Fréttablaðið - 06.01.2005, Page 70
38 6. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Bergur Björnsson er titlaður
reikimeistari. Ekki vita allir hvað
það þýðir en Bergur hefur stund-
að þetta nærri aldarfjórðung og
haldið mörg námskeið í þessum
fræðum. „Reiki er ekki beinlínis
starf heldur lífsstíll. Þegar þú
lærir reiki þá ertu tengdur við
reikiorkuna og hún fer að hafa
áhrif á þig. Þú getur þá notað
hana bæði fyrir sjálfan þig og
aðra. Ég stend í þeirri meiningu
að við séum andlegar verur sem
höfum tekið okkur bólfestu í
mannlegum líkama. Í reiki eru
engar fjarlægðir og engir veggir.
Við getum sent reiki til mann-
eskju í annarri heimsálfu eins
auðveldlega og manneskju í
næsta herbergi. Reiki er ein teg-
und af heilun og tengist í raun-
inni öllum þeim sem vinna með
fólk. Þeir sem starfa við nudd,
jóga eða sjúkraþjálfun og hafa
lært reiki eru mun sterkari í sínu
starfi fyrir vikið.“
Aðspurður hvernig áhrifum
fólk verður fyrir á námskeiðun-
um segir hann: „Flestir finna
fyrir því þegar þeim er sent
reiki. Þeir sem eru veikir fyrir
finna þó mest fyrir reikinu því þá
er það sterkast. Reikið tekur á
fyrirstöðu og losar um orku-
hnúta. Ef þú sendir reiki til
manneskju sem ekkert er að
getur það virkað sem slökun eða
hugleiðsla. Ef hún er í andlegu
ójafnvægi eða stressuð þá róast
hún og henni líður betur. Það er
eins og þú sért kominn með fleiri
verkfæri til þess að leysa vanda-
málin og meiri orku til þess að
vinna með. Þannig verkar reikið
fyrir okkur sem höfum lært það.“
Á milli þess sem Bergur
stundar þetta fag keyrir hann
sendibíl. „Á tímabili var þetta
fullt starf og þá var ég að kenna
fólki reiki. Svo er eins og það sé
heldur lítill hluti af fólki sem
þetta höfðar til. Þegar ég er
búinn að kenna þeim þá hafa hin-
ir sem eftir eru engan áhuga.
Mörgum finnst þetta vera bull.“
Bergur byrjaði að læra reiki
árið ‘89 en þá var fyrsta nám-
skeiðið haldið hérlendis. „Ég fór
svo til Ameríku og lærði meira og
varð meistari. Ég hef kennt mörg-
um reikimeisturum. Þetta er frek-
ar auðvelt að læra og námskeiðið
tekur aðeins tvo daga. Þar fær
fólk tilsögn um hvernig skal nota
reiki. Aðalatriðið er að fá vígslur
þar sem þú ert tengdur við ork-
una. Eftir það finnur þú fyrir því
að hún er til staðar. Reiki styrkir í
rauninni eiginleika þína og ef þú
hefur andlega hæfileika þá
styrkjast þeir eftir að þú lærir
reiki.“ hilda@frettabladid.is
Jólahátíð Rússnesku rétttrúnaðar-
kirkjunnar á Íslandi hefst í kvöld
með messu í Friðrikskapellu klukk-
an 23.00. Stendur hún yfir fram
yfir miðnætti, hugsanlega til 2.00.
Hátíð kirkjunnar miðast við at-
burðinn þegar vitringarnir þrír
sáu jólastjörnuna sem leiddi þá að
jötu Krists. Að sögn Ksenia Ólafs-
son, talsmanns rétttrúnaðarkirkj-
unnar á Íslandi, markar messan
upphaf jólanna og verða aðalhá-
tíðarhöldin á morgun.
Meðlimum kirkjunnar hefur
fjölgað nokkuð hér á landi undan-
farið og eru þeir nú um 120.
Serbar og Úkraínumenn eru á
meðal þeirra sem mæta á mess-
una í kvöld. Auk þess mun íslensk-
ur kór syngja eins og undanfarin
ár og það að sjálfsögðu á rúss-
nesku.
Nýverið fékk rétttrúnaðarkirkj-
an vilyrði fyrir lóð undir nýja
kirkju í svonefndri Leynimýri í
Öskjuhlíð. „Það er yndislegur stað-
ur og mjög spennandi,“ segir
Ksenia. „Það kemur hingað prestur
í apríl og verður í því að skipuleggja
bygginguna. Ég vona að við getum
byrjað að byggja eftir eitt ár,“ segir
hún og óskar öllum gleðilegra jóla á
rússnesku: S Rozhdestvom! ■
BERGUR BJÖRNSSON REIKIMEISTARI Hefur stundað reiki síðan 1989 og kennt ófáum reikimeisturum fag sitt.
AÐ MÍNU SKAPI
JÓN ODDUR HALLDÓRSSON, FRJÁLSÍÞRÓTTAMAÐUR OG SILFURHAFI Á ÓLYMPÍULEIKUM FATLAÐRA Í 100M HLAUPI
TÓNLISTIN Góður vinur vakti áhuga minn á
klassískri tónlist fyrir þremur árum síðan og
síðan hef ég nær eingöngu hlustað á hana
og keypt mér til eignar. Ég er einkar hrifinn
af Mozart, Tsjækovskíj, Bach og Beethoven,
en níunda sinfónía Beethovens er í miklu
uppáhaldi. Beethoven er svo kraftmikill. Ef
ég er í leiðu skapi verð ég strax léttari í lund
við að hlusta á tónlist hans. Klassísk tónlist
er tímalaus og maður fær aldrei leið á
henni.
BÓKIN Ég les mjög mikið og nýti bóka-
safnsskírteinið vel. Las Syni duftsins um jól-
in, en ég er nýbyrjaður á Arnaldi og ákvað
að byrja á byrjuninni. Bókin kom á óvart og
er spennandi lesning sem tekst á við sið-
ferðislegar spurningar sem voru í umræð-
unni á þeim tíma; hvort rétt eða rangt sé að
klóna menn. Annars les ég mest vísinda-
skáldskap og fantasíur í anda Hringadrótt-
inssögu.
BÍÓMYNDIN Ég verð að nefna The Passion
of Christ, þótt ég sé slappur trúmaður. Mér
þótti gaman að sjá leikstjóra fjalla um Krist
sjálfan en ekki boðskap hans. Það var
áhugavert að sjá hvernig Kristi leið og upp-
lifa þjáningar hans á píslargöngunni. Ég
varð ansi snortinn, enda grimmdin mikil, og
Gyðingar og Rómverjar sýndir í verulega
ljótu ljósi.
BORGIN Aþena; enda mikil söguborg. Eftir
að hafa skoðað gamlar rústir á Akrópólis-
hæðinni og hof Póseidons kom ég heim
með mikinn doðrant um gríska sögu og
goðafræði, og fékk mikinn áhuga á þessum
fræðum. Grikkir eru hressir og skemmti-
legir; alltaf tilbúnir að gera manni til geðs
og ganga lengra en skyldan býður.
BÚÐIN Rúmfatalagerinn er bestur. Bæði
vinn ég þar og þeir eru aðalstyrktaraðilar
Íþróttasambands fatlaðra til margra ára.
Þetta er búð sem kann að styrkja gott mál-
efni, auk þess sem ég versla mjög mikið
þar.
VERKEFNIÐ Ég byrja í grunnnámi rafiðna í
Iðnskólanum á morgun og ætla síðan í raf-
eindavirkjann. Þá er Íslandsmót innanhúss
framundan og næsta sumar Evrópumeist-
aramót í Finnlandi þar sem ég þarf að verja
tvo titla, en ég er Evrópumeistari í 100m og
200m hlaupi. Það er því spennandi og
krefjandi ár framundan.
Klassísk tónlist, grísk goðafræði og þjáningar Krists
...fá þær hljómsveitir og lista-
menn sem halda styrktar- og
minningartónleika um Pétur W.
Kristjánsson tónlistarmann á
Broadway í kvöld.
HRÓSIÐ
Lárétt: 2 vináttuvottur, 6 frá, 8 arinn, 9
skordýr, 11 tímamælir, 12 eldhúsáhöld,
14 geggjaða, 16 áttir, 17 ábreiða, 18
mjöl, 20 tveir eins, 21 kvísl.
Lóðrétt: 1 fara undir yfirborð vatns, 3
lausung plús l, 4 sorgbitnar, 5 vann eið,
7 farartæki, 10 reykja, 13 fataefni, 15
smjörlíki, 16 lítil, 19 í röð.
Lausn
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Lárétt: 2koss,6af, 8stó,9fló,11úr,
12ausur, 14galna,16sv, 17lak,
18mél,20rr, 21álma.
Lóðrétt: 1kafa,3os,4stúrnar, 5sór,
7flugvél, 10ósa,13ull,15akra,
16, smá, 19lm.
KSENIA ÓLAFSSON Ksenia Ólafsson er talsmaður Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi.
S Rozhdestvom eða gleðileg jól
Hvað er reiki?
Ólíkt öðrum heilunaraðferðum er
reiki byggt á mannlegum orku-
stöðvum. Reiki leitar eftir reglu í
líkama þar sem orkan er komin í
ójafnvægi eða hefur stíflast.
Reiki hefur nokkur grunnáhrif:
úr því næst alger slökun, eyði-
leggur allt sem lokar orkuna inni
og hreinsar líkamann.
Í reiki staðsetur reikimeistarinn
hendurnar fyrir ofan þiggjand-
ann og þiggjandinn fær þá orku
sem hann þarfnast. Þiggjandinn
tekur því fullan þátt í heiluninni.
BERGUR BJÖRNSSON REIKIMEISTARI: TENGIR FÓLK VIÐ REIKIORKU
Losar um orkuhnúta
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR