Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.01.2005, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 18.01.2005, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 18. janúar 2005 15 samband við þau ríki sem við ósk- um eftir stuðningi hjá,“ segir hann. Spyrjum að leikslokum Íslendingar etja kappi við Austur- ríkismenn og Tyrki um þau tvö sæti sem eru eyrnamerkt okkar heimshluta og telur Hjálmar að möguleikar okkar séu harla góðir. „Ég er hvorki bjartsýnni né svart- sýnni en ég á að vera á á þessu stigi. Það eru tæp fjögur ár í kosn- ingar og á þessu stigi er ekki hægt að segja annað en að við eigum al- veg jafngóða möguleika og hinar þjóðirnar tvær.“ Hann bendir á að Austurríkismenn hafi nokkrum sinnum setið í ráðinu og eitt sinn hafi aðalritari Sameinuðu þjóð- anna komið úr þeirra röðum og Tyrkir hafi setið í ráðinu líka þótt langt sé síðan það var. Því er röð- in komin að Íslendingum. Hvert ríki fer með eitt atkvæði á allsherjarþingi Sameinuðu þjóð- anna, hvort sem það heitir Kína eða Nárú. Íslenskir embættis- menn hafa því sérstaklega reynt að höfða til smærri þjóða í baráttu sinni. Þannig er Hjálmar nýkom- inn frá Indlandshafsríkinu Márití- us þar sem málaleitan hans var vel tekið. „Við erum búin að fá all- mörg skrifleg loforð um stuðning, þau eru orðin eitthvað á fimmta tuginn. Á þessu stigi erum við í góðum málum en útkoman er ekki ljós fyrr en búið er að telja upp úr kössunum.“ Ef svo færi að lokum að Ísland næði kjöri stendur ekki á verkefn- unum að mati Hjálmars. Hann sér fyrir sér að Ísland muni sérstak- lega láta sig mannréttindi og mál- efni þriðja heimsins varða innan ráðsins og vísar á bug að við verð- um taglhnýtingar Bandaríkja- manna á þessum vettvangi. „Ef við hefðum þá ímynd innan Sam- einuðu þjóðanna að við værum ósjálfstæð og ekki með eigin utan- ríkisstefnu þá yrði róðurinn al- deilis þungur. Við getum þetta al- veg eins og önnur ríki sem þarna hafa setið við góðan orðstír.“ Tillögur hafa verið lagðar fram á vettvangi Sameinuðu þjóðanna sem miða að því að fjölga ríkjum í öryggisráðinu sem eiga þar fasta aðild á kostnað smærri þjóða. Hjálmar segir erfitt að meta hvaða áhrif þetta gæti haft á stöðu Íslands en býst þó síður við að þessar tillögur snerti okkur um sinn, ef þær verða þá nokkurn tímann samþykktar. Hjálmar W. Hannesson heldur erindi um þessi mál á fræðslu- fundi Miðstöðvar Sameinuðu þjóðanna, Skaftahlíð 24 í dag. Fundurinn hefst klukkan fimm og er öllum opinn. sveinng@frettabladid.is PARÍS, AP Airbus A380 farþegaflugvélin verður frumsýnd við hátíðlega athöfn í dag í Toulouse í Frakklandi og muna marka tímamót því hún er stærsta farþegaflugvél sögunnar. Vélin er sett Boeing 747 vélinni til höf- uðs og tekur þriðjungi fleiri farþega í sæti en keppinauturinn og hefur fimm prósent meira flugþol. Talsmenn Airbus segja að þetta geri þeim kleift að bjóða 20 prósent lægri fargjöld en Boeing. Þeir viðurkenna þó að hönnun og bygging vélarinnar hafi verið þrautaganga, kostnaður hafi farið fram úr áætlun og vélin sé þyngri en til stóð. Það hefur kostað Airbus um 120 millj- arða króna að framleiða vélina sem vegur tæp 280 tonn. Að sögn talsmanna Airbus hefur sala á vélinni farið fram úr björtustu vonum en þeir gera ráð fyrir að á næstu 20 árum verði eftirspurn eftir 1.250 Airbus vélum um allan heim. Spár benda til að fjöldi flug- farþega muni þrefaldast á sama tímabili. Tilraunaflug á Airbus A380 hefst fyrir 1. apríl en gert er ráð fyrir að áætlunarflug hefjist á næsta ári en Singapore Airlines verður fyrsta fyrirtækið sem tekur vélina í sína þjónustu. ■ Frumsýning í dag: Stærsta farþegaflugvél sögunnar KOSNINGARNAR HAFNAR Írakar ganga til kosninga í lok mánaðarins en atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er þegar hafin í nokkrum löndum. Í Ástralíu hangir þetta veggspjald víða uppi þar sem fólk er hvatt til að kjósa. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P ÖRYGGISRÁÐ SAMEINUÐU ÞJÓÐ- ANNA Fimmtán þjóðir sitja í ráðinu, þar af eru tíu kosnar af allsherjarþinginu. Ísland vill kom- ast í þann hóp.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.