Fréttablaðið - 18.01.2005, Blaðsíða 17
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 121 stk.
Keypt & selt 23 stk.
Þjónusta 39 stk.
Heilsa 6 stk.
Skólar & námskeið 2 stk.
Heimilið 11 stk.
Tómstundir & ferðir 4 stk.
Húsnæði 12 stk.
Atvinna 12 stk.
Tilkynningar 2 stk.
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagurinn 18. jan.,
18. dagur ársins 2005.
Reykjavík 10.47 13.38 16.30
Akureyri 10.50 13.23 15.56
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Ísleifur Þórhallsson, athafnamaður og,
skemmtanahaldari heldur sér vel í
formi og lætur ekki annasaman dag
hafa áhrif á hollt líferni sitt.
„Ég æfi í World Class í Laugum og er með
kort sem veitir mér aðgang í baðstofuna
sem er eitt það besta sem gerst hefur á Ís-
landi. Baðstofan hefur svo sannarlega gert
lífið betra. Það er yndislegur staður og
hann gerir það að verkum að ég fer oftar í
ræktina. Það er góð tilfinning að vita að
baðstofan bíður niðri í kjallara eftir æf-
ingu,“ segir Ísleifur sem sparar ekki góðu
orðin um stofuna. „Að koma inn í baðstof-
una er eins og að koma inn í annan heim.
Þar er maður í inniskóm og slopp og hefur
það huggulegt. Þar eru átta eða níu mis-
mundandi gufur með mismunandi ilmi og
stemningu, pottur, bar, veitingastaður og
hvíldarherbergi þar sem maður steinsofn-
ar. Þar eru stólar og arinn og voðalega
kósí. Ég fer með alla útlendinga sem ég
býð til landsins í baðstofuna. Þeir eru góðu
vanir en þeir eru rosalega hrifnir þegar
þeir koma þangað inn.“
Þó að baðstofan sé hugguleg þá eyðir Ís-
leifur líka talsverðum tíma í sjálfum
tækjasalnum og passar mataræðið. „Ég
hleyp og lyfti. Ég er ekki með neinn þjálf-
ara eða í neinum tímum. Ég borða líka holl-
an mat. Ég borða ekkert kjöt nema
kjúkling og borða mikið á grænmetisstöð-
um eins og Grænum kosti og Á næstu grös-
um. Þeir gera manni svo auðvelt að taka
með sér hollan grænmetismat þegar mikið
er að gera því maturinn er tilbúinn á staðn-
um og þetta tekur enga stund. Þetta er líka
bara grænmeti. Alveg rosalega gott og
hollt,“ segir Ísleifur nýstiginn út af Á
næstu grösum og endurnærður fyrir amst-
ur dagsins.■
Baðstofan eins og
nýr heimur
heilsa@frettabladid.is
Fleiri hjartaáföll eiga sér stað
um tíuleytið á morgnana en á
öðrum tímum sólarhringsins.
Nýleg bandarísk rannsókn
sýndi að hjartslátturinn er dæg-
urbundinn óháð því sem
verið er að gera hverju
sinni. Í ljós kom að hjart-
slátturinn nær hámarki
milli klukkan 9 og 11 á
morgnana jafnvel þótt
fólk sé sofandi. Þetta
er talin helsta ástæða
þess að fólk sem er
hjartveikt fái hjartaáfall á
þessum tíma dags.
Ný þunglyndissíða hefur verið
sett upp á doktor.is þar sem
sérstaklega er tekið á þung-
lyndi og öðrum geðsjúkdóm-
um. Á síðunni eru lifandi um-
ræður um þunglyndi auk þess
sem ítarefni er að finna um
tengda sjúkdóma. Jafnframt
býðst notendum síðunnar að
senda inn fyrirspurnir og þar
liggja upplýsingar um hvert eigi
að leita ef fólk telur sig þjást af
þunglyndi.
Rannsóknir vísindamanna Ís-
lenskrar erfðagreiningar hafa
leitt í ljós að þeir sem
bera sérstaka umhverfu á
litningi 17 eignist að með-
altali fleiri börn en aðrir.
Mest finnst af þessari um-
hverfu í Evrópubúum en
hún finnst í um 20% af
litningum þeirra. Til saman-
burðar finnst hún í um 6% af
litningum Afríkumanna og 1%
af litningum Asíumanna. Ein-
kenni umhverfunnar í þjóðum
Evrópu og Vestur-Asíu benda til
þess að tíðni hennar hafi aukist
á undanförnum árþúsundum
vegna náttúruvals. Grein um
rannsóknina mun birtast í febr-
úarhefti erfðafræðitímaritsins,
Nature genetics.
Ísleifur tekur vel á því í World Class og skellir sér síðan í baðstofuna.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
LIGGUR Í LOFTINU
í heilsu
Til sölu Skidoo MXZX 440, árgerð
1998, vél árgerð 2001, allar legur í
búkka nýjar. Lítur vel út og í góðu lagi.
Verðhugmynd 350 þús. Uppl. í síma
869 1756.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Pabbi!
Af hverju er
maður með
putta á
fótunum?
Sölvi gefur góð ráð
BLS. 3
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VALLI