Fréttablaðið - 06.01.2005, Side 54
Endurkoma í SÍF flótta
Þrettán starfsmenn SÍF yfirgáfu félagið til að stofna
nýtt félag um sölu á saltfiski. Þennan hluta starf-
semi SÍF átti að selja, en hópurinn sá sitt óvænna
og hljópst á brott. Forsvarsmenn
SÍF telja þennan skyndilega
flótta ekki munu hafa teljandi
áhrif á rekstur félagsins. „Ekki
ertu einn í ráðum,“ mælti
Gilitrutt við bónda og svo mun
að margra mati einnig vera í
flóttanum frá SÍF.
Þær sögur fljúga víða að
höfuðpaurinn í flóttan-
um og stofnun nýja
fyrirtækisins sé ekki
ókunnur þessum
rekstri. Talið er að
fyrrverandi forstjóri
félagsins, Gunnar
Örn Gunnarsson,
hafi ljáð þessum áformum krafta sína. Meðal
þeirra sem hann hafi rætt við um flutninga á af-
urðum nýja félagsins sé Eimskipafélagið. Það er
talið bera þess vott að Landsbankinn hafi verið
með í ráðum, enda eldað grátt silfur við SÍF í gegn-
um SH sem bankinn og eigendur hans eiga stóran
hlut í.
Skuldabréfaskortur
Fyrir aðra en þá sem lifa og hrærast á markaði er
skuldabréfamarkaður ekki sérlega sexí eða spenn-
andi. Eins og annars staðar búa menn sér til
ánægju af starfi sínu og finna eitthvað til þess að
hlakka til. Fyrirsjáanlegt er að Íbúðalánasjóður
mun draga verulega úr skuldabréfaútgáfu á árinu.
Við það fer ávöxtunarkrafan lækkandi. Í þeirri
lækkun gætu bankarnir séð smugu í að gefa út
skuldabréf til þess að fjármagna eigin lán. Á mark-
aðnum telja menn þó líklegt að bankarnir hinkri
enn um sinn en bíði spenntir eftir því hver ríði á
vaðið og hvenær.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.377
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 227
Velta: 1.276 milljónir
+0,98%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Þriggja mínútu þögn var í
Kauphöll Íslands á hádegi í gær
til að minnast fórnarlamba nátt-
úruhamfaranna í Asíu.
Gistinætur á hótelum fjölgaði
um sex prósent milli nóvember-
mánaðar 2003 og 2004. Mest var
aukningin á Suðurlandi. Þetta
kom fram á vef Hagstofu Íslands
í gær.
Hlutabréf í FTSE vísitölunni
lækkuðu í gær. Vísitalan féll um
0,69 prósent.
Í gær voru langmest viðskipti
með bréf KB banka í Kauphöll-
inni. Næst mest var verslað með
bréf í Flugleiðum og bréf í Kög-
un voru í þriðja sæti. Bæði Flug-
leiðir og Kögun komu ný inn í
Úrvalsvísitöluna um áramót.
22 6. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Sigurjón Sighvatsson, kvik-
myndaframleiðandi og fjár-
festir, hefur keypt ráðandi
hlut í 66˚ Norður. Hann seg-
ir vöruþróun fyrir kröfu-
harðan heimamarkað for-
sendu sóknar á erlendan
markað.
Sigurjón Sighvatsson er stærsti eig-
andi 66˚ Norður og tók við rekstri
fyrirtækisins í gær. 66˚ Norður er
leiðandi fyrirtæki í útivistarfatnaði
hér á landi og hefur verið að feta sig
áfram með markaðssetningu á er-
lendum markaði.
Sigurjón segir að útrás fyrirtæk-
isins byggist á að hlúa að innlenda
markaðnum. „Kjarninn í starfsem-
inni er hér. Þetta er íslensk vara
þróuð fyrir íslenskar aðstæður með
gæðin að leiðarljósi,“ segir Sigur-
jón. Hann segir lykilinn að útrás
fyrirtækisins vera að þjóna kröfu-
hörðum heimamarkaði með fram-
leiðslu fatnaðar fyrir sjómenn og
björgunarsveitarfólk sem geri
miklar kröfur um gæði fatnaðarins.
Sigurjón er þekktastur fyrir
starf sitt sem framleiðandi kvik-
mynda. Í Hollywood hefur hann
unnið með leikstjórum á borð við
David Lynch. Hann er ekki ókunnur
fataframleiðslu og tísku. „Ég var í
stjórn Joe Boxer á miklu vaxtar-
skeiði fyrirtækisins og án þess að
ég sé sérfræðingur í markaðsmál-
um þá þekki ég til að mynda til
markaðssetningar Nike, þar sem
fyrirtæki mitt gerði sjónvarpsaug-
lýsingar fyrir Nike á árunum 1990
til 1993,“ segir Sigurjón.
Sigurjón þekkir vel til sögu 66˚
Norður og verið minnihlutaeigandi í
fyrirtækinu um nokkurt skeið. „Ég
hef fylgst með fyrirtækinu lengi og
veit að þar hefur verið unnið mjög
gott starf að undanförnu og tekin
skref á alþjóðlegum markaði,“
Hann segir möguleikann til útrásar
vera helstu ástæðu þess að hann
sóttist eftir að kaupa meirihluta í
fyrirtækinu. Sjálfur reiknar hann
með því að 80 prósent af tíma sínum
verji hann í kvikmyndagerð. „Ég
reikna með að framleiða fimm kvik-
myndir víða um heim á þessu ári.“
Við eigendaskiptin verða einnig
forstjóraskipti. Marinó Guðmunds-
son, sem síðast var fjármálastjóri
Norðurljósa, heldur sig í norðrinu
og verður forstjóri 66˚ Norður.
Hann tekur við því starfi af Þórarni
Elmari Jensen sem stýrt hefur fyr-
irtækinu frá því að hann keypti það
árið 1966. Fyrirtækið sjálft er 80
ára gamalt og hefur fylgst með
tímunum og tekið miklum breyting-
um á langri ævi.
haflidi@frettabladid.is
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 38,30 -1,54% ... Atorka 5,80
+0,17% ... Bakkavör 24,00 - ... Burðarás 11,85 - ... Flugleiðir 9,85 -
0,51% ... Íslandsbanki 11,00 - ... KB banki 457,00 +3,04% ... Kögun
46,70 +0,43% ... Landsbankinn 12,00 +0,42% ... Marel 48,80 - ...
Medcare 6,05 -0,82% ... Og fjarskipti 3,22 -0,31% ... Samherji 11,00 -
0,90% ... Straumur 9,30 -2,11% ... Össur 76,50
Kvikmyndaframleiðandi
í kuldafatatískunnni
Síminn 3,66%
KB banki 3,04%
SÍF 1,05%
Vinnslustöðin -13,92%
Straumur -2,11%
Actavis -1,54%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
Umframáskrift var í hlutafjárút-
boði Íslandsbanka. Hluthafar
sem eiga 87 prósent hluta í bank-
anum skráðu sig fyrir kaupum,
en þeir eru um 40 prósent hlut-
hafa í bankanum. Þeir hluthafar
sem skráðu sig fyrir aukningunni
vildu hins vegar meira en í boði
var. Umframeftirspurn var því
42 prósent og var því sem af gekk
úthlutað í samræmi við eignar-
hlut hvers fyrir sig. Alls aflaði
bankinn um sextán milljarða í út-
boðinu.
Nýtt hlutafé bankans verður
notað til kaupa á norska bankan-
um BN bank og hefur Íslands-
banki tryggt sér yfir 99 prósenta
hlut í bankanum. Íslandsbanki
hefur heimild hluthafafundar til
frekari útgáfu hlutafjár upp á
500 milljónir að nafnvirði og mun
nýta sér 300 milljónir af
heimildinni. ■
Vöruskiptahallinn við útlönd í
nóvember í fyrra var heldur
minni heldur en spár höfðu gert
ráð fyrir. Hallinn á vöruskiptum
var 2,5 milljarðar króna. Á fyrstu
ellefu mánuðum ársins nam hall-
inn 35,2 milljörðum en var 14,3 á
sama tíma árið 2003.
Í nóvember 2003 fluttu Íslend-
ingar út vörur fyrir 0,2 milljörð-
um króna minna en sem nam inn-
flutningi.
Útflutningur fyrstu ellefu
mánuði ársins 2004 var um tíu
prósentum meiri en árið áður.
Sjávarafurðir voru sextíu prósent
af útflutningi og jókst verðmæti
þeirra um tæp sjö prósent. Verð-
mæti útfluttra iðnvara jókst um
ríflega fjórtán prósent. Í frétt frá
Hagstofu Íslands kemur fram að
stærstan þátt í þeirri aukningu
eigi lyfja- og lækningavörur
ásamt áli.
Þá jókst verðmæti útfluttra
landbúnaðarvara um 27 prósent.
Innflutningurinn jókst hins
vegar um rúm tuttugu prósent á
fyrstu ellefu mánuðum síðasta árs
miðað við árið 2003. Mest var
aukningin á flutningatækjum,
hrá- og rekstrarvöru, fjárfesting-
arvöru og eldsneyti.
Innflutningur á flutningatækj-
um jókst úr 25,3 milljörðum í 35,6
milljarða, eða um tæp fjörtíu pró-
sent, en flutningatæki eru meðal
annars fólksbílar. ■
BYGGT Á INNANLANDSMARKAÐI Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi tók við rekstri 66˚ Norður í gær. Hann hyggst áfram
beina meginhluta krafta sinna að kvikmyndagerð og hefur ráðið Marinó Guðmundsson til þess að leiða sókn 66˚ Norður.
MIKIÐ FLUTT INN TIL LANDSINS Íslendingar fluttu inn vörur fyrir 219 milljarða á
fyrstu ellefu mánuðum ársins í fyrra en útflutningur var 184 milljarðar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Vöruskiptahallinn minni en spáð var
Á fyrstu ellefu mánuðum ársins fluttu Íslendingar út vörur fyrir 35 milljörðum minna en
sem nam innflutningi. Mikil aukning er á innflutningi flutningatækja.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
BJARNI ÁR-
MANNSSON
FORSTJÓRI ÍS-
LANDSBANKA
Umframeftirspurn
var í hlutafjárútboði
Íslandsbanka.
Stærri hluthafar
voru áfjáðir en
margir hinna minni
sóttust ekki eftir
auknum hlut í
bankanum.
Hluthafar vildu meira
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M