Fréttablaðið - 09.01.2005, Blaðsíða 1
MÓTMÆLA STÖÐVUN Ölgerðin segir
yfirvöld mismuna innlendum framleiðend-
um með því að stöðva dreifingu á vítamín-
bættum drykk. Yfirvöld segja að vegna EES
sé ekki hægt að fylgjast náið með hvað sé
á markaðnum. Sjá síðu 2
HÚSHITUNARVERÐ HÆKKAR
Verð á rafmagni til húshitunar hækkar
um 15 til 20 prósent vegna breytinga á
lögum um raforkusölu. Sjá síðu 4
ÁTTA HUNDRUÐ Á HVERN Saman-
lögð framlög Íslendinga til hjálparstarfs á
hamfarasvæðunum í Asíu er minna en
flestra Norðurlanda en mun meira en for-
ystuþjóða Vesturlanda. Sjá síðu 6
STYTTRI VINNUTÍMI Áramótaávörp
biskups og forsætisráðherra vöktu athygli
en báðir fjölluðu um stöðu fjölskyldunnar.
Skiptar skoðanir eru um ummæli
tvímenninganna. Sjá síðu 8
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Kvikmyndir 62
Tónlist 58
Leikhús 58
Myndlist 58
Íþróttir 48
Sjónvarp 64
SUNNUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
9. janúar 2005 – 7. tölublað – 5. árgangur
DAGAR EFTIR AF
JANÚARTILBOÐI TOYOTA
23
Avensis
Tilboðsverð
2.220.000 kr.
VETRARKULDI MEÐ BJARTVIÐRI
Þykknar upp sunnan og vestan til síðdegis
eða í kvöld. Frost 2-12 stig, kaldast til
landsins. Sjá síðu 4
TÓNLEIKAR Í SALNUM Víkingur
Heiðar Ólafsson, píanóleikari sem stundar
nám við Juilliardskólann, heldur tónleika í
Salnum í Kópavogi. Víkingur Heiðar flytur
verk eftir Bach, Schumann, Bartok og
Schubert. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.
Me›allestur dagblaða
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups nóvember 2004
MorgunblaðiðFréttablaðið
69%
49%
Friðrik Ólafsson:
Skilnaður Brad Pitt og Jennifer
Aniston skekur Hollywood
Þórarinn Hávarðsson:
Breytti fisk-
vinnsluhúsi í
skemmtistað
SÍÐA 18
▲
SÍÐa 30
▲
Stórmeistari
á tímamótum
SÍÐUR 16 & 17
▲
Maður hryggbrotnaði:
Kastaðist af
vélsleða
SLYS Vélsleðamaður hryggbrotn-
aði þegar hann kastaðist af
vélsleða sínum austan við Sauða-
fell á Mosfellsheiði á tólfta tíman-
um í gærmorgun.
Maðurinn hafði ekið sleðanum
ofan í dæld í landslaginu og
kastaðist við það af sleðanum.
Björgunarsveitirnar Kyndill í
Mosfellsbæ og Kjölur á Kjalar-
nesi voru kallaðar út til að ná í
manninn sem var ásamt þremur
félögum sínum skammt utan við
þjóðveginn.
Sauðafell er á milli Skála-
fellsafleggjara og Kjósar-
afleggjara. Meiðsl vélsleða-
mannsins eru talin alvarleg og
þarf hann í aðgerð vegna hrygg-
brotsins. Sjúkrabíll flutti hinn
slasaða af slysstað á Landsspítala
– háskólasjúkrahús í Fossvogi.
-þlg
Á SNJÓBRETTUM VIÐ ARNARHÓL Snjóbrettamót var haldið á Arnarhóli í gærkvöld. Margir tóku þátt í mótinu og sýndu snilldartilþrif.
Snjóbrettaíþróttin á vaxandi vinsældum að fagna hérlendis, sérstaklega hjá yngri kynslóðinni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L
Söfnunarsíminn er 907 2020
Með því að hringja í söfnunarsímann leggur þú fram 1.000 kr. til hjálparstarfsins
í Asíu. Einnig er hægt að leggja fram fé með kreditkorti á www.redcross.is,
eða millifærslu á bankareikning 1151-26-000012, kt. 530269-2649.
kostar birtingu auglýsingarinnar
PALESTÍNA, AP Forsetakosningar
fara fram í Palestínu í dag. Sjö
manns eru í framboði en nær ör-
uggt er talið að Mahmoud Abbas
beri sigur úr býtum og taki þar
með við af Jasser Arafat sem lést
í nóvember. Abbas er frambjóð-
andi Fatah, stærstu fylkingarinn-
ar innan Frelsissamtaka Palest-
ínumanna (PLO). Hamas-samtök-
in ætla að sniðganga kosningarn-
ar.
Mustafa Barghouti er sá sem
helst er talinn geta velgt Abbas
undir uggum. Mustafa er skyldur
uppreisnarleiðtoganum Marwans
Barghouti sem situr í fangelsi
fyrir hryðjuverk. Hinir fimm
frambjóðendurnir eru taldir hafa
litla möguleika á sigri. Alls hafa
1,8 milljónir Palestínumanna
kosningarétt en ríflega milljón
manns hafa skráð sig til þátttöku.
Þrjú þúsund kjörstaðir eru í land-
inu og verður þeim lokað klukkan
fimm síðdegis. Um klukkustund
síðar verða birtar útgönguspár.
Ísraelsk stjórnvöld hótuðu í
gær að standa ekki við áður gefið
loforð sitt um aukið ferðafrelsi
fyrir fólk á Vesturbakkanum og
Gaza sem þarf að komast á kjör-
stað. Ísraelar hótuðu þessu eftir
að palestínskur uppreisnarmaður
skaut ísraelskan hermann til
bana. Töluverð ólga var í Palest-
ínu í gær og var palestínskur lög-
reglumaður meðal annars skotinn
til bana af ísraelskum hermanni
við landamæri Ísraels. Ísraelsk
stjórnvöld segja að maðurinn hafi
verið kominn inn á öryggissvæði
vopnaður riffli og þess vegna hafi
hann verið skotinn.
Ögmundur Jónasson, formaður
þingflokks Vinstri grænna og
BSRB, er staddur í Palestínu.
Sjá síðu 2
Nær öruggt talið
að Abbas sigri
Palestínumenn kjósa sér nýjan forseta í dag. Mahmoud Abbas er talinn lang-
líklegasti arftaki Arafats. Útgönguspár verða birtar klukkan sex síðdegis.
Norðurlönd:
Fimm létust
í óveðri
NORÐURLÖND, AP Fimm létust í fár-
viðri sem geisaði á Norðurlöndum
í gær.
Í Danmörku lést maður í Óðins-
véum þegar tré fauk á bíl hans á 170
kílómetra hraða. Annars staðar á
Fjóni létust tvær manneskjur þegar
þak af sumarhúsi fauk á þær. Í Sví-
þjóð létust tveir ökumenn eftir að
tré féllu á bíla þeirra.
Meira en hundrað þúsund
heimili urðu rafmagnslaus í suð-
urhluta Svíþjóðar og yfirvöld
hvöttu íbúa til að halda sig heima.
Vindurinn náði 121 kílómetra
hraða. Yfirborð sjávar náði sögu-
legu hámarki. Raða varð sandpok-
um við sjávarsíðu í Helsinki í
Finnlandi, nálægt forsetahöllinni.
Almenningssamgöngur lágu
niðri vegna veðursins. Ferjur
voru bundnar við bryggjur og var
Eyrarsundsbrúnni meðal annars
lokað. Veðurofsinn stafar af
djúpri lægð yfir Skagerrak en svo
nefnist hafsvæðið milli Noregs og
Danmerkur. ■