Fréttablaðið - 31.01.2005, Page 16
Skyldi margt fólk bera ástarhug
til bílsins síns? Maður hefur að
vísu heyrt um fólk sem fær
kynörvun af snertingu við efni
sem að hætti Pavlovhundanna
breytist úr áminningu um hold í
sjálfan örvunargjafann. Ýmsir
ástar- og lostavakar eru til á
þessum tímum hinnar miklu örv-
unarmettunar þar sem lík-
neskjan kemur í stað þess sem
hún átti upphaflega að tákna – en
er bílkynhneigð virkilega svona
útbreidd?
Förum við bráðum að fá bæk-
ur sem hafa að geyma hjarta-
skerandi ástarsögu ungrar
stúlku og bíls? Hvað segja sál-
fræðingar?
Kvölds og morgna dynja á
okkur bílaauglýsingar – eins og
guðsorð á fólki 18. aldarinnar.
Sérhver Íslendingur horfir
sennilega að meðaltali á þrjár
slíkar á kvöldi. Yfirleitt eru
þetta jeppar að böðlast yfir óbrú-
aðar ár – með þeim merkilega ár-
angri að bílafloti landsmanna
miðast einkum við slík ferðalög
sem sýnir hvað hægt er að telja
fólki trú um með markvissri inn-
rætingu. Að undanförnu hefur
hins vegar dunið á okkur auglýs-
ingaherferð um bíla þar sem
gengið er fram af manni á
óþyrmilegri hátt en nokkurri
skáldsögu eftir hneyksliþurfi
ungskáld tekst að gera.
Hér segir af bílkynhneigðu
fólki, manneskjum sem kjósa að
elska kaldan málm bílsins og vél-
ræna skilyrðingu hans fremur en
að það treysti sér í það flókna
samspil andstæðra kennda sem
samband við aðra manneskju
krefur okkur um. Þetta er bíllinn
Gosi, í hann er blásið lífsanda og
honum gefnir mennskir eigin-
leikar. Það er nýtt: í samsvarandi
auglýsingum hafði fjölskyldu-
bíllinn áður hlutverk hins vina-
lega fjölskylduhunds og var
sýndur sem kátur og góður auka-
meðlimur – en hér er bíllinn bú-
inn að ryðja út sjálfri fjölskyld-
unni í tilfinningalífi bíleigand-
ans, hann kemur í stað hennar.
Við keyrðum tvö... Auglýsingin
segir: ég er eina stjarnan þín.
Hún segir beinlínis: elskaðu mig.
Svona eru auglýsingarnar:
Gamall slagari gengur – „I bless
the day I found you“ – á meðan
ungar manneskjur sýna kenndir
í garð bíls sem samkvæmt venju-
legum mælikvörðum myndu út-
heimta tafarlausa sálfræðimeð-
ferð: strákur fyllir vegg af
myndum af bílnum sínum, stúlka
á erfitt með að slíta sig frá bíln-
um þar sem hann stendur í bíla-
stæðahúsi og mænir á hann ást-
sjúkum augum sem gefa fyrir-
heit um unað næstu samfunda;
ungur maður hefur innréttað bíl-
skúrinn sinn eins og barnaher-
bergi með máluðum skýjum og
hvaðeina svo að bíllinn sofi nú
vel þar. Á þessu sjúklega atferli
gengur um hríð uns kemur
rjómablíð karlmannsrödd sem
segir eitthvað á þá leið að við vit-
um hversu vænt þér þyki um bíl-
inn þinn – og loks nafn á trygg-
ingarfélagi.
Kannski er þetta ádeila.
Kannski eru hönnuðir að nema
ný og ókunn lönd fáránleika og
smekkleysis í þeirri viðleitni
sinni að deila á það hversu stóran
sess bíllinn skipar í lífi nútíma-
Íslendinga, leiða okkur fyrir
sjónir hversu langt við erum
komin á braut firringar, efnis-
hyggju og hlutadýrkunar:
„Pabbi, elskar þú bílinn meira en
mig?“ „Nei nei, Nonni minn, ég
meina Siggi...“
Bíll í stað manneskju: Þótt
pabbinn sé augljóslega bara að
grínast við hann Sigga sinn (eða
hvað hann heitir) þá er tvískinn-
ungur í þessu: undir lúrir sú hug-
mynd að kannski sé þetta ekki al-
veg fjarri lagi – hann elski að
minnsta kosti bílinn sinn afar
heitt. Og það sé allt í lagi: hann
megi það alveg. Hlutverk auglýs-
ingarinnar virðist vera að göfga
þessar kenndir, segja við fólk að
það sé allt í lagi þótt það eigi auð-
veldara með að tengjast bílnum
sínum tilfinningaböndum en sín-
um nánustu.
Þegar við kaupum okkur bíl –
sem við neyðumst flest til að
gera vegna þess að hér eru ekki
almannasamgöngur þrátt fyrir
dreifða byggð – þá er okkur gert
að kaupa bílatryggingar. Okkur
er líka gert að greiða uppsett
verð fyrir þessar lögboðnu
tryggingar, en sanngirnina og
samkeppnina í því verðlagi sjá-
um við meðal annars á þessum
auglýsingum – að ekki sé talað
um húsakynni tryggingarfélag-
anna. Einhvern veginn finnst
manni að þessi lögvernduðu
okurfélög ættu að minnsta kosti
að sjá sóma sinn í því að hafa
hægt um sig; láta að minnsta
kosti ógert að reyna að menga
hugarfar fólks með herferð sem
lýsa má svona: Ég er bíll þinn og
þú skalt ekki aðra guði hafa...
elska skaltu bílinn þinn umfram
náunga þinn, foreldra, maka eða
börn... ■
M etár er að baki í rekstri íslenskra fjármálafyrirtækjaog hagnaðartölurnar utan skynsviðs meðalmannsinssem glímir við að stemma af tekjur sínar og útgjöld.
Þegar slíkar tölur birtast fer um ýmsa og þeir sjá í tölunum
táknmynd óréttlætis, misskiptingar og græðgi.
Þetta er varhugaverður hugsunarháttur. Stundum virðast
eindregnustu andstæðingar græðgi einmitt vera fórnarlömb
annarrar dauðasyndar sem er öfundin. Öfundin er síst betri en
græðgin í hópi dauðasyndanna sjö. Efling fjármálafyrirtækj-
anna er nefnilega góðar fréttir. Með auknum styrk íslenskra
fjármálafyrirtækja og erlendri útrás þeirra skapast fjölmörg
tækifæri fyrir önnur fyrirtæki í landinu. Ytri skilyrði ársins
2004 voru óvenju hagstæð fyrir fjármálafyrirtækin. Hlutabréf
hækkuðu hér á landi meira en víðast annars staðar í heiminum.
Til framtíðar má ekki búast við viðlíka gengishagnaði og birtist
í uppgjörum bankanna nú. Fyrir þá sem telja að hagnaður eins
sé alltaf á annars kostnað er það huggun að arðsemin af hefð-
bundinni bankastarfsemi eins og hún snýr að almennum við-
skiptavinum er ekkert til að hrópa húrra yfir. Gengishagnaður-
inn einn skýrir ekki gott gengi bankanna og virðast stoðir
rekstrarins traustar og áhættan hefur dreifst milli eignaflokka
og hagkerfa.
Hagnaður bankanna bitnar ekki á neytendum, þvert á móti
hefur þróunin að undanförnu verið sú að íslenskum viðskipta-
vinum bankanna bjóðast nú kjör sem þá gat einungis dreymt
um áður. Ástæðan er sú að með vexti bankanna eykst hag-
kvæmni rekstrarins og styrkur þeirra veitir þeim betri láns-
kjör til þess að fjármagna útlán sín.
Útrás bankanna mun, ef vel gengur, skila þjóðarbúinu út-
flutningstekjum til langframa. Útrásin nú er einnig vel tímasett
útstreymi fjármuna vegna kaupa erlendis og mun vinna á móti
styrkingu krónunnar vegna stóriðjuframkvæmda. Hún virkar
því sem sveiflujöfnun og ef vel gengur mun arður af fjárfest-
ingunni vinna á móti öfgafullri lækkun á gengi krónunnar þeg-
ar spennan í hagkerfinu minnkar við lok stóriðjuframkvæmd-
anna.
Við þetta bætist að íslenskt fjármálakerfi hefur aldrei verið
betur í stakk búið til þess að styðja við uppbyggingu íslensks at-
vinnulífs. Gott dæmi um slíkt er fjármögnun flugvélakaupa
Flugleiða í liðinni viku. Þá urðu þau tímamót að íslenskur banki
lánaði í fyrsta sinn til kaupa á flugvélum. Skip og flugvélar hafa
fram til þessa verið fjármögnuð með lánum í erlendum bönk-
um. Skýring þess er einföld. Til skamms tíma nutu sterk fyrir-
tæki eins og Eimskipafélagið og Flugleiðir betri kjara á erlend-
um mörkuðum en íslensku bankarnir. Nú kemur arður af slík-
um útlánum í vaxandi mæli inn í landið í formi hagsauka hlut-
hafa bankanna, launum starfsmanna og umtalsverðra skatt-
greiðslna.
Staða bankanna nú styður við aðra uppbyggingu í samfélag-
inu og gefur okkur tækifæri til þess að sækja fram á öllum svið-
um í fyrirsjáanlegri framtíð. ■
31. janúar 2005 MÁNUDAGUR
SJÓNARMIÐ
HAFLIÐI HELGASON
Í styrk bankanna felast mikil tækifæri
fyrir íslenskt atvinnulíf.
Gleðjumst með
bönkunum
ORÐRÉTT
Guði sé lof!
Páll ekki á leið í bæjarmálin.
Fyrirsögn fréttar um átök í Fram-
sóknarflokknum. Eiginkona Páls
Magnússonar varaþingmanns stóð
fyrir hallarbyltingu í kvenfélagi
flokksins í Kópavogi.
Fréttablaðið 29. janúar.
En frúin?
Bíll sem rúmar bæði barnið og
golfsettið.
Fylgirit Fréttablaðsins, Allt, segir frá
draumabílnum.
Fréttablaðið 29. janúar.
Enginn spegill á DV?
Róbert Marshall hefur líka sýnt
gott fordæmi. Það væri nú betra
ef menn öxluðu ábyrgð þegar
þeir gera mistök.
Ritstjórnargrein í DV.
DV 29. janúar.
Bara eitt prósent
Ólafur Sigurðsson lýsir stund-
um hörmungum evrópsks efna-
hags í sjónvarpinu. Öll felst
hörmungin í, að hagvöxtur er
rúm 1% í Evrópu en rúm 2% í
Bandaríkjunum.
Jónas Kristjánsson, fyrrverandi rit-
stjóri, er enn á fjölmiðlavaktinni.
DV 29. janúar.
Írak?
Víglína þvert yfir eldhúsborðið.
Árni Snævarr um átök Össurar og
Ingibjargar Sólrúnar í Samfylking-
unni.
Fréttablaðið 29. janúar.
FRÁ DEGI TIL DAGS
Í DAG
SJÚKLEGAR
BÍLAAUGLÝSINGAR
GUÐMUNDUR
ANDRI
THORSSON
Gamall slagari
gengur – „I bless
the day I found you“ – á
meðan ungar manneskjur
sýna kenndir í garð bíls
sem samkvæmt venjulegum
mælikvörðum myndu út-
heimta tafarlausa sálfræði-
meðferð...
,,
Sendu SMS skeytið JA ABF á númerið 1900 og þú gætir unnið. Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
Golden Globe
VERÐLAUN3
tilnefningar til
BAFTA verðlauna
Vinningar eru:
Miðar á myndina • DVD myndir
geisladiskar og margt fleira.
9. hver vinnur.
Bílkynhneigð
Kappsemi
Mál Roberts Marshall, fréttamanns á
Stöð tvö, er ekki fyrsta eða eina dæmið
um að kappsemi í fréttaflutningi hafi
leitt fjölmiðil í ógöngur. Rifjast í því
sambandi upp fræg frétt Morgunblaðs-
ins 18. desember 1971 af ræðu sem
Einar Ágústsson, þáverandi utanríkis-
ráðherra, átti að hafa flutt á lokuðum
ráðherrafundi NATO í Brussel 10. des-
ember. Óli Tynes, blaðamaður Morgun-
blaðsins, sem þar var staddur, taldi sig
hafa komist yfir ræðu ráðherrans og
þegar hann las hana sá hann að hún
geymdi stórtíðindi. Einar Ágústsson
virtist hlynntur áframhaldandi dvöl
varnarliðsins gagnstætt opinberri
stefnu þáverandi vinstri stjórnar sem
ætlaði að segja varnarsamningnum
upp.
Stórfrétt á forsíðu
Morgunblaðið greindi frá tíðindunum
með stríðsletri yfir þvera forsíðuna og
Óli Tynes hafði eftir Joseph Luns, fram-
kvæmdastjóra NATO, og William Rogers,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að þeir
væru stóránægðir með ræðu Einars.
Fjallað var um málið í leiðara Morgun-
blaðsins sama dag og síðan einnig í
Reykjavíkurbréfi. Gleði Morgunblaðs-
manna var fölskvalaus en að sama skapi
var órói í röðum vinstri manna. Ætlaði
Framsókn virkilega að svíkja? Hvað var
að gerast?
Röng ræða
Málið fékk snautlegar lyktir á Þorláks-
messu. Birti Morgunblaðið þá yfirlýsingu
frá utanríkisráðuneytinu þar sem kom
fram að nýráðin skrifstofustúlka íslenska
sendiráðsins í Brussel hefði óvart afhent
Óla Tynes drög að ræðu utanríkisráð-
herra – en gallinn var sá að þarna var
um ársgömul drög að ræða frá fyrrver-
andi utanríkisráðherra, Emil Jónssyni,
sem var eindreginn stuðningsmaður
varnarsamstarfsins. Óli Tynes hafði hins
vegar samið frétt sína í góðri trú, enda
vandaður fréttamaður. Hann hafði meira
að segja þurft að bíða í rúma viku með
„skúbbið“ því prentaraverkfall stöðvaði
útgáfu dagblaða frá 6. til 18. desember
1971. Ritstjórar Morgunblaðsins höfðu
því drjúgan tíma til að vega og meta
fréttina. Og að gefnu tilefni skal upplýst
að enginn tók pokann sinn vegna þessa
máls.
gm@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐAL-
SÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA:
Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871