Fréttablaðið - 31.01.2005, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 31.01.2005, Blaðsíða 62
MÁNUDAGUR 31. janúar 2005 21 TÖLFRÆÐI ÍSLANDS MÖRK ÍSLENSKA LIÐSINS Guðjón Valur Sigurðsson 31/1 Ólafur Stefánsson 25/13 Róbert Gunnarsson 19/4 Alexander Petersson 18 Markús Máni Michaelsson 16 Einar Hólmgeirsson 14 Dagur Sigurðsson 7 Arnór Atlason 7/4 Vignir Svavarsson 6 Logi Geirsson 4/1 Ingimundur Ingimundarson 3 Einar Örn Jónsson 2 Vilhjálmur Halldórsson 2 VARIN SKOT ÍSLENSKA LIÐSINS Roland Valur Eradze 41/2 (34%) Birkir Ívar Guðmundsson 40/2 (46%) Hreiðar Guðmundsson 10 (36%) BESTA SKOTNÝTING* Ingimundur Ingimundarson 100% Vignir Svavarsson 85,7% Markús Máni Michaelsson 76,2% Róbert Gunnarsson 68,2% Guðjón Valur Sigurðsson 68,2% Einar Örn Jónsson 66,7% Alexander Petersson 60,0% * Skot utan af velli (ekki víti) FLESTAR STOÐSENDINGAR Ólafur Stefánsson 34 Dagur Sigurðsson 18 Markús Máni Michaelsson 10 Arnór Atlason 8 Alexander Petersson 8 Guðjón Valur Sigurðsson 6 Einar Hólmgeirsson 6 FLEST FISKUÐ VÍTI Róbert Gunnarsson 11 Guðjón Valur Sigurðsson 8 Markús Máni Michaelsson 3 Ólafur Stefánsson 3 Alexander Petersson 2 FLEST VARIN SKOT Í VÖRN Markús Máni Michaelsson 7 Vignir Svavarsson 7 Ólafur Stefánsson 3 Róbert Gunnarsson 3 FLESTIR FENGNIR BROTT– REKSTRAR Á MÓTHERJA Guðjón Valur Sigurðsson 10 Róbert Gunnarsson 5 Einar Hólmgeirsson 4 Alexander Petersson 3 FLESTIR BROTTREKSTRAR Vignir Svavarsson 7 Einar Hólmgeirsson 5 Markús Máni Michaelsson 4 Alexander Petersson 3 Róbert Gunnarsson 3 FLESTIR TAPAÐIR BOLTAR Ólafur Stefánsson 10 Dagur Sigurðsson 6 Markús Máni Michaelsson 6 Einar Hólmgeirsson 5 Róbert Gunnarsson 5 LENGSTI SPILATÍMI Ólafur Stefánsson 4:25:31 Guðjón Valur Sigurðsson 4:17:50 Alexander Petersson 3:35:45 Markús Máni Michaelsson 3:22:48 Einar Hólmgeirsson 2:39:04 Róbert Gunnarsson 2:37:53 Dagur Sigurðsson 2:33:12 H M Í H A N D B O L T A T Ú N I S Varnarleikurinn: „Það er alveg ljóst að liðið fellur á varnarleiknum á þessu móti. Hann var illa skipulagður og mér fannst liðið einfaldlega ekki klárt til að spila vörn. Það var hreinlega ekki lagt nógu mikið upp úr varnarleiknum sem kemur kannski ekki á óvart þegar Viggó á í hlut. Hans heimspeki gengur frekar út á að skora einu marki meira en andstæðingurinn en það er mín skoðun að leikir vinnast ef lið fá á sig einu marki færra en andstæðingarnir. Ég held að markvarslan hafi verið þokkaleg, í það minnsta miðað við undanfarin stórmót en það sýnir sig að hún þarf að vera mun betri ef liðið ætl- ar að komast á meðal bestu liðanna. Markvörðunum var samt vorkunn því vörnin var afar slök. Þessi 3:3 vörn hans Viggó var dauðadæmd frá byrjun því það þarf gríðarlega öflugan mann í hjarta varnarinnar til að spila þessa vörn og þann mann eigum við ekki í dag.“ Sóknarleikurinn: „Styrkur Viggós liggur í sóknarleiknum og ég held að hann geti verið þokkalega sáttur við hann á mótinu. Það er ekki hægt að kvarta yfir því að skora um þrjátíu mörk að meðaltali í leik. Ég átti samt von á því að sjá meira skipulag í sóknarleikn- um, skarpari línur. Það má líka skoða það að íslenska liðið fékk mjög margar sóknir á mótinu vegna þess hversu lé- lega vörn liðið spilaði. Það hjálpaði til þegar litið er á mörkin sem skoruð voru. Viggó treysti á Dag og ef hann er að fara fram á að hann stjórni leiknum en skori ekki eða ógni mikið þá var Dagur að standa fyrir sínu. Ég tel það hins vegar hafa verið mistök að taka ekki Snorra Stein með því hann er kominn með mikla reynslu.“ Þjálfarinn: „Viggó átti að gera sér betur grein fyrir veikleikum sínum sem þjálfari. Ég held að hann hafi gert mis- tök með því að ráða Bergsvein sem að- stoðarmann sinn. ég segi þetta með fullri virðingu fyrir Bergsveini en hann hefði nýst betur sem markvarðaþjálfari eingöngu. Viggó var með háleit mark- mið fyrir mótið, sýndi mikinn metnað og stefndi á eitt af sex efstu sætunum. Hann misreiknaði sig illilega og ég held að hann hafi færst fullmikið í fang. Viggó þarf að svara þeirri spurningu hvort hann hafi verið að ná því besta út úr mannskapnum. Að mínu mati var hann ekki að gera það. Varnarleikurinn hefði getað verið betri og sú stað- reynd að liðið var ekki á meðal tólf efstu segir okkur að honum tókst það ekki.“ Leikmenn: „Ungu strákarnir stóðu upp úr. Mér fannst tveir óreyndir leik- menn, Markús Máni Michaelsson og Alexander Petersson, standa sig frá- bærlega vel. Arnór Atlason sýndi að hann á vel heima í þessum hópi og Guðjón Valur Sigurðsson og Róbert Gunnarsson skiluðu sínu. Markverðirn- ir komust einnig ágætlega frá sínu. Einar Örn Jónsson fann sig ekki og Ólafur Stefánsson hefur oft verið betri. Ég held að það hafi ekki verið spurn- ing um líkamlegt eða handboltalegt form hjá honum heldur að hann hafi ekki verið tilbúinn andlega. Það er eins og það hafi verið rétt sem hann sagði eftir ólympíu- leikana að hann væri orð- inn leiður. Hann var ekki hungraður. Mér fannst hins vegar leik- menn leggja sig alla fram en samæfing- in var ekki til staðar.“ Niðurstaða mótsins: „Það eru von- brigði en ekki alls enginn heimsendir að komast ekki áfram í milliriðla. Það versta er að við getum hugsanlega endað sem B-þjóð en mér sýnist við sleppa fyrir horn í þetta skiptið. Við megum hins vegar ekki við annarri slakri keppni. Þá getur farið fyrir okkur eins og Norðmönnum sem hafa verið með frábært landslið undanfarin ár án þess að komast á stórmót. Það tekur lið oft langan tíma að komast á meðal þeirra bestu eftir að hafa dottið út.“ Hvað tekur við? „Ég hef mikla trú á Viggó sem þjálfara og tel hann vera fullfæran um að koma Ís- landi á meðal átta bestu lands- liða heims eins og markmið HSÍ er. Það verða varla miklar breytingar á liðinu á næstunni. Dagur er reyndar að hugsa sín mál en Ólafur ætlar að halda áfram sem er auðvitað mjög gott. Viggó þarf að finna öfluga varnarmenn og reyna að sníða vörnina að þeim leikmönnum sem hann hefur. Það er fullt af ungum mönnum í liðinu sem geta náð mjög langt. Það býr fullt í þessu liði og nú er það Viggós að ná því besta út úr liðinu.“ GEIR SVEINSSON SÉRFRÆÐINGUR FRÉTTABLAÐSINS SPÁÐ Í SPILIN ÍSLAND ENDAÐI Í 15. SÆTI Á HM Í TÚNIS SEM LAUK HJÁ ÍSLENSKA LIÐINU UM HELGINA. Liðið féll á varnarleiknum á þessu móti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.