ellefu til
fjögur.
Vinsælt Pizzurnar eru vinsælastar
og er boðið upp á einar ellefu gerðir
af pizzum. Hægt er að fá þær í tveim-
ur stærðum, níu tommum og tólf
tommum. Ódýrasta pizzan er níu
tomma magaríta en hún kostar 950
krónur.
Hornið býður viðskiptavinum
sínum upp á rétt dagsins, sem er þá
ýmist forréttur eða súpa og svo aðal-
réttur og er verðið á honum um 1.300
krónur. Þá er einnig boðið upp á pizzu
dagsins sem kostar 1.050 krónur.
Hornið
Klassískur staður
Matur frá Asíu hefur á undanförnum ára-
tug haslað sér völl meðal vestrænna þjóða.
Íris Stefánsdóttir sölustjóri hjá i8 gallerí
bjó átta mánuði í borginni Kitakyushu á
eyjunni Kyushu í Japan og kynntist þar-
lenskri matargerð. „Það þekkja flestir
japanskt sushi, en það eru til dæmis hinar
svokölluðu nori rúllur með sjávarþangi
utan á. Þessi réttur hefur verið mjög vin-
sæll á Vesturlöndum undanfarin ár,“ segir
Íris.
Að sögn Írisar borða Japanar mikið af
fisk og fyrir þá skipti hráefnið gífurlega
mikla máli. „Þeir versla á hverjum degi og
vilja að hráefnið sem þeir nota í matinn sé
mjög ferskt.“ Hún segir að venjulegt
japanskt borð sé yfirleitt þakið mörgum
smáum réttum, sem síðan hver og einn
fær sér af.
Íris segir veitingastaði yfirleitt hafa
eftirmyndir af réttunum sem þeir bjóða
upp á úti í glugga þannig að gestirnir geti
séð hvernig réttirnir líti út. „Hráefnið og
framsetningin skiptir þá afar miklu máli.
Það er mikið lagt upp úr allri samsetningu
og á bak við hvern rétt liggja miklar pæl-
ingar.“ Þá sé yfirleitt misu súpa í forrétt en
það er hálfgert soð.
Einn af eftirlætisréttum Írisar er
Yakiniku. „Þetta er réttur sem er, að ég
held, tekinn úr kóreskri matargerð en
Japanar eru snillingar í að tileinka sér
hætti annarra þjóða og gera þá að sínum.
Þá er grill á borðinu og þunnar nautakjöt-
sneiðar grillaðar ásamt lauk og grænmeti.
Kjötinu er síðan dýft ofan í sósu sem mér
hefur ekki enn tekist að finna uppskrift að
en þetta er algjört lostæti.
Yakitori er einn af mínum uppáhalds
réttum. Þetta er hálfgerður skyndibiti og
er sérlega einfaldur í matreiðslu. Þetta er
oft selt í litlum sölutjöldum sem komið er
fyrir á fjölförnum stöðum í Japan. Ýmsir
hlutar kjúklingsins eru nýttir í réttinn,
vinsælt er til dæmis að nota kjúklingalifur
en best þykir mér þó að nota kjúklinga-
bringur. Ekki skemmir fyrir að bæta við
blaðlauk sem er mjög vinsælt í Japan en
þá heitir rétturinn
reyndar eftir
besta minni
Negima og
gef ég hér
uppskrift af
þeirri útgáfu:
2 kjúklingabringur
1 blaðlaukur
1 msk sykur
2 msk sake
(japansk vín – það er happa glappa hvort
það er til eða ekki í ÁTVR – ef ekki þá
nota ég meira af mirin en minnka á móti
sykurinn)
3 msk mirin
(sætt sake sem notað er í matargerð og
fæst í matvöruverslunum)
3 msk sojasósa
(japönsk – alls ekki sama
bragðið af japanskri og t.d.
kínverskri sojasósu)
í Japan er þetta yfirleitt á
litlum grillpinnum, ca. 10-15cm löngum
en ég hef ekki rekist á þá hér. Gott ráð
er að dýfa trépinnum í vatn áður en þeir
fara á grillið, til að koma í veg fyrir að
þeir brenni
Kjúklingabringurnar eru skornar í
munnbita og blaðlaukurinn í um það bil
2 til 3 cm bita. Þessu er síðan raðað til
skiptis á grillpinnana, 2 kjúklingabitar á
móti 1 laukbita. Síðan er sykri, sake,
mirin og sojasósu blandað saman í skál
og sú blanda er borin á pinnana
nokkrum sinnum meðan þeir eru grill-
aðir á heitu grilli, eða þar til kjúklingur-
inn er eldaður í gegn. Best með ísköld-
um flöskubjór.
Framsetningin skiptir miklu máli í japanskri matargerð
Eftirmyndir af rétt-
unum úti í glugga
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Maximo, úr smiðju
Baron de Ley
Fyrir rúmum þremur áratugum stofnuðu eigendur Baron de Ley vínhúsið El Coto
í Rioja, fremsta rauðvínshéraði Spánar, og hafa þar byggt upp eitt stærsta og fram-
sæknasta fyrirtæki Rioja. Þar
hefur hvergi verið til sparað
og allt gert eins vel úr garði
og nútíma víngerð býður upp
á. Maximo er ný vínlína frá
El Coto, blandað vín frá
ýmsum svæðum Spánar sem
er á mjög hagstæðu verði en
hér er á ferðinni eitt af betri
kassavínum á markaðnum.
Vínið er blanda af hinni
kunnu spænsku þrúgu tem-
pranillo og hinni klassísku
cabernet. Það er aðeins farið
að sýna þroska og hefur
mildan ávaxtaríkan karakter.
Verð í Vínbúðum 3.690 kr.
Íris Stefánsdóttir
Yakitori kjúklingagrillpinnar eru í uppáhaldi eftir dvöl í Kitakyushu.