Fréttablaðið - 06.01.2005, Side 44

Fréttablaðið - 06.01.2005, Side 44
Hárgreiðslumaðurinn Böðvar Eggertsson á Solid, eða Böddi eins og hann er kallaður, flaug á vit ævintýranna í vikunni. Ferð- inni var heitið til Prag í Tékklandi þar sem hann mun hafa hendur í hári yfir 20 yngismeyja. Stelpurnar starfa allar hjá Vero Moda þar í borg og að sögn Bödda eru þær til í allt hvað hárið varðar. Það var kominn gríðarlegur ferða- hugur í Bödda þegar F2 heyrði í honum áður en hann hélt af landi brott. Þótt hann verði bara í fimm daga í Prag var hann með mikinn far- angur enda með stútfullar töskur af hárlitum, skærum og öllu tilheyrandi. „Það gengur víst ekki að lita allar stelpurnar með sama hárlitnum þess vegna þarf ég að hafa flestalla liti með- ferðis. Ég er samt nett stressaður að verða tekinn í tollinum með allt þetta dót og þarf að finna einhverja leið til að tilkynna hvað ég er að fara að gera,“ segir Böddi. Spurður um ástæðu ferð- arinnar segir hann að eigandi Vero Moda í Prag sé íslensk og komi reglu- lega í klippingu til hans. „Þegar hún orðaði þetta við mig í upphafi hélt ég að þetta væri eitthvert grín en ákvað að sjálfsögðu að slá til þegar ég sá að henni var alvara,“ segir Böddi. En koma hans mun vera jóla- gjöf eiganda Vero Moda til starfs- fólksins og eru eigendur fyrirtækisins búnir að fá leigða hárgreiðslustofu svo öll vinnuaðstaða sé til fyrirmyndar. Fyrstu tveir dagar ferðarinnar fara í að gera starfsfólkið upp með flottri klipp- ingu og lit, en svo verður Böddi tekinn í óvissuferð ásamt kærustunni Hörpu. „Við fáum ekkert að vita nema það að við munum gista í íbúð í miðborg- inni og farið verður með okkur á flotta veitinga- og skemmtistaði um helgina.“ Eftirá í tískunni „Ég hef heyrt að hártískan í Prag sé töluvert eftirá miðað við hér heima. Ég er voðalega spenntur að hitta allar þessar stelpur því ég er búinn að heyra að þær séu opnar fyrir öllu og spennt- ar fyrir breytingum. Það eru reyndar tvær eða þrjár með skilaboð frá kærustunum að þær megi alls ekki láta breyta hárinu mikið,“ segir Böddi hlæjandi og heldur áfram. „Maður heyrir þetta stundum hérna heima að kærastarnir ráði en það er þó í minnihluta. Það er aðallega ef stelpurnar eru með mjög sítt hár, þá vilja kærastarnir alls ekki að þær klippi sig,“ segir hann. Spurður um það heitasta í hártískunni segir hann að styttur hafi sjaldan verið vinsælli. „Það eru ofboðslega miklar styttur í síða hárinu núna. Mér finnst maður alltaf vera að tala um þessa 80’s tísku en sannleikurinn er sá að hún er alveg í hámarki núna. Hvað klippilínur varðar er toppurinn stuttur en mjög þungur. Margir eru með toppa alveg frá hvirfli og fram að enni. Fyrir þær stelpur sem eru með liði er um að gera að ýkja þá aðeins.“ Böddi segir að það sé fátt sem ber að varast í hártískunni nema kannski permanett. „Það má alls ekki setja permanett í aflitað hár en stelpum hættir til að biðja um það. Þær sjá flottar auglýsingamynd- ir í tískublöðunum þar sem krullur eru allsráðandi en málið er að í fæstum til- fellum er um permanett að ræða. Í 95% tilvika eru fyrirsæturnar með liðað hár sem er búið að ýkja eða hár sem er krull- að með krullujárnum eða rúllum. Hárið fer í flestum tilfellum mjög illa á þessum sterku efnum sem eru í permanetti og ég tala nú ekki um þegar það er sett í litað hár. Tískan er að öðru leyti mjög skemmtileg og mér finnst flestir vera óhræddir við að prófa eitthvað nýtt,“ segir Böddi sem beið spenntur eftir að komast upp í flugvél á vit ævintýranna, enda aldrei komið áður til Prag. -MMJ Böddi á Solid var keyptur til Prag til að klippa starfsfólk Vero Moda: Með 50 hárliti að vopni Íslenskur húmor birtist ekki ein- göngu í kvikmyndum, bókum eða tónlist heldur einnig á bolum. Svo virðist sem bola-æði hafi gripið landann og nú er í tísku að ganga í flottum bolum með ein- hverri skemmtilegri mynd eða fyrir- sögn. Að sögn Þórdísar Classen, einn eiganda bolabúðarinnar Ósoma, voru þeir sem keyptu á öllum aldri og virt- ust gjafirnar vera handa öllum aldurs- hópum. Staðbundinn íslenskur húmor virðist því fara vel í landann. „Þetta er svona sígildur íslenskur húmor,“ segir hún. Þannig voru bolir þar sem á stóð Farðu í Rassgat og Afsakið hlé mjög vinsælir meðal Íslendinga. Þá var kindin, sem er vörumerki búðarinnar, einnig mjög vinsæl. „Bolur sem sýndi tvær kindur í samförum seldist mjög vel og hljómsveitarbolirnir ruku líka út.“ Útlendingar keyptu mikið bolinn Be Kind sem þeir lásu sem „Vertu góður“ en var upphaflega hugsaður sem „Vertu Kind“. Stefán Valberg, eigandi verslun- arinnar Dogma, sagði íslensku bolina alltaf vekja mestu eftirtektina og um- tal. „Það er erfitt að benda á einhvern einn vinsælan bol, en íslensku bolirnir seldust mjög vel, Ég þekki Ásgeir Kolbeins, Ég deita bara módel og Kærastan mín er módel voru mjög vinsælir ásamt Eign þvottahúss Ríkis- spítalanna.“ F2 18 6. janúar 2005 FIMMTUDAGUR Upplýsingar og miðasala: Sími: 551 1200 midasala@leikhusid.is www.leikhusid.is Sýning annað kvöld! Bolir í stað bóka? Vertu Kind Be kind Útlendingar keyptu mest þennan bol Farðu í rassgat Einhverjum hefur vafalust brugðið við þesi skilaboð á aðfangadag Samfarir rollna Þrátt fyrir óhefðbundið myndform seldist þessi bolur mjög vel Ég þekki Ásgeir Kolbeins Svo virðist sem margir þekki sjónvarps- manninn Ásgeir Kolbeins Böddi hlakkar til að taka starfsstúlkur Vero Moda alveg í gegn því hann veit að hann hefur töluvert frjálsar hendur. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI Fröken Freyja leysir vandann Góður hugur – hörmuleg gjöf Tengdamamma fór nýlega á leirlista- námskeið og ákvað að leysa helstu jólagjafirnar þetta árið með því að búa þær til sjálf. Hún gaf okkur vegg- platta sem hún hafði augljóslega lagt mikla vinnu í en því miður er hann alveg foráttu ljótur. Konan mín vill samt endilega hengja hann upp á vegg og segir að við eigum að meta hugarfarið að baki gjöfinni. Ég afber hins vegar ekki einu sinni þá tilhugs- un að hafa plattaskrattann fyrir aug- unum um ókomna framtíð. Hvað er til ráða? GM, Reykjavík Nei, fjandakornið! Hvað gengur að fólki þegar kemur að jólagjöfum nú- orðið?! Allir þykjast geta orðið lista- menn án þess að eiga nokkurt erindi í þann geira. Það er vitaskuld voðalegt að koma fólki í þessa aðstöðu. Það er heppilegt að platti er disklaga og þú getir hæglega stungið upp á augljósu notagildi hans sem kökudisks eða öskubakka og geymt hann undir því yfirvarpi bakvið luktar dyr eldhús- skápanna. En ekki örvænta ef betri helmingurinn kaupir ekki þá hug- mynd. Slysin gera ekki boð á undan sér. Með hamarinn á lofti, tilbúinn að festa plattann á besta stað í stofunni getur þú „misst“ hroðann í gólfið og þá er málið afgreitt með einu „fyrirgefðu“. Þrautseigur vonbiðill Ég á í miklum vanda með einn vinnufélaga minn. Þetta er nokkuð skemmtilegur gaur og ekki ómyndar- legur. Vandamálið er hins vegar að ég hef ekki áhuga á honum og hann virðist alls ekki skilja það. Þetta var bara skemmtilegt þar til hann fór að senda mér sms og tölvupósta með mjög nærgöngulum myndum af sjálf- um sér sem hann tekur með GSM símanum sínum. Ég er eiginlega í öngum mínum. BLG, Kópavogi Þetta er greinilega sérstaklega hress náungi og myndasendingarnar sýna að ekki vantar sjálfstraustið hjá hon- um. Ég er hins vegar viss um að þær sendingar myndu snarhætta af þú tækir þig til og svaraðir einum myndapóstinum með því að ýta óvart á allir@vinnustaðurinnþinn.is og leyfðir myndunum að fara með tölvu- póstinum til baka. Þannig gætir þú jafnvel losnað við hann af vinnu- staðnum líka og fyrir fullt og allt úr lífi þínu. Sendið fyrirspurnir og vandamál til fröken Freyju, F2, Skaftahlíð 24, 105 Rvk eða sendið henni tölvupóst á netfangið frkfreyja@frettabladid.is. Nöfn sendenda verða ekki gefin upp í blaðinu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.