Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.01.2005, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 09.01.2005, Qupperneq 48
28 9. janúar 2005 SUNNUDAGUR ■ PONDUS ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Frode Överli ÞÝSKUNÁMSKEIÐ GOETHE ZENTRUM www.goethe.is 551 6061 Kennt þri., fim. og lau. Reiðskólinn Þyrill Næstu námskeið byrja 11. janúar Fyrir börn kl. 16.30 Fullorðnir byrjendur kl. 18.30 Fullorðnir framhald kl. 17.30 REIÐSKÓLINN ÞYRILL Uppl. og skráning í síma 896 1248 Harpa Helgadóttir sjúkraþjálfari BSc. Sérgrein: Manual Therapy Bakleikfimi með mjúkri sambasveiflu Kennslan hefst 10. janúar og fer fram í glæsilegu húsnæði Hreyfigreiningar að Höfðabakka 9 kl. 16.10, 17.10 og 18.10 virka daga Kerfisbundin uppbygging æfinga sem bæta líðan í hálsi, herðum og baki Skráning fer fram í síma 695-1987 Vefsíða: www.folk.is/breidubokin/ Nú eru jólin loksins búin enda er ég fyrir löngu, eins og aðrir landsmenn, kominn með nóg. Jólalögin hljómuðu í eina tvo mánuði og eyðslan fór að venju langt fram úr öllum áætlunum. Síðustu jól voru ein þau stystu sem ég man eftir. Að- fangadagur á föstudegi svo margir þurftu að mæta í vinnu á mánudegi. Nánast eins og venjulegt helgarfrí bara með helmingi meira stressi. Um áramót strengdi ég þess heit að verða skipulagðari. Líf mitt hefur verið illa skipulagt síðustu ár og ég hef engu komið í verk. Fresta því sem ég ætla að gera fram á næsta dag, sem ég fresta síðan aftur þar til ég gleymi því. Nú mun líf mitt hins vegar taka stakkaskiptum því ég hef fengið mér dagbók. Dagbókin á eftir að breyta lífi mínu svo um munar því nú get ég skipulagt hverja viku fyrir sig. Og það sem meira er þá býður dagbókin upp á að skipuleggja hvern dag fyrir sig, klukkutíma fyrir klukkutíma – nema á sunnu- dögum. Þá ætla ég að taka frí. Það kann kannski að hljóma undarlega en það fyrsta sem ég skrifaði í dagbókina var að halda jól strax á nýju ári. Ástæðan er einföld. Eftir hina gríðarlegu eyðslu fyrir síðustu hátíð skelltu verslunarmenn útsölum á okkur strax á þriðja degi jóla. Sjaldan hefur nokkur útsala sviðið jafn mikið. Ég hef ákveðið, þótt ég sé gjör- sneyddur allri trú, að skrá mig í rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna. Þar hefjast jólin í byrjun janúar. Af ótta við að riðla þessu nýja skipulagi þori ég ekki annað en að hefja trú mína strax á nýju ári. Jólin kunna að vísu að verða talsvert dýrari en und- anfarin ár þar sem það kostar sitt að fagna þeim með tveggja vikna milli- bili. En þar sem ég er orðinn skyn- samur og skipulagður maður horfi ég til langs tíma. Á næstu árum mun ég fagna rússneskum jólum í byrjun janúar þegar útsölurnar standa sem hæst. Þannig skýt ég siðlausum verslunarmönnum ref fyrir rass og held jólin með 70% afslætti. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA KRISTJÁN HJÁLMARSSON ÆTLAR AÐ TAKA UPP NÝJA TRÚ Jólin í janúar M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Tja... Það væri kannski ekki svo vitlaust að teikna barbarann með nef! ÉG VEIT ÞAÐ!

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.