Fréttablaðið - 09.01.2005, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 09.01.2005, Blaðsíða 19
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 8 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 75 stk. Keypt & selt 19 stk. Þjónusta 15 stk. Heilsa 11 stk. Skólar & námskeið 5 stk. Heimilið 21 stk. Tómstundir & ferðir 5 stk. Húsnæði 16 stk. Atvinna 25 stk. Tilkynningar 7 stk. Á vegum Alcoa byggir Bechtel International Inc. álver á Reyðarfirði. Bechtel er yfir 100 ára gamalt bandarískt verktaka- fyrirtæki með starfsemi um heim allan. Fjarðaál er hannað og byggt í samstarfi við HRV sem samanstendur af nokkrum fremstu fyrirtækjum á Íslandi á sviðinu, Hönnun, Rafhönnun og Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen. Bechtel leitar að starfsfólki í bygginga- vinnu við álver á Reyðarfirði Með vorinu verður hafist handa við byggingaframkvæmdir þar sem áætlaður fjöldi starfsmanna næsta ár mun verða yfir eitt þúsund. Þessi fjöldi iðnaðar- og verka- manna telur fleiri en við reiknum með að finna hér á landi. Það er því ákaflega mikilvægt að fólk sem hefur áhuga á vinnu hjá Bechtel skrái sig sem allra fyrst. Fljótlega eftir áramót verður farið í að leita út fyrir landsteinanna að starfsmönnum í þær stöður sem við sjáum ekki möguleika á að fylla. Okkur mun vanta tækjastjórnendur og vörubílstjóra, handlangara, verkamenn og byggingaiðnaðarmenn. Á byggingatímanum sem nær til ársloka 2007 verður þörf fyrir smiði, járnsmiði, málmsuðumenn, móta- smiði, plötusmiði, stálvirkjasmiði, uppsetningarmenn, vírsplæsingar- menn, vélvirkja, múrara og málara. Þeir sem áhuga hafa á störfum við byggingu álvers á Reyðarfirði eru vinsamlega beðnir um að leggja inn umsókn sem fyrst. Umsóknir verða teknar til athugunar samfara framvindu byggingaframkvæmdanna. Á skrifstofunum eru veittar upplýsingar um störfin og annað sem að þeim lýtur. Þar er einnig hægt að nálgast umsóknareyðublöð, sem og á heimasíðunni. Ráðningarstofan á Reyðarfirði Búðareyri 2 730 Reyðarfirði Sími 470 7599 Eyðublöð og upplýsingar um verkefnið er að finna á heimasíðu Fjarðaáls, www.fjardaalproject.com Ráðningarstofan í Reykjavík Suðurlandsbraut 4 108 Reykjavík Sími 470 7400 Góðan dag! Í dag er sunnudagurinn 9. jan., 9. dagur ársins 2005. Reykjavík 11.07 13.35 16.04 Akureyri 11.05 13.20 15.25 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Hjónin Einar Steindórsson og Þóra Egils- dóttir stunda fisksölu á Freyjugötu 1 í Reykjavík. Þar hafa þau staðið vaktina í þrettán og hálft ár og eru þekkt fyrir þægilega og persónulega þjónustu. „Þetta er dálítið eins og í þorpi,“ segir Þóra brosandi. „Fastakúnnarnir verða kunningjar manns og maður fylgist með heilsufari og öðru í lífi þeirra.“ Sjálf er hún Eyrbekkingur að uppruna og þekkir þorpslíf af eigin raun. Kveðst allt að því fædd í slorinu og kunna vel við stemning- una kringum fiskinn. Einar er líka ánægður með starfið enda þótt vinnudag- urinn sé oft langur. „Maður er sjálfs síns herra og þetta er ágætt í alla staði,“ seg- ir hann. „Ég var sendiferðabílstjóri áður en ég byrjaði í þessu. Annars var ég á Stokkseyri fyrstu 40 æviárin og þá lengst af á sjó.“ En skyldi fiskbúðabransinn hafa breyst frá því að þau byrjuðu árið 1992? „Það eru engar stórbreytingar nema hvað áherslan hefur verið að færast meira yfir á tilbúna rétti sem fólk getur gripið með sér og þarf lítið að hafa fyrir, ofnrétti, bollur, plokkfisk og fisk í raspi. Þannig eru kröfur tímans og maður verð- ur að fylgja þeim,“ segir Einar og þakkar konu sinni vinsældir tilbúnu réttanna þeirra. „Við höfum þetta bara eins og það sé heimatilbúið og eins og maður lærði af mömmu og tengdamömmu. Þannig vill fólk hafa það,“ segir Þóra. Einar kaupir fiskinn á mörkuðunum í gegnum tölvuna, mest á Faxamarkaði. „Ef ég kaupi fisk til dæmis austan af Hornafirði þá næ ég bara í hann niður á Faxamarkað morgun- inn eftir. Bílarnir eru á ferðinni allan sól- arhringinn,“ segir hann. Meðan Einar sér um að kaupa fiskinn sér Þóra um að selja hann og í lokin er hún spurð hvort þetta sé ekki kuldalegt starf. „Nei,“ svarar hún og hlær. „Oftast er ég berfætt í stígvélunum, þannig líður mér best. Svo er ég alltaf berhent. Þó að ég sé á kafi í ísnum þá er mér aldrei kalt.“ gun@frettabladid.is Á kafi í ísnum en aldrei kalt atvinna@frettabladid.is Atvinnuleysisbætur hækkuðu um þrjú prósent 1. janúar síð- astliðinn. Dagpeningar bótaþega sem eru með fullar bætur hækkuðu úr 4.096 krónum í 4.219 krónur eins og kemur fram á vef Vinnumálastofnun- ar. Fullar atvinnuleysisbæt- ur á mánuði hækka þar með úr 88.760 krónum í 91.426 krónur. Dagpeningaskrá má nálgast á vefsíðunni vinnumalastofnun.is. Ný rannsókn hefur leitt það í ljós að mismunandi kröfur eru gerðar til starfsmanna og fer það eftir hjúskaparstöðu þeirra og hvort þeir séu barnlausir eða ekki. Vísindamenn í Ohio State háskólanum framkvæmdu könnunina og er greint frá henni á fréttavef Ya- hoo. Strangari kröfur eru gerðar til barn- lausra kvenna á vinnustað. Það sem kemur hins vegar á óvart er að þátttak- endur í rannsókninni setja minni starfskröfur á feður en á mæður og menn sem eiga eng- in börn. Ennfremur kom fram að háskólanemendur vildu frek- ar ráða einstæða konu til vinnu en konu með tvö börn og sömu starfshæfni. Þóra og Einar segja fiskinn hafa vaxið í áliti sem fæðu á undanförnum árum, enda sé hann hollustuvara. Smáauglýsingar á 995 kr. visir.is LIGGUR Í LOFTINU í atvinnu FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ NEYTENDUR O.FL. Þú getur pantað smáauglýsingar á www.visir.is Bloggið bakar vandræði BLS. 3 ][ Félagsleg heimaþjónusta. Félags- og þjónustumiðstöðin Árskógum 4 óskar eftir að ráða starfsmenn nú þegar við félagslega heimaþjónustu. Starfið felur í sér ýmsa aðstoð við almenn þrif, heimilishald og félagslegan stuðning. Markmið félagslegrar heimaþjónustu er að gera fólki kleift að búa á eigin heimili,eins lengi og mögulegt er. Starfið krefst færni í mannlegum sam- skiptum og áreiðanleika. Starfshlutfall eftir sam- komulagi. Við veitum starfsfólki góðan stuðning og leggjum áherslu á símenntun og þróun í starfi. Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Eflingar. Allar nánari upplýsingar veita Elísabet E Jónsdóttir, deildarstjóri, netfang:elisabet.eyglo.jonsdott- ir@reykjavik.is og Pála Jakobsdóttir, deildarstjóri, netfang: pala jakobsdottir@reykjavik.is , í síma 535- 2700. Sjá einnig almennar upplýsingar um laus störf og starfsmannastefnu Félagsþjónustunnar á vefsíðunni: www.felagsthjonustan.is MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINSER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR? KRÍLIN Fá prestar laun eða bara það sem kemur í samskota- baukinn? Fisksalarnir á Freyjugötu 1 eru samhent hjón sem viðhalda þorpsstemningu í sinni jákvæðustu mynd í Þingholtunum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.