Fréttablaðið - 31.01.2005, Side 62
MÁNUDAGUR 31. janúar 2005 21
TÖLFRÆÐI ÍSLANDS
MÖRK ÍSLENSKA LIÐSINS
Guðjón Valur Sigurðsson 31/1
Ólafur Stefánsson 25/13
Róbert Gunnarsson 19/4
Alexander Petersson 18
Markús Máni Michaelsson 16
Einar Hólmgeirsson 14
Dagur Sigurðsson 7
Arnór Atlason 7/4
Vignir Svavarsson 6
Logi Geirsson 4/1
Ingimundur Ingimundarson 3
Einar Örn Jónsson 2
Vilhjálmur Halldórsson 2
VARIN SKOT ÍSLENSKA LIÐSINS
Roland Valur Eradze 41/2 (34%)
Birkir Ívar Guðmundsson 40/2 (46%)
Hreiðar Guðmundsson 10 (36%)
BESTA SKOTNÝTING*
Ingimundur Ingimundarson 100%
Vignir Svavarsson 85,7%
Markús Máni Michaelsson 76,2%
Róbert Gunnarsson 68,2%
Guðjón Valur Sigurðsson 68,2%
Einar Örn Jónsson 66,7%
Alexander Petersson 60,0%
* Skot utan af velli (ekki víti)
FLESTAR STOÐSENDINGAR
Ólafur Stefánsson 34
Dagur Sigurðsson 18
Markús Máni Michaelsson 10
Arnór Atlason 8
Alexander Petersson 8
Guðjón Valur Sigurðsson 6
Einar Hólmgeirsson 6
FLEST FISKUÐ VÍTI
Róbert Gunnarsson 11
Guðjón Valur Sigurðsson 8
Markús Máni Michaelsson 3
Ólafur Stefánsson 3
Alexander Petersson 2
FLEST VARIN SKOT Í VÖRN
Markús Máni Michaelsson 7
Vignir Svavarsson 7
Ólafur Stefánsson 3
Róbert Gunnarsson 3
FLESTIR FENGNIR BROTT–
REKSTRAR Á MÓTHERJA
Guðjón Valur Sigurðsson 10
Róbert Gunnarsson 5
Einar Hólmgeirsson 4
Alexander Petersson 3
FLESTIR BROTTREKSTRAR
Vignir Svavarsson 7
Einar Hólmgeirsson 5
Markús Máni Michaelsson 4
Alexander Petersson 3
Róbert Gunnarsson 3
FLESTIR TAPAÐIR BOLTAR
Ólafur Stefánsson 10
Dagur Sigurðsson 6
Markús Máni Michaelsson 6
Einar Hólmgeirsson 5
Róbert Gunnarsson 5
LENGSTI SPILATÍMI
Ólafur Stefánsson 4:25:31
Guðjón Valur Sigurðsson 4:17:50
Alexander Petersson 3:35:45
Markús Máni Michaelsson 3:22:48
Einar Hólmgeirsson 2:39:04
Róbert Gunnarsson 2:37:53
Dagur Sigurðsson 2:33:12
H M Í H A N D B O L T A
T Ú N I S
Varnarleikurinn: „Það er alveg ljóst
að liðið fellur á varnarleiknum á þessu
móti. Hann var illa skipulagður og mér
fannst liðið einfaldlega ekki klárt til að
spila vörn. Það var hreinlega ekki lagt
nógu mikið upp úr varnarleiknum sem
kemur kannski ekki á óvart þegar
Viggó á í hlut. Hans heimspeki gengur
frekar út á að skora einu marki meira
en andstæðingurinn en það er mín
skoðun að leikir vinnast ef lið fá á sig
einu marki færra en andstæðingarnir.
Ég held að markvarslan hafi verið
þokkaleg, í það minnsta miðað við
undanfarin stórmót en það sýnir sig að
hún þarf að vera mun betri ef liðið ætl-
ar að komast á meðal bestu liðanna.
Markvörðunum var samt vorkunn því
vörnin var afar slök. Þessi 3:3 vörn
hans Viggó var dauðadæmd frá byrjun
því það þarf gríðarlega öflugan mann í
hjarta varnarinnar til að spila þessa
vörn og þann mann eigum við ekki í
dag.“
Sóknarleikurinn: „Styrkur Viggós
liggur í sóknarleiknum og ég held að
hann geti verið þokkalega sáttur við
hann á mótinu. Það er ekki hægt að
kvarta yfir því að skora um þrjátíu mörk
að meðaltali í leik. Ég átti samt von á
því að sjá meira skipulag í sóknarleikn-
um, skarpari línur. Það má líka skoða
það að íslenska liðið fékk mjög margar
sóknir á mótinu vegna þess hversu lé-
lega vörn liðið spilaði. Það hjálpaði til
þegar litið er á mörkin sem skoruð
voru. Viggó treysti á Dag og ef hann er
að fara fram á að hann stjórni leiknum
en skori ekki eða ógni mikið þá var
Dagur að standa fyrir sínu. Ég tel það
hins vegar hafa verið mistök að taka
ekki Snorra Stein með því hann er
kominn með mikla reynslu.“
Þjálfarinn: „Viggó átti að gera sér
betur grein fyrir veikleikum sínum sem
þjálfari. Ég held að hann hafi gert mis-
tök með því að ráða Bergsvein sem að-
stoðarmann sinn. ég segi þetta með
fullri virðingu fyrir Bergsveini en hann
hefði nýst betur sem markvarðaþjálfari
eingöngu. Viggó var með háleit mark-
mið fyrir mótið, sýndi mikinn metnað
og stefndi á eitt af sex efstu sætunum.
Hann misreiknaði sig illilega og ég
held að hann hafi færst fullmikið
í fang. Viggó þarf að svara þeirri
spurningu hvort hann hafi
verið að ná því besta út úr
mannskapnum. Að mínu
mati var hann ekki að gera
það. Varnarleikurinn hefði
getað verið betri og sú stað-
reynd að liðið var ekki á meðal tólf
efstu segir okkur að honum tókst það
ekki.“
Leikmenn: „Ungu strákarnir stóðu
upp úr. Mér fannst tveir óreyndir leik-
menn, Markús Máni Michaelsson og
Alexander Petersson, standa sig frá-
bærlega vel. Arnór Atlason sýndi að
hann á vel heima í þessum hópi og
Guðjón Valur Sigurðsson og Róbert
Gunnarsson skiluðu sínu. Markverðirn-
ir komust einnig ágætlega frá sínu.
Einar Örn Jónsson fann sig ekki og
Ólafur Stefánsson hefur oft verið betri.
Ég held að það hafi ekki verið spurn-
ing um líkamlegt eða handboltalegt
form hjá honum heldur að hann
hafi ekki verið tilbúinn andlega. Það
er eins og það hafi verið rétt sem
hann sagði eftir ólympíu-
leikana að hann væri orð-
inn leiður. Hann var
ekki hungraður. Mér
fannst hins vegar leik-
menn leggja sig alla
fram en samæfing-
in var ekki til staðar.“
Niðurstaða mótsins: „Það eru von-
brigði en ekki alls enginn heimsendir
að komast ekki áfram í milliriðla. Það
versta er að við getum hugsanlega
endað sem B-þjóð en mér sýnist við
sleppa fyrir horn í þetta skiptið. Við
megum hins vegar ekki við annarri
slakri keppni. Þá getur farið fyrir okkur
eins og Norðmönnum sem hafa verið
með frábært landslið undanfarin ár án
þess að komast á stórmót. Það tekur
lið oft langan tíma að komast á meðal
þeirra bestu eftir að hafa
dottið út.“
Hvað tekur við? „Ég
hef mikla trú á Viggó sem
þjálfara og tel hann vera
fullfæran um að koma Ís-
landi á meðal átta bestu lands-
liða heims eins og markmið
HSÍ er. Það verða varla miklar
breytingar á liðinu á næstunni.
Dagur er reyndar að hugsa sín
mál en Ólafur ætlar að halda
áfram sem er auðvitað mjög
gott. Viggó þarf að finna öfluga
varnarmenn og reyna að sníða
vörnina að þeim leikmönnum
sem hann hefur. Það er fullt af
ungum mönnum í liðinu sem geta náð
mjög langt. Það býr fullt í þessu liði og
nú er það Viggós að ná því besta út úr
liðinu.“
GEIR SVEINSSON
SÉRFRÆÐINGUR FRÉTTABLAÐSINS
SPÁÐ Í SPILIN
ÍSLAND ENDAÐI Í 15.
SÆTI Á HM Í TÚNIS SEM
LAUK HJÁ ÍSLENSKA
LIÐINU UM HELGINA.
Liðið féll á varnarleiknum á þessu móti