Fréttablaðið - 18.01.2005, Síða 25
Borgarstjóri í góðum málum – eða hvað?
Það var athyglisvert að sjá vitnað
til þess í Morgunblaðinu í síðustu
viku að borgarstjórinn í Reykja-
vík, Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
hefði í umræðum á Stöð 2 hinn 6.
janúar sl. státað sig af því að fötluð
börn hefðu aðgang að frístunda-
heimilum við grunnskóla Reykja-
víkur og borgin væri því að veita
þjónustu sem önnur sveitarfélög
veittu ekki. Formaður Félagsmála-
ráðs Seltjarnarness var óhress
með aðdróttanir borgarstjóra í
garð nágrannanna. Ekki sá ég við-
talið við Steinunni Valdísi sem
vitnað er í en umræðan fannst mér
athyglisverð, ekki síst í ljósi þess
hversu erfiðlega hefur gengið að
fá Reykjavíkurborg til samstarfs
um þetta verkefni undanfarin ár.
Það er því jákvæð breyting ef
borgin er farin að sjá frístunda-
heimili fyrir fötluð börn sem verk-
efni til að vera stoltur af og von-
andi að sú þróun haldi áfram.
Þannig hefur það nefnilega
ekki alltaf verið og barátta for-
eldra fyrir því að tryggja nem-
endum bæði í 1.-4. bekk Öskju-
hlíðarskóla og eldri bekkjum skól-
ans slíka þjónustu hefur verið
þyrnum stráð og foreldrar talað
fyrir daufum eyrum borgarinnar.
Í áætlunum Reykjavíkurborgar
við uppbyggingu frístundaheimila
var ekki gert ráð fyrir nemendum
Öskjuhlíðarskóla, sennilega
vegna þess að þau eru fötluð.
Starfsemi frístundaheimilis fyrir
þennan aldurshóp var ekki tryggð
fyrr en eftir að Foreldra- og
styrktarfélag Öskjuhlíðarskóla
sendi erindi til borgarráðs í maí
2004 þar sem lögsókn var hótað ef
borgin mismunaði nemendum á
grundvelli fötlunar.
Hvað nemendur í 5.-10. bekk
Öskjuhlíðarskóla varðar hefur
baráttan fyrir því að tryggja þeim
frístundaheimili verið enn erfiðari
og leystist ekki fyrr en félagsmála-
ráðherra ákvað að setja fjármuni
til þessa verkefnis á haustdögum
2004. Ákvörðun Reykjavíkurborg-
ar um að bjóða nemendum 5.-10.
bekkjar upp á frístundaheimili
veturinn 2004-2005 var ekki tekin
fyrr en í september 2004. Afleið-
ingin varð sú að illa gekk að fá
starfsfólk í vinnu og veturinn hef-
ur verið bæði nemendum og fjöl-
skyldum þeirra erfiður. Það er
hins vegar bjartara framundan,
fleiri börn eru að fá þjónustu og
starfsfólk ÍTR í frístundaheimil-
inu stendur sig frábærlega. Það er
því von okkar að hér eftir verði
stöðugleiki í starfsemi frístunda-
heimilanna í Öskjuhlíðarskóla og
að það starf dafni og þróist í fram-
tíðinni.
En hvað um fötluð börn í 5.- 10.
bekk í öðrum grunnskólum
Reykjavíkur? Reykjavíkurborg
starfrækir ekki frístundaheimili
fyrir þessi fötluðu börn þó ráða-
menn borgarinnar viti að þörfin er
brýn. Skortur á heilsdagsúrræðum
fyrir fötluð börn í grunnskólum
borgarinnar er eitt af því sem
hindrar það að ìskóli án aðgrein-
ingarî, skóli þar sem öll börn eiga
möguleika á að njóta sín á eigin
forsendum, nái brautargengi.
Þetta veit Reykjavíkurborg en
skortir vilja til að breyta. Ráða-
mönnum borgarinnar er einnig
fullljóst að meðan ekki er boðið
upp á frístundaheimili fyrir fötluð
börn búa fjölskyldur þeirra við
skerta möguleika til náms og
starfs og slíkt hefur óneitanlega
áhrif á fjárhagsstöðu þessara fjöl-
skyldna. Jafnréttis- og fjölskyldu-
stefna borgarinnar nær því ekki til
þessa fólks.
Foreldrar fagna af heilum hug
þeim áföngum sem náðst hafa
varðandi þjónustu frístundaheim-
ila ÍTR við fötluð börn en mikið
starf er þó óunnið til að öll börn
njóti slíkrar þjónustu og brýnt að
sú uppbygging sem nú er hafin
haldi áfram.
Því ber einnig að fagna að ÍTR
hefur verið falið að sjá um þessa
starfsemi enda er sú hugmynda-
fræði sem starfsmenn ÍTR starfa
eftir meðal fatlaðra barna til eftir-
breytni.
Ég skora á Steinunni Valdísi
Óskarsdóttur borgarstjóra að
beita sér fyrir því að öll fötluð
grunnskólabörn í Reykjavík njóti
þjónustu frístundaheimila óháð
aldri og óháð því hvaða skóla þau
sækja og stuðla þannig að jöfnum
rétti allra nemenda borgarinnar
og fjölskyldna þeirra. Þegar það
mál er komið í höfn getur borgar-
stjóri borið höfuðið hátt og verið
stolt af starfsemi frístundaheimila
borgarinnar sem þá stuðla að því
jafnrétti sem starfsemi þeirra
byggist á. Það er einnig von mín að
önnur sveitarfélög landsins taki
þessari áskorun og byggi upp
skóladagvistarþjónustu við hæfi
þeirra einstaklinga sem þjónust-
unnar þarfnast.
Höfundur er læknir, foreldri
fatlaðs barns og formaður For-
eldra- og styrktarfélags Öskju-
hlíðarskóla. ■
ÞRIÐJUDAGUR 18. janúar 2005
Aðgát skal höfð
Borghildur Ragnarsdóttir, hjúkrunarfor-
stjóri Víðiness, hjúkrunarheimilis aldr-
aðra, skrifar:
Höggvið þótti mér í sama knérunn þeg-
ar ég las viðtal við fyrrverandi starfs-
mann í Víðinesi, hjúkrunarheimili aldr-
aðra, Eirík Kjartansson, sem birtist í DV
þann 13. janúar síðastliðinn. Mér er
bæði skylt og ljúft að standa vörð um og
vera málsvari íbúa á heimilinu fyrr og
síðar. Það er sárt til þess að vita þegar
starfsmaður bregst starfsskyldum sínum
með slíkum hætti eins og raun ber vitni.
Ég vil minna fyrrverandi starfsmann á
þagnarskyldu þá sem hann ber gagnvart
einkahögum heimilismanna samkvæmt
lögum um réttindi sjúklinga og hann
hefur skrifað undir við upphaf starfs við
heimilið. Þagnarskylda þessi helst áfram
þótt heimilismaður látist eða starfmað-
ur hætti störfum á heimilinu.
Af sömu ástæðum get ég ekki tjáð mig
um einkahagi heimilismanna í fjölmiðl-
um. Ég get aftur á móti fullyrt að hjúkr-
unarheimilið hefur á að skipa góðu og
samhentu starfsfólki sem tekur fullan
þátt í að skapa þá umgjörð og heimilis-
brag að heimilismönnum geti liðið sem
best. Ennfremur leggjum við áherslu á
að halda góðum samskiptum við ætt-
ingja þeirra sem hér búa og hafa treyst
okkur fyrir að annast sína nánustu.
Þannig skyldi aðgát höfð í nærveru sálar
og fyrrverandi starfsmaður ekki reyna að
bjarga eigin skinni á kostnað þess sem
ekki getur borið hönd fyrir höfuð sér.
AF NETINU
Su
mar
sól
19
.950 kr.
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Fyrstir koma
- fyrstir fá!
Alicante
Beint leigu-
flug me›
Icelandair
í allt sumar!
Sumarhúsa-
eigendur
og a›rir
farflegar
til Spánar!
Flugáætlun
Flug fram og til baka
með flugvallarsköttum.
Verð miðast við að bókað sé
á Netinu, ef bókað er í síma eða
á skrifstofu bætast 2.000 kr.
við hverja bókun.
Netverð frá
19. og 31. mars
11. apríl
18. maí
og síðan alla
miðvikudaga
í sumar til
5. október.
Náðu þér í eintak á www.sagabout ique . i s
söluskrifstofu Icelandair sími 50 50 100 eða á ferðaskrifstofum.
kominn í loftið
Nýr vetrarbæklingur Saga Boutique
Tollfrjálst
skýjum ofar
Verð 8.400 kr
DKNY 3329
Safnaðu vildarpunktum, verslaðu í Saga Boutique.
GERÐUR AAGOT ÁRNADÓTTIR
UMRÆÐAN
MÁLEFNI FATLAÐRA
BARNA
Össur, Ingibjörg eða....
Þegar rætt er um næsta formann Sam-
fylkingarinnar koma vanalega þessi tvö
nöfn upp á yfirborðið, Ingibjörg og Öss-
ur. Össur er fínn í innra starfinu en nær
ekki ekki til almennings. Ingibjörg Sólrún
hafði mikil áhrif á fylgisaukningu Sam-
fylkingarinnar í síðustu kosningum þegar
margir kusu flokkinn til að koma henni
sem einstaklingi inn á þing. Maður veltir
því fyrir sér hvort hún sé ekki einmitt til
þess fallin að koma flokknum úr kjör-
gengi, ná til þess hóps jafnaðarmanna
sem kýs aðra flokka í reiðileysi sínu og
stýra Samfylkingunni til sigurs.
En er kannski einhver annar möguleiki í
stöðunni? Nei annars, umorðum spurn-
inguna, væri það kannski ágætis kostur
fyrir flokkinn ef þriðji möguleikinn væri
til staðar? Gæti verið, en sá aðili þyrfti að
vera laus við fortíðarflækjur Ingibjargar
og Össurar, laus við tengslin við gömlu
flokkana. Sannur Samfylkingarmaður en
ekki krati, allaballi eða femínisti í nýjum
pólitískum búningi. En ef slíkt er ekki
mögulegt þá er þetta spurningin um
Össur eða Ingibjörgu, kjörgengi eða
hugsanlega eitthvað meira. Og ef sú
verður raunin, þá kýs ég meira.
Haukur Agnarsson á sellan.is
BRÉF TIL BLAÐSINS