Fréttablaðið - 06.01.2005, Side 53

Fréttablaðið - 06.01.2005, Side 53
21FIMMTUDAGUR 6. janúar 2005 Þetta er fyrirsögn sem myndi fá margan sælkerann til að súpa hveljur. Hvað myndum við gera hér á landi ef ÁTVR myndi taka þá ákvörðun að hætta sölu á rauðvíni og selja aðeins hvítvín? Við vitum flest að rautt og hvítt í þessu sam- hengi er álíka ólíkt og svart og hvítt en færri spá í muninum á lager bjór og öli (ale) sem er þó álíka af- gerandi. Sem betur fer er fyrirsögn- in uppspuni en hins vegar eru sam- bærilegir atburðir að gerast í heimi bjórsins. Ég hef lengi verið fyrir bjórinn gefinn og hef lagt stund á bjór- smökkun nú um þó nokkurt skeið (sjá www.bjorbok.net) Bjórsmökk- un mín hófst frekar rólega þar sem úrvalið var ekkert til að hrópa húrra fyrir. Ekki leið á löngu uns ég hafði smakkað allan þann bjór sem í boði var og það rann upp fyrir mér hversu lélegt úrval bjórs var á Íslandi, það vantaði nánast allt öl. Að vísu er stutt síðan við Íslending- ar máttum hreinlega ekki versla bjór í heimahögunum og erum við því ung bjórdrykkjuþjóð. Hingað til höfum við því haft afsökun fyrir lé- legu úrvali. Þróunin lofaði góðu í upphafi og við höfum orðið vitni að komu öls m.a. frá Belgíu eins og Duvel, Chimay, o.fl. Þetta eru allt bjórar á heimsmælikvarða og fram- tíðin virtist því björt, en Adam var ekki lengi í paradís því í dag hefur markaðurinn og íslensk bjórmenn- ing orðið fyrir miklu áfalli. Fréttir um að Chimay, Hoegaarden, Orval, Westmalle og sjálfur konungurinn Duvel séu dottnir út af markaði koma eins og blaut tuska framan í andlit okkar bjórgæðinga og maður skilur ekki hvað er að gerast. Eru Íslendingar einfaldlega bara þröng- sýnir og íhaldssamir og vilja bara sama gamla lagerinn til að drekka frá sér allt vit um helgar, eða má kenna um fáfræði, skorti á upplýs- ingum og ótrúlega háu verðlagi? Íslendingar hafa gaman að því að pæla í rauðvíni, koníaki og öðru víni þannig að við virðumst hafa þetta í okkur, við erum ekki lengur ein- hverjir ófágaðir sveitalubbar borð- andi úldinn þorramat í torfkofunum okkar. Vandinn liggur í áfengislögunum og ÁTVR sem hefur einkaleyfi á smásölu áfengis og stjórnar því hvaða áfengi við Íslendingar getum notið sem og verðlagi. Í dag er nán- ast ómögulegt að koma með nýjan bjór á markað því áður en hann kemst í fasta sölu þarf að seljast ákveðið magn af honum í reynslu- sölu. En til að vara seljist þarf neyt- andinn svo að vita um tilvist hennar og til þess að gera það þarf að aug- lýsa hana sem aftur er ólöglegt á Íslandi. Þetta er því óttalegur víta- hringur. Enn fremur er álagning á bjór ótrúleg og við getum státað af dýrasta bjór veraldar. Ný vara eins og hágæða bjór kemur því í reynslu- sölu án þess að nokkur viti af henni og þeir fáu sem uppgötva hana fyrir tilviljun þurfa að punga út formúum til þess að njóta hennar. Buddan leyfir einfaldlega ekki tilraunir með „skrítinn“ bjór. Það er kominn tími til að gefa léttvín frjálst og auka þannig samkeppni, lækka verð og ná bjórmenningunni upp á svipuð plön og víðast hvar í heiminum í kringum okkur. Það eru lágmarks mannrétt- indi að fá að njóta bjórs, eins elsta og merkasta drykk mannkyns. ■ Rauðvínssölu hætt á Íslandi! R. FREYR RÚNARSSON SAMEINDALÍFFRÆÐINGUR UMRÆÐAN VÍNMENNING Á ÍSLANDI Óvenjulegt atvik Mig langar hins vegar til að segja frá því eina óvenjulega sem gerðist um áramótin: Þegar ég var að moka stétt- ina á gamlársdag heyrði ég háan hvell sem var þó líkari þyt en sprengingu, horfði á eitthvað sem líktist ryki þyrlast upp og síðan skalf ljósastaur- inn í langan tíma. Í eitt andartak tengdi ég þetta við flugelda sem höfðu sprungið af og til allan daginn en svo rann upp fyrir mér að það gat ekki staðist. Ég gekk að ljósastaurnum og þarna lá grágæs í roti. Hún hafði einfaldlega flogið á straurinn. Klaufa- fugl. Ég hef af eðlilegum ástæðum samúð með fýsískum klaufaskap. Eftir dálitla stund rankaði hún úr rotinu, stóð upp, slagaði burt og tókst síðan á loft. Hana hafði greinilega ekki sakað. Ennþá getur lífið komið manni á óvart þó að í smáu sé. Ágúst Borgþór Sverrisson á agust- borgthor.blogspot.com Harkaleg viðbrögð Það eru dálítið harkaleg viðbrögð við nýársræðum Halldórs Ásgrímssonar og Karls Sigurbjörnssonar um fjöl- skyldugildin að líta svo á að þeir vilji reka konurnar aftur inn á heimilin – að umhyggja þeirra fyrir fjölskyldunni sé í rauninni karlremba. En sjálfsagt hafa þeir báðir átt góðar mæður sem voru heima þegar þörf var – gáfu þeim heitan mat í hádeginu og eitt- hvað gott með kaffinu. Ég held meira að segja að biskupsmóðirin hafi alla tíð verið í þjóðbúningi. Ég get samt ómögulega séð að forsætisráð- herrann og biskupinn séu að gera út á samviskubit kvenna sem geta ekki boðið börnum sínum slíkar traktering- ar. Mér finnst allavega dálítil eftirsjá í stórfjölskyldunni – hvað sem líður kvenfrelsi, nútímalegum lifnaðarhátt- um og fjölmenningu. Egill Helgason á visir.is Ágætt hjá forsetanum Ágætt hjá forseta vorum að kveða upp úr með það að aldrei aftur mætti koma kennaraverkfall – eða að börn- in mættu aldrei aftur kynnast skóla- starfi sem iðjuleysi hvernig sem hann orðaði þetta nú. Slík orð um áramót eða á hátíðarstundu eru ágæt en duga nú skammt. Kennarar eru lang- tífrá ánægðir með kjör sín – sveitarfé- lögin munu áfram búa við harðan kost því að við munum alltaf kjósa þá yfir okkur sem lofa skattalækkun. Eftir fimm ár verða komnir nýir og ferskir forystumenn kennara – ný bylgja af ungu og áhugasömu fólki - einnig um bættan hag sinn. Uppskrift af kenn- araverkfalli er til staðar. Enginn vilji er til staðar að afnema verkfallsrétt. Vita- skuld verða fleiri kennaraverkföll. Baldur Kristjánsson á baldur.is AF NETINU SENDIÐ OKKUR LÍNU Við hvetjum lesendur til að senda okk- ur línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Eingöngu er tek- ið á móti efni sem sent er frá Skoðana- síðunni á visir.is. Þar eru nánari leið- beiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.