Fréttablaðið - 31.01.2005, Blaðsíða 66
MÁNUDAGUR 31. janúar 2005
Með Fréttablaðinu
alla fimmtudaga
Vi› segjum fréttir
Kristinn Júníusson hefur
lengi verið í tónlistarbransan-
um hér heima. Hann er bróðir
söngkonunnar Móeiðar Júní-
usdóttir sem hefur látið að sér
kveða vel og lengi og sjálfur
hefur hann verið meðlimur
rokksveitarinnar Vínyl í átta
ár ásamt tvíburabróður sínum
Guðlaugi. Hefur sveitin vakið
athygli bæði hér heima og er-
lendis fyrir töffaralegan stíl
sinn.
„Brilliant“
„Það er brilljant að
vera búinn með plöt-
una og gaman að sjá
hana koma út,“ segir
Kristinn um fyrstu
plötu sveitarinnar,
LP, sem hefur verið í
tæp tvö ár í vinnslu.
Þegar Vínyll var
stofnuð árið 1997
spilaði sveitin rokk í
sinni einföldustu
mynd, eins og Krist-
inn orðar það.
Undanfarin ár hefur
hún þó þróast áfram
og farið meira út í
hljómborðs- og
e f f e k t a p æ l i n g a r.
„Við komum dálítið
hver frá sínum
staðnum músíklega,“
segir Kristinn sem
hlustaði mikið á
Chuck Berry í æsku.
„Við erum að reyna
að finna það sem
okkur finnst spennandi sam-
an, það er svona aðaltilgang-
urinn með þessu. Annars kom-
um við eiginlega beint úr bíl-
skúrnum í Kópavogi þar sem
við vorum að reykja sígarett-
ur og drekka landa. Þess
vegna er maður í hljómsveit,
það er einhvern veginn eðli-
legt umhverfi fyrir okkur. En
við erum samt miklir músík-
áhugamenn og spenntir fyrir
því að spila músík.“
Hugrekki er nauðsynlegt
Eftir að Vínyll hafði verið
starfandi í tvö og hálft ár tóku
þeir félagar pásu og fóru að
spila með Móeiði Júníusdóttur
undir nafninu Lace. Sveitin
fór m.a. í tónleikaferð um
Bandaríkin og gaf út plötu
sem lítið var fylgt eftir.
Fyrir tæpum tveimur árum
kom Vínyll aftur fram á sjón-
arsviðið og gaf út EP-plötuna
Vínyl. Hafði hún m.a. að
geyma lögin Nobody’s Fool,
Miss Iceland og Who Gets the
Blame, sem nutu mikilla vin-
sælda hér á landi. Síðan þá
hefur lítið heyrst til sveitar-
innar þar til nú. Kristinn, eða
Kiddi eins og hann er kallað-
ur, segir að sveitin hafi þróast
töluvert síðan þá, enda sé það
afar mikilvægt að staðna ekki
í tónlistinni. Nauðsynlegt sé
að sýna hugrekki. „Ég skil
ekki sum bönd sem eru búin
að ganga í 15 ár og búin að
gera sömu plötuna tíu sinnum
í röð. Mér finnst það hálf-
fáránlegt og einkennandi
fyrir hræðslu.“
Útsendarar í Texas
Vínyll spilar á tónlistarhátíð-
inni SXSW í Texas í mars
ásamt íslensku sveitunum Ske
og Ampop og hlakkar Kiddi
mikið til þeirrar ferðar.
Einnig eru fyrirhugaðir
tvennir tónleikar í Los Angel-
es í sömu ferð.
Hann segir íslenska tónlist-
armarkaðinn erfiðan. „Við
erum búnir að vera hérna
heillengi og það er takmarkað
hægt að gera á Íslandi. Við
erum búnir að upplifa ýmsa
hluti sem eru kannski ekkert
spennandi eftir tíu ár. Þá lang-
ar þig kannski að fara eitt-
hvert annað. Þú
sérð sjálfan þig
kannski ekki sem
einhverja æðislega
poppstjörnu, heldur
er það bara spenn-
andi fyrir þig sem
persónu að fara
nýjar slóðir.“
Að sögn Kidda
munu útsendarar
einhverra plötu-
fyrirtækja fylgjast
með frammistöðu
þeirra í Texas.
„Hvað sem verður
úr því þá breytir
það kannski ekkert
lífi okkar mikið. Við
fáum kannski pen-
ing til að gera eitt-
hvað í smá tíma og
fáum tækifæri til
að ferðast.“
Hlýðir ekki skipun-
um
Hvað varðar metnað Vínyls
segir Kiddi aðalatriðið að
menn hafi gaman af hlutunum
og heimsfrægð sé ekki tak-
markið. Hann segist ávallt
hafa farið sínar eigin leiðir og
eigi erfitt með þóknast öðr-
um. „Það er náttúrulega nóg
af drasli sem er framleitt
fyrir markaðinn. Ég sé bara
ekki alveg sjálfan mig þannig
fyrir mér. Ég hef aldrei verið
góður í því að gera það sem
aðrir segja mér að gera.“
Útgáfutónleikar Vínyls
vegna nýju plötunnar verða
haldnir á Gauki á Stöng á
fimmtudaginn, sama dag og
platan kemur út. Frítt er inn
og opnar húsið klukkan 21.00.
freyr@frettabladid.is
Spennandi að
fara nýjar slóðir
Eftir langa bið gefur hljómsveitin Vínyll á fimmtudag út sína
fyrstu plötu, hún ber heitið LP. Fréttablaðið ræddi við söngvarann
Kristin Júníusson um hljómsveitina, upprunann og metnaðinn.
VÍNYLL Kristinn Júníusson, í miðjunni, og félagar í Vínyl gefa út sína fyrstu stóru plötu á fimmtudag.
LP Platan LP er loksins komin út
eftir að hafa verið tvö ár í vinnslu.
VÍNYLL
Söngur: Kristinn Júníusson
Gítar: Egill Tómasson
Bassi: Arnar Snær Davíðsson
Hljómborð: Þórhallur Bergmann
Trommur: Guðlaugur Júníusson