Fréttablaðið - 06.01.2005, Blaðsíða 57
AFMÆLI
Hulda Sveinsson læknir er 85 ára í
dag.
Dr. Örn Erlendsson framkvæmdastjóri
er sjötugur.
Atli Þór Ólason læknir er 56 ára í dag.
Bessi Gíslason lyfjafræðingur er 56 ára.
Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson hárskeri er
52 ára.
Þórarinn Eyfjörð leikari er 45 ára í dag.
Vilhjálmur Árna-
son prófessor er
52 ára.
FIMMTUDAGUR 6. janúar 2005
Mikið af landkönnun og sókn
Spánverja í nýja heiminum ein-
kenndist af taumlausri græðgi í
gull. Francisco Pizzarro var
ekki barnanna bestur í þessum
efnum.
Með klækjum og prettum
tókst honum að leggja undir sig
ríki Inkanna. Að hluta hafði
hann hrifist af sigri Cortésar á
Aztekum. 1531 réðst hann inn í
Inkaríkið, sem var þar sem nú
er Perú. Pizzarro réð aðeins yfir
tvöhundruð hermönnum.
Hann blekkti leiðtoga Inka,
Atahualpa, til þess að hitta sig í
bænum Cajamarca. Þegar Inka-
konungurinn kom tók Pizzarro
hann höndum. Inkar reyndu að
kaupa leiðtoga sinn lausan með
gulli og dýrgripum en Pizzarro
drap hann árið 1533.
Næstu áratugina áttu Spán-
verjar við stöðugar uppreisnir
að stríða en lögðu landið endan-
lega undir sig á sjöunda áratug
sextándu aldar. Pizzarro líkaði
ekki loftslagið í höfuðborg
Inkanna, Cuzco, og stofnaði því
nýja höfuðborg, Lima, 6. janúar
1535. ■
Pizzarro stofnar Lima
EINN AF FRÆGUM GULLGRIP-
UM INKA Inkar reyndu að kaupa
leiðtoga sinn, Atahualpa, lausan
með gulli og dýrgripum