Fréttablaðið - 18.01.2005, Page 31

Fréttablaðið - 18.01.2005, Page 31
ÞRIÐJUDAGUR 18. janúar 2005 23 Tveir leikmenn í NBA-körfuboltan-um, Nene hjá Denver Nuggets og Michael Olowokandi hjá Minnesota Timberwolves, voru dæmdir í fjögurra leikja bann fyrir slagsmál og kýtingar undir lok þriðja fjórðungs í leik lið- anna á dögunum. Timberwolves vann leikinn, 93-83. Þá voru Marcus Cam- by og Francisco El- son, samherjar Nene, dæmdir í eins leiks bann fyrir að yfirgefa vara- mannabekkinn þegar slagsmálin brutust út. Bannið var tilkynnt af Stu Jackson, varaforseta NBA-deildar- innar. Enska knattspyrnusambandið bíð-ur átekta eftir rannsókn lögregl- unnar á atviki sem átti sér stað í leik Manchester United og Liverpool á laug- ardaginn. Svo virðist sem að farsíma hafi verið kastað í Wayne Rooney, leikmann United, eftir að hann skor- aði sigurmark leiksins sem fór 1-0. Lögreglan staðfesti að einn maður hefði verið handtekinn en yfirheyrsl- ur voru þá á frumstigi. Það andar köldu milli knattspyrnu-stjóranna Arsene Wenger hjá Arsenal og Alex Ferguson hjá Manchester United um þessar mundir. „Ég mun aldrei svara fleiri spurningum um þennan mann,“ sagði Wenger, sem vildi meina að enska knattspyrnu- sambandið ætti að refsa Ferguson fyrir ummæli sem hann lét falla um Arsenal á dögunum. Ferguson sagði Wenger hafa kallað leikmenn sína svindlara í hálfleik í viðureign liðanna í október á síðasta ári. „Ég sagði honum að láta þá í friði og slaka aðeins á,“ sagði Ferguson. „Þá vatt hann sér að mér með hend- urnar upp í loft og sagði: Hvað ætlar þú að gera í því? Svona framkoma er til háborinnar skammar.“ Bandaríska tennisdrottningin Ser-ena Williams fór létt með Camille Pin í opnunarleik ástralska opna tennismótsins sem hófst í gær. Williams vann örugglega í tveimur lotum, 6-1 og 6-1, og átti Pin ekki möguleika í Willi- ams sem virðist vera í fínu formi þessa dagana. „Ég væri ekki hérna ef ég teldi mig ekki geta unnið mótið. Þá væri ég bara heima hjá mér,“ sagði Williams eftir viðureignina. „Ég tel mig vera komna hingað af fullri alvöru til að vinna mótið.“ Jenson Button, ökumaður BAR-liðsins í Formúlu 1 kappakstrinum, fullyrðir að það sé engin gremja í hans garð af hálfu BAR eftir að hann reyndi að ganga til liðs við Williams á síðasta ári. „Um leið og ég ákvað að vera áfram þá settist ég niður með liðinu og útskýrði þetta allt fyrir mínum mönn- um. Hlutirnir eru búnir að vera í himnalagi allar göt- ur síðan,“ sagði Button. Þess má geta að nýr og léttari BAR-bíll var kynntur til leiks í Barcelona í fyrradag sem ber heitið The BAR Honda 007. Ray Allen hafði betur í einvíginugegn LeBron James þegar lið þeirra, Seattle Supersonics og Cleveland Cavaliers, áttust við í fyrr- inótt í NBA-körfuboltanum. Sonics vann leikinn, 105- 97. James skoraði 35 stig, tók 5 frá- köst og gaf 11 stoðsendingar en Allen var liði sínu mikilvægur á l o k a m í n ú t u m leiksins og leiddi það til sigurs. Hann skoraði 27 stig. „Fjórði leik- hlutinn er minn tími,“ sagði Allen. „Hvort sem ég hitti úr skotum eða ekki þá mun ég láta að mér kveða í lokaleikhlutanum.“ ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM UNNU SEINNI HÁLFLEIK MEÐ 18 STIGUM Keflvíkingar lentu mest tíu stigum undir í fyrri hálfleik í toppslagnum gegn Snæfelli í gær en komu sterkir inni í seinni hálfleikinn og unnu hann með 18 stigum, 48–30. Hér skorar fyrirliði og besti maður Keflavíkurliðsins, Gunnar Einarsson, tvö af 26 stigum sínum í leiknum. Fréttablaðið/Valli Toppslagur í Intersportdeild karla í körfubolta í gær: Keflvíkingar einir efstir KÖRFUBOLTI Snæfellingar hafa aldrei unnið í Keflavík og það varð engin breyting á því í toppslagnum í Intersportdeild karla í körfubolta í gær. Keflvíkingar bættu sig með hverri mínútunni í leiknum og unnu að lokum 9 stiga sigur, 78–69, eftir að Snæfell hafði náð níu stiga forskoti fyrir hlé, 30–39. Keflvíkingar voru langt frá sínu besta í upphafi leiks, sérstaklega í sókninni, en það dugði ekki Snæfellingum til að brjóta ísinn en þeir hafa tapað í öllum ellefu heimsóknum sínum til Keflavíkur í úrvalsdeild frá upphafi. Snæfellingar voru í raun miklir klaufar að vera ekki með meira en níu stiga forskot eftir fyrri hálfleikinn og sérstaklega fóru þeir illa með tvö hraðaupp- hlaup á síðustu mínútunni. Keflvíkingar áttu mikið inni og þeir voru búnir að jafna leikinn innan þriggja mínútna og náðu síðan góðum tökum á leiknum með stífri pressuvörn sem riðlaði öllum sóknarleik Hólmara. Það kom ekki að sök að tveir af bestu leikmönnum heimamanna (Anthony Glover og Magnús Þór Gunnarsson) skoruðu ekki körfu í leiknum því Gunnar Einarsson átti frábæra innkomu af bekknum með 26 stigum og frábæra vörn þar sem hann og Sverrir Þór Sverrisson léku bakverði Snæfells grátt. Snæfellsliðið vann illa saman og því fór upplagt tækifæri til að komast á toppinn forgörðum. þess í stað sitja Keflvíkingar núna einir á toppnum þegar þeir fara í erfiðan Evrópuleik á fimmtu- daginn. ooj@frettabladid.is Intersportdeildin KEFLAVÍK–SNÆFELL 78–69 Stig Keflavíkur: Gunnar Einarsson 26, Nick Bradford 25 (8 fráköst), Sverrir Þór Sverrisson 9 (6 stolnir, 5 stoðsendingar), Arnar Freyr Jónsson 9, Anthony Glover 4, Jón Nordal Hafsteinsson 2, Elentínus Margeirsson 2, Magnús Þór Gunnarsson 1. Stig Snæfells: Mike Ames 23, Calvin Clemmons 16 (8 fráköst), Magni Hafsteinsson 12 (7 fráköst), Hlynur Bæringsson 10 (21 frákast, 13 í sókn), Pálmi Freyr Sigurgeirsson 3, Sigurður Þorvaldsson 3, Helgi Reynir Guðmundsson 2. STAÐAN KEFLAVÍK 13 10 3 11157:1012 20 NJARÐVÍK 13 9 4 1215:1026 18 FJÖLNIR 13 9 4 1231:1161 18 SNÆFELL 13 9 4 1145:1062 18 SKALLAGR. 13 8 5 1130:1086 16 ÍR 13 7 6 1180:1163 14 KR 13 6 7 1132:1127 12 HAM./SEL. 13 6 7 1192:1247 12 GRINDAVÍK 13 6 7 1179:1199 12 HAUKAR 13 4 9 1097:1108 8 TINDAST. 13 4 9 1076:1219 8 KFÍ 13 0 13 1072:1396 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.