Fréttablaðið - 18.01.2005, Síða 18
Tannhirða
Notaðu tannþráð daglega til að koma í veg fyrir tannholdsbólgur og skemmdir. Ágætt er að
nota þráðinn skömmu eftir kvöldmat og bursta þá tennurnar vel í leiðinni, því gjarnan er
maður of þreyttur til að vanda sig við verkið rétt fyrir svefninn. Ef maður nartar í eitthvað
má ekki gleyma að bursta tennurnar aftur fyrir svefninn.[ ]
HÁGÆÐA AMERÍSK FÆÐUBÓTAREFNI
Eykur brennslu líkamans meðan þú hvílist.
Minnkar matarlyst. 3 hylki fyrir svefn.
Fæst í apótekum, Fjarðakaupum
og Hagkaupum Kringlunni
NÝTTfráFuturebiotics
YGGDRASILL, KÁRASTÍG 1, 101 RVK., S: 5624082
- þar sem þú getur treyst á gæðin -
Lífrænt ræktaðar vörur
NÝTTfráFuturebiotics
Hindrar að líkaminn taki sykur og fín kolvetni
úr fæðunni. 2 hylki fyrir máltíð.
Fæst í apótekum, Fjarðakaupum
og Hagkaupum Kringlunni
HÁGÆÐA AMERÍSK FÆÐUBÓTAREFNI
Ætla að taka tonn af fitu
Þau Sara og Georg Ögmundsbörn reka líkamsræktarstöðina Orkuverið ásamt Halldóru systur sinni.
Líkamsræktarstöðin Orku-
verið opnaði í Egilshöllinni í
Grafarvogi í haust. Stöðina
reka þrjú systkini sem hafa
orðið samrýmdari með
rekstrinum.
„Systur mínar, Sara og Halldóra
Ögmundsdætur, reka stöðina
með mér og svo sýnir náttúrlega
restin af fjölskyldunni mikinn
stuðning. Það er bæði gott og
slæmt að vinna með systrum sín-
um. Þá er stundum óþarfa hrein-
skilni en það verða að minnsta
kosti ekki varanleg vinaslit. Við
höfum líka orðið samrýmdari
eftir að við byrjuðum að vinna
saman sem er gott mál,“ segir
Georg Ögmundsson, einn af rek-
endum Orkuversins.
Orkuverið er á tveimur hæð-
um og er tækjasalurinn þrískipt-
ur. „Á neðri hæð er íþróttasalur
og herbergi fyrir mestu öskrin.
Þar er pláss fyrir kraftakarlana
og nauðsynleg aðstaða í alvöru
líkamsræktarstöð. Þar eru bekk-
pressur og lóð og allt sem þarf til
að iðka ólympískar lyftingar. Efri
hæðin er síðan ætluð almenningi
þar sem er frekar róleg og góð
líkamsrækt. Það finna sem sagt
allir eitthvað við sitt hæfi og fólk
fer á hvora hæðina sem það vill.
Síðan er tengingin við Egilshöll-
ina mjög sterk en þar er margt
hægt að gera. Þar er innanhúss-
fótbolti, skautasvell og keilusalur
á leiðinni. Maður getur beinlínis
eytt deginum í Egilshöllinni,“
segir Georg en bæði hann og
systur hans hafa brennandi
áhuga á líkamsrækt. „Ég hef ver-
ið að keppa í aflraunum en Sara
systir mín er meira í jógalínunni.
Þetta er sem sagt hvor sinn póll-
inn og þegar tækifæri bauðst að
reka líkamsræktarstöð þá ákváð-
um við að kýla á það.“
Orkuverið er að fara af stað
með leik í samstarfi við útvarps-
stöðvarnar FM 957 og Létt 96,7.
„Við ætlum að verðlauna fólk
fyrir að missa kíló og ætlum að
taka tonn af fitu af landsmönn-
um. Fólk bara kaupir kort og
skráir sig og vigtar sig reglulega.
Síðan fær það verðlaun á þriggja
kílóa fresti. En sá sem missir
grammið sem kemur okkur yfir
tonnið fær vegleg verðlaun. Það
eru góð verðlaun í boði eins og til
dæmis GSM-símar, rúm, ferða-
vinningar, DVD-spilarar og
margt fleira. Við erum búin að fá
svakalega, löggilta vigt sem mæl-
ir hvert einasta gramm,“ segir
Georg og er bjartsýnn með fram-
tíð Orkuversins sem hefur fengið
góðar móttökur. ■
SPLENDA er náttúrulegt
sætuefni sem hefur eðlilegt
sætubragð.
SPLENDA er kalóríufrítt og
veldur ekki tannskemmdum.
Hægt er að baka, elda og sulta
úr SPLENDA.
SPLENDA kemur í stað sykurs
og er frábært fyrir sykursjúka.
Fæst í Lyf og heilsu,
Hagkaupum og Lyfju
Á FIMMTUDÖGUM
Auglýsingasíminn
er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
- mest lesna blað landsins -
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VALLI