Fréttablaðið - 09.01.2005, Side 14
Á föstudagskvöldið frumsýndi
Leikfélag Reykjavíkur Híbýli vind-
anna eftir Böðvar Guðmundsson.
Leikritið er gert eftir vesturfara-
sögu Böðvars, „Híbýli vindanna“.
Böðvar á líka afmæli í dag. Hann er
66 ára. Af þessu hringdum við í
skáldið þar sem hann býr í Dan-
mörku. Við spurðum hann fyrst
hvernig hugmyndin að Híbýlum
vindanna hefði kviknað.
„Hún kviknaði nú eiginlega
hægt og hægt. Ég kenndi einu
sinni á sumarnámskeiði í Victoria
í Kanada. Þar er legat, myndað af
gjöf Richards Beck til þess að
styrkja sambandið við Ísland.
Vinkona mín Kirsten Wolf, pró-
fessor við Manitoba-háskóla, bauð
mér að koma til sín og ég gerði
það. Þar hitti ég gamla Vestur-Ís-
lendinga, fólk af 3. og 4. kynslóð
en sumt talaði ennþá íslensku og
það gamla íslensku, sem ekki var
lengur til á Íslandi. Nú svo kom
það líka til að langafi minn fór á
sínum tíma til Ameríku og frá
honum eru til bréf til afa míns og
svo frá afkomendum hans til
pabba. Ég fór að lesa þessi bréf og
þá má segja að hugmyndin hafi
kviknað. Það er reyndar sérkenni-
leg reynsla að lesa bréf til ann-
arra, dálítið eins og að liggja á
hleri. En það er skemmtilegt og
ég stend í mikilli þakkarskuld við
þessa bréfritara.“
Böðvar komst ekki til þess að
vera viðstaddur frumsýninguna en
kemur í næsta mánuði. Við spurð-
um hann hvað hann hefði fyrir
stafni.
„Ja, ég keppist nú við að ná
heilsu. Safna mér saman. En svo er
ég að sýsla við þetta sama. Annars
er helsta áhyggja mín þessa dagana
að fá útgefanda. Íslenskir útgef-
endur segja að ég skrifi ekki um
rétt fólk. Svo er vitaskuld ekkert
um morð eða samfarir í mínum
bókum. Útgefendur trúa á morð og
samfarir.“
Umsjónarmaður tímamóta
minnist fyrstu ljóðabókar Böðvars,
„Burtreið Alexanders“ með mikilli
aðdáun og telur að hún hafi ekki
verið metin að verðleikum. Ertu að
yrkja eitthvað Böðvar?
„Æi, nei ég get ekki sagt það.
Þeir tóku nú eitthvað af æðum úr
löppunum á mér og notuðu annars
staðar. Ætli ein þeirra hafi ekki ver-
ið skáldæðin.“
Lauk svo okkar tali. Lesendum
til huggunar skal þess getið að æð-
arnar úr fótum Böðvars voru notað-
ar til viðgerða á hjartaæðum.
Kannske ekkert verra að hafa
skáldæðina þar! ■
14 9. janúar 2005 SUNNUDAGUR
NELSON FLOTAFORINGI (1758-1805)
var borinn til grafar þennan dag.
BÖÐVAR GUÐMUNDSSON: ER 66 ÁRA Í DAG
„England væntir þess að allir
menn geri skyldu sína.“
Þetta eru orð hans við upphaf orrustunnar við Trafalgar. þar
gjörsigruðu Englendingar flota Spánverja og Frakka og komu þar
með í veg fyrir innrás Napóleons í England. Foringinn gerði skyldu
sína í orrustunni, kúla leyniskyttu felldi hann. Minningarsúla hans
stendur á Trafalgar-torgi.
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Edda Ingólfsdóttir lést mánudaginn 27.
desember. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey.
Sigríður Sigurðardóttir frá Görðum,
Ægisíðu 52, Reykjavík, lést fimmtudag-
inn 6. janúar.
Ástvaldur Stefán Stefánsson málara-
meistari, Lautasmára 1, Kópavogi, lést
fimmtudaginn 6. janúar.
Jón Sigurðsson, fyrrv. bifreiðaeftirlits-
maður, Austurvegi 31, lést fimmtudag-
inn 6. janúar.
Óli Jóhannes Ragnarsson, Gyðufelli 12,
Reykjavík, lést fimmtudaginn 6. janúar.
Þennan dag árið 1972 braust út
eldur í hinu fræga skipi „Queen
Elizabeth“. Elísabet drottning hóf
siglingar 1946, sem farþegaskip, en
sagan var í raun lengri. Seint á
fjórða áratugnum hófst vinna við
þetta skip fyrir Cunard-skipafélagið í
skipasmíðastöð í Skotlandi. Skipið
átti að verða glæsilegra en önnur
sem sigldu um heimshöfin. En þeg-
ar heimsstyrjöldin braust út í sept-
ember 1939 var skipið tekið í brúk í
öðru skyni en að flytja prúðbúið fyr-
irfólk yfir Atlantshafið. Ekki var lögð
áhersla á að ljúka við innréttingarn-
ar því skipsins var þörf til liðsflutn-
inga. Allt stríðið gegndi þessi
drottning úthafsins þessu hlutverki
en þegar stríðinu lauk var hafist
handa við að ljúka því verki sem
hafið var fyrir stríð. 1946 hljóp hún
á ný af stokkunum í Southampton,
nú glæsilega innréttuð í „art deco“-
stíl. Skipið var í siglingum fyrir Cun-
ard-félagið til 1968 og þótt farþega-
flutningum á sjó færi hrakandi með
tilkomu farþegaflugsins skorti ekk-
ert þægindi og aðbúnað fyrir þá
sem vildu eyða nokkrum dögum í
að komast milli heimsálfa. 1968 var
skipið selt hæstbjóðanda. Kaupand-
inn, skipakóngur frá Taívan, ætlaði
að breyta skipinu í siglandi háskóla
og vinna var á lokastigi þegar eldur-
inn batt enda á fyrirætlanirnar. Hin
fræga drottning úthafanna sökk.
HMS Queen Elizabeth brann þennan dag 1972
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1799 Básendaflóðið. Mesta sjáv-
arflóð sem sögur fara af við
Ísland. Kaupstaðinn
Básenda tók af með öllu.
1924 Skáldkonan Virginia Woolf
festir kaup á húsi í Blooms-
bury í Englandi.
1935 Lög um aldurshámark opin-
berra starfsmanna staðfest.
1945 Bandarískur her ræðst inn í
Luzon á Filippseyjum.
1958 Japanskir bílar, Toyota og
Datsun (Nissan), sýndir í
fyrsta sinn í Bandaríkjunum.
1964 Tunnuverksmiðjan á Siglu-
firði brennur til kaldra kola.
1982 Íslenska óperan vígir hús sitt
við Ingólfsstræti með frum-
sýningu á Sígaunabaróninum.
1990 Gríðarlegt sjávarflóð á Suð-
urlandi, hið mesta á tuttug-
ustu öld. Sjóvarnargarðar
skemmast á Stokkseyri. Fisk-
ur kastast á land í Vest-
mannaeyjum í hundraðatali.
Queen Elizabeth brennur
Eiríkur Bjarnason
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð mánudaginn 3. janúar.
Jarðsett verður miðvikudaginn 12. janúar kl. 13.00 frá Kópavogs-
kirkju.
Sveinþór Eiríksson, Jóhann Ásberg Eiríksson, Hrönn Pétursdóttir,
Snorri Eiríksson, Kristín Ólafsdóttir, Jón Eiríkur Eiríksson, Anna Lísa
Geirsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn.
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is
MOSAIK
af legsteinum
gegn staðgreiðslu
í janúar og febrúar
Sendum myndalista
15% afsláttur Óli Jóhannes Ragnarsson
Gyðufelli 12, Reykjavík, áður Skálum á Langanesi
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
andaðist á gjörgæsludeild Landspítala - háskólasjúkrahúss,
Fossvogi, 6. janúar 2005.
Reynir Ö. Ólason, Jóhanna Stígsdóttir, Þórunn R. Óladóttir, Ernst Bernd-
sen, Anna G. Óladóttir, Gústaf A. Ólafsson, Hörður H. Ólason, Hafdís Y.
Ólason, Laufey Ólason, Sigurjón Gunnarsson, Hólmfríður Óladóttir,
Randver Elísson, Helgi S. Ólason, Guðrún R. Valgeirsdóttir, Sölvi S. Óla-
son, Margrét Pálsdóttir, Linda B. Óladóttir, Bryan Baker og fjölskyldur
þeirra.
Jarðarförin auglýst síðar.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 11. janúar
kl. 14.00.
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Sigtryggur Maríusson, Drífa Maríus-
dóttir, Erlingur Jónsson, Sigurjón Maríusson, Alba Lucia Alvarez,
Jóhann Maríusson, Þyrí Magnúsdóttir, Jón Þór Maríusson, Alda Haf-
steinsdóttir, Jón Þór Harðarson, barnabörn og barnabarnabörn.
Maríus Sigurjónsson
Háteig 2b, Keflavík,
Stefán Þórðarson
Reykjahlíð 10,
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
sem lést 28. desember, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 11. janúar kl. 15.
Ólöf Stefánsdóttir, Hannes Þór Ragnarsson, Þóra María Stefáns-
dóttir, Kristinn Stefánsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Lovísa Júlíusdóttir
frá Hítarnesi,
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
lést á Landspítala í Fossvogi miðvikudaginn 29. desember.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 10. janúar
kl. 13.00.
Guðrún Magnúsdóttir, Valþór Sigurðsson, Kristín Magnúsdóttir,
Magnús Valþórsson, Sigríður Svanborgardóttir, Sigrún Valþórsdóttir,
Valdimar Þorsteinsson, Eyrún Valþórsdóttir, Gestur Ákason, Margrét
Rán, Bjarni Valur og Valþór Viggó.
AFMÆLI
Baltasar Samper list-
málari er 67 ára í dag.
Ólafur Proppé ,
rektor KHÍ, er 63 ára.
Björn Marteinsson, arkitekt og verk-
fræðingur, er 55 ára.
Böðvar Guðmundsson rithöfundur.
Ætli þeir hafi ekki skorið
úr mér skáldæðina