Fréttablaðið - 09.01.2005, Side 8

Fréttablaðið - 09.01.2005, Side 8
„Alþingi hefur samþykkt að létta undir með heimilunum í landinu með því að lækka skatta og hækka um leið bætur til barnafólks. Með þeim breytingum er lögð sérstök áhersla á barnafjölskyldur. Það er ekki að ástæðulausu því ýmis teikn eru á lofti um að gömul og gróin fjölskyldugildi séu á undanhaldi með óæskilegum afleið- ingum. Samheldni fjölskyldna virðist minni. Við vitum að börn þarfnast um- hyggju foreldra sinna og tíma fyrir leik og samræðu. Nútímaþjóðfélagið hefur breytt lífsmynstrinu og í kjölfarið hafa samveru- stundir fjölskyldunnar tekið breytingum. Hverju er um að kenna? Langur vinnudag- ur margra er auðvitað nærtæk ástæða, en örugglega ekki eina skýringin. Er mögu- legt að ýmis konar afþreying tefji svo fyr- ir börnum og fullorðnum að heimanám, elskulegur agi og uppeldi líði fyrir? Er ástæða til að sjá fjöl- skyldugerð fyrri tíma í hillingum? Hefur stór- fjölskyldan gefið um of eftir? Látum við aðra um uppeldi barna okkar - dýrmætustu eignina í líf- inu? Það er bjargföst trú mín að samheldin og ást- rík fjölskylda sé kjarninn í hverju þjóðfélagi. Þann kjarna þarf að styrkja og treysta og við höfum komið til móts við breyttar kröfur með fæðingarorlofi fyrir báða foreldra, sem var mikið jafnréttis- mál. Að sama skapi höfum við lagt áherslu á að allir geti eignast sitt eigið húsnæði. En betur má ef duga skal. Ég hef því ákveðið að setja af stað vinnu við að meta stöðu ís- lensku fjölskyldunnar.“ ■ 8 EINS ÁRS BÖRN Á ÍSLANDI ERU 4.191 Samkvæmt mannfjöldatölum frá 1.12. 2004 SVONA ERUM VIÐ Sala á flugeldum fyrir áramót og þrettándann stóð í stað á höfuð- borgarsvæðinu í ár, en fram til þessa hefur orðið aukning á milli ára, að sögn Friðfinns Guðmunds- sonar hjá slysavarnarfélaginu Landsbjörg. Friðfinnur sagði að ekki lægju fyrir sölutölur enn sem komið væri, en tilfinningin segði mönnum að áframhaldandi söluaukning hefði orðið á landsbyggðinni á milli ára. „Það var spáð slæmu veðri í vik- unni fyrir áramótin og það hafði alveg greinilega einhver áhrif,“ sagði Friðfinnur. „Ég held að veð- urspáin hafi fyrst og fremst haft sín áhrif á söluna á höfuðborgar- svæðinu. Þetta leit ekki vel út á tímabili, en svo varð áramótaveðr- ið með því fallegra sem ég hef orðið vitni að.“ Samkvæmt reglugerð má selja flugelda frá 28. desember til og með 6. janúar. Utan þess tíma má einungis selja flugelda til þeirra sem hafa sérstakt leyfi. Friðfinnur sagði að það væru einkum fyrir- tæki sem sæktu um slík leyfi, en lítið væri um að einstaklingar gerðu það. Landsbjörg seldi einnig kyndla sem notaðir væru í blysgöngur og það væri svolítið sala í þeim yfir dimmari mánuð- ina. Aðspurður sagði Friðfinnur, að fólk gæti geymt flugelda á milli ára, ef þeir væru hafðir á góðum og ör- uggum stað. Samkvæmt reglugerð væri endingartími þeirra þrjú ár. ■ Veðurspá dró úr flugeldasölu EFTIRMÁL: FRIÐFINNUR GUÐMUNDSSON HJÁ LANDSBJÖRG: 9. janúar 2005 SUNNUDAGUR Styttri vinnutími mikilverðastur Áramótaávörp biskups og forsætisráðherra vöktu athygli en báðir fjölluðu um stöðu fjölskyldunnar í samfélaginu. Á meðan sumir fagna að þeir skuli vekja máls á stöðu fjöl- skyldunnar telja aðrir þá tvímenninga vera á villi- götum. Íslenskt samfélag hefur breyst frá þeim tíma er jafnaldrarnir Halldór Ásgrímsson og Karl Sigurbjörnsson voru ungir drengir. Þeir, eins og flest börn á þeim tíma, ólust upp í faðmi heimavinnandi húsmæðra enda fátítt að konur ynnu utan heimilanna. Veruleiki dagsins í dag er annar. Þeir vinna sem vettlingi geta valdið. Á þetta hafa margir bent í um- ræðum um orð biskupsins og for- sætisráðherrans síðustu daga. Ekki sé hægt að bera saman að- stæður barna nú og þá, einfald- lega vegna þess að íslenskt þjóð- félag er gjörbreytt frá því sem var fyrir hálfri öld. Því fer hins vegar fjarri að þeir tvímenningar séu fyrstir til að benda á að margt megi betur fara í samskiptum barna og foreldra. Í tíu ára gamalli fjölskyldustefnu Barna- heilla segir til dæmis: „Það er út- breidd skoðun að fjölskyldan sé hornreka í íslensku samfélagi. Þjóð- félagsbreytingar taka mið af þörf- um atvinnuvega og efnahagslífs og fjölskyldan, hornsteinn þjóðfélags- ins, hefur af veikum mætti mátt laga sig að þessum breytingum.“ Skuldinni er að hluta til skellt á stjórnvöld og þau sögð hafa tekið ákvarðanir án þess að huga að af- leiðingunum. Breytingar á skatta- kerfi, barnabótum og húsnæðislán- um eru nefndar til sögunnar og sagðar hafa skert afkomu fjöl- skyldna verulega. Segja má að Halldór Ásgrímsson hafi svarað þessari tíu ára gömlu gagnrýni þegar hann í ávarpi sínu nú sagði Alþingi hafa samþykkt að létta undir með heimilunum með skattalækkunum og hærri barna- bótum. „Það er ekki að ástæðulausu því ýmis teikn eru á lofti um að gömul og gróin fjölskyldugildi séu á und- anhaldi með óæskilegum afleiðing- um,“ bætti hann við. Athyglisvert er að Halldór gefur í skyn að aðgerðunum sé ætlað að bæta fyrir það sem miður hefur far- ið en þar með talar hann í mótsögn við fjármálaráðherra ríkisstjórnar sinnar. Geir Haarde sagði nefnilega í aðdraganda skattabreytinganna að þeim væri ekki síst ætlað að hvetja fólk til að vinna meira. Líf án yfir-, eftir- og aukavinnu Það sést glögglega á leikskólum höfuðborgarsvæðisins hvað for- eldrar vinna mikið. Börnin dvelja að öllu jöfnu lengur á leikskólun- um en áður auk þess sem leik- skólabörnum hefur fjölgað frá því sem var. Leikskólakennurum, sem rætt var við, ber saman um að hraðinn og álagið í samfélaginu hafi aukist stórum og merktu það vel í leikskólunum. Allir létu þeir þó vel af foreldrunum og sögðu þá almennt rækta hlutverk sitt eins vel og þeir gætu. Hins vegar kost- aði tíma og streð að koma sér upp húsnæði og öðru því sem nútíma- lífinu fylgir þannig að tíminn með börnunum væri ekki jafn langur og best væri. Mismunandi skoðan- ir eru uppi um hvort heppilegt sé að börn séu allt að níu klukku- stundir á leikskólum en flestum bar þó saman um að börnunum væri betur borgið þar heldur að hætta fyrr á daginn og lenda hugsanlega á þvælingi milli skyldmenna eftir það. Þess má raunar geta að til er fólk sem telur þjónustu leikskólanna alls ekki næga og vill hafa þá opna fram á kvöld. Leikskólakennararnir sem rætt var við eru ekki sammála biskupi um að foreldrar hafi falið öðrum uppeldi barna sinna. Þeir sögðust líta á sig sem viðbót – ennþá að minnsta kosti. Hins vegar varð þeim tíðrætt um agaleysið sem almennt ríkir í sam- félaginu og sögðu það bæði ein- kenna börn og fullorðna. Miklar breytingar hefðu orðið í þeim efn- um á um tuttugu árum og mikilvægt að eitthvað yrði gert til að snúa þró- uninni við. Aragrúi skýrslna hefur verið unninn um fjölskylduna og stöðu hennar á umliðnum árum og til nokkurra þeirra hefur verið vitnað í umræðum um málið síðustu daga. Víst er að þeir, sem forsætisráð- herra felur að meta stöðu íslensku fjölskyldunnar, hafa úr talsverðu að moða og spennandi að sjá hvaða nið- urstaða fæst og til hvaða aðgerða gripið verður í framhaldinu. Al- mannnarómur segir hins vegar að mikilverðast sé að stytta vinnudag- inn og gera fólki bært að lifa góðu lífi án yfir-, eftir- og aukavinnu. ■ Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • 562 8501 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is BIC Atlantis penni Verð 90 kr/stk PILOT SUPER GRIP Verð 75 kt/stk Ljósritunarpappír 397 kr/pakkningin Teygjumöppur af mörgum gerðum og þykktum Geisladiskar: 100 stk. hólkur 5.530 kr 50 stk. hólkur 2.963 kr 10 stk í þunnum hulstrum 995 kr/pakkning Gatapokar 100 stk í pakka 486 kr/pk STABILO BOSS Verð 78 kr/stk TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 339 KR / STK. Tilboðið gildir til 31. janúar 2005 FRIÐFINNUR GUÐMUNDSSON GLEÐIN SKÍN ÚR HVERJU ANDLITI Borgarstjórinn í Reykjavík ásamt hópi skólabarna í Melaskóla. Myndin var tekin þegar börnin afhentu borgarstjóra jólakort á aðventunni.BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON BLAÐAMAÐUR BAKSVIÐS FJÖLSKYLDAN OG ÁRAMÓTAÁVÖRPIN „Nú á dögum erum við mitt í stórfeng- legri tilraun sem á sér enga hliðstæðu í sögu mannkyns. Það er heimur þar sem skuldbindingar hjúskapar og foreldra- hlutverksins virðast álitnar valkvæðar, og þar sem æ fleiri ábyrgðarsvið foreldra gagn- vart börnum sínum eru fengin öðrum – „átsorsað“ – eins og það heitir á viðskiptamálinu! Uppeldi og agi, menntun og fræðsla og umhyggja er falin dagmæðrum, leikskólum og skólum og sérfræðingum. Ég ber mikla virðingu fyrir þeim mikilvægu stofnunum og því góða fólki sem mannar þær. En án atbeina og þátttöku for- eldra dugar jafnvel hinn besti skóli og frábærasti kennari skammt. Æ fleiri foreldrar finna sig vanmáttuga í foreldrahlutverkinu og finnst sem þeir ráði ekki við verkefnið. Sjónvarpið og vídeóið og tölvan verða sífellt mikilvægari gæslu- og upp- eldisaðilar á heimilum, sam- töl milli foreldra og barna verða æ fátíðari. Aldrei nokkru sinni hefur foreldra- hlutverkið verið í meira upp- námi en einmitt nú, og aldrei hefur uppeldishlutverk for- eldra verið minna metið en nú. Aldrei fyrr hafa eins margir foreldrar yfirgefið börn sín og nú, á mesta vel- megunarskeiði Íslandssög- unnar.“ ■ KARL SIGUR- BJÖRNSSON BISKUP Úr áramótaávarpi biskups: Ábyrgðarsviðum foreldra er „átsorsað“ HALLDÓR ÁSGRÍMSSON FORSÆTIS- RÁÐHERRA Úr áramótaávarpi forsætisráðherra: Fjölskyldugildin eru á undanhaldi Börn og auglýsingar: Tölum sam- an og finn- um mörkin Börn og auglýsingar hafa verið til umræðu, nú síðast vegna einnar slíkrar, sem birtist í fjölmiðl- um, þar sem barn var vafið inn í ljósaseríu sem kveikt var á. Sú auglýsing var dregin til baka að tilmæl- um Samkeppn- isstofnunar sem taldi hana stang- ast á við ákvæði í samkeppnislög- um. En þetta er vissulega ekki eina auglýsingin sem gæti komið ímynd- unaraflinu á flug hjá börnum og unglingum. Bent hefur verið á ýms- ar aðrar, þar sem höfð eru frammi glæfraleg atriði af margvíslegum toga. „Það er í mannlegu eðli að ganga of langt,“ sagði Elísabet Jökulsdótt- ir rithöfundur. „Við þurfum alltaf að vera að passa okkur, hvort sem full- orðnir, börn eða unglingar eiga í hlut. Þess vegna þurfum við alltaf að vera að tala saman og finna mörkin.“ Elísabet rifjaði upp þegar hún var með ung ömmubörn og barna- auglýsingum var skotið inn á milli teiknimynda sem þau voru að horfa á. „Þetta voru eins og dvergaaug- lýsingar og maður hugleiddi hvort þær væru fyrir börn eða fullorðna. Ég held að krakkar líti kannski á þetta sem eina teiknimyndina í við- bót. Það var eins og verið væri að gera börn að litlum, fullorðnum manneskjum. Það fer í taugarnar á mér. En hin hliðin á málinu er sú, að það getur verið ákveðin virðing fyr- ir börnum að láta þau vita að til- teknir hlutir séu til fyrir þau.“ ■ GÓÐIR VINIR Ljóns- og tígrisdýraungar búa saman í sátt og samlyndi í dýragarði í Kína. ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.