Fréttablaðið - 09.01.2005, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 09.01.2005, Blaðsíða 13
13SUNNUDAGUR 9. janúar 2005 imíS senragroB 113 www.bifrost.is 0003 334 Fjarnám til BS gráðu í viðskiptafræði Háskólanám í stofunni heima. Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri fjarnáms Ása Björk Stefánsdóttir (asabjork@bifrost.is) eða á www.bifrost.is Viðskiptaháskólinn á Bifröst býður upp á 30 eininga fjarnám til BS gráðu í viðskiptafræði fyrir þá sem hafa lokið 60 einingum í viðskipta- eða rekstrarfræðum frá íslenskum eða erlendum háskólum. Námið er skipulagt sem nám með vinnu. Kennsla fer fram á gagnvirkum námsvef Viðskiptaháskólans. Á hverju misseri eru tvær vinnuhelgar á Bifröst þar sem nemendur koma saman ásamt kennurum til verkefna og hópavinnu. Umsóknarfrestur er til 21. janúar 2005. Atli B. Guðmundsson hjá greiningardeild Ís- landsbanka segir að horfur fyrir árið séu betri en greiningardeildin hafi búist við áður en hafist var handa við að greina stöðuna á markaðnum nú fyrir áramótin. „Þrátt fyrir hækanir í fyrra eru kenntiöl- urnar ekki að versna mikið. Það er enginn stórkostlegur munur,“ segir hann. Kennitölur í rekstri fyrirtækja eru notaðar til að meta verð fyrirtækja. Sem dæmi gefur hátt hlut- fall markaðsverðmætis miðað við hagnað til kynna að verð á fyrirtæki sé hátt. Atli segir að Íslandsbankamenn séu ekki svartsýnir en í nýrri skýrslu sinni bendir bankinn þó á nokkra þætti sem fjárfestar ættu að hafa hugfasta. „Það þarf að hafa í huga hvort menn fái vott af fífldirfsku og ráðist í næstu verkefni af of mikilli bjartsýni og vanmeti áhættuna. Þegar það hefur geng- ið vel þá er hætta á því að menn missi tilfinn- ingu fyrir áhættunni,“ segir hann. Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður grein- ingardeildar Landsbankans, segir að bankinn sé bjartsýnn á árið sem nú er að hefjast. „Það er mikið að gerast hjá þeim fyrir- tækjum sem eru skráð. Tvö félög standa í yf- irtökum á félögum sem eru stærri en þau sjálf. Velta Kögunar fjórfaldast við kaupin á Opnum kerfum og veltan hjá Og Vodafone tvöfaldast [við yfirtöku á Íslenska útvarpsfé- laginu og Frétt]. Svo eru bankarnir ennþá í mikilli útrás,“ segir hún. Hún bendir einnig á að hér á landi séu starfræktir öflugir fjárfestignarsjóðir sem um þessar mundir hafa fullar hendur fjár. „Þeir geta breytt sviðsmyndinni mikið og það skiptir máli hvað þau gera. Þar eru bæði skráð félög, eins og Burðarás, og eins óskráð félög eins og Meiður sem er risi sem gæti vaknað,“ segir hún. „Það eru því miklir möguleikar í stöðunni og þó að við höfum lifað spennandi ár í fyrra þá held ég að þetta ár verði ekki minna spennandi. Ég er hins vegar ekki að gera ráð fyrir eins miklum hækkunum nema eitthvað mjög sérstakt gerist,“ segir Edda Rós. Actavis til Lundúna Lyfjafyrirtækið Actavis naut þeirrar sérstöðu meðal stórra ís- lenskra fyrirtækja í fyrra að hlutabréfaverð í félaginu lækk- uðu á árinu. Þetta er þó ekki til marks um vantrú fjárfesta á fé- laginu heldur endurspeglar það annars vegar þá staðreynd að fé- lagið tók út gríðarlega hækkun árið 2003 og hins vegar óvissu um skráningu félagsins á kaup- höll í Lundúnum. Actavis hefur um langa hríð unnið að undirbúningi skráning- ar í Lundúnum og gera má ráð fyrir að skref í þá átt verði stigin fljótlega. Fjárfestar í Bretlandi eru hins vegar varkárari en þeir íslensku og verð hlutabréfa þar er töluvert lægra en hér á landi. Þetta þýðir að nokkur hætta er á því að hlutabréfaverð í Actavis lækki þegar félagið verður skráð í Lundúnum. Verður 2005 líka ævintýraár? Þótt ekki gæti neinnar svartsýni hjá sérfræðingum um árið sem nú er að hefjast þorir enginn að spá því að hlutabréfamarkaður- inn verði jafngjöfull í ár og á síð- asta ári. Reyndar gat enginn spáð fyrir um þær miklu hækk- anir sem áttu sér stað í fyrra en ljóst er að varkárnin er miklum mun meiri nú. Miklar væntingar eru þegar bundnar í hlutabréfaverð. Það þýðir að svigrúm til mistaka er ekki mikið. Ef hin stóru verkefni gefa lítið af sér, eða ef langan tíma tekur að hemja þann rekstur sem íslensk fyrirtæki hafa tekið yfir, getur það orðið mjög kostn- aðarsamt bæði fyrir íslensku fyrirtækin og íslenska fjárfesta. Spár Landsbanka og Íslands- banka gera ráð fyrir miklum hagnaði í rekstri fyrirtækja á þessu ári en ef þær spár ganga ekki eftir er ljóst að forsendur núverandi verðlagningar á hluta- bréfum eru brostnar. thkjart@frettabladid.is HVAÐ SEGJA SÉRFRÆÐINGARNIR? Á ekki von á hækkunum Staðan betri en við héldum Tækifæri í stöðunni Þórður Pálsson, forstöðumaður greiningar- deildar KB banka, á ekki von á hækkunum á hlutabréfaverði á þessu ári. „Hvað varðar þau fyrirtæki sem við spá- um sérstaklega um teljum við að hlutabréfa- markaður standi meira og minna í stað,“ seg- ir hann. Hann segir að efnahagsástand sé gott um þessar mundir og því gerir hann heldur ekki ráð fyrir að félög lækki í verði jafnvel þótt sum þeirra séu að hans mati of- metin. „Það eru byggðar miklar væntingar í verð hlutabréfa og lítið svigrúm til mistaka eftir í þeirri verðlagningu og það þarf að ráðast hvernig fyrirtækjunum vegnar í útrás sinni og rekstri. Til þess að það verði meira svig- rúm fyrir hækkanir þurfa fyrirtækin að skila mjög verulegum rekstrarárangri,“ segir hann. Hann segir að teikn séu á lofti um að fyrir- tæki þurfi að fara gætilega í áframhaldandi útrás. „Þegar vel hefur gengið og hlutabréfa- verðið hefur hækkað um langan tíma sýnir sagan að það er hætt við að menn telji sig ósæranlega,“ segir hann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.