Fréttablaðið - 31.01.2005, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MÁNUDAGUR
HEILSA KYNJANNA Málstofa á veg-
um Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði
stendur fyrir málstofu í Eirbergi á Eiríks-
götu klukkan 12. Lilja Sigrún Jónsdóttir,
læknir og verkefnastjóri hjá Landlæknis-
embættinu, fjallar um mun á heilsu karla
og kvenna.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
31. janúar 2005 – 29. tölublað – 5. árgangur
DETTIFOSS TIL HAFNAR Björgunar-
aðgerðir Landhelgisgæslunnar báru árangur
í gær eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir
við að koma dráttartaug yfir í flutningaskip-
ið Dettifoss. Sjá síðu 6
ÓVISS UM FRAMBOÐ Páll Magnús-
son, varaþingmaður Framsóknarflokksins,
segist ekki hafa gert upp við sig hvort hann
sækist eftir að leiða lista flokksins í næstu
bæjarstjórnarkosningum. Sjá síðu 2
RÍKIÐ OF FYRIRFERÐARMIKIÐ
Ríkið á eignarhlut í 206 fyrirtækjum. Ríkis-
sjóður á 24 fyrirtæki. Þingmaður Sjálfstæð-
isflokks segir að sameina eigi Byggðastofn-
un og Nýsköpunarsjóð. Sjá síðu 4
ÞJÓÐVEGINUM LOKAÐ Mikið hvass-
viðri og vatnsveður var víðast hvar um land-
ið bæði á laugardag og sunnudag. Loka
þurfti veginum við Mýrdalssand. Sjá síðu 8
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 20
Sjónvarp 28
Karlar 20-40 ára
Me›allestur dagblaða
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups nóvember 2004
MorgunblaðiðFréttablaðið
61%
33%
SKAPLEGUR VINDUR FRAMAN AF
Bætir í vind þegar líður á daginn. Undir
kvöldið gæti orðið strekkingur
vestanlands. Sjá síðu 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
TÍSKA Lopapeysan virðist hafa
aukið vinsældir sínar í vetur
meðal Íslendinga og þá helst hjá
yngri kynslóðinni.
Í versluninni Islandia í Kringl-
unni fengust þær upplýsingar að
aukin eftirspurn væri á íslensku
lopapeysunni meðal Íslendinga.
Mikið af ungu fólki komi og spyrj-
ist fyrir um þær og eru þá helst
renndar peysur með og án hettu
vinsælastar. Mest er eftirspurnin
í peysum sem eru hvítar í grunn-
inn með brúnum bekk en stundum
sé beðið um bleikan bekk.
Framleiðendur Álafosslopans
staðfesta þetta og segja að
heilmikil aukning hafi verið í sölu
lopans og mikið um að fólk sé að
prjóna lopapeysurnar sjálft.
Rennd lopapeysa í verslun
Islandia, sem kemur frá prjóna-
konu, kostar 10.995 kr. en peysa
sem fyrirtækið Cintamani fram-
leiðir kostar 19.960 kr. - keþ
BIÐRÖÐ Í BASRA Lítil írösk stúlka fylgdi móður sinni á kjörstað í borginni Basra í suðurhluta Íraks í gær. Biðraðir mynduðust víða á
svæðum þar sem sjía-múslímar og Kúrdar eru í meirihluta.
Einn ráðherra Blairs:
HIV-smitað-
ur í 17 ár
LONDON, AP Fyrrverandi menning-
armálaráðherra í stjórn Tonys
Blair, Chris Smith, upplýsti í sam-
tali við Sunday Times í gær að
hann sé búinn að vera HIV-smitað-
ur í 17 ár. Smith, sem er 53 ára,
sagðist ekki hafa greint Blair frá
þessu árið 1997 þegar hann varð
fyrsti ráðherrann í Bretlandi til að
opinbera samkynhneigð sína .
„Síðustu vikur og mánuði hefur
mér fundist mér bera skylda til að
segja frá þessu, ekki síst eftir að
Nelson Mandela tilkynnti að sonur
hans hefði látist úr eyðni. Ég
vonast líka til að opinber umræða
slái á fordómana.“
Smith sagðist vilja undirstrika
að HIV-smitaðir geta lifað eðlilegu
lífi þrátt fyrir að þurfa að taka inn
mikið magn lyfja. ■
Um sextíu prósenta
kosningaþátttaka
Alls létust 44 í árásum uppreisnarmanna í Írak í gær þegar fyrstu lýð-
ræðislegu kosningarnar í fimmtíu ár fóru fram. Stjórnmálasérfræðingar
hafa áhyggjur af lítilli kosningaþátttöku súnní-múslíma.
ÍRAK Yfirmenn kjörstjórna í Írak
telja að um 60 prósent Íraka, eða
um átta milljónir, hafi mætt á
kjörstaði í gær í fyrstu lýðræðis-
legu kosningunum í landinu í 50
ár. Meira en 200 stjórnmálaflokk-
ar voru í framboði. Lokið verður
við að telja atkvæðin eftir þrjá til
fjóra daga.
Eins og búist hafði verið við
létu uppreisnarmenn til sín taka
og létust að minnsta kosti 44 í
sprengingum í Bagdad og víðar.
Þar af voru níu uppreisnarmenn.
Þá fórst bresk herflutningavél af
gerðinni Hercules C-130 rétt norð-
an við Bagdad um miðjan dag. Í
gærkvöld var ekki ljóst hvort
vélin hafði verið skotin niður.
Kosningasérfræðingar eru
almennt sammála um að 60 pró-
senta kosningaþátttaka sé framar
vonum. Carlos Valenzuela, kosn-
ingaráðgjafi á vegum Sameinuðu
þjóðanna, vildi ekki staðfesta töl-
una. Hann sagði að þátttakan
hefði verið mjög góð á sumum
svæðum en nánast engin á
öðrum.
Mikill munur var á kosninga-
þátttöku milli sjía-múslíma og
Kúrda annars vegar og súnní-
múslíma hins vegar. Í suðurhluta
landsins þar sem meirihluti íbúa
er sjía-múslímar var kosninga-
þátttakan mjög góð sem og hjá
Kúrdum í norðurhlutanum. Á
svæðum í miðhluta landsins þar
sem súnní-múslímar eru í meiri-
hluta var kjörsókn afar lítil. Kjör-
staðir í borgunum Falluja,
Ramadi og Beiji voru tómir. Fólk
hætti ekki á að mæta vegna
hótana uppreisnarmanna súnní-
múslíma um árásir.
Þó að sérfræðingar séu sam-
mála um að 60 prósenta kosninga-
þátttaka sé mjög góð hafa þeir
einnig lýst áhyggjum yfir lítilli
þátttöku súnní-múslíma. Ef í ljós
komi að stjórnmálaflokkar súnní-
múslíma fái lítið sem ekkert fylgi
verði ljóst að þingið muni ekki
endurspegla þjóðina og það geti
orðið til þess að þjóðin hreinlega
klofni.
sjá síðu 2
Hugmyndir um leigu
nýs varðskips:
Kemur vel
til greina
VARÐSKIP Birni Bjarnasyni dóms-
málaráðherra finnst sjálfsagt að
skoða til hlítar
möguleikann á
að taka nýtt
varðskip á
leigu í stað þess
að festa kaup á
einu slíku.
Georg Kr.
Lárusson, for-
stjóri Land-
helgisgæslunn-
ar, viðraði
skoðanir þess
efnis í viðtali við Fréttablaðið á
laugardag. Björn og Georg hafa
rætt framtíðaráform Landhelgis-
gæslunnar og endurnýjun á skipa-
kosti hennar og segist Björn hlynnt-
ur því að hagkvæmasti kostur sé
valinn, enda náist með honum þau
markmið sem að er stefnt. Hann vill
ekkert segja til um hvenær nýtt
skip verður hugsanlega tekið í
gagnið, fyrst þurfi að grannskoða
hvaða leið beri að fara. - bþs
Sjá síðu 4
BJÖRN BJARNASON
DÓMSMÁLARÁÐ-
HERRA
Íslenska lopapeysan komin aftur í tísku:
Heilmikil aukning í sölu lopa
● tilbúnir með nýja plötu
Vínyll:
▲
SÍÐA 25
Hafnarfjörður:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Glænýjar íbúðir
í miðbænum
● fasteignir ● hús
Spennandi að
fara nýjar slóðir
● fjallar um atburði síðustu aldar
Eva María Jónsdóttir:
▲
SÍÐA 30
Snýr aftur
á skjáinn
● geir sveinsson gerir upp mótið
HM í handbolta í Túnis:
▲
SÍÐA 21
Varnarleikurinn
varð liðinu að falli
ÍSLENSKA LOPAPEYSAN
Vinsældir lopapeysunnar hafa aukist
meðal Íslendinga.FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
M
YN
D
A
P