Fréttablaðið - 09.01.2005, Qupperneq 2
SPURNING DAGSINS
Já, hún á svo góða vini.
Katrín Anna Guðmundsdóttir er talsmaður
Femínistafélagsins. Þær fréttir fóru sem eldur í
sinu í gær að eitt frægasta Hollywood-parið,
Jenifer Aniston og Brad Pitt, væru skilin
eftir fjögurra ára hjónaband.
Katrín, verður Aniston sama
konan án Pitts?
2 9. janúar 2005 SUNNUDAGUR
PALESTÍNA Ísraelsmenn hafa held-
ur slakað á ferðatakmörkunum
vegna kosninganna í Palestínu að
sögn Ögmundar Jónassonar,
þingmanns og formanns Banda-
lags starfsmanna ríkis og bæja
(BSRB). Ögmundur er nú í
Palestínu í boði palestínsku
verkalýðshreyfingarinnar.
„Það er óhætt að segja að hér
sé loft lævi blandið,“ segir Ög-
mundur. „Ég verð fyrir áfalli dag-
lega. Nærvera ísraelska hersins
er svo raunveruleg. Ef þetta er
tilslökun hjá ísraelska hernum þá
býð ég ekki í það hvernig ástand-
ið er hérna á öðrum tímum.“
Ögmundur segir fólk sem
hann hafi rætt við almennt sam-
mála um að Mahmoud Abbas
sigri þó Mustafa Barghouti hafi
sótt í sig veðrið undanfarna daga.
Ögmundur hefur heimsótt kosn-
ingaskrifstofur Abbas og Barg-
houtis.
„Það er ljóst að Abbas er með
allt stofnanaveldið á bak við sig
en hinn síður. Abbas er talinn lík-
legri til að vera sveigjanlegri í
samningum við Ísraelsmenn en
Barghouti. Þá stendur Barghouti
heldur lengra til vinstri í stjórn-
málum en Abbas. Það vakti at-
hygli mína að í báðum herbúðum
er talað vel um andstæðinginn.“
- th
Ölgerðin mótmælir
stöðvun á dreifingu
Ölgerðin segir yfirvöld mismuna innlendum framleiðendum með því að
stöðva dreifingu vítamínbætts drykks þeirra. Yfirvöld segja að vegna EES
sé ekki hægt að fylgjast náið með hvað sé á markaðnum.
MATVÆLI Forstjóri Ölgerðarinnar
Egils Skallagrímssonar, Andri Þór
Guðmundsson, gagnrýnir að dreif-
ing vítamínbætta drykkjarins
Kristals Plús hafi verið stöðvuð.
Vinnubrögð Umhverfis- og heil-
brigðisstofu Reykjavíkur séu sam-
keppnishamlandi mismunun og
brot á jafnréttisreglu, þar sem
horft sé framhjá vítamínbættum
drykkjum erlendra framleiðenda
hér á landi sem hafi ekki leyfi.
„Við teljum illilega á okkur
brotið. Vítamínbættar drykkjar-
vörur hafa flætt hér yfir markað-
inn ár eftir ár og eru óáreittar í
verslunum. Við skiljum ekki af
hverju eitt er ekki látið yfir alla
ganga,“ segir Andri. Unnið sé á
móti hollustumarkmiðum og vöru-
þróun innlendra aðila.
Rögnvaldur Ingólfsson, deildar-
stjóri matvælaeftirlitssviðs Um-
hverfis- og heilbrigðisstofu
Reykjavíkur, segir ekki keppt að
því að gera innlendum framleið-
endum erfiðara fyrir. Þar sem
frjálst flæði vítamínbættra vara sé
innan Evrópska efnahagssvæðisins
sé ekki skoðað hvort þær erlendu
uppfylli allar íslenskar reglur áður
en þær fari á markað.
Rögnvaldur segir þó meginmun
á þeim erlendu og drykk Ölgerð-
innar því flestir erlendu drykkj-
anna hafi fengið leyfi sinna
stjórnvalda. Drykkur Ölgerðarinn-
ar hafi hins vegar aldrei verið
skoðaður. Hann hafi farið á markað
án allra leyfa: „Í dreifingarbanninu
felist ekki dómur um hvort drykk-
urinn verði leyfður eða ekki.“
Andri segir menn Ölgerðarinn-
ar hafa talið 43 vítamínbætta
drykki í hillum stórmarkaða í vik-
unni. Á fundi með Umhverfisstofn-
un og umhverfis- og tæknisviði
Reykjavíkurborgar, þar sem sótt
hafi verið um leyfi fyrir Kristal
Plús, hafi þær upplýsingar fengist
að umhverfis- og tæknisviðið hafi
gert athugasemdir við þrjár er-
lenda vítamínbætta drykki í janú-
ar. Rögnvaldur segir það rétt. Þeir
drykkir hafi fengið viðurkenningu
erlendra stjórnvalda.
gag@frettabladid.is
HRAÐAKSTUR Á REYKJANES-
BRAUT Fimm voru stöðvaðir
fyrir of hraðan akstur á
Reykjanesbrautinni á laugar-
dagsmorguninn. Sá sem hraðast
fór ók á 117 kílómetra hraða á
klukkustund. Nokkur hálka var
á veginum og voru mennirnir
allir sektaðir á staðnum.
UMFERÐARÓHAPP Í HAFNAR-
FIRÐI Ölvaður ökumaður var
stöðvaður af lögreglunni í
Hafnarfirði í Moldahrauni milli
Hafnarfjarðar og Garðabæjar
aðfaranótt laugardags. Þá varð
minniháttar árekstur við Fjarð-
arhraun á Reykjanesbraut á
laugardagsmorguninn, en engin
slys urðu á fólki. Bílarnir er
nokkuð skemmdir.
KOFI ANNAN
Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna
heimsótti hamfarasvæðin á Srí Lanka í gær.
Hamfarasvæðin í Asíu:
Mat dreift
til allra
ASÍA, AP Enginn sem komst lífs af
eftir hamfarirnar í Asíu mun deyja
úr hungri að sögn Jim Morris, yfir-
manns matvælastofnunar Samein-
uðu þjóðanna. Hann segir að eftir
viku verði búið að dreifa mat til
nánast allra þeirra sem lifðu ham-
farirnar af.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, heimsótti Srí
Lanka í gær en þar sér matvæla-
stofnunin um 750 þúsund manns
fyrir mat. Í Indónesíu brauðfæðir
stofnunin 130 til 150 þúsund manns
en talið er að sú tala muni hækka í
um 400 þúsund á næstu dögum.
Staðfest er að meira en 150 þús-
und manns hafi látist í kjölfar jarð-
skjálftanna og flóðbylgjanna sem
þeir ollu. Sameinuðu þjóðirnar vara
enn við hættunni á því að farsóttir
breiðist út. ■
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Slys í Reykjavík:
Ekið á barn í
Breiðholti
LÖGREGLUFRÉTTIR Ekið var á barn á
gangbraut á gatnamótunum við
Stekkjarbakka og Þarabakka í
Breiðholti laust fyrir klukkan
tvö í gær. Barnið hlaut höfuð-
högg við ákeyrsluna og var flutt
á gjörgæsludeild Landspítala –
háskólasjúkrahúss í Fossvogi til
aðhlynningar. Betur fór en á
horfðist og komst barnið fljótt
til meðvitundar en það er enn á
sjúkrahúsi.
Þá urðu alls sextán umferðar-
óhöpp í Reykjavík frá því klukk-
an tíu á laugardagsmorguninn,
þar af sex umferðarslys. Engin
alvarleg meiðsl urðu á fólki en
flytja þurfti nokkra á slysa-
deild. Bílarnir eru allir mikið
skemmdir. Lögreglan í Reykja-
vík segir orsakir þessarar háu
slysatíðni vera að hluta til vegna
þess hve sól var lágt á lofti en
einnig sé vítavert hve ökumenn
keyra hratt og blindandi í að-
stæðum sem þessum. - þlg
Páskaferðir til Tyrklands, Krítar, Kanaríeyja, Túnis,
Egyptalands, Tælands, Bali, Kína, Kúbu og Suður-
Afríku á verði sem kemur á óvart!
Nánari upplýsingar á heimasíðu okkar, www.kuoni.is, og á
söluskrifstofunni.
Pantaðu glæsilegan ferðabækling!
Vertu með í Glóbus-klúbbnum!
RÖGNVALDUR INGÓLFSSON
„Það er ekki fyrr en á markaðnum, annað hvort við eigin vöru-
skoðun eða við ábendingar frá neytendum eða samkeppnisaðil-
um, sem við vitum af tilvist vöru sem ekki uppfyllir reglur.“
ANDRI ÞÓR GUÐMUNDSSON
„Við teljum illilega á okkur brotið. Vítamínbættar drykkjarvörur
hafa flætt hér yfir markaðinn ár eftir ár og eru óáreittar í verslun-
um. Við skilum ekki út af hverju eitt er ekki látið yfir alla ganga.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
LÁN Tæplega fjórir af hverjum tíu
stúdentum Háskóla Íslands nýttu
námslán Lánasjóðs íslenskra
námsmanna síðustu tvo vetur.
Þeim fjölgar um nær sjö prósentu-
stig frá árunum tveimur þar á und-
an samkvæmt tölum sjóðsins.
Erla Ósk Ásgeirsdóttir, fram-
kvæmdastjóri stúdentaráðs, segir
ráðið hafa gert könnun á fram-
færslukostnaði háskólanema á síð-
asta ári. Niðurstaðan þar hafi sýnt
að um 30 prósent þeirra njóti lána.
Hún segir flesta vinna með nám-
inu eða nær 70 prósent. Nemendur
í lengra námi, svo sem læknanámi,
lögfræði og hjúkrunarfræði séu
flestir lántakenda. Hópur nem-
enda nái að nýta sumartekjurnar
út veturinn.
Steingrímur Ari Arason, fram-
kvæmdastjóri LÍN, segir að sam-
kvæmt útreikningum sjóðsins sé
nær helmingur ráðstöfunarfé
þeirra sem séu á lánum
sjálfsaflafé.
„Gert er ráð fyrir að barnlaus
námsmaður í leiguhúsnæði sé að
eyða tæplega fjórtán hundruð þús-
undum á skólaárinu. Þar af eru
tekjurnar 860 þúsund og lánið þar
af leiðandi 670 þúsund,“ segir
Steingrímur. Álíka margir séu
fyrir ofan ráðstöfunartekjuvið-
miðið og fyrir neðan. - gag
HÁSKÓLI ÍSLANDS Háskólanemar hafa að
meðaltali 157 þúsund krónur fyrir skatta í
tekjur á mánuði. Helmingur stúdenta sem
svöruðu könnun stúdentaráðs var með að-
eins 95 þúsund krónur á mánuði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Skólaár: Fjöldi í skóla: Fjöldi á lánum: Hlutfall:
2003-2004 9.117 3.343 36,6%
2002-2003 8.225 3.023 36,7%
2001-2002 7.948 2.402 30,2%
2000-2001 7.051 2.075 29,4%
Heimildir: LÍN og HÍ
Um 70 prósent háskólanema í starfi með námi:
Nær fjórir af tíu háskóla-
nemum á lánum hjá LÍN
BÍLL SLÍTUR RAFMAGNSLÍNU
Rafmagnslína við bæinn Kolfreyju
í Fáskrúðsfirði slitnaði snemma á
föstudag þegar flutningabíll með of
háan farm ók hana niður á leið
sinni austur. Rafmagnslaust varð í
Fáskrúðsfirði og sveitunum í kring,
en viðgerð tók langt fram á kvöld
og fengu síðustu bæirnir ekki raf-
magn fyrr en undir miðnætti.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Svíar á hamfarasvæðunum:
Færri látnir
en talið var
SVÍÞJÓÐ Mun færri Svíar létust og
er saknað eftir hamfarirnar í
Asíu en sænsk yfirvöld héldu
fram.
Samkvæmt opinberum tölum
sem fréttastofan AP birtir er
staðfest að 52 Svíar hafi látist og
637 sé saknað. Sænsk yfirvöld
héldu því lengi fram að mun
fleiri hefðu látist og að allt að
þrjú þúsund væri saknað.
Sænskir fjölmiðlar gagnrýndu í
gær yfirvöld harkalega fyrir
óvönduð vinnubrögð.
Flestir þeirra erlendu ríkis-
borgara sem létust í hamförun-
um voru frá Þýskalandi eða 60
manns. Þá er um eitt þúsund
Þjóðverja saknað. ■
ÍSLENDINGAR Í NABLUS
Ögmundur Jónasson, Borgþór Kjærnested,
fulltrúi félagsins Ísland Palestína, og Eiríkur
Jónsson, formaður Kennarasambands Ís-
lands, skoða aðstæður í Nablus.
Ögmundur Jónasson er í Palestínu:
Loft er lævi blandið