Fréttablaðið - 09.01.2005, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 09.01.2005, Blaðsíða 46
26 9. janúar 2005 SUNNUDAGUR LEIKIR GÆRDAGSINS FÓTBOLTI Ein óvæntustu úrslitin í sögu ensku bikarkeppninnar litu dagsins ljós á Old Trafford í gær þegar utandeildarlið Exeter helt jöfnu gegn stórliði Man. Utd sem stillti upp varaliði sínu í leiknum. Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, skipti þrem sterkum mönn- um á völlinn í síðari hálfleik – Paul Scholes, Cristiano Ronaldo og Alan Smith – en allt kom fyrir ekki. „Ég bið stuðningsmenn félags- ins afsökunar. Þeir áttu þetta ekki skilið. Þetta er versti leikur Man. Utd. undir minni stjórn og er þá mikið sagt því ég hef stýrt þessu félagi í átján ár,“ sagði Ferguson eftir leikinn en leikmenn United voru baulaðir af velli í leikslok en uppselt var á leikinn. „Ég veit að við stilltum upp mikið af ungum leikmönnum en það er engin afsökun. Við ætlumst til meira af þeim en þeir sýndu hér í dag. Það er ljóst eftir þennan leik að ég mun stilla upp sterkara liði í seinni leiknum,“ sagði Fergie en annar leikur var það síðasta sem hann hafði óskað sér. Leikmenn Exeter fögnuðu í leikslok eins og þeir væru orðnir heimsmeistarar og lái þeim hver sem vill. Eiður fyrirliði Eiður Smári Guðjohnsen var fyrirliði hjá Chelsea, lék allan leikinn og skoraði eitt mark er Chelsea lagði Scunthorpe, 3-1. Sigurinn var reyndar ekkert sér- staklega öruggur en Scunthorpe tók forystuna í leiknum. Jose Mo- urinho, stjóri Chelsea, hrósaði Scunthorpe í hástert eftir leikinn. „Ég get ekki annað en hrósað þeim. Þeir gáfu sig alla í dæmið, spiluðu vel, skoruðu eitt mark og hefðu getað skorað fleiri. Ég hef fulla trú á því að þeir vinni 2. deildina,“ sagði Mourinho. Þetta var góður dagur hjá ís- lensku strákunum því Ívar Ingi- marsson tryggði Reading annan leik gegn Swansea með jöfnunar- marki á lokamínútum leiksins og slíkt hið sama gerði Heiðar Helguson fyrir Watford gegn Ful- ham en Heiðar skorar í hverjum einasta leik þessa dagana. Bjarni Guðjónsson lauk síðan góðum degi hjá íslensku strákunum með því að skora gegn Everton og eiga þar að auki stórgóðan leik í 3–1 tapi. henry@frettabladid.is MEÐ BÖGGUM HILDAR Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Man. Utd, var þungur á brún eftir leikinn gegn Exeter. Hann bað stuðningsmenn félagsins afsökunar á knattspyrnunni sem strákarnir hans buðu upp á. Ég biðst afsökunar Sir Alex Ferguson bað stuðningsmenn Man. Utd afsökunar eftir að þeim mistókst að leggja utandeildarlið Exeter að velli á Old Trafford. Fjórir Íslend- ingar voru á skotskónum í ensku bikarkeppninni í gær. Karlalið Vals ætlar sér stóra hluti í Landsbankadeildinni í fótbolta á komandi tímabili og vill styrkja hópinn: Vilja fá Veigar Pál og Tryggva FÓTBOLTI Valsmenn hafa mikinn áhuga á því að fá atvinnumennina Veigar Pál Gunnarsson, sem er samningsbundinn norska liðinu Stabæk, og Tryggva Guðmunds- son, sem er samningsbundinn sænska liðinu Örgryte, í sínar rað- ir. Valsmenn báru sigur úr býtum í 1. deildinni síðastliðið haust og tryggðu sér þar með sæti í Lands- bankadeildinni á komandi tíma- bili. Þeim hefur gengið illa að festa sig í sessi í efstu deild en ljóst er að forráðamenn liðsins ætla sér að snúa því ferli við. Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að það væri mikill áhugi fyrir því innan raða Vals að fá Veigar Pál og Tryggva til liðs við félagið enda væru þeir báðir öflugir leik- menn. „Við höfum látið þá vita af áhuga okkar en lengra er málið ekki komið. Þeir eiga báðir eftir að leysa sín mál gagnvart félögum sínum en þeir hafa báðir gefið í skyn að þeir geti losnað og þegar það gerist þá munum við bregðast við því,“ sagði Börkur. Veigar Páll gekk til liðs við Sta- bæk í byrjun árs 2004 eftir nokk- urt þref við félag sitt, KR. Hann skrifaði undir þriggja ára samn- ing við félagið en náði sér ekki á strik á síðasta tímabili frekar en liðið sem féll úr norsku úrvals- deildinni. Veigar Páll sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að hann vildi gjarnan losna frá Stabæk og væri spenntur fyrir því að koma á nýj- an leik. Hann sagði að fjögur lið, Valur, FH, Fylkir og KR, hefðu haft samband við sig en allt sner- ist um það hvort forráðamenn norska liðsins vilja sleppa honum og þá fyrir hversu mikinn pening. Tryggvi á eftir tvö ár af samn- ingi sínum við Örgryte en er úti í kuldanum hjá forráðamönnum fé- lagsins eftir að hafa gagnrýnt þjálfara liðsins opinberlega. Hann er í Svíþjóð eins og stendur að ganga frá sínum málum við félag- ið en auk Vals hafa FH-ingar lýst yfir áhuga sínum á Tryggva. -ósk VEIGAR PÁLL OG TRYGGVI Þessir tveir snjöllu leikmenn væru hvalreki á fjörur Vals- manna. RUT SIGURÐARDÓTTIR Frábært ár að baki hjá þessari snjöllu íþróttakonu. Íþróttamaður Akureyrar: Tvöfaldur titill hjá Rut TAEKWONDO Rut Sigurðardóttir, úr Þór á Akureyri, var kjörin Íþróttamaður Akureyrar fyrir árið 2004. Rut, sem á síðasta ári varð Norðurlandameistari í Taekwondo, var einnig kjörin Taekwondo-kona ársins af Íþrótta- og Ólympíusambandi Ís- lands. Árni Þór Sigtryggsson, ung- lingalandsliðsmaður í handknatt- leik og leikmaður með Þór, varð í öðru sæti í kjörinu um Íþrótta- mann Akureyrar og i þriðja sæti varð Guðlaugur Már Halldórsson, Bílaklúbbi Akureyrar. Audrey Freyja Clark, listdansari úr Skautafélagi Akureyrar, varð í fjórða sæti og fimmti varð Jónat- an Þór Magnússon, fyrirliði bikar- meistara KA í handknattleik. -kk Kristinn Lárusson: Framlengir við Val FÓTBOLTI Kristinn Ingi Lárusson, einn af burðarásum Valsliðsins í knattspyrnu, hefur framlengt samning sinn við félagið eftir því sem fram kemur á heimasíðu Vals. Ekki kemur fram á síðunni hversu langur samningur Kristins Inga er en hann spilaði þrettán leiki með Val í 1. deildinni síðasta sumar og skoraði eitt mark. Krist- inn Ingi hefur leikið 79 leiki með Val í efstu deild og skorað í þeim sextán mörk. ■ Enska bikarkeppnin SHEFF. UTD–ASTON VILLA 3–1 Andy Liddel 2, Danny Cullip – Gareth Barry. WOLVES–MILLWALL 2–0 Ki-Hyeon Seol, Carl Cort. BIRMINGHAM–LEEDS 3–0 Darren Carter 2, Emile Heskey. (Gylfi Einarsson var ekki í leikmannahópi Leeds.) BOURNEMOUTH–CHESTER 2–1 Shaun Maher, Wade Elliott – Kevin Ellison. CARDIFF–BLACKBURN 1–1 Alan Lee – Morten Pedersen. CHARLTON–ROCHDALE 4–1 Bryan Hughes 2, Jonathan Fortune, Danny Murphy – Grant Holt. (Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn fyrir Charlton.) CHELSEA–SCUNTHORPE 3–1 Mateja Kezman, Andy Crosby (sjm.), Eiður Smári Guðjohnsen. (Eiður Smári lék allan leikinn.) COVENTRY–CREWE 3–0 Gary McSheffrey 2, Stern John. DERBY–WIGAN 2–1 Inigo Idiakez, Junior – Alan Mahon. HULL–COLCHESTER 0–2 – Gareth Williams, Craig Fagan. IPSWICH–BOLTON 1–3 Tommy Miller – Henrik Pedersen 2, Stelios Giannakopoulos. LEICESTER–BLACKPOOL 2–2 Robert Edwards (sjm.), Gareth Williams – Peter Clarke, Keith Southern (Jóhannes Karl Guðjóns- son var í byrjunarliði Leicester og lék allan leikinn.) NORTHAMPTON–SOUTHAMPTON 1–3 Lee Williamson – Kevin Phillips, Peter Crouch, Jamie Redknapp. NOTTS COUNTY–MIDDLESBROUGH 1–2 Tony Scully – Doriva, Joseph-Desire Job. OLDHAM–MAN. CITY 1–0 Scott Vernon. PORTSMOUTH–GILLINGHAM 1–0 Aiyegbini Yakubu. PRESTON–WBA 0–2 – Robert Earnshaw 2. QPR–NOTT. FOREST 0–3 – Andy Reid, Kris Commons, Yoann Folly. READING–SWANSEA 1–1 Ívar Ingimarsson – Paul Connor. (Ívar var í byrjunarliði Reading og lék allan leikinn.) ROTHERHAM–YEOVIL 0–3 – Phil Jevons, Darren Way, Andrejs Stolcers. SUNDERLAND–CRYSTAL PALACE 2–1 Andrew Welsh, Marcus Stewart (víti) – Andy Johnson. WATFORD–FULHAM 1–1 Heiðar Helguson (víti) – Zat Knight. (Heiðar og Brynjar Björn Gunnarsson voru báðir í byrjunarliði Watford og léku allan leikinn.) HARTLEPOOL–BOSTON UTD 0–0 LUTON–BRENTFORD 0–2 – Chris Hargreaves, Jay Tabb. MAN. UTD–EXETER 0–0 MILTON KEYNES DONS–PETERB. 0–2 – Richard Logan, Mark Arber. TOTTENHAM–BRIGHTON 2–1 Ledley King, Robbie Keane – Richard Carpenter. WEST HAM–NORWICH 1–0 Marlon Harewood. PLYMOUTH–EVERTON 1–3 Bjarni Guðjónsson – Leon Osman, James McFadden, Nick Chadwick. DHL-deild kvenna: GRÓTTA/KR–FH 22–25 Mörk Gróttu/KR: Arna Gunnarsdóttir 7, Arndís Erlingsdóttir 4, Anna Úrsula Guðmundsdóttir 4, Íris Ásta Pétursdóttir 3, Björk Gunnarsdóttir 1, Gerður Einarsdóttir 1, Ragna Karen Sigurðardóttir 1, Eva Margrét Kristinsdóttir 1. Mörk FH: Gunnur Sveinsdóttir 9, Dröfn Sæmundsdóttir 9, Sigrún Gilsdóttir 3, Guðrún Drífa Hólmgeirsdóttir 2, Bjarný Þorvarðardóttir 1, Aníta Eyþórsdóttir 1. ÍBV–VALUR 27–26 Mörk ÍBV: Alla Gorkorian 9, Darinka Stefanovic 6, Zsofia Pazstor 3, Tatjana Zukovska 3, Guðbjörg Guðmannsdóttir 3, Anastasia Patsion 2, Eva Björk Hlöðversdóttir 1. Mörk Vals: Ágústa Edda Björnsdóttir 7, Katrín Andrésdóttir 5, Díana Guðjónsdóttir 4, Arna Grímsdóttir 4, Soffía Rut Gísladóttir 3, Anna María Guðmundsdóttir 2, Hafrún Kristjánsdóttir 1. Bikarkeppni KKÍ, karlar: HÖTTUR–BREIÐABLIK 88–94 Bikarkeppni KKÍ, konur: LAUGDÆLIR–TINDASTÓLL 67–57 FYRIRLIÐINN SKORAÐI Eiður Smári var fyrirliði hjá Chelsea í gær og skoraði eitt mark í leiknum gegn Scunthorpe. Hann fagnar hér markinu með Joe Cole. GUÐBJÖRG STERK Guðbjörg Guðmannsdóttir átti ágætan leik fyrir ÍBV gegn Val í gær og skoraði þrjú mörk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.