Fréttablaðið - 09.01.2005, Side 20
[
Byrjaði skrautfiskeldi í geymslunni heima
Ægir Ólafsson og Gísli Páll Davíðsson hjá fyrirtækinu Dropi í hafið þar sem skrautfiskar eru ræktaðir.
Fyrritækið Dropi í hafi sérhæfir
sig í fiskeldi á skrautfiskum og
selur til gæludýraverslana.
„Sem pjakkur hafði ég mikinn áhuga á
þessu en svo dó það bara með barn-
æskunni. Áhuginn kviknaði aftur á
fullorðinsárum og þá fór ég með dell-
una lengra og endaði bara þarna. Ekki
alveg það sem ég ætlaði að gera,“ seg-
ir Ægir Ólafsson sem er annar eigandi
Dropa.
„Verkefnið hófst árið 2002 og hef
ég verið að byggja þetta upp og þróa
síðan,“ segir Ægir sem byrjaði á eld-
inu í geymslunni heima.
„Fljótlega var öll geymslan farin í
þetta þannig að ég fór í annað húsnæði
þar sem ég ætlaði mér að vera í nokk-
ur ár,“ segir Ægir, en það húsnæði
sprengdi fyrirtækið fljótt utan af sér
og var að lokum flutt á núverandi stað
sem er 170 fermetra húsnæði.
„Ég hef ekki tölu á hversu mörg
búr ég er með en það eru um 60 tonn
af vatni þarna inni. Eins og stendur er
ég að rækta 20 til 30 tegundir í rækt-
un og allt ferskvatnsfiska,“ segir
Ægir en eitt af því sem til stendur í
framtíðinni er að rækta einnig sjávar-
skrautfiska.
Hann segir mikla sölu vera í
skrautfiskum og hann stefni á útflutn-
ing þar sem honum hafi verið sýndur
áhugi erlendis frá.
„Það sem við höfum hérna umfram
aðrar þjóðir er gott vatn og lágt orku-
verð, gallinn er kannski helst sá að við
erum á eyju og dýrt að koma vörunni
frá sér,“ segir Ægir.
kristineva@frettabladid.is
]
Álftanes
www.alftanes.is
Álftanesskóli
http://www.alftanesskoli.is
Óskum að ráða frá
1. febrúar 2005:
Laghentan og lipran starfsmann í sérverkefni
(gangavarsla, umsjón búnaðar, eftirlit með skóla-
húsi og lóð, umsjón með ræstingu og aðstoð á
skrifstofu skólans) 100% starf.
Skólaliða í Frístund (lengd viðvera nemenda),
62,5% starf (vinnutími frá 12:00 - 17:00).
Upplýsingar veita Sveinbjörn Markús Njálsson skóla-
stjóri, í símum 565-3662 og 8215007,
netfang: sveinbjorn.njalsson@alftanesskoli.is
og Ragnhildur Konráðsdóttir deildarstjóri, í síma
565-3662, netfang:
ragnhildur.konradsdottir@alftanesskoli.is
Sjá einnig vef Álftanesskóla og sveitarfélagsins
Álftaness.
Umsóknir með upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist Álftanesskóla.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar
sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Skólastjóri.
óskar að ráða eftirtalda starfsmenn vegna
fyrirhugaðra framkvæmda við Reykjanesvirkjun:
• Rafsuðumenn
• Stálsmiði
• Tækjamenn
• Vélvirkja
• Verkamenn
Skriflegar umsóknir með ferilskýrslu þar sem fagréttindi
umsækjanda koma fram sendist fyrir 20. janúar 2005 til:
Framtak, véla- og skipaþjónusta
Drangahraun 1-1b
220 Hafnarfjörður
Merkt: Reykjanesvirkjun – Umsókn um atvinnu
Eða sendist á: info@framtak.is
Öllum umsóknum
og fyrirspurnum
verður svarað BYGGINGAFÉLAG GYLFA OG GUNNARS EHF.
BORGARTÚNI 31 • Sími 562 2991 • bygg.is
Byggingafélag Gylfa og Gunnars ehf. óskar eftir vönum manni
til a› sjá um innkaupamál fyrirtækisins.
Vi› leitum a› metna›arfullum manni me› flekkingu á
byggingamarka›inum sem er í stakk búinn til a› móta
innkaupastefnu fyrirtækisins.
Umsækjendur flurfa a› geta hafi› störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 16. janúar nk.
Umsóknum skal skila á skrifstofu Bygg ehf,
me› faxi, 562 2175, e›a me› tölvupósti á
gunnar@bygg.is
BÆJARHRAUNI 24 - 220 HAFNARFIRÐI
Prentari óskast
Okkur hjá Vörumerkingu vantar
að ráða góðan prentara.
Við erum framsækið fyrirtæki í
prentiðnaði og leitum að reglusömum
fagmanni sem er tilbúinn að slást
í hópinn með okkur.
Umsókninni skulu fylgja meðmæli og
þar tilgreind menntun og starfsreynsla.
Umsóknir þurfa að berast fyrir
15. janúar nk.
Farið verður með þær sem trúnaðamál
og öllum umsóknum svarað bréflega.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Í húsnæðinu eru um 60 tonn af vatni.
Þeir sem „blogga“ um
vinnuna gætu misst hana.
Á þessu ári komst orðið Blog
sem er stytting á ensku orð-
unum Web Log í Merriam-
Webster orðabókina. Orðið
fékk sinn sess í Oxford orða-
bókinni í fyrra en það stend-
ur fyrir dagbók á netinu.
Meira en fimm milljón
„blogg-síðna“ eru á netinu og
er fjöldinn sífellt að aukast
eins og kemur fram á frétta-
vef BBC. Þeim tilvikum
fjölgar því miður líka að fólk
lendir í vandræðum vegna
„bloggs“ um vinnuna. Og því
hefur nýtt orðasamband ver-
ið búið til. Sögnin „Dooced“
þýðir að einhver hafi misst
vinnuna út af einhverju sem
hann eða hún skrifaði á
„bloggið“ sitt.
Breski lögfræðingurinn
Nick Lockett heldur því fram
að margir munu missa vinn-
una sökum „bloggsins“ á
þessu ári því vinnuveitendur
eru að gera sér grein fyrir
þessari nýju tækni. Ummæli
á „blogginu“ er erfitt að túlka
segir hann og sum ummæli
gætu beinlínis brotið í bága
við starfssamning og
starfsviðmiðanir. ■
Bloggið bakar vandræði
YFIRVINNA Þótt 40 stunda vinnuvika sé ákjósanleg koma það fyrir að sá tími dugi ekki til.
Þegar slíkt álag er getur verið betra að mæta fyrr á morgnana þegar hugurinn er vel hvíldur og
ferskur í stað þess að vinna fram á kvöld. Ef þú vinnur mikla yfirvinnu skaltu gæta þess að hvíl-
ast vel þegar þú ert ekki í vinnunni.