Fréttablaðið - 06.01.2005, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 06.01.2005, Blaðsíða 41
F215FIMMTUDAGUR 6. janúar 2005 Mest spennandi svæði Spánar Á undanförnum árum hafa aðilarnir sem standa á bak við víngerðarhúsin Baron de Ley og El Coto lagt í miklar fjárfestingar á víngerðarsvæð- inu Cigales (svæði sem liggur næst Ribera del Duero) í norðurhluta Spánar og framleiða þar vínið Museum sem er blanda úr þrúgun- um tempranillo og cabernet sau- vignon. Hefur vínið hlotið mikla athygli á heimsmarkaði fyrir einstök gæði og sérlega hagstætt verð. Victor Chárcan sölustjóri vínfyrirtækjanna Bodegas El Coto og Bodega Muse- um heimsótti Ísland í fyrra til að kynna þessi vín og hann er væntan- legur til landsins á nýjan leik í næsta mánuði til að kynna ný vín. „Við vorum að hugsa um að fjár- festa í Ribera del Duero þegar okkur var bent á það hversu mikill fjársjóð- ur lægi í næsta svæði við, Cigales.“ segir Victor Chárcan. „Þar hafði löngum verið blómleg rósavínsfram- leiðsla sem við höfðum engan áhuga á en skilyrði til rauðvínsframleiðslu frábær. Vínviðurinn gamall og kraft- mikill frá nítjándu öld og hefur skilað okkur frábæru rauðvíni. Svæðið er af mörgum talið mest spennandi svæði Spánar í dag. Við eigum nú sem sam- svarar tíunda hluta af ekrunum og erum að fikra okkur áfram með að framleiða vín sem má kannski segja að sé með eilítlum „Nýja-heims“ yfir- bragði, enda loftslagið þarna ekki svo frábrugðið því sem gerist t.d. í Ástr- alíu, öfgakennt meginlandsloftslag, enda köllum við La Mancha háslétt- una „Ástralíu“ Spánar. Við segjum stundum í gríni að við höfum níu mánaða „inverno“ (vetur) og 3 mán- aða „inferno“ (helvíti)! Þetta er stærsta samfellda vínræktarsvæði heims, 250.000 hektarar samliggj- andi og 600.000 hektarar í heildina. Við höfum plantað 70.000 hektörum af alþjóðlegum vínvið, cabernet, shiraz, merlot auk hinnar spænsku drottningar tempranillo. Þarna erum við sumsé að framleiða Museum, sem hefur þegar skilað frábærum árangri. Af öðrum vínum okkar má nefna Maximo Tinto sem er blandað vín frá ýmslum svæðum Spánar sem er á mjög hagstæðu verði.“ The International Wine and Spirit Competition í London útnefndi ný- lega spænska vínhúsið Baron de Ley besta spænska vínframleiðandann fyrir árið sem var að líða. Hlaut húsið verð- laun sem kennd eru við víngerðar- manninn kunna Miguel Torres. Baron De Ley var stofnað 1985 og hefur á þessum skamma tíma unnið sér inn orðstír sem nútímalegt vínfyr- irtæki sem framleiðir gæðavín á góðu verði. Sagan hófst á því að eigendurn- ir keyptu Imaz setrið, sem er við bakka árinar Ebro, í byrjun árs 1980. Í kringum setrið var mikið af gömlum vínekrum og munkaklaustrið „Finca Monasterio“ frá 16. öld sem er bæði notað undir höfuðstöðvar og vínkjall- ara fyrir Baron De Lay auk þess sem helsta vín fyrirtækisins er nefnt eftir því. Eigendurnir plöntuðu um 90 hekturum af vínvið þar sem meirihlut- inn var þrúgan tempranillo. Að auki var plantað um 20 hekturum af caber- net sauvignon þrúgunni sem er leyfi- legt að gera samvæmt spænskum lög- um í tilraunaskyni en mjög strangar reglur gilda um hvaða þrúgur eru not- aðar í vín frá Rioja þar sem tempranil- lo er ríkjandi. Mikið gæðaeftirlit er með vínuppskerunni og eru allar þrúg- ur handtýndar til þess að auka á gæð- in. Vínið er svo sett yfir á eikartunnur þar sem amerísk eik er notuð í meirihluta en í bland við franska eik. Hér á landi eru fáanleg nokkur vín frá húsinu. Baron De Ley Reserva er frábært matarvín sem á vel við flest rautt kjöt og grill- mat. Baron De Ley Gran Reserva er mikið vín sem hefur góða lengd og endingu. Vín sem geng- ur vel með lambi og grilluðum nautasteikum. Baron De Ley Finca Monasterio er flaggskip Baron De Ley. Hér er notað 80% tempranillo og 20% cabernet sauvi- gnon og þrúgusafinn lát- inn liggja á þrúguhýðinu í 17 daga til þess að ná sem mestu úr þeim. Síð- an er vínið geymt á am- erískri eik í 24 mánuði. Þetta vín kallar á alvöru steikur og er góður kost- ur til að setja í vín- geymsluna í nokkur ár. Eitt mest spennandi vín Spánar í dag. Flex-T vinnustöðvar 30% TTT auglýsingastofa/Ljósm .S S J Skrifstofuhúsgögn á frábæru verði! Flex-T vinnustöðvar (180x180cm) frá Kr.46.270 Bæjarlind 8-10 • Sími 510 7300 • www.ag.isHeildarlausnir í skrifstofuhúsgögnum Mark30 skrifstofustólar Kr.40.900 kynningarafsláttur Flex-T er ný lína vinnustöðva sem Guðrún Margrét Ólafsdóttir og Oddgeir Þórðarson hafa hannað. Vinnustöðvarnar eru með þægilegri handvirkri hæðarstillingu, 0-20 cm en fást einnig með rafknúinni, stig- lausri hæðarstillingu þannig að ýmist er hægt að sitja eða standa við vinnu. Nú býðst Flex-T á sérstöku kynning- artilboði. Hæðarstilling á baki Pumpa til að stilla stuðning við mjóhrygg Hæðarstillanlegir armar Hallastilling á baki Sleði til að færa setu fram og aftur Mjúk hjól Hæðarstilling á setu og baki Hægt er að stilla stífleika setu og baks eftir þyngd notanda Veltustilling á setu og baki Mark er glæsileg lína skrifstofustóla fyrir vinnustaði og heimili. Hönnuður stólanna er Pétur B. Lúthersson. Hægt er að velja um fjölda lita á áklæði. Nú bjóðum við þessa stóla á frábæru verði. Victor Chárcan Sölustjóri vínfyrirtækjanna Bodegas El Coto og Bodega Museum. Baron de Ley – spænskur vínframleiðandi ársins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.