Fréttablaðið - 18.01.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 18.01.2005, Blaðsíða 2
2 18. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR Fannfergi á Bíldudal og nágrenni: Komst ekki í fjárhús vegna snjóflóðs SNJÓÞYNGSLI Björgunarsveitin Kópur á Bíldudal þurfti að að- stoða fjáreiganda inni í Auða- hringsdal við að gefa sauðfé sínu í gær, þar sem snjóflóð hafði fallið á veginn heim að bænum, svo þangað var ófært. Auðahringsdal- ur er næsti dalur fyrir austan Bíldudal. „Bóndinn er með fjárhúsin þarna en býr sjálfur á Bíldudal,“ sagði Jón Hákon Ágústsson í björgunarsveitinni Kópi í gær. „Það er brött hlíð þarna inneftir og nánast daglegt brauð að þarna fari flóð yfir veginn. Það hafði greinilega gerst í morgun. Við ætluðum á bílnum alla leið með fjáreigandann, en urðum að sækja snjósleða til að koma honum á áfangastað. Það tókst og hann gat gefið kindunum sem eru 50 tals- ins.“ Jón Hákon sagði, að mikið hefði sett niður af snjó á Bíldudal í fyrrinótt. „Það var allt á kafi hér þegar fólk vaknaði í morgun,“ sagði hann. - jss GJALDÞROT Sigurður Gizurarson, skiptastjóri í gjaldþrotamáli Frjálsrar fjölmiðlunar, ætlar sjálfur að leita upplýsinga í Lúx- emborg um dótturfyrirtæki Frjálsrar fjölmiðlunar og hugsan- legar eigur þeirra þar. Embætti ríkislögreglustjóra hefur ákveðið að rannsaka ekki fyrirtækið Time Invest en skiptastjóri hafði óskað eftir aðstoð embættisins við að nálgast gögn um fjárreiður fé- lagsins þar sem það var á lista yfir dótturfélög Frjálsrar fjöl- miðlunar. Ef félagið ætti fjármuni í erlendum bönkum ætti það með réttu að falla í hlut kröfuhafa í þrotabú Frjálsrar fjölmiðlunar. Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislög- reglustjóra, hefur sagt að skipta- stjóri gæti styrkt grunsemdir sín- ar með frekari vinnu. Sigurður Gizurarson mun á næstunni leita upplýsinga í hlutafélagaskrá í Lúxemborg. Í hlutafélagaskrá hér á landi koma ekki fram upplýsing- ar um eigendur félagsins. – ghg Ótti um snjóflóð Víða á Vestfjörðum var ótti í gærkvöld um að snjóflóð kynnu að falla. 53 þurftu að yfirgefa heimili sín í Bolungarvík og Ísafjarðarbæ. Magni Guðmundsson og kona hans fluttu frá Seljalandi fyrir fáum dögum. Hraun í Hnífsdal: Enn að heiman SNJÓFLÓÐAHÆTTA Hjálmar Sigurðs- son ábúandi á Hrauni í Hnífsdal og fjölskylda hans hafa ekki geta dvalið heima hjá sér síðan snjóflóð féll á bæ þeirra í síð- ustu viku. Stór hluti af bænum eyðilagðist í flóðinu, en beðið er eftir efni sem pantað hefur ver- ið til viðgerðar. Fjölskylda hans dvelur nú í Hnífsdal og bíður þess að geta hafið viðgerðir á húsi sínu, en Hjálmar hefur þó farið á bæinn til að sinna skepn- unum og þrífa eftir skemmdirn- ar sem voru mestar í eldhúsinu þar sem flóðið kom inn um gluggann. ■ FRIÐRIK SOPHUSSON Forstjóri Landsvirkjunar ræddi í gær við for- svarsmenn orkufyrirtækja á Norðurlandi vegna hugsanlegrar stóriðju í fjórðungnum. Landsvirkjun: Orkumál rædd ORKUMÁL Friðrik Sophusson, for- stjóri Landsvirkjunar, fór til fund- ar við forsvarsmenn orkufyrir- tækja á Norðurlandi í gær. Meðal þeirra eru forsvarsmenn Norður- orku og fulltrúar Akureyrarbæjar, Húsavíkur og Lauga. Friðrik segir rætt hafi verið um ástand og horfur í orkumálum. „Við fórum yfir stöðuna með tilliti til hugsanlegrar nýtingar í framtíð- inni.“ Nýting raforku mun aukast verulega á Norðurlandi ef stóriðja verður byggð í fjórðungnum. ■ SPURNING DAGSINS Sigurður, varstu orðinn flugleiður? Alls ekki. Sigurður Helgason lætur af störfum sem forstjóri Flugleiða 31. maí, eftir nær 30 ára starf hjá fyrir- tækinu, þar af 20 ár sem forstjóri. Kjalar vogi • 104 Reykjav ík • www.jonar. is Sama s ímanúmer 535 8000 Jónar Transport fluttir í Kjalarvoginn! ar gu s 05 -0 01 5 FANNFERGI Elínborg Benediktsdóttir, íbúi á Bíldudal, í snjótröðinni í gærkvöld. Mikið fannfergi er á Bíldudal. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /J Ó N H ÁK O N SNJÓFLÓÐAHÆTTA 53 íbúar í Bolung- arvík og Ísafjarðarbæ gátu ekki sofið í rúmum sínum í nótt vegna snjóflóðahættu. Alls voru rýmd 28 hús, bæði íbúðarhús og vinnu- staðir. Þá voru vegir víða lokaðir eða takmarkanir settar á umferð vegna snjóflóðahættu úr brött- um hlíðum. Hættumat verður endurmetið nú strax í morg- unsárið. Sjö til níu íbúar við Árvelli í Hnífsdal þar sem snjóflóð féll í byrjun janúar rýmdu hús sín í gær. Halldór Halldórsson, bæj- arstjóri á Ísafirði, segir ekki verða búið við Árvelli í framtíð- inni þar sem stendur til að kaupa upp húsin. Eins segir hann mörg hús á hættusvæðum þegar hafa verið keypt upp og því hafi færri þurft að yfirgefa heimili sín en ella. Magni Guðmundsson er ný- fluttur af Seljalandi vegna snjó- flóðahættu og býr nú ásamt konu sinni á Skógarbraut sem er tvö hundruð metra frá gamla heimil- inu. Í gærdag þurfti Magni að rýma vinnustað sinn, Netagerð Vestfjarða, ásamt vinnufélögun- um vegna snjóflóðahættu. Húsið Seljaland var keypt af Magna og konunni hans síðasta haust af Ísafjarðarbæ og ofan- flóðanefnd. Síðasta föstudag fluttu þau alveg yfir á Skógar- braut en þegar þurfti að rýma á Ísafirði í byrjun janúar gistu þau nokkrar nætur í nýja húsinu. Þau ætla að leigja Seljaland yfir sum- artímann en leyfilegt er að vera í húsinu sex mánuði á ári. Magni segir ástæðuna vera að honum hafi liðið vel á Seljalandi sem er gamalt sveitasetur. Hann hafi aldrei haft áhyggjur af snjóflóð- um þó að flóð hafi fallið á húsið árið 1947. Jafnframt bendir hann á þarna hafi verið búið í átta hundruð ár. „Aðrir hafa haft meiri áhyggjur af okkur þarna en við sjálf,“ segir Magni. Hon- um finnst undarlegt að ekki hafi verið hægt að verja húsið sem sé mitt á milli garðsins og þess sem enn er kallað hættusvæði. „Kostnaður við að verja húsið átti að vera á milli tuttugu til þrjátíu milljónir en það þótti of mikið. Aftur á móti fór kostnaður við varnargarðinn, sem ég bý núna undir, um 130 milljónir fram úr áætlun,“ segir Magni. hrs@frettabladid.is SIGURÐUR GIZURARSON Skiptastjóri í gjaldþrotamáli Frjálsrar fjölmiðlunar ætlar að hefja rannsókn á því hvort fyrir- tækið eigi dótturfélög í Lúxemborg. Snjóflóðavaktin: Hættan metin úr fjarska SNJÓFLÓÐ Snjóflóðavakt hefur verið á Veðurstof- unni í Reykjavík síðan snemma í gærmorgun, og helst er fylgst með Vestfjörðum þar sem ekki hef- ur verið svona mikill snjór í fjöllum síðan 1995. „Þetta snýst mest um samskipti okkar við þá sem eru fyrir vestan og þá sem eru á staðnum að meta snjóalögin, en við erum í stanslausum samskipt- um,“ segir Hörður Þór Sigurðsson, snjóflóðasér- fræðingur á Veðurstofunni, spurður um hvernig hægt sé að meta snjóflóðahættuna úr fjarska. „Auk þess skoðum við veðurspána vel og metum vindátt- ina og hversu mikið snjóar og þá höfum við ákveðna staði sem við vitum að eru í mestri hættu.“ Hörður segir menn vera á hverjum stað sem fara í fjöllin og fylgjast með hvernig snjórinn þéttist og geri það daglega þegar ástæða þykir til. „Það eru meðal annars grafnar gryfjur ofan í snjó- inn og ýmsar leiðir notaðar til að kalla fram brot í snjóþekjunni til að meta hvaða lag er veikt.“ - keþMAGNI GUÐMUNDSSONMagni er fluttur frá Seljalandi og býr nú á Skógarbraut en það tekur hann tvær mín- útur að ganga á milli. Frjáls fjölmiðlun: Skiptastjóri til Lúxemborgar Viðræður við ETA: Stjórnvöld treg í taumi SPÁNN, AP Spænska ríkisstjórnin segist ekki ráðast í neinar viðræð- ur við aðskilnaðarsinnaða Baska fyrr en uppreisnarhreyfing ETA hættir vopnaðri baráttu sinni og lætur vopn sín af hendi. Þannig svöruðu stjórnvöld umleitunum ETA og stjórnmálaarms þeirra, Batasuna, um viðræður. Leiðtogar Batasuna lögðu til að þeir ræddu við spænsk stjórnvöld um friðarsamkomulag en að full- trúar ETA semdu á sama tíma um önnur mál, svo sem lausn ETA- liða úr spænskum og frönskum fangelsum. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.